Morgunblaðið - 31.05.1987, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 31. MAÍ 1987
49
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Kennarar óskast
að grunnskóla Vopnafjarðar. Helstu kennslu-
greinar: Almenn kennsla, raungreinar og
íþróttir. Húsnæðisfríðindi í boði.
Upplýsingar veitir skólastjóri í síma 97-3218.
Skóianefnd.
Frá Grunnskólanum
í Sandgerði
Okkur vantar kennara til starfa næsta haust,
einkum í 7. og 8. bekk.
Húsnæðisstyrkur, dagheimilispláss.
Umsóknarfrestur til 15. júní.
Upplýsingar gefa Jórunn Guðmundsdóttir,
sími 92-7620 og 92-7601, Guðjón Þ. Kristj-
ánsson, sími 92-7436 og 92-7610, og Ásgeir
Beinteinsson sími 92-7801.
Heilbrigðisfulltrúi
Starfsmann vantar í fullt starf sem heilbrigð-
isfulltrúi. Starfssvæðið er Mosfellsumdæmi
og Seltjarnarneskaupstaður.
Ætlunin er að sameina umdæmi heilbrigðis-
nefnda Mosfellsumdæmis og Seltjarnarnes-
kaupsstaðar í eitt eftirlitssvæði og yrði
heilbrigðisfulltrúinn framkvæmdastjóri þess
svæðis.
Upplýsingar veita sveitarstjóri Mosfells-
hrepps (sími 666218), bæjarstjóri Seltjarnar-
neskaupstaðar (sími 612100) og Jón Zimsen
form. heilbrigðisnefndar Mosfellsumdæmis
(vs. 38331).
Umsóknir sendist til Svæðisnefndar, c/o Jón
Zimsen, Hlégarði, Mosfellssveit, 270 Varmá,
fyrir 19. júní 1987.
í umboði Svæðisnefndar,
Heiibrigðisnefnd Mosfellsumdæmis,
Heilbrigðisnefnd Seitjarnarneskaupstaðar.
Hvanunstang-a
hreppur
Kennarar — fóstrur
Hvammstangahreppur óskar eftir að ráða
eftirtalið starfsfólk:
Kennara við grunnskólann. Einkum til
kennslu í raungreinum og tölvufræði en ann-
að kemur til greina. í skólanum eru u.þ.b.
160 nemendur og er andi meðal starfsfólks
og nemenda góður.
Upplýsingar veitir Flemming Jessen skóla-
stjóri í símum 95-1367 og 1368.
Forstöðukonu við
leikskólann.
Fóstru við
leikskólann.
Upplýsingar veitir sveitarstjóri í síma
95-1353.
Hvammstangi er miðja vegu milli Reykjavíkur
og Akureyrar og er u.þ.b. 3 klst. akstur í
hvora áttina sem er. Staðurinn er þjónustu-
miðstöð fyrir V.-Húnvetninga, en með
vaxandi útgerðarstarfsemi. Þar er ný heilsu-
gæslustöð, hótel og sundlaug og nýlega
hefur viðbygging við grunnskólann verið tek-
in í notkun. Á Hvammstanga búa nú tæplega
700 manns og hefur staðurinn vaxið ört
síðustu ár.
Bókband — aðstoð
Óskum eftir að ráða aðstoðarfólk í bókband.
Einnig bókbindara eða röskan nema.
Prentsmiðjan Edda,
Smiðjuvegi 3, Kópavogi,
sími45000.
Rafmagns-
iðnfræðingar
Rafmagnsveita Reykjavíkur óskar eftir að
ráða rafmagnsiðnfræðing til eftirlitsstarfa
(veitueftirlit) í innlagnadeild fyrirtækisins.
Nánari upplýsingar veitir starfsmannastjóri
í síma 686222.
Umsóknarfrestur er til 9. júní nk.
RAFMAGNSVEITA
REYKJAVÍKUR
Kennarar
— kennarar
Kennara vantar á Akranes:
Við Brekkubæjarskóla: Sérkennarar við deild
fjölfatlaðra, almenna kennara, smíðakennara.
