Morgunblaðið - 02.06.1987, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. JUNI 1987
Þjóðhátíðarsjóður
styrkir 21 aðila
LOKIÐ er úthlutun styrkja úr
Þjóðhátíðarsjóði fyrir árið 1987
og þar með tíunda úthlutun úr
sjóðnum.
Til úthlutunar í ár koma allt að
kr. 5.000.000,00, þar af skal fjórð-
ungur, 1.250 þús. kr., renna til
Friðlýsingarsjóðs til náttúruvemdar
á vegum Náttúruvemdarráðs og
fjórðungur, 1.250 þús. kr., skal
renna til varðveislu fomminja, gam-
alla bygginga og annarra menning-
arverðmæta á vegum Þjóðminja-
safns, skv. ákvæðum skipulags-
skrár.
Allt að helmingi úthlutunarfjár á
Húsavík:
Eg-gjum
stolið úr
fálkahreiðri
Húsavik.
FÁLKAHJÓN hafa undanfarin
ár átt hreiður á Tjörnesi og hef-
ur eggjum tvívegis verið stolið
úr því, svo vitað sé. Nú hafa
eggjaþjófar aftur látið til skarar
skriða.
í fyrra fékk hreiðrið að vera í
friði og flugu tveir ungar úr því.
Um miðjan maí var vitað að fjögur
egg væru komin í hreiðrið, en
tveimur þeirra hefur nú verið stolið.
Það er ekki vitað um nema þetta
eina amarhreiður á Tjömesi. Al-
mennt er mönnum hér á Husavík
ekki kunnugt um staðsetningu þess
en eggjaþjófar hafa hér notað
kænsku sína. Málið er í rannsókn
hjá lögreglunni.
Fréttaritari.
hvetju ári er varið til styrkja skv.
umsóknum og voru því allt að kr.
2.500.000,00 til ráðstöfunar í þenn-
an þátt að þessu sinni.
Alls bámst 67 umsóknir um
styrki að fjárhæð um 29 milljónir
kr.
Hér á eftir fer skrá yfir þá aðila
og verkefni sem hlutu styrki að
þessu sinni, en fyrst er getið verk-
efna á vegum Friðlýsingarsjóðs og
Þjóðminjasafns.
Friðlýsingarsjóður
Samkvæmt skipulagsskrá Þjóð-
hátíðarsjóðs skal Friðlýsingarsjóður
vetja árlegum styrk til náttúm-
verndar á vegum Náttúmvemdar-
ráðs. Náttúruvemdarráð hefur
ákveðið að vetja styrknum, eftir því
sem hann hrekkur til, í eftirtalin
verkefni:
1. Framkvæmdir á tjaldsvæðinu í
Ásbyrgi.
2. Nýja girðingu umhverfis frið-
landið í Húsafelli.
3. Skiltagerð og merkingar á frið-
lýstum svæðum í umsjón
Náttúruvemdarráðs.
4. Einstök verkefni á sviði útgáfu-
og fræðslustarfsemi Náttúm-
vemdarráðs.
5. Áframhald endurbóta á rann-
sóknarstöðinni við Mývatn.
Þjóðminjasafn
Samkvæmt skipulagsskrá Þjóð-
hátíðarsjóðs skal Þjóðminjasafnið
vetja árlegum styrk til varðveislu
fomminja, gamalla bygginga og
annarra menningarverðmæta á
vegum safnsins. Þjóðminjavörður
hefur gert grein fyrir ráðstöfun
styrksins í ár og mun hann renna
til eftirgreindra verkefna:
1. Til framhalds fomleifarann-
sókna á Stóm-Borg undir
Eyjafjöllum.
2. Til framhalds viðgerða á
Krýsu víkurkirkj u.
3. Til að festa kaup á vandaðri tölvu
með prentara til að hefja tölvu-
skráningu allra safngripa.
Úthlutun styrkja sam-
kvæmt umsóknum:
1. Byggðasafn Akraness og
nærsveita, Görðum, Akranesi,
vegna viðgerða á Garðahúsinu á
Akranesi, elsta steinsteypuhúsi
landsins, kr. 90.000,00.
2. Sjóminjasafn Austurlands,
Eskifirði, vegna viðgerða á Rand-
úlfssjóhúsi og bryggju á Eskifirði,
kr. 80.000,00.
3. Safnastofnun Austurlands,
Egilsstöðum, vegna viðgerða á
Löngubúð á Djúpavogi, kr.
135.000,00.
4. Listasafn Siguijóns Ólafs-
sonar, Laugamestanga 70,
Reykjavík, vegna viðbyggingar og
yiðgerðar á vinnustofu Sigutjóns
Ólafssonar, kr. 180.000,00.
5. Listasafn ASÍ, Grensásvegi
16, Reykjavík, vegna viðgerða á
listaverkum í eigum safnsins, kr.
135.000,00.
