Morgunblaðið - 02.06.1987, Page 1
88 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
122. tbl. 75. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 1987
Prentsmiðja Morgnnblaðsins
V estur-Þýskaland:
Stjórnin samþykkir
afvopnunartillögur
Bonn, Reuter.
SAMSTEYPUSTJÓRN Helmuts
Kohl, kanslara Vestur-Þýska-
lands, hefur fallist á tillögur
risaveldanna um upprætingu
meðaldrægra og skammdrægra
kjarnorkuflauga í Evrópu. Til-
kynning þessa efnis var birt í
gær og hefur þar með verið
bundinn endi á harðvítugar deil-
ur innan stjórnarinnar. Kohl
kanslari mun skýra nánar frá
afstöðu stjórnarinnar á fimmtu-
dag.
Persaflói:
Sovétmenn
aðvara Irani
Bahrain, Washington, Reuter.
HÁTTSETTUR embættismaður I
sovéska utanrikisráðuneytinu
sagði í gær að sérhverri árás ír-
ana á sovésk skip á Persaflóa yrði
svarað af fullri hörku. Spenna fer
vaxandi á þessum slóðum.
íranir tilkynntu á sunnudag að
þeir hefðu náð hraðbátum frá Kuwa-
it á sitt vald og sögðu áhafnir þeirra
hafa stundað njósnir í þágu Iraka.
Ronald Reagan Bandaríkjaforseti
hefur heitið því að 11 olfuskip frá
Kuwait sem senn munu sigla undir
bandarískum fána muni njóta vemd-
ar. Reagan gaf í skyn í ræðu í gær
að hann hygðist leita stuðnings
bandamanna Bandaríkjanna í þessu
skyni er leiðtogar sjö helstu iðnríkja
hins ftjálsa heims koma saman til
fundar í Feneyjum í næstu viku.
Sjá einnig forystugrein,
„Spenna magnast á Persaflóa",
á miðopnu blaðsins.
í tilkynningu stjómarinnar sagði
að hún væri fylgjandi upprætingu
meðaldrægra og skammdrægra
kjamorkuflauga en þess var jafn-
framt krafist að samkomulag
risaveldanna tæki ekki til Pershing
la-flauga í Vestur-Þýskalandi.
Flaugar þessar em 25 ára gamlar
og draga allt að 720 kflómetra.
Vestur-þýski flugherinn ræður yfír
þessum skeytum en Bandaríkjaher
ræður á hinn bóginn yfír þeim
kjamaoddum sem unnt er að koma
fyrir í þeim. Þá hvatti stjómin jafn-
framt til þess að hafnar yrðu
viðræður um vígvallarvopn, sem
unnt er að búa kjamorkuhleðslum,
efnavopn og samdrátt í hinum hefð-
bundna herafla risaveldanna.
Stjómin kvaðst telja að eftir að
samið hefði verið um Evrópuflaug-
amar bæri að stefna að helmings-
fækkun langdrægra lqamorku-
flauga í vopnabúram stórveldanna,
banni við framleiðslu efnavopna,
samdrætti í hinum hefðbundna her-
afla risaveldanna frá Atlantshafí til
Uralfjalla og frekari fækkun kjam-
orkuvopna i Evrópu.
íbúar Trípolí, heimaborgar Rashids Karami, hrópuðu „Allah Akbar" (Guð er almáttugur) er þeir báru
kistu hins látna leiðtoga múslima um götur borgarinnar. Á innfelldu myndinni skoða líbanskir hermenn
þyrluna sem sprengjunni var komið fyrir í.
Rashid Karami, forsætisráðherra Líbanons, myrtur:
Búist við nýrri holskeflu
ofbeldis og óhæfuverka
Beirút, Damascus, Kairó, Jerúsalem, Reuter.
Reuter
Hundblautur
Veðurblíðan hefur leikið við
landsmenn undanfarna daga
en hið sama verður ekki sagt
um íbúa Hamborgar. Þar
rigndi eldi og brennisteini i
gær og brá drengurinn á
myndinni á það ráð að hlífa
hundi sinum við mesta úrfell-
inu. Sá' ferfætti ber nafnið
„Dino“ og er alnafni hin sér-
kennilega kjölturakka stein-
aldarmannsins Freds
Flintstone ef teiknimyndasér-
fræðingi Morgunblaðsins
skjöplast ekki.
RASHID Karami, forsætisráð-
herra Líbanons, féll fyrir
morðingjahendi i gær er
sprengja sprakk í þyrlu sem
flutti hann frá hafnarborginni
Tripolí til Beirút. Talið er að til-
ræðið muni hleypa af stað nýrri
bylgju ofbeldis- og óhæfuverka
GENNADY Gerasimov, talsmað-
ur sovéska utanríkisráðuneytis-
ins, sagði i gær að fleiri háttsettir
embættismenn kynnu að missa
stöður sínar i kjölfar þess að
ungur Vestur-Þjóðveiji lenti
flugvél sinni á Rauða torginu i
Moskvu í síðustu viku. Vestur-
þýska ríkisstjómin hefur for-
dæmt athæfi Mathias Rust og
sagði í tilkynningu hennar í gær
að flugið hefði verið fífldjarft
uppátæki sem kynni að hafa al-
varlegar afleiðingar.
