Morgunblaðið - 02.06.1987, Page 32

Morgunblaðið - 02.06.1987, Page 32
32_______ Bretland MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 1987 Bítlaæðið tutt- ugu árum síðar St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðarí Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. í gær, 1. júní, voru tuttugn ár liðin, frá því að Bítlarnir, fræg- asta dægurlagahljómsveit allra tíma, gaf út plötuna Sgt. Pepper’s Lonely Hearts Club Band, sem var hátindurinn á frægðarferli þeirra. Þessa hefur verið minnst með ýmsum hætti, m.a. með tveggja klukku- stunda löngum þætti í sjónvarpi í gærkvöldi — um gerð plötunnar, áhrif hennar og hippatímabilið, sem hún var hluti af. Þátturinn nefnist „It was twenty years ago today“. Árið 1967 voru Bítlamir fræg- Friends" og ýmis fleiri. Plötunni var asta popphljómsveit, sem uppi var þá. Þeir höfðu hætt að leika á hljóm- leikum eftir erfíða hljómleikaferð um Bandaríkin. Sgt. Peppers-platan varð eins konar hljómleikar í hljóð- stofu til að bæta aðdáendunum missinn, en hljómsveitin, sem platan dregur nafn sitt af, er að leika fyr- ir áhorfendur, og milli laganna má heyra til þeirra, svo og ýmis sirkus- hljóð. Á þessari plötu eru ýmis frægustu lög Bítlanna, „When I’m Sixty-Four“, „Lucy in the Sky with Diamonds", „A little Help from my firnavel tekið af gagnrýnendum. En hún hneykslaði líka marga, og sum laganna voru bönnuð, vegna þess að þau lofuðu eiturlyfjaneyslu. Við gerð plötunnar neyttu Bítlarnir reglulega þess lyfs, sem markar upphafsstafina í „Luci in the Sky with Diamonds". Enginn virtist þó taka eftir því, að á plötuumslaginu, sem mikið var lagt í, voru marihu- anaplöntur fyrir miðri mynd og í forgrunni. Eftir gerð þessarar plötu héldu þeir frægðinni, en leiðin var öll nið- Forsíða plötuumslagsins fræga. ur á við. Þeir lentu í eiturlyfjalög- reglunni, Yoko Ono og í að stofna eigið fyrirtæki, Apple, sem mis- heppnaðist, og Brian Epstein lést. I gær var haldið samkvæmi í hljóðstofunni í Abbey Road, þar sem platan var unnin á 129 dögum. Meðal' gesta voru George Martin, sem stjórnaði upptökunni, og Peter Blake, sem hannaði plötuumslagið. Ekkert lát er á vinsældum Bítlanna 17 árum eftir að starfí hljómsveitarinnar lauk. Yfír 100 bækur um hana hafa komið út á ensku, og 1980 áætlaði EMI-plötu- fyrirtækið, að það hefði selt yfir þúsund milljón plötur og bönd með lögum þeirra. Síðan eru sjö ár. Grænland: Jonathan Motzfeldt áfram leiðtogi Siu- mut og landstjómar Kaupmannahöfn. Frá Nils Jörgen Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins. VINSTRIARMI grænlenska stjórnarflokksins Siumut varð ekki kápa úr því klæðinu að koma Jonathan Motzfeldt, for- manni landstjórnarinnar, frá og fá þingmanninum Lars Emil Johansen, fyrrum æðstráðanda í sjávarútvegsmálum Græn- lands, valdataumana í hendur. Eftir flokksráðsfund Siumut á sunnudag, varð Lars Emil Jo- hansen að viðurlenna, að leið- togi grænlensku landstjórnar- innar, væri hinn sami eftir BIDUR GARDURINN ÞINN ENN EFTIR VORSNYRTINGUNNI? Á öllum bensínstöðvum Esso höfum við flest til að þú getir strax hafist handa: garðáburö, mosaeyði, garö- skeljakalk og ruslapoka. Mundu að þú getur einnig litið inn eftir kvöldmal, við erum alls staðar á næstu grösum. Áburður 10 kg 250 kr. Mosaeyðir á 50 m2 708 kr. Garðskeljakalk 4 kg 117 kr. Ruslapokar 5 stk. 115 kr. Olíufélagið hf