Morgunblaðið - 31.05.1987, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 31. MAÍ 1987
61
emréttlausn
- annað er eftirlíking og/eða gamlar nýjungar
Kannir þú máliö ofan í kjölinn
verður niöurstaöan óhjákvæmilega
Wang PC tölva í nútíö og framtíð
Wang PC tölvan býöur upp á
eftirfarandi:______________________
• Fullkomiö áætlana og
bókhaldskerfi
• Wang ritvinnslu
• DOS - stýrikerfi
• Valmyndakerfi
• Stækkunarmöguleikar
• Alíslenskt lyklaborö
WANG
<$>
Heimilistæki hf
■ ■ TOLVUDEILD - SÆTUN 8 - SIMI: 27500
r --rr—;
Finnsk ríkis-
fyrirtæki
áhluta-
bréfamarkað
Helsinki, frá Lars Lundsten, fréttaritara
Morgunblaðsins.
ILKKA Suominent iðnaðarráð-
herra Finnlands, tilkynnti á
fimmtudag að ráðuneyti hans
væri að undirbúa skýrslu um
hvemig selja mætti hlutabréf í
nokkmm helstu ríkisfyrirtækj-
um landsins. Samkvæmt tillögum
ráðherrans er ætlast til þess að
ríkisfyrirtæki finni áhættufé á
frjálsum markaði eins og önnur
fyrirtæki.
Hingað til hafa aðeins verið til
sölu hlutabréf í einu fínnsku ríkis-
fyrirtæki. Almenningur hefur
fengið að kaupa og selja hluti í
Enso-Gutzeit, sem er eitt af helstu
tréiðnaðarfyrirtækjum landsins. en
ríkið hefur ekki selt sinn hlut allan,
þannig að iðnaðarráðuneytið hefur
haft tryggan meirihluta atkvæða á
aðalfundum félagsins.
Stefna núverandi ríkisstjómar
hægri manna og jafnaðarmanna er
að ríkisfyrirtækin eiga að fá sem
minnst hlutafé og áhaettufíármagn
úr ríkissjóði. Þau fyrirtæki, sem eru
ekki rekin beinlínis í því skyni að
spoma gegn atvinnuleysi eiga að
mati ríkisstjómarinnar að keppa á
fjármálamarkaðinum eins og önnur
stórfyrirtæki. Ukka Suominen, iðn-
aðarráðherra og formaður Hægri
flokksins, er ekki þeirrar skoðunar
að koma eigi ríkisfyrirtækjum al-
gjörlega í einkaeign eins og t.d. á
Bretlandi.
Fóstbræður í alþjóð-
legri söng'keppni
Frá Sigrúnu Björnsdóttur, fréttaritara Morgunbladsins í Þýskalandi.
Karlakórinn Fóstbræður sem nú er staddur i Þýskalandi og tekur þar þátt í alþjóðlegri tónlistarhátíð.
FYRIR allar aldir á miðvikudags-
morgun lagði Karlakórinn
Fóstbræður upp í söngferðalag
til Mið-Evrópu, nánar tiltekið til
Vestur-Þýskalands, _ Austurríkis
og Ungveijalands. í Þýskalandi
er meiningin að taka þátt í al-
þjóðlegri tónlistarhátíð og
kórakeppni, „Harmonie festiv-
al“, sem fer fram í Lindenholz-
hausen, smábæ í nágrenni
Limborgar.
Um 8.500 þátttakendur syngja,
leika á hljóðfæri og dansa á þess-
ari listahátíð og er búist við 10.000
erlendum gestum til að njóta þess
sem fram fer á hátíðinni.
Listahátíðin í Lindenholzhausen
stendur yfír í fjóra daga. Að henni
lokinni halda Fóstbræður til Aust-
urríkis.
Á hvítasunnudag halda þeir tón-
leika fyrir Vínarbúa í Karlskirkju.
Frá Vín fara þeir svo til Ungveija-
lands og halda þar tónleika.
Með í förinni em eiginkonur kór-
manna, enda er ekki svo lítið að
skoða á leiðinni þeirri arna. Ekið
er frá Luxemborg gegnum Móseldal
og niður Rínardal hjá Koblenz og
þaðan sem leið liggur um fegurstu
svæði Austurríkis og Ungveija-
lands. Kórmenn og frúr þeirra
dvelja meðan á listahátíðinni stend-
ur í Lindenholzhausen sem stendur
á undurfögrum stað á Rínarbökkum
í nágrenni Koblenz þar sem heitir
Bad Ems. Bera húsin þar hátignar-
leg heiti, sum hver, er bera vott
um gesti þá sem vöndu komur sínar
á staðinn hér áður fyrr sér til hugar-
hægðar og heilsubótar.
Það eru rúmlega fjörutfu kór-
menn sem taka þátt í förinni og
eru þar á meðal allmargir nýir söng-
menn. Einsöngvari kórsins að þessu
sinni er komungur tenórsöngvari,
Gunnar Guðbjömsson, sem hefur
reyndar þegar getið sér gott orð á
eriendri grund, er hann söng með
litlum kór einsöngvara á Norður-
löndum í fyrra. Píanóleikari með
kómum er Jónas Ingimundarson
og stjómandi Ragnar Bjömsson.
Það sakar ekki að geta þess,
svona í lokin, að kórinn var ekki
fyrr stiginn úr flugvélinni á Luxem-
borgarflugvelli en ekið var með
hann beint inn í hjarta borgarinnar
að torgi því sem heitir Platz der
Arms, þar sem þeir tóku lagið af
hjartans list, íslendingafélaginu í
Luxemborg og öðmm þeim er
staddir vom á torginu í það sinn,
til upplyftingar og veitti ekki af í
rysjungnum þama suðurfrá, en það
er nú ekki von að alls staðar sé
íslensk veðrátta.