Morgunblaðið - 02.06.1987, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 02.06.1987, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 1987 Rust þótti einrænn o g hafði lítil samskipti við Islendinga Sótti stíft að fá skoðun á vélin hér MARTIN Rust, þýski flugmaður- inn sem lenti Cessna flugvél sinni á Rauða torginu í Moskvu, kom hingað til lands 15. mai síðastlið- inn. Við komuna til landsins fór hann í gegnum venjubundna toll- skoðun og vegabréfskráningu. Kom ekkert fram um erindi hans hingað til lands, enda var honum ekki skylt að gefa þær upplýsing- ar. Þegar vél Rust var grand- skoðuð eftir að hann hafði farið í útsýnisflug til Vestfjarða lét hann svo um mælt við lögregluna að ástæða heimsóknarinnar væri sú að hann væri að æfa langflug og safna flugtímum. Rust þótti einrænn, var fámáll og átti lítil samskipti við íslendinga umfram það sem nauðsynlegt var. Sveinn Björnsson eigandi Flug- þjónustunnar hf. sem sér um Rust gengur frá vél sinni í fulltrúa útlendingaeftirlitsins. móttöku einkaflugvéla á Reykjavík- urflugvelli sagði að Rust hefði á engan hátt skorið sig úr öðrum flug- mönnum sem hingað koma á einkavélum sínum. Rust hélt sig mikið á flugvellinum, gekk um og hugði að vél sinni. Hann gisti á Hótel Lind við Rauðarárstíg. „Rust var á engan hátt eftir- minnilegur nema að hann var yngri en gerist og gengur með þá sem hingað fljúga yfír hafið. Það virðist oft vera einkenni þessara flug- manna að þá hefur langað til að svara þessari áskorun, fljúga einir síns liðs svo langa leið,“ sagði Sveinn. „Komur lítilla einakflugvéla eru tíðar, sérstaklega á sumrin. Til dæmis eru núna tveir þýskir einka- flugmenn hér á vellinum sem komu um helgina, við vitum ekkert um VEÐURHORFUR í DAG, 02.06.87: YFIRLIT á hádegi í gær: Skammt fyrir austan land er nærri kyrr- stæð 1005 millibara lægð. Yfir norðaustanverðu Grænlandi er 1030 millibara hæð. SPÁ: Fremur hæg norðan- og norðaustanátt á landinu. Á norður- og austurlandi verður skýjað, sums staðar rigning eða súld og hiti á bilinu 4 til 7 stig. Sunnanlands og við Faxaflóa verður léttskýjað og hiti á bilinu 10 til 14 stig. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: MIÐVIKUDAGUR og FIMMTUDAGUR: Norðaustanátt og fremur svalt í veðri. Skýjað á norðanverðu landinu og súms staðar dálítil súld. Víðast léttskýjað á suöur- og vesturlandi en hætt við síðdeg- isskúrum. VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gœr að ísl. tíma hiti veóur Akureyri 6 súld Reykjavfk 10 lóttskýjað Bergen 17 skýjað Helsinki 1S skýjað Jan Mayen 3 skýjað Kaupmannah. vantar Narssarssuaq 13 skýjað Nuuk 3 rígning Osló 11 rigning Stokkhólmur 14 skýjað Þórshöfn vantar Algan/e 29 heiðskfrt Amsterdam 16 skýjað Aþena 23 hálfskýjað Barcelona 20 léttskýjað Berlfn 14 skýjað Chicago 19 alskýjað Feneyjar 16 rigning Frankfurt 19 skýjað Hamborg 15 skýjað Las Palmas 23 léttskýjað London 19 skýjað Los Angeles 1S heiðskfrt Lúxemborg 16 skýjað Madríd 28 heiðskfrt Malaga vantar Mallorca 21 skýjað Miami 27 skýjað Montreal 20 alskýjað NewYork 24 mistur Parfs vantar Róm 19 þrumuveður Vin 16 skýjað Washington 2S mistur Winnipeg 15 skýjað Morgunblaðið/Pétur Johnson Lögreglumenn og fulltrúi Náttúrfræðistofnunar grandskoða vél Rusts á Reykjavíkurflugvelli 17. maí síðastliðinn. Rust fór í eina flugferð yfir Vestfirði en lenti ekki þar. Ekkert grunsamlegt fannst í vélinni. erindi þeirra, hvað þeir aðhafst né hvert för þeirra er heitið næst.