Morgunblaðið - 02.06.1987, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUÐAGUR' 2. JÚNÍ 1987
33
á Rauða torg’inu:
Reuter
Hamborg, Reuter.
VESTUR-þýski flugmaðurinn
Mathias Rust sagði gáttuðum
sjónarvottum á Rauða torginu í
Moskvu að hann hefði komist i
samband við sovéska þotu þegar
hann flaug frá Helsinki og yfir
Sovétríkin.
Kvikmynd, sem einn viðstaddra
tók þegar Rust lenti flugvél sinni á
Rauða torginu, hefur verið sýnd í
vestur-þýska sjónvarpinu. Þar mátti
sjá Cessna 172 vélina hnita hringi
yfir hvelfingum Kremlar, lenda á
Moskvubrúnni og nema staðar und-
ir næpulaga tumum kirkju Heilags
Basils.
Rust, sem kalla má þjóðhetju í
sínu heimalandi, var síðan sýndur
umkringdur fólki og mátti sjá hvar
hann veitti mönnum eiginhandar-
áritanir og svaraði spumingum á
ensku og þýsku.
Rust var klæddur rauðum flug-
mannsjakka og sagði hann vantrú-
aðri konu tvisvar að hann hefði
flogið frá Helsinki. „Ég var fimm
klukkustundir á leiðinni. Einni
klukkustund eftir að ég lagði af
stað frá Helsinki komst ég stuttlega
í samband við þotu sovéska flug-
hersins." Ekki kom fram hvort hann
hefði aðeins séð þotuna eða sovéski
flugmaðurinn hefði náð talstöðvar-
sambandi.
Faðir Rusts, Karl Heinz, sagði
að myndin hefði komið sér á óvart:
„Einfaldlega stórkostlegt." Karl
Heinz, sem er verkfræðingur,
kvaðst hafa verið ánægður að sjá
hversu yfirvegaður og áhyggjulaus
Mathias hefði virst meðal Rússa og
með Rauða herinn að baki sér.
Um helgina var því haldið fram
að kona ein hefði verið með Rust
J
Gorbachev sýnir tenimrnar:
Herforingjar reknir
-stöðvuðu ekki Rust
Mathias Rust meðal Moskvubúa á Rauða torginu. Mynd þessi er úr
filmu, sem áhugamaður tók þegar Rust lenti.
Flaug fram á sov-
éska orrustuþotu
Moskva. Reuter.
VARNARMÁLARÁÐHERRA
Sovétríkjanna og yfirmaður
loftvarna hafa verið reknir úr
stöðum sinum eftir að Vestur-
Þjóðverjanum, Mathias Rust,
tókst að fljúga hindrunarlaust
frá Finnlandi til Moskvu og
lenda þar á Rauða torginu sl.
fimmtudag. Talið er að fleiri
muni missa stöður sínar áður
en máli þessu lýkur. Hefur sov-
éski herinn ekki fengið slfta
ráðningu í rúm 30 ár eða síðan
Nikita Khrushchev rak Georgy
Zhukov, stríðshetjuna frægu úr
síðari heimsstyrjöld, úr varnar-
málaráðuneytinu árið 1957.
Menn minnast nú orða Andrei
Gromyko er hann sagði fyrir 2
árum að Mikhail Gorbachev, aðal-
ritari, hefði vissulega fallegt bros,
en að á bak við það leyndust jám-
tennur. Þykir Gorbachev hafa sýnt
öryggi og styrkleika við þessar
aðgerðir. Hann kallaði saman fund
í stjómmálaráðinu nokkrum
klukkustundum eftir að hann kom
heim frá fundi Varsjárbandalags-
ríkja í Austur-Berlín. Þar var
samþykkt harðorð yfirlýsing og
sagt að varnarmálaráðuneytið
undir stjórn Sergei Sokolov, sem
reyndar var staddur með Gorbac-
hev í Berlín, hefði sýnt vítaverða
vanrækslu og skort á árvekni og
aga í viðbrögðum sínum við flugi
Rust. Einnig var sagt að Alexand-
er Koldunov, yfirmaður loftvama
og undirmenn hans hefðu sýnt
ófyrirgefanlega vanrækslu og
skort á skipulegum vinnubrögðum.
Að undanfömu hefur komið
fram mikil gagnrýni pólitískra
ráðamanna á yfírmenn sovéska
hersins fyrir tregðu þeirra til að
stunda sjálfsgagnrýni og tileinka
sér umbótastefnu Gorbachev. Er
ljóst að valdabarátta hefur átt sér
stað á bak við tjöldin. Verður flug-
ferð Rust því vatn á myllu
Gorbachevs í þeirri baráttu.
