Morgunblaðið - 02.06.1987, Page 31
RPt O 5TTTry/-.rTTTr r?TíT«T (T|(3/i T<TVrTT^''rT,0'Vr
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 1987
Fjórða þing Kennarasambands íslands:
Kjaramál o g skóla-
stefna efst á baugi
FULLTRÚAÞING Kennarasambands íslands var sett í gærmorgun
í ráðstefnuhúsnæði ríkisins við Borgartún. Þetta er fjórða þing sam-
bandsins og er það sótt af u.þ.b. 160 fulltrúum hvaðanæva að af
landinu, en aðild að sambandinu eiga rúmlega 3000 kennarar og
skólastjórnendur á grunnskóla- og framhaldsskólastigi. Við setning-
una gerðist það að fulltrúar frá Norðurlandi eystra gengu út þegar
staðgengill menntamálarðaherra tók til máls, en gengu svo í salinn
að lokinni ræðu hans.
Á þinginu verður margt mála til
umfjöllunnar en eitt það helsta sem
þingið mun um fjalla eru drög að
skólastefnu Kennarasambandsins,
en það hefur ekki áður lagt fram
slíka stefnu, auk þess sem búist er
við að umfjöllun um kjaramál verði
ofarlega á baugi.
Valgeir Gestsson, formaður KÍ,
setti þingið og rakti í stórum drátt-
um kjarabaráttu sambandins að
undanfömu. Sagði hann að síðasta
fulltrúaþing hefði verið stefnu-
markandi í kjaramálum og að með
harðri baráttu hefði tekist að bæta
kjör kennara. Hann kom síðan víða
við í ræðu sinni; fjallaði lítillega um
úrsögnina úr B.S.R.B. og hið svo-
kallaða fræðslustjóramál, auk þess
sem hann vék að skýrslu OECD um
stöðu skólamála hérlendis og nauð-
syn á endurmati á störfum kennara.
Heimir Pálsson, varaformaður
Hins íslenska kennarafélags, tók
því næst til máls og þakkaði KÍ
veittan stuðning í kjarabaráttu fé-
lagsins. Hann vék einnig að OECD
skýrslunni og niðurstöðum hennar,
og sagði hana sýna að gagnrýni
kennara á stjóm skólamála væri
kórrétt.
Að lokinni stuttri tölu Heimis
tóku til máls formaður norrænu
kennarasamtakanna, Christer
Romilson, en hann er sérstakur
gestur þingsins, Kristján Thorlací-
us, formaður B.S.R.B., og Júiíus
Bjömson, formaður B.H.M.R., og
gerðu þeir Kristján og Júlíus lífeyr-
issjóðsmál sérstaklega að umtals-
efni sínu, en á þinginu má búast
við talsverðri umfjöllun um þau mál.
Þá var komið að fulltrúa mennta-
málaráðherra, Reyni Kristinssyni,
að taka til máls í fjarveru Sverris
Hermannssonar. Þingfulltrúar frá
Norðurlandi eystra stóðu þá á fæt-
ur, sem fyrr segir, og gengu í
mótmælaskyni rakleitt út úr funda-
salnum og komu ekki inn aftur fyrr
en að loknum málflutningi hans.
Að lokum flutti Pálmi Jósefsson
stutt ávarp þar sem hann að síðustu
færði KÍ handrit um fyrstu 50 árin
í sögu Sambands íslenskra bama-
skólakennara. Valgeir Gestsson tók
við handritinu fyrir hönd kennara-
sambandsins og lét þau orð falla
um leið og hann óskaði Pálma heilla
að þama hefði verið skráður mjög
merkilegur kafli í íslenskri skóla-
sögu.
Þingstörf hefjast kl. 9.00 og
standa til kl. 22.00 í dag og á
morgun, en kl. 16.00 á fimmtudag
lýkur þinginu.
Morgunblaðið/KGA
Ráðstefnugestir eru 160 hvaðanæva að af Iandinu, en alls eiga rúmlega 3000 manns aðild að sambandinu.
Hvítasunnu
kappreiðar
Fáks
fara fram 4.-8. júnl
á Víðivöllum.
Dagskrá.
Fimmtudagur 4. júní kl. 18.00
Asavöllur, b flokkur gæðinga.
Föstudagur 5. júní kl. 18.00
Asavöllur, a flokkur gæðinga.
Laugardagur 6. júnf kl. 09.00
Asavöllur, unglingar 13-15 ára
kl. 10.00
Hvammsvöllur, töltkeppni, kl. 11.00
Asavöllur, unglingar 12. ára og yngri
kl. 13.30
Asavöllur, úrslit í unglingaflokkum
kl. 15.00
Fáksvöllur, 150 m skeið báðir sprett-
ir, 300 m brokk báðir sprettir.
Mánudagur 8. júní kl. 13.00.
Asavöllur, úrslit í a flokki, b flokki
og tölti kl. 14.00
Fáksvöllur, kappreiðar, 250 m skeið
báðir sprettir, 800 m stökk, 350 m
stökk og 250 m stökk.
Sumarhagar
Tekið verður á móti hestum í Geldingarnesi þriðju-
daginn 2. júní frá kl. 19.00-22.00.
Getum bætt við hestum í hagagöngu á Ragn-
heiðarstöðum.
Upplýsingar á skrifstofu Fáks.
TE
Nú fást þessar einstöku
eldhúsrúllur á tilboðsverði.
Hafðu ætíð það besta á borðum.
|§| 1