Morgunblaðið - 02.06.1987, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 1987
Skógar- og sinu-
eldar í Skorradal
Grund, Skorradal.
ELDUR varð laus við sumarbú-
stað í Hvammi í Skorradal á
laugardaginn sl. um kl. 16.30
er tvö sjö ára börn voru að fikta
með eld. Var þegar í stað kallað
á slökkvilið og komu á staðinn
slökkvilið Borgarfjarðardala
sem saman stendur af deildum
á Hvanneyri, Bæ og úr Reyk-
holtsdal og slökkvilið Borgar-
ness ásamt fjölmörgum
sjálfboðaliðum úr næsta ná-
grenni.
Vasklega var gengið fram í
slökkvistarfinu, vatni dælt á eld-
ana, bæði úr Skorradalsvatni og
af vatnstankbfl. Einnig kom
vatnsból sumarbústaðarins að
góðum notum, því þaðan var stöð-
ugt borið vatn með vatnsfötum,
garðkönnum ofl. Um kl. 18.30 var
slökkvistarfi lokið, en þá hafði
eldurinn farið um ca 3-4 ha lands.
Haukur heitinn Thors byggði
bústað þennan fyrir rúmum 40
árum og hóf skömmu seinna skóg-
rækt á nokkrum tugum ha
umhverfís húsið. Þarna var því
fagur lundur, sum trén allt að 4-6
metra há. — D.P.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur:
Alþjóðleg karlakórakeppni í Þýskalandi:
Fóstbræður í
þriðja sæti
Frá Sigrúnu Björnsdóttur.
AÐ ÞESSU sinni þurfa íslending-
ar ekki að láta sér nægja 16.
sætið. í fyrradag hreppti Karla-
kórinn Fóstbræður þriðju verð-
laun í alþjóðlegri söngkeppni
sem haldin var í smábænum
Lindenholzhausen sem er reynd-
ar innan borgarmarka þeirrar
undurfögru borgar Limborgar.
Þama reyndu með sér 53 kórar
víðsvegar að úr heiminum, meðal
annars frá Búlgaríu, Tékkóslóv-
akíu, Sovétríkjunum, Ungveija-
landi, Norðurlöndunum, Bretlandi,
Bandaríkjunum, Afríku og Asíu,
ásamt þýskum, frönskum og öðrum
mið-evrópu kórum.
Kórunum var skipt niður í riðla
eftir stærð, samsetningu og verk-
efnum, t.d. voru þarna kvennakóra-
riðlar, æskulýðs- og þjóðlagariðlar,
svo og riðlar með blönduðum kórum
og karlakórum. Fóstbræður öttu
þama kappi við kóra sem voru flest-
ir hverjir allt upp í 100 manna kórar
en söngmenn Fóstbræðra töldu að
þessu sinni 41. Engu að síður tókst
þeim að sprengja upp austur-evr-
ópsku vömina. Það virðist vera
hálfgerð hefð fyrir því héma á þess-
ari listahátíð í Lindenholzhausen
að austur-evrópskir kórar hafa ver-
ið í að minnsta kosti þrem efstu
sætunum í karlakórakeppninni. En
Fóstbræður urðu langefstir af vest-
ur-evrópsku þjóðunum í sínum riðli.
Það var ekki fyrr en í sjötta sæti
að vestur-þýskur kór komst þar á
blað. Búlgarar urðu í 1. sæti, þar
á eftir komu Tékkar og Karlakórinn
Fóstbræður í 3. sæti eins og fyrr
er getið. Á eftir þeim komu Ung-
veijar, og svo aftur Tékkar.
Menn em að vonum glaðir með
árangurinn og halda vigreifír til
nýrra vinninga, en þeir leggja af
stað í söngferðalag til Austurríkis
og Ungveijalands í dag, þriðjudag.