“ Útlendingaeftirlitinu gert aðvart Þegar Rust fór í stutta flugferð yfír Vestfírði 17. maí var útlend- ingaeftirlitinu gert aðvart af flug- áhugamanni um að leið vélarinnar lægi um þekkt varplönd fálka. Þótti næg ástæða til þess að rannsaka vélina eftir lendingu á Reykjavíkur- flugvelli. Hana framkvæmdu fuglafræðingur frá Náttúrufræði- stofnun, fulltrúi útlendingaeftirlits- ins og lögreglunnar. Rust veitti fúslega leyfí til þess að vélin yrði skoðuð og svaraði spumingum greiðlega. Ekkert at- hugavert fannst í vélinni, enda sýndu farbækur að Rust hafði ekki lent fyrir vestan. Hann fór ekki í fleiri flugferðir á meðan á íslands- dvölinni stóð. Bað um skoðun fyrir tímann Við komuna til landsins bað Rust um að fram færi skoðun á flugvél sinni. Gaf hann þá ástæðu að kom- ið væri að skoðun sem tilskilin er á fímmtíu flugstunda fresti. Honum var gerð grein fyrir því að það væri erfiðleikum háð þar sem vélin er skráð í Þýskalandi og íslenskir flugvirkjar hafa ekki löggildingu þar. Leyfi þetta fékkst síðan með skeyti frá þýskum yfírvöldum. Að sögn Guðbjarts Torfasonar flugvirkja sem framkvæmdi skoð- unina sótti Rust stíft að hún yrði gerð. „Mér kom þetta nokkuð spáhskt fyrir sjónir þar sem aðeins 38 flugtímar voru liðnir síðan vélin hafði síðast verið yfírfarin, en taldi líklegt að Rust hyggðist flakka eitt- hvað um áður en hann snéri aftur til Þýskalands og þætti betra að vera búinn að þessu," sagði Guð- bjartur. Verkföll í Færeyjum tefja för Rust ferðbjóst föstudaginn 22. maí, þegar hann hafði dvalið hér í viku. Hann lagði inn flugáætlun þar sem hann gerði ráð fyrir að fara í einum áfanga til Þórshafnar í Fær- eyjum. Þegar búið var að ræsa hreyflana og allt tilbúið til flugtaks bárust skilaboð um að vegna verk- falla í Færeyjum væri ekki hægt að taka á móti flugvélinni. Rust fékk þá að hringja til Færeyja en þar varð fátt um svör að sögn Sveins. Hann sagði að Rust hefði þótt þetta súrt í broti, en ákvað að fljúga þess í stað til Hafnar í Homa- fírði og stytta þar með leiðina til Færeyja daginn eftir. Hann náttaði í Hótel Höfn og hélt af landi brott degi síðar. Ámi Stefánsson sagði að Rust hefði komið á hótelið seint að kveldi og farið snemma um morguninn. Hann spurði hvort rúta gengi á flugvöllin, en svo er ekki. Sonur Árna ók Rust á völinn. „Þeir ræddust ekkert við, hann sat bara eins og dmmbur og vildi ekkert tala,“ sagði Ámi. Samkvæmt skrám flugtumsins í Reykjavík fór Rust héðan einsa- mall, en þegar hann lenti öllum að óvömm á Rauða torginu í Moskvu viku síðar herma sjónarvottar að farþegi af kvenkyni hafí stigið út úr vélinni og horfíð í mannfjöldann. Pijónastofa Borgarness: 22 konum sagt upp störfum „Ógerlegt að halda áfram í útflutningi við þessar aðstæður,“ segir Sigurður Fjeldsted framkvæmdastjóri PRJÓNASTOFA Borgarness hefur sagt upp 22 konum, sem unnið hafa á saumastofu fyrir- tækisins og hefur þeirri deild fyrirtækisins verið lokað um sinn. Að sögn Sigurðar Fjeldsted, framkvæmdastjóra fyrirtækis- ins, var óhjákvæmilegt að grípa til þessara ráðstafanna vegna óhagstæðrar verðlagsþróunar í landinu hvað varðar útflutning. „Við framleiðum aðallega til út- flutnings og verðlagsþróunin hefur verið á þann veg að það er nánast ógerlegt að halda slíkum útflutningi áfram,“ sagði Sigurður. „Sam- keppnin leyfír okkur ekki 20 til 25% hækkun á vömnni til að mæta verð- hækkunum hér innanlands þannig að það er ekki um annað að ræða en að hætta þessum útflutningi á meðan þetta ástand varir. Það er útilokað að við getum staðið undir slíkum hækkunum," sagði hann ennfremur. Sigurður sagði að tæpur helm- ingur starfsfólksins myndi halda áfram störfum hjá fyrirtækinu, það er í þeirri deild sem pijónar efnið, en saumastofan yrði lögð niður að sinni, hvað svo sem síðar yrði. „Þetta þykir okkur ákaflega slæmt og alvarlegt mál því þarna em kon- ur sem hafa unnið hjá okkur í allt að 17 ár. En við teljum útilokað að halda saumastofunni gangandi við þessar aðstæður, því miður," sagði Sigurður Fjeldsted.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.