Morgunblaðið - 02.06.1987, Síða 27

Morgunblaðið - 02.06.1987, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 1987 27 N þjálfari að kenna þroskaheftum ein- staklingi að skynja betur sjálfan^ sig. Þegar ég kem þama inn er þar þjálfari að þjálfa 37 ára gamlan mongólíta. Þeir sitja á mottum og hlusta á sungnar leiðbeiningar við undirleik klingjandi tónlistar. Seg- ulbandið segir þeim að rugga, og alvarlegir á svip rugga þeir fram og aftur. Síðan á að sveifla öðrum handleggnum. Það gengur ekki eins vel, en ekkert er sagt, heldur stýrir þjálfarinn hinum þroskahefta til þess að gera æfinguna rétt. Smám saman lærir hið þroskahefta fólk að visst hljóð þýðir vissa fyrirskipun og hreyfingu og þannig fer hæfing- in fram. I handavinnustofu situr hópur fólks og fæst við ýmis konar hann- yrðir. Tveir pijóna með sérstakri pijónaaðferð, bandi er vafið uppá marga nagla sem negldir eru í tré- bretti. Síðan er lykkjum bruðið uppá naglana með heklunál og bandið þrætt í gegn. Þannig verða smám saman til stórir og myndarlegir treflar. Þeir sem lagnari eru, pijóna peysur með gömlu aðferðinni. Fyrir enda borðsins situr eldri kona og saumar í stórgerðan stramma. Það mun vera með því einfaldara sem hægt er að láta fólk gera í handavinnu. Einnig eiga margir auðvelt með að smyrna. Verið er að smyrna veggteppi sem til stendur að gefa versluninni Byko sem Vinnustofurnar vinna mikið fyrir. Flugleiðir hafa þegar fengið eitt slíkt teppi að gjöf. I vinnusalnum þar sem blaða- pökkunin fer fram sitja um það bil 25 manns, allir eru önnum kafnir við að pakka blöðum fyrir Fijálst framtak. Öðru hvoru geri fólkið stutt hlé á pökkuninni til að glugga í Mannlíf, þeir lesa sem læsir eru hinir skoða myndirnar. I herbergi beint á móti vinnusaln- um þar sem blaðapökkunin fer fram, sitja þijár konur í hvítum sloppum með grænar húfur og pakka grisjum og ílátum sem seinna verða dauðhreinsuð og notuð á Landsspítalanum. Fimmtán manns eru þjálfuð í þetta verkefni og skipt- ast á að sinna því. Yfirleitt er lögð áhersla á að láta fólk ekki staðna í einu verkefni heldur færa það á milli eftir því sem unnt er. I vefstofunni stitur ungur maður, hann er á leið í morgunkaffi. Hann verður óþolinmóður þegar hann er beðinn að sýna leikni sína við vef- stólinn en lætur samt tilleiðast. Hann bregður skyttunni fímlega milii þráðanna og fer að svo búnu í kaffi. Til vefnaðarins eru notaðir afgangar af bómullarsokkum, ræm- ur sem ganga af þegar sokkar eru búnir til í Sokkaverksmiðjunni í Vík í Mýrdal, afgangamir eru hnýttir saman og undnir upp og svo búnar til úr þeim mottur í ýmsum litum sem eru mjög eftirsóttar. í einu horni vefstofunnar fer fram einstaklingsþjálfun á sauma- vél. Þar skiptist vistfólk á að sauma ýmsa hluti t.d. púða, sængurvera- sett fyrir dúkkur, börn og fullorðna, barnateppi o.s.frv. Allt er þetta einfalt að gerð og mikið um beina sauma en laglegt og handbragðið vandað. Töluvert er saumað þarna af dúkum og servíettum fyrir Flug- leiðir. Starfsfólk sníður en vistfólkið saumar. í eldhúsi Vinnustofunnar fer einnig fram hæfing. Hér lærir fólk allt mögulegt í eldhúsverkum, allt frá því að hella uppá kaffi og leggja á borð uppí að útbúa máltíðir. Á Vinnustoftim Kópavogshælis tíðkast engin kynskipting í verkefn- um því eru bæði karlar og konur jafngild í eldhúsinu. Við Vinnustofurnar vinna um 20 starfsmenn í rétt tæpum 17 stöðu- gildum, af þeim eru 5 þroskaþjálfar sem sjá um að skipuleggja allar þjálfunaráætlanir. Hitt starfsfólkið vinnur samkvæmt leiðbeiningum þroskaþjálfanna. Ámi Már gat þess að lokum að mikil þörf væri á að fá fleiri þroskaþjálfa til starfa við Vinnustofurnar. Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir Ljósm: Morgunblaðið/Sverrir Kiwanismenn málaí Reykjadal FÉLAGAR úr Kiwanisklúbbnum Viðey brugðu sér upp í Mosfells- sveit á uppstigningardag og máluðu húsin i Reykjadal, en þar rekur Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra sumardvalarheimili fyrir fötluð böm. Páll Svavarsson formaður Styrkt- arfélags lamaðra og fatlaðra sagði í samtali við Morgunblaðið að Kiwanis- klúbburinn Viðey hefði ákveðið að styrkja starfsemina í Reykjadal. „Þeir ætla að taka að sér að dytta að húsum og lóðum í Reykjadal á hveiju vori. Það verður þeirra fram- lag í stað þess að styrkja okkur með peningum, merkjasölu og slíku". Páll sagði að fram að þessu hefði Reykjadalur aðeins verið notaður á sumrin en nú væri í undirbúningi að nýta staðinn allan ársins hring. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvem- ig þeirri starfsemi verður háttað, en málið er í athugun. Morgunblaðið/KGA Félagar úr Kiwanisklúbbnum Viðey mála húsin i Reykjadal í Mosfellssveit þar sem Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra rekur sumardvalarheimili. ÚTLEIGA Á RYKMOTTUM - ÞJÓNUSTA í SÉRFLOKKI fyrir verslanir, fyrirtæki, stofnanir og húsfélög. Rykmotturnar, sem FÖNN leigir út, eru hreint ótrúlegar. Vegna sérstakra eiginleika mottunnar hreinsar hún um 85% óhreininda undan skósólum þeirra sem yfir hana ganga. Skipt er um motturnar reglu- lega þannig aö „enginn kemst vaðandi inn á skítugum skónum“. Þar sem mottan er fyrir hendi hefur vinna og kostnaður við hreingerningu innandyra lækkað stórkostlega. Hægt er að velja um stærðir og liti. Hinar gífurlegu vinsældir rykmottunnar sanna ágæti hennar. ÖRKIN/SÍA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.