kosningarnar og fyrir þær — sem sé Jonathan Motzfeldt. Á laugardaginn var hlaut Motz- feldt ámæli frá stjórn flokks síns, vegna þess að hann hafði daginn áður leitað eftir stjórnmálasam- starfi við borgaraflokkinn Atassut, sem var í stjómarandstöðu á síðasta kjörtímabili. Motzfeldt hafði sömu tilburði uppi fyrir kosn- ingamar og hlaut þá bágt fyrir hjá vinstriarmi flokks síns, þar með töldum Lars Emil Johansen. Meðan Motzfeldt var við ferm- ingarathöfn í Suður-Grænlandi á laugardag, kallaði Lars Emil Jo- hansen saman flokksráðið og tók stjómarmyndunarviðræðumar í sínar hendur. Hann ræddi að vísu ekki við Atassut eins og Motz- feldt, heldur sneri sér til vinstri- flokksins Inuit Ataqatigiit. Viðræðum flokkanna miðaði svo langt, að Lars Emil Johansen var opinberlega nefndur til sem nýr leiðtogi í grænlenskum stjóm- málum. Otto Steenholdt, leiðtogi Atass- ut, lét nægja að tala um „arg- entínskt ástand í Grænlandi”, en Jonathan Motzfeldt kom með leiguflugi frá Suður-Grænlandi til Nuuk (Godtháb). Haldinn var nýr fundur í flokksráði Siumut og lykt- aði honum á þann veg, að Lars Emil Johansen lagði fram tillögu um, að Jonathan Motzfeldt yrði leiðtogi flokks og stjómar á ný- höfnu kjörtímabili. Eftir fundinn sagði Lars Emil, að hann vildi ómögulega kljúfa Siumut, en yrði í framboði til for- mannsembættis flokksins, þegar kosið yrði um það í ágústmánuði. Jonathan Motzfeldt. Hann sagðist hins vegar ekki mundu gefa kost á sér í embætti formanns iandstjórnarinnar, ef hann hlyti kosningu til formanns. Haft var eftir Jonathan Motzfeldt, að Siumut væri óspjallaður. Lars Emil sagði, að ekki væri hægt að tala um sigurvegara og sigraða eftir atburði helgarinnar. Það liggur nú ljóst fyrir, að Siumut og Inuit Ataqatigiit munu halda áfram stjómarsamstarfi sínu. Motzfeldt verður formaður landstjómarinnar, auk þess sem hann fer með kirkju- og menning- armál. Ljóst er einnig, að Moses Olsen, varaformaður Siumut, sem farið hefur með atvinnumál í landstjórn- inni, verður að láta af því embætti eftir uppgjörið við Motzfeldt. Hann hlýtur í staðinn embætti forseta landsþingsins. Við starfsmenntun- ar- og verkalýðsmálum tekur Jens Lyberth, formaður grænlensku verkalýðssamtakanna, SIK. Kaj Egede, sauðfjárræktarráðunautur landstjómarinnar, tekur við at- vinnu-, iðnaðar- og sjávarútvegs- málunum af Moses Olsen. Endanleg skipting stjómar- deilda fer fram, þegar landsþingið kemur saman 9. júní næstkom- andi. Þá kemur enn fremur í ljós, hvort Siumut gengur að þeirri kröfu samstarfsflokksins að stofna nýja stjórnardeild, sem fari með fjölskyldu- og heilbrigðismál. í dag T opptískan Aðalstræti Lending Mathias Rust Rust þjóðhelja í Vestur-Þýskalandi: Atvinnuflugmenn fordæma ofurhugann * „Eg hló mig máttlausan,“ sagði Genscher Bonn, Reuter. MIKLU lofi hefur verið hlaðið á Mathias Rust fyrir að sýna flug- mönnum vestur-þýskra orrustu- þota hvað hægt væri að gera með því að lenda flugvél sinni af Cessna-gerð á Rauða torginu, en flugmenn flugfélaga sögðu að þetta gæti haft háskalegar afleiðingar. Samkvæmt skoðanakönnun, sem gerð var í Vestur-Þýskalandi um helgina, bera 88 prósent Þjóðverju virðingu fyrir Rust fyrir að hafa snúið á varnir Sovétmanna og hnit- að hringa yfir Kreml, æðsta valda- sæti Sovétríkjanna, áður en hann lenti. Peter Wurzbach, aðstoðarvarnar- málaráðherra, sagði að vestur-þýski