Morgunblaðið - 24.06.1987, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 1987
Rainbow siglir hingað á ný:
Flytur vörur á grund-
velli forgangslaganna
SKIP frá Rainbow Navigation
kom hingað til lands siðasta
föstudag með vörur til vamar-
liðsins. Skipið hélt aftur til
Norfolk á laugardag og lestar
um næstu mánaðamót vörur til
íslands. Skipafélagið hefur ekki
samið við bandaríska flotann um
flutninga hingað, en byggir
flutninga þessa á forgangslögun-
um frá 1904.
Að sögn Magnúsar Ármanns, hjá
Skákmótið í Dubna:
Jóhanní
4.-6. sæti
Margeir vann
Razuvajev
JÓHANN Hjartarson gerði í gær
jafntefli við sovéska stórmeistar-
ann Dolmatov. Hann er nú í 4.
til 6. sæti á skákmótinu í Dubna
með 5,5 vinninga eftir 10 um-
ferðir. Margeir Pétursson vann
i gærmorgun biðskák sína við
sovéska stórmeistarann
Razuvajev eftir 130 leiki.
Vinnan við biðskákina hefur þó
greinilega komið niður á síðustu
skákum Margeirs í mótinu og í gær
tapaði hann fjórðu skákinni í röð,
eftir slaka taflmennsku, að því er
hann sagði sjálfur, gegn efsta
manni mótsins, sovéska stórmeist-
aranum Romanishin.
Staða efstu manna eftir 10 um-
ferðir af 13 er þessi: 1. Romanishin
með 6,5 vinninga og biðskák. 2.
Gurevich, 6,5 vinninga. 3. Malanjuk
6 vinninga. 4.-6. Jóhann, Benjamin
og Lemer, 5,5 vinninga.
Verðlækk-
un á af-
skornum
blómum
BLÓMAMIÐSTÖÐIN, sem
selur blóm í heildsölu til
langflestra blómaverslana,
hefur lækkað verð á afskom-
um blómum um allt að 21%.
Einstaklega góð birtuskilyrði
hafa verið undanfamar vikur.
Það ásamt aukinni hagræðingu
í rekstri, tæknivæðingu og meiri
notkun lýsingar hefur gert
blómabændum kleift að lækka
verð blómanna.
Tilbúin búnt með 7 rósum
hafa lækkað um 21%, _en stakar
rósir um 13—14%. í sumum
verslunum á Reykjavíkursvæð-
inu hefur verðið þegar lækkað,
en mjög er misjafnt hversu vel
sú lækkun skilar sér til neytenda
enn sem komið er. Margar versl-
anir munu lækka verð á afskom-
um blómum næstu daga.
Kviknaði
í f eiti
SLÖKKVILIÐIÐ var um níuleyt-
ið í gærkvöldi kallað út að íbúð
að Keilufelli 49 í Breiðholti. Þar
hafði kviknað í feitipotti á elda-
vél.
Húseigendur höfðu snör handtök
á og vom búnir að slökkva eldinn
er slökkviliðið bar að en einhverjar
skemmdir urðu á innréttingum í
eldhúsinu. Húsráðandi var fluttur á
sjúkrahús með snert af reykeitrun.
Skipamiðlun Gunnars Guðjónsson-
ar, sem hefur umboð fyrir Rainbow
Navigation hér á landi, er það mál
Bandaríkjamanna við hvaða skipa-
félag þar í landi þeir skipta.
„Eimskip hefur samið um 65%
flutninganna og þó að enn sé ólok-
ið samningum milli Rainbow
Navigation og bandaríska flotans
um 35% flutninganna, þá kemur
það engum við nema Bandaríkja-
mönnum," sagði Magnús. „Samn-
ingaviðræður skipafélagsins við
flotann hafa staðið yfir síðan í
apríl/maí, en á meðan samningar
takast ekki fara þeir eftir lögunum
frá 1904. Það er svo flotans að
ákveða hvort þetta skipafélag eða
eitthvert annað flytur fyrir þá á
meðan ósamið er. Áð áliti forsvars-
manna Rainbow Navigation falla
þau 35%, sem koma í hlut banda-
ríska fyrirtækisins, undir þessi lög
frá 1904,“ sagði Magnús Ármann.
Fjölmenni safnaðist saman við Norræna húsið í gærkvöldi til að fagna Jónsmessunni
Jónsmessa ídag
í DAG er Jónsmessa, fæðingar-
dagur Jóhannesar skírara.
Dagurinn er hátíðisdagur
bænda.
Sumarsólstöður voru fyrir þrem-
ur dögum en vegna skekkju í
júlíanska tímatalinu var Jónsmessa
lenp talinn lengsti dagur ársins.
Samkvæmt þjóðtrúnni er Jóns-
messunóttin mögnuð og margt
undarlegt sem gerist þá. Þá er
helst von til að finna svokallaða
náttúrusteina svo sem óskasteina
og hulinshjálmssteina. Einnig ýmis
grös eins og brönugras sem á að
vekja ástir milli fólks og drauma-
gras. Ef menn baða sig berir í
dögginni snemma morguns eiga
þeir að læknast af ýmsum húðkvill-
um og um leið má óska sér.
Arsfundur þingmannasambands EFTA:
Tollar af fiski og fisk-
afurðum feUdir niður
íslendingar standa nú betur að vígi gagnvart EB, segir Gunnar G. Schram
ÁRSFUNDUR þingmannasam-
bands EFTA, sem haldinn er í
Hamar í Noregi, samþykkti sam-
hljóða í gær að koma á algjöru
viðskiptafrelsi á fisk og fiskaf-
urðir innan EFTA-rílganna.