6. Landsbókasafn íslands,
Hverfisgötu, Reykjavík, til að
hlynna að og búa um gamlar bæk-
ur safnsins, kr. 80.000,00.
7. Hóladómkirkja, Hjaltaldal,
Skagafírði, vegna viðgerða á altar-
isbrík dómkirkjunnar að Hólum, kr.
220.000,00.
8. Stofnun Árna Magnússonar,
Suðurgötu, Reykjavík, til afritunar
þjóðfræðaefnis á geymslubönd, kr.
160.000,00.
9. Þjóðminjasafn íslands,
Hringbraut, Reykjavík, vegna
könnunar á frostþurrkun fornleifa
úrlífrænum efnum, kr. 220.000,00.
10. Magnús Þorkelsson, Króka-
hrauni 12, Hafnarfírði, vegna
flokkunar minja og frágangs teikn-
inga, úrvinnslu beinaleifa og kirkju-
muna á Kirkjubóli við Skutulsfjörð,
kr. 85.000,00.
11. Kirkjuráð hinnar ísl. þjóð-
kirkju, Suðurgötu 22, Rvík, til
framhalds fomleifarannsókna í
Skálholti, kr. 70.000,00.
12. Landvernd, Skólavörðustíg
25, Reykjavík, til könnunar og gefa
út skýrslu um ástand ferðamanna-
staða í byggð og óbyggð, kr.
185.000,00.
13. Hið ísl. bókmenntafélag,
Þingholtsstræti 3, Rvík, til útgáfu
annála 1400—1800, kr.
140.000,00.
14. Bókaútgáfan Þjóðsaga,
Þingholtsstræti 27, Rvík, vegna rit-
unar og útgáfu fyrsta bindis rit-
verks um ísl. þjóðmenningu, kr.
180.000,00.
15. Guðmundur P. Ólafsson,
íragerði 8, Stokkseyri, vegna út-
gáfu á fyrsta bindi ritsafns um
náttúm íslands, kr. 195.000,00.
16. Náttúruverndarsamtök
Austurlands, Kvísketjum, A-
Skaftafellssýslu, vegna lokaúr-
vinnslu og skýrslugerðar vegna
rannsókna á votlendi á Uthéraði,
kr. 75.000,00.
17. Fuglaverndarfélag íslands,
Bræðraborgarstíg 26, Rvík, vegna
vemdunar ísl. hafamarstofnsins,
kr. 40.000,00.
18. Náttúruverndarráð, Hverf-
isgötu 26, Rvík, til framkvæmda í
þjóðgörðum og friðlöndum, kr.
160.000,00.
19. Auðunn Hlíðar Einarsson,
Víðimel 57, Rvík, vegna könnunar
á lífí, húsakosti og búskaparlagi
bænda í Jökulsheiði, N-Múlasýslu,
Grenivík.
GUÐNÝ Sverrisdóttir frá Lóma-
tjörn hefur verið ráðin sveitar-
stjóri á Grenivík frá 1. ágúst.
Tekur hún við af Stefáni Þórðar-
syni, sem gegnt hefur starfinu
s.l. 8 ár.
Fimm umsækjendur vom um
kr. 70.000,00.
Alls kr. 2.500.000,00.
Samkvæmt skipulagsskrá sjóðs-
ins er tilgangur hans að veita styrki
til stofnana og annarra aðila, er
hafa það verkefni að vinna að varð-
veislu og vemd þeirra verðmæta
lands og menningar, sem núverandi
kynslóð hefur tekið í arf. Fjórðung-
ur af árlegu ráðstöfunarfé sjóðsins
skal renna til Friðlýsingarsjóðs til
náttúmverndar á vegum Náttúm-
vemdarráðs, annar íjórðungur skal
renna til varðveislu fomminja, gam-
alla bygginga og annarra menning-
arverðmæta á vegum Þjóðminja-
safns.
Að öðm leyti úthlutar stjórn
sjóðsins ráðstöfunarfé hvetju sinni
í samræmi við megintilgang hans,
og komi þar einnig til álita við-
bótarstyrkir til þarfa, sem getið er
hér að framan.
Við það skal miðað að styrkir
úr sjóðnum verði viðbótarframlög
til þeirra verkefna, sem styrkt em,
en verði ekki til þess að lækka önn-
ur opinber framlög til þeirra eða
draga úr stuðningi annarra við þau.
Eftirtaldir menn skipa stjóm
sjóðsins á yfírstandandi kjörtíma-
bili, sem hófst í ársbyijun 1986:
Magnús Torfi Ólafsson, blaða-
fulltrúi ríkisstjórnarinnar, formað-
ur, skipaður af forsætisráðherra,
Jóhannes Nordal, seðlabankastjóri,
varaformaður, tilnefndur af Seðla-
banka Islands, Bjöm Bjarnason,
aðstoðarritstjóri, Eysteinn Jónsson,
fyrrv. ráðherra, og Gils Guðmunds-
son, fyrrv. forseti sameinaðs þingis,
sem kjörnir em af sameinuðu þingi.