Norðurlandsumdæmi eystra;
Fræðslustjórinn á
rökstólum í Reykjavík
„MÁLIÐ er þannig vaxið að ég
get ekkert látið hafa eftir mér á
þessu stigi,“ sagði Ólafur Guð-
mundsson, nýskipaður fræðslu-
stjóri í Norðurlandsumdæmi
eystra er Morgunblaðið innti
hann eftir því hversvegna hann
hefði ekki mætt til vinnu í gær
eins og fyrirhugað var.
Ólafur fór norður í fylgd Reynis
Kristinssonar aðstoðarmanns
menntamálaráðherra á föstudag og
átti viðræður við starfsfólk fræðslu-
skrifstofunnar og formann fræðslu-
ráðsins, Þráin Þórisson. Þessar
umræður vom að sögn Ólafs gagn-
legar og hreinskilnar.
í gærdag ræddu Ólafur og Reyn-
Oskar eftir rannsókn vegna
sölu kjúklinga í Miklagarði
Heilbrigðisráðherra skipar nefnd til
að gera úttekt á ástandi kjúklingabúa
HEILBRIGÐISEFTIRLIT
Reykjavíkur hefur óskað eftir
að fram fari lögreglurannsókn
vegna sölu á kjúklingum í Mikla-
garði, sem talið er að hafi verið
sýktir af salmonellu. Kjúkling-
arnir voru til sölu í verslunni
eftir að heilbrigðisyfirvöld höfðu
fyrirskipað sölustöðvun á kjúkl-
ingum með viðkomandi fram-
ieiðslunúmeri. Ragnhildur
Helgadóttir, heilbrigðisráð-
herra, átti í gær fund með full-
trúum Hollustuverndar ríkisins
og heilbrigðiseftirlitsins og ák-
vað að loknum þeim fundi að
skipa nefnd sérfræðinga til að
kanna og gera úttekt á ástandi
kjúklingabúa í landinu.
Upphaf þessa máls má rekja til
veislu, sem haldin var í Búðardal á
páskadag, þar sem salmonellusýk-
ing koma fram og fjöldi fólks
veiktist. Eftir að sýni höfðu verið
rannsökuð var staðfest að salmon-
ellan kom úr kjúklingum sem ísfugl
seldi og dreifði. Hollustuvemd ríkis-
íns fól heilbrigðisnefndum um allt
land að kalla inn kjúklinga með
viðkomandi framleiðslunúmeri og
að sögn Odds R. Hjartarsonar,
framkvæmdatjóra Heilbrigðiseftir-
lits Reykjavíkur, var það gert á
umdæmissvæði eftirlitsins hinn 8.
maí síðastliðinn. Ennfremur hafí
ísfugl gefíð út tilkynningu til við-
skiptavina sinna um innköllun á
kjúklingum með þessu framleiðslu-
númeri. Laugardaginn 23. maí sl.
uppgötvaðist að kjúklingar með við-
komandi framleiðslunúmeri voru til
sölu í Miklagarði og var sala og
dreifíng á þeim þegar í stað stöðv-
uð. Að sögn Odds hefur ekki fengist
fullnægjandi skýring á því frá versl-
uninni hvemig mistök þessi áttu sér
stað og því hafí verið tekin sú
ákvörðun hjá Heilbrigðiseftirliti
Reykjavíkur í gær, að óska eftir
lögreglurannsókn vegna þessa
máls.
Jón Sigurðsson, forstjóri Mikla-
garðs, sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær að ekki lægi ljóst fyrir
hvemig kjúklingar með þessu fram-
leiðslunúmeri komust aftur í dreif-
ingu í versluninni. Starfsmanni
verslunarinnar hefði verið falið að
taka kjúklingana úr umferð og
hafði hann talið sig fullvissan um
að allir kjúklingar með viðkomandi
framleiðslunúmeri hefðu verið tekn-
ir úr sölu. Jón sagði að mönnum
hefði helst dottið í hug að tveir
kassar úr umræddri sendingu hefðu
orðið undir öðrum vömm á lager
verslunarinnar og kjúklingamir
hefðu síðan óvart farið inn í af-
greiðsluborðið.
ir málin í Reykjavík. „Það hefur
verið svolítil undiralda. Ókkur þótti
ástæða til þess að skoða málin frek-
ar. Ég býst fastlega við því að
Ólafur hefy störf á miðvikudag. Það
er orðið brýnt að einhver setjist í
stól fræðslustjóra til að afgreiða
þau mál sem liggja fyrir,“ sagði
Reynir.
