Morgunblaðið - 25.04.1987, Blaðsíða 79
MORGUNBLAÐIÐ; LA'UGARDAGUR 25. APRÍL 1987 '
AP
Konur við
stjórnvölinn
I* hóp flugmanna breska flugfé- Heathrow flugvelli í London um
lagsins „British Airways" borð í Júmbóþotu. Ljmn, er fór í
munu á næstunni bætast 3 konur sitt fyrsta flug sem fullgildur flug-
þær Jill Davelin, Wendy Bames maður sl. þriðjudag, er fyrsta
og Lynn Barton (frá vinstri talið) konan er fær réttindi í Bretlandi
og var myndin tekin nýlega á til að fljúga Boeing 747 þotu.
BIFRÓVISION1987
Nemendur í Samvinnuskólanum
í Bifröst halda árlega söng-
lagakeppni, er þeir nefna Bifróvisi-
on. Hefst undirbúningur í janúar
þegar kosin er undirbúningsnefnd
og tekin er ákvörðun um ýmis at-
riði s.s. hvernig sviðsmyndin verður
og búningar kynnis og hljómsveitar
valdir, en reynt er að hafa slíkt sem
frumlegast. í byijun febrúar aug-
lýsir hljómsveitarstjórinn eftir
keppendum, sem skila inn snældum
með því lagi er þeir hyggjast flytja
og eru það venjulega þekkt dægur-
lög. Hver keppandi fær sér síðan
umboðsmann er annast öll sam-
skipti við hljómsveitina og auglýsir
sinn umbjóðanda grimmt undir
listamannsnafni, því enginn má vita
hveijir keppendumir em fyrr en
keppnin sjálf fer fram. Sá umboðs-
maður er þykir hafa staðið sig best
fær síðan sérstaka viðurkenningu.
Hljómsveit skólans í ár heitir
„Skræpótti fuglinn" og er nafnið
fengið að láni frá sovéska rithöf-
undinum Jerzy Kosinsky. Sveitina
skipa þeir Jón A. Freysson, sem
einnig er hljómsveitarstjóri, Heiðar
I. Svansson, Svanur Kristbersson,
Gunnlaugur Kristinsson og Jón
Magnússon. Kynnir í ár var Jóhann-
es Már Jóhannesson fyrrverandi
Samvinnuskólanemi, var hann
klæddur sem sjóræningjaforingi og
hljómsveitarmeðlimir sem sjóliðar.
Sviðið var síðan hannað sem sjó-
ræningjaskip.
Ahorfendur í salnum skipa dóm-
nefndina í hvert sinn og gáfu í þetta
skipti dúettinum „The Two Co-
bras“, sem Agnes Vala Tómasdóttir
og Hrefna Biyndís Jónsdóttir skip-
uðu, flest stig. Þær' fluttu lagið
„Kyrie", sem þekkt er í flutningi
bandarísku hljómsveitarinnar Mr.
Mister. Í öðru sæti var Inga Vala
Jónsdóttir og í því þriðja Amhildur
G. Guðmundsdóttir og Elín Ólafs-
dóttir. Hlutu sigurvegamir farand-
bikar og glæsilega verðlaunapen-
inga.
Kynnirinn og hljómsveitarmeðlimir voru hinir vígalegustu.
D-listinn
er listi
FYRIR FRAMTHMIVA