Sérfræðingar em flestir sam-
mála um að brottrekstur Sokolov
og Koldunov úr embættum, beri
að taka sem skilaboð til umheims-
ins um að Sovétmenn séu stað-
ráðnir í að lagfæra veilur er vera
kynnu á loftvömum. Sovéski flug-
herinn, sem ekki er beinlínis
gagnrýndur í yfírlýsingu stjórn-
málaráðsins, mun hafa átt að
neyða Rust til að lenda eða skjóta
hann niður. Öllum eigi að vera það
ljóst að slíkt verði gert ef ein-
hvetjum ofurhuganum skyldi detta
í hug að reyna að leika eftir flug-
ferð Rust.
Hvað verður gert við Rust?
Gorbachev á erf iða
ákvörðun fyrir höndum
Reuter
Gennady Gerasimov, talsmaður
sovéska utanríkisráðuneytisins:
Rust á allt að tíu ára dóm yfir
höfði sér.
í vélinni, en að því er talsmaður
vestur-þýska sjónvarpsins sagði
sést enginn kvenmaður á myndinni.
Mönnum hefur þegar verið vikið
úr starfi vegna þessa máls og þyk-
ir einkar vandræðalegt að flugferð
Rusts skyldi hafa borið upp á „Dag
sovéskra landamærávarða".
í yfírlýsingu frá sovéska stjóm-
málaráðinu sagði að vélar Rusts
hefði orðið vart þegar hann nálgað-
ist Sovétríkin og fór yfir landamær-
in yfír Eistlandi. Sagði að sovéskar
orrustuþotur hefðu tvisvar flogið
umhverfis Cessnuna, en ekki tekist
að þvinga hana til lendingar.
Moskvu, Reuter.
MIKHAIL Gorbachev, leiðtogi
Sovétríkjanna, á erfiða ákvörðun
fyrir höndum. Skera þarf úr um
það hvernig farið verður með
vestur-þýska ofurhugann Math-
ias Rust, sem lék á sovéska
herinn á fimmtudag og lenti lítilli
eins hreyfils flugvél á Rauða
torginu.
Ef Gorbachev ákveður að senda
hinn nítján ára gamla flugmann
heim til Hamborgar án refsingar
kann hann að virðast veikur heima
fyrir, segja sérfræðingar. Það yrði
þymir í augum andstæðinga endur-
bótastefnu leiðtogans.
Ef Gorbachev ákveður hins vegar
að veita Rust þunga refsingu yrði
litið svo á í vestri að hann sé ill-
gjam og gersneyddur öllu skop-
skyni. En Gorbachev hefur reynt
að koma fyrir sem snöfurmannlegur
leiðtogi í vestrænum ríkjum, sem
leitast við að gera sovéskt þjóðfélag
mannlegra.
Þegar hefur vamarmálaráðherra
Sovétríkjanna og yfirmanni loft-
vama verið vikið úr starfi vegna
flugævintýris Rusts.
Sovéskir íjölmiðlar hafa í anda
stefnu Gorbachevs um opnari fjöl-
miðlun greint frá því að Rust rauf
sovéska lofthelgi. Aftur á móti hef-
ur hvergi verið tekið fram að hann
lenti á Rauða torginu. Því hafa
Moskvubúar margir ekki hugmynd
um lendingarstað Rusts og hlægja
einfaldlega að fiskisögunni, sem
flýgur um borgina.
Stjómmálaskýrendur í Bonn,
höfuðborg Vestur-Þýskalands,
drógu þá ályktun af því hversu fljót-
ur Gorbachev var að hreinsa til eftir
atvikið að Sovétmenn myndu vægja
Rust. Valentin Falin, fyrrum sendi-
herra í Vestur-Þýskalandi og
núverandi yfirmaður sovésku
fréttastofunnar Novosti var sama
sinnis í viðtali við dagblaðið Hamb-
urger Morgenposb „Víst er að við
munum þakka honum fyrir að beina
athygli okkar að gloppum í sov-
éskum loftvömum. Verið getur að
hann verði dreginn fyrir rétt - slíkt
væri eðlilegt. En ég býst við að
ungi maðurinn muni brátt hitta for-
eldra sína og vini að nýju.“
Annar sérfræðingur um sovésk
utanríkismál sagði í Moskvu að
Rust hefði gert hernum greiða og
hann ætti ekki að gjalda það dýru
verði að hafa leyst niður um so-
véska herinn.
Aðrir sérfræðingar í Moskvu
voru ekki jafn vissir um að vægt
yrði tekið á Rust vegna þess að til
þessa hafa opinberar yfírlýsingar
verið grafalvarlegar. Og Gennadi
Gerasimov, talsmaður sovéska ut-
anríkisráðuneytisins, sagði að Rust
ætti yfir höfði sér allt að tíu ára
fangelsi.
Þess finnast ekki mörg dæmi að
menn hafi brotið sér leið inn í Sqv-
étríkin. Árið 1968 gekk ungur
Bandaríkjamaður yfir landamæri
Noregs og Sovétríkjanna og sagði
að runnið hefði á sig „hetjumóður".
Hann fékk þriggja ára dóm fyrir
að fara yfir sovésku landamærin
og framdi sjálfsmorð í lest á leið í
þrælkunarbúðir.