Morgunblaðið - 02.06.1987, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 1987 .
47
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Au-pair New York
Ung fjölskylda óskar eftir Au-pair eða fóstru
fyrir ungbarn. Verður að geta byrjað í janúar
1988. Reynsla æskileg. Ábyggilegheit og
enskukunnátta nauðsynleg. Aldur 21 árs eða
eldri. Má ekki reykja.
Svar sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 12.
júní merkt: „P — 4006“.
Tré—bátasmiðir
— lagtækir menn
Mótun hf. Hafnarfirði óskar að ráða nokkra
menn við að fullgera báta. Góð laun fyrir
rétta menn. Fæði á staðnum. Mjög góð
vinnuaðstaða.
Upplýsingar í Dalshrauni 4, í dag og næstu
daga.
Mótun hf.,
Dalshrauni 4, Hafnarfirði.
Kennarar
Mýrarhúsaskóla vantar kennara í hannyrðir
og almenna kennslu.
Upplýsingar í síma 611980 kl. 9.00-15.00.
Skóiastjóri.
ISAL
Rafeindavirkjar
Óskum eftir að ráða rafeindavirkja til starfa
á mæla- og rafeindaverkstæði okkar, þar
sem að jafnaði eru starfandi 5 menn auk
verkstjóra.
Við leitum að áhugasömum mönnum sem
hafa full réttindi sem rafeindavirkjar og eru
tilbúnir til að takast á við margbreytileg
tæknistörf.
Helstu verkefni eru viðhald, þróun og ný-
smíði búnaðar á eftirtöldum sviðum:
Tölvukerfi.
Fjarskiptakerfi.
Sjálfvirkni.
Efnagreiningartæki.
Mælitæki.
Annar rafeindabúnaður í verksmiðjunni.
Um fjölbreytilegt framtíðarstarf er að ræða.
Ráðning nú þegar eða eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar veitir verkstjóri, Erlingur
Kristjánsson, í síma 91-52365 á tímabilinu
kl. 13.00-16.00.
Umsóknum óskast skilað í pósthólf 224 eigi
síðar en 15. júlí 1987. Umsóknareyðublöð
fást hjá Bókaverslun Sigfúsar Eymundsson-
ar, Reykjavík og Bókabúð Olivers Steins,
Hafnarfirði.
íslenska álfélagið.
Byggingafélagið
Reisn
Getum bætt við okkur smíðaverkefnum strax.
Upplýsingar í símum 79891,46126 og 46714
Starfsfólk óskast
til fiskréttaframleiðslu og fiskvinnslu.
Upplýsingar í síma 673130.
Patreksfjörður
Umboðsmaður óskast til að annast dreifingu
og innheimtu fyrir Morgunblaðið.
Uppl. hjá umboðsmanni í síma 1234 eða
afgreiðslunni í Reykjavík, sími 91-83033.
Heiibrigðisfulltrúi
Starfsmann vantar í fullt starf sem heilbrigð-
isfulltrúi. Starfssvæðið er Mosfellsumdæmi
og Seltjarnarneskaupstaður.
Ætlunin er að sameina umdæmi heilbrigðis-
nefnda Mosfellsumdæmis og Seltjarnarnes-
kaupsstaðar í eitt eftirlitssvæði og yrði
heilbrigðisfulltrúinn framkvæmdastjóri þess
svæðis.
Upplýsingar veita sveitarstjóri Mosfells-
hrepps (sími 666218), bæjarstjóri Seltjarnar-
neskaupstaðar (sími 612100) og Jón Zimsen
form. heilbrigðisnefndar Mosfellsumdæmis
(vs. 38331).
Umsóknir sendist til Svæðisnefndar, c/o Jón
Zimsen, Hlégarði, Mosfellssveit, 270 Varmá,
fyrir 19. júní 1987.
í umboði Svæðisnefndar,
Heiibrigðisnefnd Mosfellsumdæmis,
HeilbrigðisnefndSeltjarnarneskaupstaðar.
