Morgunblaðið - 25.04.1987, Blaðsíða 92
Fróóleikur og
skemmtun
fyrir háa sem lága!
LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1987
VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR.
Stöð 2 með
skoðana-
.könnun á
“kjörstað
STÖÐ 2 verður með skoðana-
könnun við kjörstaði í Reykjavík
og á Reykjanesi fram eftír degi
í dag. Kjósendur verða spurðir
um það hvaða flokki þeir hafi
greitt atkvæði sitt og einnig
verður spurt um hvort menn vilji
leyfa sölu á áfengum bjór hér á
landi.
„Við munum birta niðurstöður
könnunarinnar í kvöldfréttatíma kl.
19:30 og hafa þær til hliðsjónar í
fyrstu kosningaspá í kosningasjón-
varpi um kvöldið," sagði Páll
■ 3£agnússon fréttastjóri.
Þeir sem taka þátt í könnuninni
fá atkvæðaseðil og merkja við þann
flokk sem þeir greiddu atkvæði sitt
og skila í kjörkassa. Könnunin verð-
ur gerð við 10 kjörstaði og má
vænta þess að þátttakendur skipti
þúsundum.
Rússneskt njósnadufl á Ströndum
RÚSSNESKT fjarskiptadufl
fannst í Rekavík á Horn-
ströndum í vikunni. Gylfi
Geirsson, sprengjusérfræð-
ingur Landhelgisgæslunnar,
kannaði duflið í gær og gekk
frá því til flutnings. Það var
síðan flutt með þyrlu Varn-
arliðsins til nánari skoðunar
hjá Varnarliðinu.
Gylfí sagði að þetta dufl
væri frá rússneskum kafbáti
og hefðu svona dufl áður fund-
ist rekin hér við land, síðast
við SkarðsQöru fyrir tveimur
árum. Gylfí sagði að duflið
væri um það bil 2 metrar á
lengd og 60 cm í þvermál.
LjÓ8mynd: Gylfí Geirsson
Vamarliðsmenn skoða rússneska „njósnaduflið", sem fannst í Rekavík á Ströndum.
Múrarafélag
^Reykjavíkur:
Samning-
arnir sam-
þykktir
FJÖLMENNUR félagsfundur í
Múrarafélagi Reykjavíkur sam-
þykktí í gær nýgerða kjarasamn-
inga við vinnuveitendur með
miklum meirihluta eða 71 at-
kvæði gegn 16. Tveir seðlar voru
^uðir.
Helgi Steinar Karlsson, formaður
Múrarafélagsins, sagði að samning-
amir fælu í sér 12,8% hækkun á
ákvæðisvinnu frá og með 1. apríl.
Áfangahækkun kemur 1. október,
eins og í samningum ASÍ og VSÍ,
en samningurinn gildir til 31. des-
ember. Þá varð samkomulag um
útfærslu á vinnusvæði og verður
nú allt Stór-Reykjavíkursvæðið eitt
vinnusvæði. Þá fylgja samningnum
bókanir varðandi ýmis atriði.
TF-KEM varð bensínlaus
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, fluttí i fyrradag Egilsstaða-
flugvélina TF-KEM af nauðlendingarstað í Smjörfjöllum til
Vopnafjarðar, þar sem vélin var rannsökuð og tekin í sundur.
Myndin var tekin þegar þyrluáhöfnin var að festa taugar á milli
þyrlunnar og flugvélarinnar á nauðlendingarstaðnum. Rannsókn
flugslysanefndar sýndi að flugvélin var eldsneytíslaus og er það
ástæða þess að mótor flugvélarinnar stöðvaðist á leið hennar frá
Vopnafirði til Egilsstaða.
Sjá frétt á blaðsíðu 40.
Vertíðin hefur verið
hörmung eftir páska
- segir Þórður skipsljóri á Höfrungi II
„FISKIRÍIÐ eftir páska hefur
verið hrein hörmung. Menn hafa
verið að flengjast um allan sjó
með netin til að leita að fiski og
nánast ekkert fengið. Miðin virð-
ast alveg sviðin og full ástæða
tíl að fara að huga að þvi, að
lofa einhveiju af þorskinum að
hrygna áður en við drepum hann.
Annars virðist manni lítíl framtíð
í veiðunum,“ sagði Þórður
Pálmason, skipstjóri á Höfrungi
II, í samtali við Morgunblaðið.
Er Morgunblaðið náði sambandi
við Þórð var hann í Meðallands-
bugtinni og sagði að þar væri aðeins
vottur af ýsu og þorski. Grindvík-
ingamir hefðu allir lagt á Selvogs-
bankanum eftir páskastoppið og
nánast ekkert fengið. Einn bátur
hefði verið með 14 tonn, þar af
helming ýsu og annar með 9. Hinir
hefðu verið með 3 til 5 tonn. Á
föstudag virtist þetta ekkert skárra
þó menn hefðu ekki nennt á sjó á
sumardaginn fýrsta til að draga.
Menn hefðu ekki séð að það borg-
aði sig og því flestir dregið
hörmungina tveggja nátta.
„Við verðum að lofa einhveiju
af þorskinum að lifa,“ sagði Þórð-
ur. „Nú drepur hann hver sem
mögulega getur og því stefnir í
það, að trollið verði notað til að
taka síðustu tittina. Ef þetta er
stofninn, sem Jakob Jakobsson ætl-
ar að láta vaxa upp, lízt mér ekki
á blikuna. Mér virðist sem það
megi afskrifa Selvogsbankann sem
veiði- og hrygningarsvæði. Þangað
kemur varla nokkur þorskur og því
þarf að friða svæðið betur. Þetta
er þvi miður ekkert spennandi leng-
ur,“ sagði Þórður Pálmason.