Upplýsingar veita skólastjóri Viktor Guðlaugs-
son, vinnusími 93-1388, heimasími 93-2820,
yfirkennari Ingvar Ingvarsson, vinnusími
93-2012, heimasími 93-3090.
Við Grundaskóla: Sérkennara, almenna
kennara, kennara á bókasafn.
Upplýsingar veita skólastjóri Guðbjartur
Hannesson, vinnusími 93-2811, heimasími
93-2723 og yfirkennari Ólína Jónsdóttir
vinnusími 93-2811, heimasími 93-1408.
Umsóknarfrestur er til 10. júní.
Skólanefnd.
HAFNARHREPPUR
Kennarar athugið!
Heppuskóli, Höfn:
Enskukennara vantar í 7.-9. bekk.
Hafnarskóli, Höfn:
Almennar kennarastöður.
Hafnar- og Heppuskóli, Höfn:
Vantar sérkennara og íþróttakennara.
Ódýrt húsnæði. Flutningsstyrkur o.fl.
Upplýsingar í síma 97-81321 eða 97-81148.
Skólastjórar.
==f^ j FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ Á ÍSAFIRÐI
Meinatæknar
— meinatæknar
Óskum að ráða nú þegar:
★ Meinatækna
Nánari upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í
síma 94-3014 eða 94-3020 alla virka daga
milli kl. 8.00 og 16.00.
Fulltrúi
framkvæmdastjóra
til starfa hjá öflugu fjármálafyrirtæki í
Reykjavík.
★ Starfið
felur í sér samskipti við viðskiptavini, ráð-
gjöf, samningagerð, fjármálastjórn, umsjón
með bókhaldi o.fl. Sjálfstætt og krefjandi
starf með mikla framtíðarmöguleika. Laust
strax eða eftir nánara samkomulagi.
★ Fulltrúinn
þarf að vera með háskólamenntun á við-
skiptasviði, æskileg sérhæfing af fjármála-
endurskoðunarsviði. Hann þarf að geta unn-
ið sjálfstætt og eiga gott með samskipti.
Nánari upplýsingar veitir Holger Torp.
Umsóknum skal skilað á skrifstofu okkar fyr-
ir 10. júní.
Starfsmannastjórnun
Ráöningaþjónusta
FRUm
Sundaborg 1-104 Reykjavík - Símar 681888 og 681837
Vinnuskóli
Reykjavíkur
Leiðbeinandi óskast strax til að vinna með
hópi fatlaðra ungmenna. Vinnutími eftir sam-
komulagi.
Upplýsingar í síma 622648 eða hjá Vinnuskól-
anum, ráðningastofu Reykjavíkurborgar,
Borgartúni 3.
Vinnuskóli Reykjavikur.
TÓNLISTARSKÓLINN Á AKUREYRI
Hafnarstræti 81, simi 21460 - 21788.
Tónlistarkennara-
stöður
Stöður flautukennara og sellóleikara eru
lausar til umsóknar. Heilsársráðning frá 1.
september 1987.
Mikið hljómsveitarstarf og ýmiskonar mögu-
leikar fyrir áhugasamt tónlistarfólk.
Nánari upplýsingar veita:
Jón Hlöðver Áskelsson (skólastjóri), sími
96-21460 (skóli), 96-23742 (heima) og Freyr
Ófeigsson (form. skólanefndar), sími
96-26900 (vinna).
Dagvistarstofnanir Selfoss
Lausar stöður
Forstaða við leikskólann Glaðheima, forstaða
við leikskólann/dagheimilið Ásheima, fóstru-
menntun áskilin.
Nánari upplýsingar eru veittar á félagsmála-
stofnun Selfoss, sími 99-1408. Umsóknum
skal skilað til félagsmálastofnunar Selfoss,
Eyrarvegi 8, 800 Selfossi í síðasta lagi þann
30. júní 1987.
Félagsmálastóri.