Morgunblaðið - 02.06.1987, Side 71
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 1987
71
Miklar byggingaframkvæmdir á Skagaströnd:
Stækkun leikskólans
stærsta verkefni hreppsins
Mikið unnið að skipulagsmálum
Skagastrðnd.
Morgunblaðið/Halldór
Guðrún Inga Sveinsdóttir oddviti fyrir framan hið nýja félags-
heimili Austur-Eyfellinga.
Austur-Eyjafjallahreppur:
Aframhaldandi bygg-
ing f élagsheimilis
Komið upp aðstöðu fyrir ferðafólk
við Skógafoss
„FRAMKVÆMDIR á vegum
Höfðalirepps verða með minna
móti í sumar en viðbygging við
leikskólann verður stærsta verk-
efni okkar,“ sagði Guðmundur
Sigvaldason, sveitarstjóri, er
fréttaritari Morgunblaðsins
ÞÓTT minna hafi verið byggt af
íbúðarhúsum á sl. ári er nauðsyn-
legt að hafa alltaf nægar bygging-
arlóðir í bæ sem er í þróun.
Alltaf eitthvað að gerast á vegum
hreppsfélagsins bæði vetur og sumar.
Verkstjóri hreppsins, Högni Bærings-
son, og félagar hans láta svo ekki
sitt eftir liggja.
Nú er verið að hanna nýjan veg
undir Ásklifínu og þar eiga að verða
nokkrar byggingarlóðir og er þegar
farið að sækja um þær til að byggja
á þeim. Það eru miklar hreyfíngar á
fólki hingað og svo aðrir sem fara
og kanna aðrar slóðir og er þetta það
sem gerist og gengur á mikilli öld
ræddi við hann um helstu fram-
kvæmdir á vegum hreppsins á
þessu ári.
„Mikið verður unnið að skipu-
lagsmálum bæði aðal- og deiliskipu-
lagi og þó það sjáist ekki mikið er
það nauðsynlegt en nokkuð kostn-
samgangna. Er þetta svæði sem nú
er hannað undir byggingar vandað
og vel gengið frá því sem þar þarf á
að halda.
Þá er verið að halda áfram með
að gera veg frá aðalbrautinni sem
liggur inn í bæinn og á hún að ná
að Nestúni og tengja þama saman
svæði og bæta þannig umferðina í
bænum.
Þetta gengur allt vel og þannig
að bærinn okkar er alltaf að breyta
um svip og verða byggilegri og vina-
legri.
Arni
aðarsamt. Það er svo í dag að
vöntun á aðalskipulagi stendur okk-
ur fyrir þrifum. Ragnar Jón
Gunnarsson arkitekt vinnur nú að
aðalskipulagi fyrir okkur svo það
stendur allt til bóta,“ sagði Guð-
mundur ennfremur.
Aðrar framkvæmdir á vegum
hreppsins sem sveitarstjóri nefndi
voru að til stendur að gera nokkuð
átak í umhverfísmálum. Meðal ann-
ars á að koma betra lagi á útivistar-
svæðið á Hnappstaðatúni og
lagfæra bílastæði við félagsheimilið
og nánasta umhverfi íþróttavallar-
ins.
Gatnagerð verður með minnsta
móti, einungis gerð 80 metra fram-
lenging á einni götu til að fá
byggingarlóðir. Ðálitlar úrbætur
verða við höfnina sem miða að
bættri aðstöðu fyrir smábátana. Þar
var nú nýlega reistur löndunarkrani
sem einkum er ætlaður fyrir trillur
og smærri báta. Einnig verður unn-
ið nokkuð að viðhaldi og endumýjun
við höfnina.
Þó Höfðahreppur haldi að sér
höndum í framkvæmdum verður
ekki hið sama sagt um einstakl-
inga. Hér munu rísa 3—5 iðnaðar-
hús í sumar í iðnaðarhverfí syðst í
bænum. Verða þar veiðarfæra-
geymslur, vélageymslur og fisk-
verkunarhús.
Fyrir utan iðnaðarhúsin verða
hafnar framkvæmdir við nokkur
einbýlishús á vegum einstaklinga
og nú nýverið var byijað á bygg-
ingu fjögurra íbúða raðhúss.