Bakaranemi
Óskum að ráða bakaranema. Æskilegt að
viðkomandi geti byrjað sem fyrst.
Upplýsingar á staðnum milli kl. 10.00-12.00
í dag og næstu daga.
Grensásbakari sf.,
Lyngási 11,
Garðarbæ,
sími51445.
Sveitarstjóri óskast
Staða sveitarstjóra Búðahrepps Fáskrúðs-
firði er laus til umsóknar. Umsóknarfrestur
er til 15. júní. Staðan veitist frá 15. júlí.
Upplýsingar um starfið veitir fráfarandi sveit-
arstjóri í síma 97-5220. Umsóknir ásamt
upplýsingum um menntun og fyrri störf
sendist skrifstofu Búðarhrepps, Skólavegi
53, 750 Fáskrúðsfriði.
Ert þú hárgreiðslu-
sveinn eða meistari
á lausu?
Viltu vinna með hressu fólki?
Ef svo er vantar okkur þig strax.
Upplýsingar t símum 34420 og 688820.
Hárgreiðslustofa Sólveigar Leifsdóttur.
Ölgerðin
óskar að ráða fólk til sumarafleysinga í véla-
sal. Ekki yngri en 18 ára.
Uppl. gefur Gísli Svanbergsson á Grjóthálsi
7-11 frá kl 10.00-15.00 (ekki í síma).
H.F. ÖLGERÐIN EGILL SKALLAGRlMSSON
Tækjamenn
Vantar vana tækjamenn á traktorsgröfu.
Aðeins menn með full réttindi koma til
greina.
Gunnarog Guðmundursf.,
Krókhálsi 1,
sími 671210.
Bókhald
Stórt fyrirtæki í Austurbænum vantar starfs-
kraft með einhverja reynslu í bókhaldi til
starfa í bókhaldsdeild.
Umsóknir merktar: „Bókhald — 761“ sendist
auglýsingadeild Mbl. fyrir miðvikudagskvöld.
Skrifstofuvinna
— bókhald
Iðnfyrirtæki í Hafnarfirði óskar að ráða starfs-
mann, hálfan daginn, við almennt skrifstofu-
starf og bókhald (sveigjanlegur vinnutími).
Einhver reynsla á IBM-tölvu æskileg.
Upplýsingar óskast sendar auglýsingadeild
Mbl. sem fyrst, merktar: „Sjálfstæður — 8225“.
Lausar stöður
Við námsbraut í hjúkrunarfræði við lækna-
deild Háskóla íslands eru lausar til umsóknar
eftirtaldar stöður:
1. Staða dósents í hjúkrunarfræði, 50%
staða. Aðalkennslugrein: Hjúkrunar-
stjórnun.
2. Staða dósents í sýkla- og ónæmisfræði,
37% staða til fimm ára.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna
ríkisins.
Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um
vísindastörf umsækjenda, ritsmíðar og rann-
sóknir, svo og námsferil og fyrri störf, skulu
sendar til menntamálaráðuneytisins, Hverf-
isgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 1. júlí 1987.
Menn tamálaráðuneytið,
l.júní 1987.
Bifvélavirkjar
— bílasmiðir
— vélvirkjar
Óskum eftir að ráða ofangreinda starfsmenn
sem fyrst. Fyrsta flokks vinnuaðstaða í nýju
húsi.
Bílaborg hf.,
sími 681299.
Vanur
auglýsingateiknari
óskast strax
í boði er mjög áhugaverð vinna á einni full-
komnustu teiknitölvu í heimi „PAINTBOX"
ásamt annarri teiknivinnu.
Vinsamlegast skilið inn umsóknum á auglýs-
ingadeild Morgunblaðsins merktum:
„PAINTBOX — 11443“ fyrir fimmtudaginn
4. júní.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnað-
armál.
GæóaGrafík hf.