Morgunblaðið - 02.06.1987, Síða 52
M^ftdtftftLAÖrÐ',1 MtÍBÍtlÍDAGUR
Figgjo-boröbúnaöurinn er framleiddur úr VITRO
postulíni, sem er mjög þéttbrent efni og með
slitsterkum glerungi, svo engin hætta er á að flísist upp úr
brúnum við notkun og í vélþvotti.
Eigum fyrirliggjandi Figgjo-borðbúnað á lager.
A. KARLSSOM MF.
HEILDVERSLUN-SÍMI: 27444-PÓSTHÓLF: 167-BRAUTARHOLT 28-REYKJAVÍK
GOLDEN CUP
sundfatnaður á börn og fullorðna
í miklu úrvali. Verð við allra hæfi.
Einnig vandaðir jogging- og trimmgallar
á konur og karla. Margar gerðir og litir.
Heildverslunin
A
Golden cup vörurfást
íhelstu sportvöruverslunum
landsins.
Borgartúni 36, sími 688085
AF ERLENDUM VETTVANGI
Eftir WILLIAM SCOBIE
Frá Feneyjum. Ferðamannastraumurinn til borgarinnar er svo mikill, að gripið hefur verið til
ráðstafana til að stemma stigu við honum.
Umdeild áætlun um
La Serenissima er nú að reyna að draga úr ásókn ferða-
manna. Vandinn í sambandi við „Áætlun um friðlýsingu Feneyja"
er sá að bæði ferðamenn og kaupmennirnir í Feneyjum eru jafn
heitir í andstöðunni við fyrirhugaðar takmarkanir, og höfundar
áætlunarinnar geta ekki komið sér saman um hvaða „þak“ á að
setja á fjölda ferðamanna, og enn síður um það hvernig unnt
eigi að vera að framfylgja þeim reglum er settar verða.
björgun Feneyja
Níutíu þúsund á dag, var til-
laga Augusto Salvadori
ferðamálaráðgjafa Feneyja úr
flokki Kristilegra demókrata.
„Ekki fleiri en 50.000,“ sagði
Nereo Laroni borgarstjóri Feneyja
úr flokki sósíalista. En meðan
. unnið er að aðgerðum til að tak-
marka ferðamannafjöldann er
, einnig verið að undirbúa leið-
i togafund í Feneyjum nú í júní
með þátttöku Ronalds Reagan,
Margaretar Thatcher og fímm
annarra leiðtoga þar sem fjalla á
um stjóm- og efnahagsmál, og
alþjóða vörusýningu sem kaup-
sýslumenn vonast til að laði
þangað í það minnsta 150.000
gesti á dag.
Erfíðleikamir hófust með
óvenju miklu aðstreymi ferða-
manna á kjötkveðjuhátíðina
árlegu, sem haldin var í febrúar.
Þeir jukust enn um páskana, og
hreint neyðarástand ríkti um 1.
maí helgina, þegar lögreglan
neyddist til að breyta öngstrætun-
um út frá Markúsartorginu í
einstefnu göngugötur.
Þennan laugardag var gripið
til örþrifaráða. Langa uppbyggða
akveginum yfír lónið inn til borg-
arinnar — sem nefndur hefur verið
Frelsisbrúin — var lokað klukkan
10.30 fyrir hádegi þegar lögregl-
unni taldist svo til að 100.000
gestir hefðu komið akandi til
borgarinnar þennan eina morgun.
Gamansögur gengu manna á
meðal um Feneyjabúann sem svalt
í hel úti á gangstétt af því hann
komst ekki gegnum straum japan-
skra ferðamanna að veitingahús-
inu hinum megin götunnar.
Rætt var um að úthluta sér-
stökum aðgöngumiðum til fyrstu
50.000 (eða 90.000) aðkomu-
mannanna á degi hveijum. Þeirri
tillögu hafnaði Augusto Salvadori
eindregið og sagði hana jafn fár-
ánlega og hún væri óraunhæf, auk
þess sem hún væri augljóst brot
á ítölsku stjómarskránni sem
tryggir landsmönnum fullt ferða-
frelsi innanlands.