Skagstrendingur hf. á tvær íbúð-
anna en tvær eru óseldar ennþá.
Er það Eðvarð Hallgrímsson bygg-
ingameistari sem stendur að
byggingu raðhússins.
Af húsum sem verið hafa í bygg-
ingu er það að frétta að áfram er
haldið með byggingu dvalarheimilis
aldraðra en þar er nú verið að
múra innanhúss og setja milli-
veggi. Auk þess styttist nú í að
Vélaverkstæði Karls Bemdsen taki
í notkun nýja viðbyggingu sem
stækka mun húsnæði þess um
100%.
- ÓB.
Holti, undir Eyjafjöllum.
BYGGING félagsheimilis og ýmis
uppbygging í þágu þjónustu við
ferðamenn eru þær framkvæmd-
ir sem eiga sér stað í litlum
sveitahreppi undir Austur-Eyja-
fjöllum með 211 íbúum.
Leitað var til oddvita Austur-
Eyjafjallahrepps, Guðrúnar Ingu
Sveinsdóttur í Fosstúni í Skógum
og hún beðin um að segja frá því
helsta sem unnið væri að í hreppn-
um. Stærsta framkvæmdin væri
áframhaldandi bygging félags-
heimilisins, en byijað var á þeirri
byggingu 1978. Stefnt væri að þvi
að taka félagsheimilið að hluta í
notkun á þessu ári. Nú ynnu við
bygginguna þrír til fjórir starfs-
menn fyrir utan fagmenn sem ynnu
af og til að sérstökum verkefnum.
Það væri mjög kostnaðarsamt fyrir
svo lítið sveitarfélag og árlega tæki
þetta um ‘A af heildartekjum
hreppsins.
Þá hefði sveitarfélagið byggt upp
aðstöðu fyrir ferðafólk við Skóga-
foss með ijárstuðningi frá Ferða-
málaráði og einnig væri unnið að
rannsóknum vegna hugsanlegra
hitaveituframkvæmda í hreppnum,
við að láta bora og væntanlega
siðan leiða heitt vatn frá Seljavöll-
um um hreppinn að Skógum.
Ýmsar aðrar framkvæmdir væru^-
unnar í hreppnum á vegum ein-
staklinga og aðila: Grétar Óskars-
son á Seljavöllum væri að byggja
sundlaug og skála með aðstöðu fyr-
ir ferðamenn, hjónin Jón Guð-
mundsson og Oddný Hólmbergs-
dóttir í Drangshlíð væru að koma
upp söluskála og hyggðust veita
ferðafólki ýmsa þjónustu, stofnað
hefði verið hlutafélagið Fjalla-hest-
ar sem hyggðist vera með ferðir
fyrir ferðafólk á hestum frá Skóg-
um inn í Þórsmörk, annars vegarí--
upp Fimmvörðuháls og hins vegar
með byggð og auk þessa væri sú
starfsemi sem alltaf hefur verið í
hreppnum tengd landbúnaði og
þjónustu við ferðamenn. Hæst bæri
starfsemi Edduhótelsins á Skógum
ásamt Byggðasafninu, sem stækk-
aði alltaf í umsjá Þórðar Tómasson-
ar. Þangað hefðu um 10.000 gestir
komið síðasta sumar og nú væru
fyrstu gestimir að koma þangað,
skólafólk og útlendingar.
— Fréttaritari
Vegir lagðir i nýtt íbúðarhúsahverfi. Morgunblaðið/Ámi
Stykkishólmur:
Nýtt íbúðarhúsa-
hverf i skipulagt
HONDA CIVIC SHUTTLE 4 WD REAL TIME
Velursjálfvirkt hvenær
þörferáframhjóla-
.afturhjóla- eða aldrifi.
Kynnist þessumfrá-
bæru eiginleikum.
Honda, merki
hinna vandlátu.
Verð kr.
587.500,-
Bylting í gerð aldrifsbíla
HONDA Á ÍSLANDI, VATNAGÖRÐUM 24 S.689900