Gerasimov sagðist búast við því
að þeir menn sem ekki hefðu sinnt
skyldu sinni yrðu látnir víkja. Uppá-
tæki Rust hefur þegar kostað tvo
háttsetta embættismenn stöður
í Libanon. Sýrlendingar hafa
sakað israelska leyniþjónustu-
menn um að hafa ráðið Karami
af dögum.
Karami lést af völdum sára er
hann hlaut í sprengingunni en til-
■ræðismaðurinn hafði komið
sprengju fyrir undir sæti hans. í
sfnar. Vadim Loginov, aðstoðarat-
anríkisráðherra, sagði að yfírmönn-
um loftvama hefði borið að neyða
Rust til lendingar án þess þó að
beita vopnavaldi. Gerasimov kvaðst
ekki vita hversu lengi Rust yrði
haldið í Sovétríkjunum en gat þess
að viðurlög við óleyfílegu flugi inn-
an sovéskrar lofthelgi vörðuðu allt
að tíu ára fangelsi. Sagðist hann
ekki vita hvort réttað yrði í máli
Rust en hann dvelst nú í Lefortovo-
fangelsi f Moskvu. Vestur-þýskir
embættismenn ræddu við piltinn í
gær og sögðu hann halda rósemi
sinni en vildu að öðru leyti ekki tjá
sig um málið.
Sjá einnig „Lending Mathias
Rust...“ á bls. 32-33 og „Rust
þótti einrænn..." á bls. 4.
þyrlunni voru 13 farþegar auk Kar-
amis og særðust þeir allir. Flug-
manninum tókst að fljúga þyrlunni
til Babylos skammt norðaustur af
Beirút og þar lést Karami í sjúkra-
húsi. Amin Gemayel forseti setti í
gær Selim Hoss menntamálaráð-
herra í embætti forsætisráðherra
til bráðabirgða samkvæmt áskoran
leiðtoga múslima, trúarbræðra Kar-
amis.
Enn er ekki vitað hveijir stóðu
að baki sprengjutilræðinu. Útvarpið
í Damascus, höfuðborg Sýrlands,
sagði að ísraelar hefðu ráðið hann
af dögum. Walid Jumblatt, leiðtogi
drúsa, sagði hersveitir kristinna
manna hafa myrt Karami. Maður
einn hringdi í fréttastofu Beirút og
sagði óþekkt samtök, „Líbanska
hulduherinn“, hafa staðið að baki
tilræðinu. Heimildarmenn Reuters-
fréttastofunnar sögðust ekki leggja
trúnað á yfirlýsingu þessa. Shimon
Peres, utanríkisráðherra ísraels,
sagði tilræðið vera „enn eitt áfallið
fyrir þetta stríðsþjáða land" og
kvaðst telja að samskipti Líbanons
og ísraels myndu ekki fara versn-
andi í kjölfar morðsins. Ríkisstjómir
Egyptalands, Sovétrílqanna og
Bandaríkjanna fordæmdu ódæðis-
verkið.
Stjómmálaskýrendur eru sam-
mála um að gera megi ráð fyrir
nýrri öldu ofbeldisverka í Líbanon.
„Ofbeldi og blóðbað hefur ævinlega
fylgt morðum og tilræðum í þessu
landi," sagði einn þeirra í viðtali
við Reuters-fréttastofuna. Amin
Gemayel forseti, sem er leiðtogi
kristinna manna, hefur átt í vök
að veijast allt frá því Karami ósk-
aði eftir því við Sýrlendinga að
þeir stilltu til friðar í landinu. Urðu
þeir við þessari ósk f febrúar er
þeir sendu 7.000 manna lið til vest-
urhluta Berútborgar. Miklar vær-
ingar hafa verið innan þjóðstjómar
Gemayels og er talið víst að morðið
á Karami muni ekki verða til þess
að létta á spennunni í landinu.
Gemayel hefur fyrirskipað þjóðar-
sorg og opinbera rannsókn á tilræð-
inu.
Sjá einnig „Niu lifum Karam-
is...“ á bls. 34.
Svíþjóð:
Flugmann-
iniim sleppt
Stokkhólmi, Reuter.
SOVÉSKUM flugmanni sem lenti
vél sinni skammt undan strönd
Gotlands í siðustu viku hefur
verið sleppt úr haldi.
Tilkynnt var í gær að áburðar-
dreifíngarflugvél sem hann flaug
yfir Eystrasalt hefði verið skilað til
Sovétríkjanna. Maðurinn, sem er
24 ára gamall, hefur fengið land-
vistarleyfi þar til ákveðið verður
hvort honum verður veitt pólitískt
hæli.
Flug Mathias Rust til Moskvu:
Fleiri ráðameim
kunna að víkja
Bonn, Moskvu, Reuter.