Salvadori varð þekktur og
sumsstaðar óvinsæll þegar hann
í fyrrasumar bolaði evrópskum og
amerískum bakpokaunglingum
burt frá þægilegu og ókeypis
svefnplássi þeirra í marmara-
göngum Piazzale í Feneyjum. Nú
vill hann vægari aðgerðir.
Hann vill skylda umráðendur
langferðabifreiða og einkabíla til
að tryggja sér fyrirfram bílastæði
á Piazza Roma torginu, þessari
víðlendu miðstöð flestra þeirra er
koma akandi. (Þaðan er farið með
vaporetti (gufuknúnum ferjum)
yfir til bíllausrar borgarinnar,
lónsins eða nærliggjandi eyja.)
Frá og með júní yrði aðeins 200
langferðabílum hleypt inn og ótil-
teknum fjölda smærri bifreiða —
en þeir mundu trúlega skipta þús-
undum. Tölvur reiknuðu út
jafnóðum hvenær tilskildum fy'ölda
væri náð og yrði þá Frelsisbrúnni
lokað, og lögreglumenn á verði
til að bægja frá þeim sem reyndu
að ryðjast inn án heimildar.
Þessi hugmynd er hinsvegar
að mestu gagnslaus þar sem
áfram streymdu tugir þúsunda
ferðamanna þangað, jafnvel
meirihlutinn, meðjámbrautarlest-
um, skipum og flugvélum.
Vinstrisinnar á Ítalíu voru fljót-
ir til að átelja að með þessum
aðgerðum væri bersýnilega verið
að reyna að losa La Serenissima
(eða „háæruverðugasta" lýðveld-
ið, eins og borgarbúar vilja enn
nefna Feneyjar) við snauðara að-
komufólkið, saccoapelisti —
svefnpokaunglingana sem ferðast
á puttanum — sem kemur aðal-
lega akandi og án bókaðra gisti-
herbergja.
Og hægrisinnar hafa einnig
sína lausn á vandanum sem hent-
ar vel borg með takmarkaðar
aðkomuleiðir á landi, sjó og úr
lofti: taka aðgangseyri af komu-
mönnum eins og um væri að ræða
einskonar ítalskt Disneyland,
hugsanlega mismunandi hátt eftir
því í hvaða gæðaflokki gististaður
viðkomandi væri. „A þennan
hátt,“ segir í ritstjómargrein fjár-
málablaðsins II Sole, „mætti í það
minnsta safna fé til að vemda
Feneyjar gegn öðmm eyðingaröfl-
um sem á kunna að heija."
Hvað varðar þá fáránlegu hug-
mynd að halda alþjóðlega vöm-
sýningu, eða Expo Universale í
Feneyjum, þá er hún ekki fyrir-
huguð fyrr en árið 1997. En
sósíalistar í valdaaðstöðu em
mjög fylgjandi hugmyndinni (sem
aðstandendur segja að geti laðað
þangað fleiri ferðamenn en þær
20 milljónir sem heimsóttu heims-
sýninguna í Vancouver), og leið-
togi þeirra, Bettino Craxi, sem
verið hefur forsætisráðherra Ítalíu
undanfarin fimm ár, hefur veitt
hugmyndinni blessun sína. Svo
alþjóðasýningin getur enn orðið
að vemleika í borg sem enn hefur
ekki náð sér eftir hörmungar flóð-
anna miklu sem þar urðu árið
1966, og sem ekkert hefur gert
til úrbóta — annað en að tala um
fyrirbyggjandi aðgerðir.
„Lóninu er mun hættara nú en
fyrir 20 ámm,“ segir sérfræðing-
ur í viðgerð listaverka, sem um
margra ára skeið hefur unnið að
lagfæringum á þúsundum lista-
verka og bygginga, sem skemmd-
ust í flóðunum. „Það er hreint
bijálæði að kasta fé í þessa sýn-
ingu í stað þess að veija þvi til
flóðavarna.“
Höfundur er blaðamaður hjá
brezka blaðinu The Observer.