Ritari sjóðsstjómar er Sveinbjöm
Hafliðason, lögfræðingur.
stöðuna. Guðný Sverrisdóttir er 35
ára að aldri. Hún hefur starfað á
skrifstofu Grýtubakkahrepps nokk-
ur undanfarin ár. Eiginmaður
hennar er Jóhann Ingólfsson bóndi
á Lómatjöm og eiga þau tvo syni.
Vigdís.
Nýr sveitarstjóri
ráðinn á Grenivík
Danskur undrakoddi
fyrir þreyttar axlir
Talið er aö mannskepnan eyði að
minnsta kosti einum þriöja af ævi
sinni í rúminu. Það er þvi mikils um
vert að aöbúnaöur í rúminu sé sem
allra bestur. íslendingar eru nú farnir
að sofa í góðum rúmum meira en
áður.
Við fréttum af nýrri tegund kodda sem
átti aö vera algjör undrakoddi. Slíkum
upplýsingum ber að taka með varúö
og það var með slíku hugarfari sem
við ákváðum að prófa þennan kodda.
Axlirnar eru „fríar"
Koddinn er úr svampi og f honum er
loftrásakerfi sem tryggir að eðlilegt
hitastig helst í koddanum allan ársins
hring.
Hliöar koddans eru misháar og er
hærri hliðin nær hálsinum þannig að
axlirnar eru „frjálsar". Þannig styöur
koddinn betur við höfuðið en venju-
legur koddi hvort sem legiö er á baki,
maga eða hlið.
I stuttu máli stóðst koddinn prófið
og reyndist mjög vel. Það eru ekki
aðeins axlirnar sem hafa það betra
eftir hálfsmánaðar notkun koddans
. heldur einnig hálsinn sem virðist hafa
hvílst betur á þessum danska kodda.
Bay Jacobsen hannaði ekki aðeins
koddann heldur einnig dýnu sem mik-
ið hefur verið af látið. Hægt er að fá
dýnuna Í70,80 og 90 cm breiddum.
Svaf aldrei vært eina ein-
ustu nótt
Bay Jacobsen, sem er danskur mál-
arameistari, átti sjálfur viö langvar-
andi sjúkdóm að strföa. Hann hefur
sagt í blaðaviðtali að hann hafi ekki
sofiö vært eina einustu nótt í fjölda-
mörg ár. Þegar hann kom fyrst fram
með hugmyndina að heilsudýnunni
og koddanum hristi fólk höföuöið og
hafði ekki trú á honum. En eiginkona
hans og fjölskylda stóð á bak við
hann og nú er fyrirtaeki Jacobsens
Þverskurður koddans.
orðið að stórfyrirtæki sem framleiðir
þessar vörur.
Heilsudýnan var útfærð f samvinnu
við endurhaefingadeild héraðssjúkra-
hússins í Árósum og heimilislækni
Jacobsens.
Dýnan er 3 cm á þykkt og þannig
gerð að hún er fyllt af kúlum (ekki
eldfimum) sem einangra og nudda
vöðvana. Kúlurnar dreifa þyngd Ifka-
mans á dýnuna þannig að blóðstrey-
miö veröur óhindrað um vöðvana og
dreifirálagspunktum likamans. Dýnan
hefur einnig þau áhrif að halda Ifkams-
hitanum stöðugum. Hjá fólki, sem er
bakveikt og hefur liða-, bak- eöa
vöðvaverki, getur lítils háttar hitatap
aukið á verkina. Dýnan dreifir þyngd
líkmans vel á undirlagið þannig aö
svefninn veröur meira afslappaður.
Dýnan og koddinn hafa verið á mark-
aði hér á landi í rúmt ár og hefur
verið látiö mjög vel af þeim.
Loksins komin aftur — síðast seldist
allt upp á viku.
Verið forsjál — kaupið strax.
Sendum
í póstkröfu
Þú skalt sjálfur reyna til
þess að sannfærast - þú
hefur 14 daga skilafrest
Langflestir kaupa heilsudýnu og
kodda Bay Jacobsen, vegna þess að
nábúar, vinir og vandamenn hafa
mælt meö þeim.
Fáöu þér dýnu og kodda til reynslu,
þannig aö þú getir einnig sannfærst
um eiginleika þeirra.
Ef þú, innan 14 daga, sérö eftir því
aö hafa keypt dýnuna og koddan þá
skilar þú þeim aftur og færð endur-
greitt.
Þaö er því allt aö vinna, en engu aö
tapa.
Koddinn kostar kr. 2.450,-
og dýnan kr. 5.750,-
ISHREIDRID
Dýnan er 3 cm þykk og látin ofan á venjulega rúmdýnu.
Grensásvegi 12
Sími 688140-84660
Postholf 8312 - 128 Rvk.