Morgunblaðið - 02.06.1987, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. JUNI 1987
51
Ekkert fær raskað ró þinni á ferðalaginu ef þú ert með
Ferðatryggingu SJÓVÁ upp á vasann.
Farðu því ekkert án Ferðatryggingar SJÓVÁ.
Hún sameinar allar tryggingar sem ferðamenn þurfa á að halda:
Ferðaslysatryggingu, ferðasjúkratryggingu, farangurstryggingu,
ferðarofstryggingu og SOS neyðarþjónustu.
í>ú getur keypt þér trygginguna um leið og þú sækir
gjaldeyrinn því Ferðatrygging
SJÓVÁ fæst líka á öllum
afgreiðslustöðum Landsbanka
íslands.
Tryggingarfélag í einu og öllu.
Sjóvátryggingarfélag íslands hf., Suöurlandsbraut 4, sími (91 )-82500.
SJÓVÁ
Skólaslit Trygg-
ingarskólans:
Trygging-
ar skól-
inn 25 ára
TRYGGINGARSKÓLA Sambands
íslenskra tryg’gingarfélaga var
slitið mánudaginn 25. maí síðast-
liðinn. Skólinn hefur nú starfað í
25 ár
Samband íslenskra tryggingarfé-
laga starfrækir skóla fyrir starfsfólk
vátryggingarfélaganna undir heitinu
Tryggingarskólinn. Málefni skólans
eru í höndum sérstakrar skólanefnd-
ar, sem skipuð er fimm mönnum.
Formaður hennar er Siguijón Pét-
ursson. Tryggingarskólinn hóf
starfsemi haustið 1962 og hefur því
starfað í 25 ár. Það eru vátrygging-
arfélögin innan vébanda Sambands
íslenskra tryggingarfélaga, sem
standa straum af kostnaði við rekst-
ur skólans. Gerist það annars vegar
með árgjöldum frá vátryggingarfé-
lögum í hlutfalli við iðgjaldatekjur
þeirra, en hins vegar með greiðslu
þatttökugjalds fyrir starfsmenn fé-
laganna.
Tryggingarskólanum var að þessu
sinni slitið mánudaginn 25. maí s.l.
Þeir nemendur, sem gengu undir
próf og stóðust þau, voru 34 að
þessu sinni. Voru prófskírteini af-
hent nemendum við skólaslitin. Þar
með er fjöldi prófskírteina frá
Tryggingarskólanum orðinn 635 frá
stofnun skólans. Blandaður kór frá
norska vátryggingarfélaginu Store-
brand söng nokkur lög við skólaslit-
in.
Bjarni Þórðarson, formaður Sam-
bands íslenskra tryggingarfélaga
afhenti 10 nemendum, sem hlotið
höfðu ágætiseinkunnir á prófum,
bókaverðlaun. Þessir nemendur eru
Kristín Jonsdóttir og Svanhildur
Geirarðsdóttir frá Reykvískri endur-
tryggingu hf., Málfríður Vilhelms-
dóttir og Þórður Þórðarson frá
Brunabótafélagi íslands, Sigríður
Klemensdóttir, Arinbjöm Sigur-
geirsson, Einar Þorláksson og Linda
Robinsson frá Sjóvátryggingarfélagi
íslands hf., Páll Jónsson frá Trygg-
ingu hf. og Svava Magnúsdóttir frá
Tryggingarmiðstöðinni hf.
Vopnafjörður:
Lenging viðlegu-
kants í 115 metra
Lokið við byggingu íþróttahúss
Ekki án ferdatryggingar
Vopnafirði.
STÆRSTU verkefni á vegum
Vopnafjarðarhrepps í sumar eru
við hafnarframkvæmdir, en
ákveðið er að lengja viðlegukant
hafnarinnar um 55 metra, og
iokaáfangi íþróttahússins, en
vonir standa til að taka megi
húsið í notkun um næstu áramót.
Framkvæmdir við höfnina hefjast
um miðjan júní og verður rekið nið-
ur stálþil við enda þess sem fyrir
er og verður með tilkomu nýja hlut-
ans komið 115 metra langt viðlegu-
pláss og þar með leystur vandi
togara og stórra skipa sem stöðugt
hafa þurft að víkja hvert fyrir öðru
vegna þrengsla.
Útgerð smærri báta hefur aukist
mjög að undanfömu og þörf fyrir
nýja smábátaaðstöðu því orðin
brýn. Endanleg ákvörðun um fram-
kvæmdir liggur ekki fyrir en unnið
er að teikningum og kostnaðaráætl-
un.
Stórátak var gert í malbikun og
frágangi gatna á síðasta sumri og
sagði Sveinn Guðmundsson sveitar-
stjóri að í sumar mundu önnur
verkefni hafa forgang.
Bygging íþróttahúss hefur staðið
í nokkur ár en nú er hafin vinna
við lokaáfanga hússins en eins og
fyrr segir standa vonir til að taka
megi allt húsið í notkun um næstu
áramót. Skortur á íbúðarhúsnæði
hefur lengi verið tilfinnanlegur hér
á Vopnafirði. Þar ætlar sveitarfé-
lagið að hefja úrbætur með bygg-
ingu leiguíbúða og hefjast
framkvæmdir við tvær þær fyrétu
mjög fljótlega. Einnig er áætlað að
hefla í sumar framkvæmdir við
dagheimili og leikskóla. Stöðugt
eykst ferðamannastraumur í góða
veðrið á Vopnafírði, og er nú á
vegum hreppsins verið að útbúa
nýtt og rúmgott tjaldstæði á falleg-
um stað í þorpinu.
- B.B.
Sveinn Guðmmundsson sveit-
arstjóri.
\
Morgunblaðið/B.B.
Unpr íþróttamenn bíða spenntir eftir að komast í nýja íþróttahúsið.