Við setningu fulltrúaþings Kenn-
arasanmbands íslands í gær gengu
þingfulltrúar úr Norðurlandskjör-
dæmi eystra út, þegar Reynir
Kristinsson ávarpaði þingið fyrir
hönd menntamálaráðherra.
INNLENT
Vestmannaeyjar:
Fækkað um 60-70 manns
„Ég held þetta sé afskaplega hæpin fullyrðing. Sennilega er stuðst
við brottflutning frá Vestmaxumaeyjum frá áramótum. Það hallar á
okkur, en það er ekki marktækt að miða við fyrstu fimm mánuði
ársins. Það er alltaf hreyfing á fólki milli staða á íslandi,“ sagði
Amaldur Björnsson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, en Guðmundur
J. Guðmundsson, formaður Verkamannasambands Islands, segir í
viðtali í Morgunblaðinu á sunnudag að áætlað sé að 200 manns
flytji frá Vestmannaeyjum vegna minnkandi tekna af völdum gáma-
útflutnings.
Amaldur sagði að 60-70 manns
hefðu fluttst burt umfram aðflutta
fyrstu fimm ársins, en það væri
ekki hægt að merkja að þar væri
sérstaklega um að ræða fólk, sem
hefði byggt afkomu sína á físk-
vinnslu. „Það þarf að ræða ítarlega
gámaútflutninginn. Hann er óvenju
mikill héðan frá Vestmannaeyjum
og á tvímælalaust rétt á sér að vissu
marki, því þama fara út fisktegund-
ir á tiltölulega háu verði, sem eru
ekki verðmætar hér innanlands,
annað hvort vegna þess að þær em
dýrar í vinnslu eða fara á lélegri
freðfískmarkaði. Ef hægt er að
stýra útflutningnum þannig að það
fáist ætíð toppverð fyrir þennan
gámafísk, þá held ég að framboðið
myndi aukast hér innanlands.
Mönnum ber skylda til þess að gera
úr aflanum sem mest verðmæti og
það er neikvætt sem hefur verið
að gerast, sérstaklega á markaði í
Þýskalandi, að selja þessi aðalverð-
mæti okkar íslendinga á lágu
verði," sagði Amaldur.
Hann sagði að útflutningurinn
veitti einnig vinnslustöðvunum að-
hald, þær hlytu að mæta þessu með
því að greiða sem hæst verð fyrir
aflann. Hann benti ennfremur á að
vertíðin hefði verið slök I Eyjum í
vetur og það væri ein skýringin á
því að vinnslustöðvamar hefðu ekki
fengið eins mikið aflamagn til
vinnslu og oft áður. Hann sagði að
gámaútflutningurinn hefði aukist
gífurlega á síðasta ári miðað við
árið 1985 og það virtist stefna í
ennþá meiri útflutning á þessu ári.
„Ef þessi þróun heldur áfram svona
er ástæða til þess að hafa áhyggj-
ur, en ég held að þessir hagsmunir
geti farið saman".
Amaldur sagði að undanfarin ár
hefði mannfjöldinn í Eyjum nokk-
um veginn staðið í stað og verið
stöðugur um 4.800 manns. Fækk-
unin hefði verið óvemleg á síðasta
ári og það fyndust ekki merki um
fólksfækkun. Mikil eftirspum væri
eftir fasteignum, framboð lítið og
húsaleiga fremur há.