flugherinn ætti að kenna flugmönn- um sínum að fljúga lágt eins og Rust. „Flugmenn okkar verða að geta gert þetta líka,“ sagði Wiirz- bach í útvarpsviðtali og bætti við að Rust hefði með-afreki sínu sann- að þá kenningu að fljúga megi undir ratsjár óvinarins. Cockpit, samtök flugmanna flug- félaga, lýstu aftur á móti yfir því að athæfi Rusts hefði verið heimskulegt og hættulegt. „Líf þess flugmanns, sem næstur rýfur sov- éska lofthelgi, er nú í mikilli hættu og gildir einu þótt hann fljúgi að- eins nokkra km inn fyrir sovésku landamærin," sagði Horst Gehlen, talsmaður Cockpit í útvarpsviðtali. I Vestur-Þýskalandi hafa menn velt vöngum yfír því hvort ákveðið hefði verið að stöðva ekki vél Rusts, þótt tekið hafi verið eftir henni. Árið 1983 var suður-kóresk far- þegaþota skotin niður með þeim afleiðingum að 269 manns létu lífið og leitt er getum að því að yfir- menn í sovéska hernum hafí ekki viljað að slíkt endurtæki sig. Gehlen kvaðst ekki geta ímyndað sér að draumur Rusts um að verða atvinnuflugmaður rættist. Rust myndi aldrei fá flugleyfi og ugg- laust yrði hann dæmdur óhæfur til að fljúga af sálrænum ástæðum. Viðbrögð vestur-þýskra atvinnu- flugmanna voru á annan veg en # * « Reuter Flugvél Rusts undir kirkju Heil- ags Basils á Rauða torginu í Moskvu. fjölmiðla, sem nafa vart ráðið sér fyrir kæti yfir flugferð Rusts. Stærsta götublað Vestur-Þýska- lands, Bild, hvatti Mikhail Gorbach- ev Sovétleiðtoga til að bjóða „Rauða torgs flugmanninum” til Kremlar og í útsýnisflug yfir Moskvu. Að lokum ætti að leyfa Rust að veita eiginhandaráritanir í GUM-stór- markaðnum, sem stendur við Rauða torgið. „Ég hló mig máttlausan," hafði blaðið eftir Hans Dietrich Genscher, utanríkisráðherra Vest- ur-Þýskalands. Vitnað var í vest- rænan leyniþjónustumann: „Varnarlið Sovétmanna var greini- lega drukkið rétt eina ferðina.” Vildi afreka eitt- hvað stórkostlegt - segja vinir Rusts í Wedel MATHIAS Rust, ungi ofurhug- inn, sem lenti lítilli flugvél sinni á Rauða torginu á fimmtudag, er frá bænum Wedel í grennd við Hamborg og haft er eftir vinum hans að hann hafi viljað gera eitthvað stórkostlegt. Móðir Mathias Rust, Monika, segir að hann hafi ætíð verið gagn- tekinn af fluginu og tók flugpróf áður en hann lærði á bíl. Rust fékk flugdelluna eftir að hann fór eitt sinn í hálftíma útsýnisflug yfír Hamborg ásamt móður sinni og föður, Karl-Heinz, og bróður sínum, Ingo. Mathias greiddi 180 þúsund ísl. kr. fyrir flugskírteinið sitt. Það er mikið fé, en flugið var ástríða Rusts og hann var ákveðinn í að verða atvinnflugmaður. Sá draum- ur rætist líkast til ekki úr þessu. Mathias Rust hefur ætíð verið lítið gefinn fyrir íþróttir og hóf- samur í kvennamálum: „Hann hegðaði sér alltaf eins og eldri maður og klæddist þannig,“ sagði Andrea Kuhn, sem var með honum í skóla. „Eitt sagði hann þó að hann vildi afreka eitthvað stór- kostlegt. Hann sagði: Ég ætla að leggja heiminn að fótum mér.“ Mathias kom aldrei í skólasam- kvæmi og var lítið gefinn fýrir skemmtanir. Skólafélögum hans ber saman um að hann hafi verið einfari. Axel sat við hlið Rusts í skóla: „Hann gerði það sem honum sýnd- ist og lét engann segja sér fyrir verkum. Hann skipti sér ekki af pólitík, en hafði sterka réttlætis- kennd. En hann vildi gera eitt- hvað.“ (Heimild: Bild)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.