Tillagan var flutt af undirnefnd
um sjávarútvegsmál, að tilhlutan
Islendinga í nefndinni, en í henni
eiga sæti fyrir íslands hönd þeir
Gunnar G. Schram og Kjartan
Jóhannsson.
Gunnar G. Schram sagði í sam-
tali við Morgunblaðið, að sam-
þykktin fæli í sér að niður yrðu
felldir allir tollar og aðrar hömlur
á viðskipti með fisk og fiskafurðir
innan EFTA-ríkjanna sem eru auk
íslands: Svíþjóð, Noregur, Finn-
land, Austurríki og Sviss. „Þetta
er vissulega tímamótandi ákvörðun
og þýðingarmikil fyrir okkur íslend-
inga,“ sagði Gunnar. „Við gerðumst
aðilar að EFTA árið 1970 og þetta
hefur ekki náðst fram fyrr en núna,
þannig að þessi ákvörðun er stórt
skref fyrir Islendinga varðandi við-
skipti okkar með fiskafurðir. Þetta
þýðir meðal annars að engar höml-
ur verða á sölu sfldar til Svíþjóðar,
svo dæmi sé tekið,“ sagði Gunnar
ennfremur.
Hann sagði að þýðingarmest
væri þó, að Islendingar, og reyndar
öll EFTA-ríkin, stæðu nú mun betur
að vígi í samningum við Evrópu-
bandalagið, til að koma í veg fynr
viðskiptahömlur á físk þar. „Eftir
þessa samþykkt hafa EFTA-ríkin
mun betri samningsaðstöðu til að
koma í veg fyrir ýmsar aðgerðir
og viðskiptahömlur Evrópubanda-
lagsins, svo sem tolla á lýsi, sem
rætt hefur verið um innan Evrópu-
bandalagsins að undanfömu, svo
dæmi sé tekið. Eins er þetta þýðing-
armikil ákvörðun að því leyti, að
þótt tollar af fiskafurðum hafi ekki
verið verulegir innan EFTA felur
þessi ákvörðun í sér að ekki verður
hægt að koma slíkum tollum á í
framtíðinni, en sá möguleiki var
alltaf fyrir hendi áður en þessi sam-
þykkt var gerð,“ sagði Gunnar G.
Schram.
Á fundinum í gær var einnig
samþykkt að afnema tolla af full-
unnum landbúnaðarvörum. Fram-
kvæmdastjóri EFTA, Per Kleppe,
flutti ræðu á fundinum eftir sam-
þykktina og lýsti yfír ánægju sinni
með að þessum áfanga hefði verið
náð, að viðskiptahömlum á físk og
fískafurðir, svo og fullunnar land-
búnaðarvörur, hefði nú verið aflétt,
til viðbótar iðnaðarvörum, sem áður
nutu fulls viðskiptafrelsis innan
EFTA. Lagabreytingar þarf til að
samþykktin komi til framkvæmda
og að sögn Gunnars G. Schram
verður strax farið í að vinna að því
máli. Hann sagði að gert væri ráð
fyrir að viðskiptafrelsið yrði að fullu
komið til framkvæmda innan næstu
íjögurra ára.
Úrslit slj órnarmyndun-
artilrauna ráðast í dag
Fleiri þeirrar skoðunar að hún takist
ÞORSTEINN Pálsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, og
Steingrímur Hermannsson, for-
maður Framsóknarflokksins,
voru sammála um það að loknum
þingflokksfundum flokkanna í
gær, að í dag myndu úrslit ráð-
ast hvort af myndun ríkisstjórn-
ar þessara flokka ásamt
Alþýðuflokki verður. Jón Bald-
vin Hannibalsson, formaður
Alþýðuflokksins, var ekki jafnaf-
dráttarlaus í máli og hinir
formennirnir að þingflokksfundi
Alþýðuflokks loknum, þvi hann
sagði að úrslit myndu ráðast í
síðasta lagi á föstudag.
Af máli manna í gær var aug-
ljóst að skoðanir eru skiptar um það
hvort myndun þessarar ríkisstjóm-
ar tekst eða ekki. Fleiri virðast þó
þeirrar skoðunar að hún takist. Það
sem menn telja einkum að geti
strandað á nú er ágreiningur um
uppstokkun ráðuneytanna, þar sem
Alþýðuflokkur og Framsóknar-
flokkur vilja sameiningu landbún-
aðar- samgöngu- og sveitarstjórna-
mála í nýju byggðaráðuneyti, en
sjálfstæðismenn vilja halda sig við
þá hugmynd að stofna sérstakt
byggðaráðuneyti sem undir heyri
sveitarstjóma- og umhverfísmál
ásamt samgöngumálum.
Miklar umræður voru um þetta
á þingflokksfundi Sjálfstæðis-
flokksins í gær og varð niðurstaðan
sú að formaðurinn hefði áfram fullt
umboð til viðræðna, en ákveðnir
þingmenn voru þó mjög andvígir
þeim kosti sem framsóknarmenn
og alþýðuflokksmenn hallast helst
að. Benda alþýðuflokks- og fram-
sóknarmenn á að sú hugmynd sem
þeir telja besta kostinn sé ein
þriggja tillagna sem nefnd flokk-
anna þriggja lagði fyrir þingflokk-
ana, undirskrifuð m.a. af Birgi
ísleifí Gunnarssyni. Sjálfstæðis-
menn útiloka ekki að samkomulag
geti tekist á grundvelli þeirrar hug-
myndar sem alþýðuflokks- og
framsóknarmenn hallast að, en
segjast þó hafa takmarkaðan áhuga
fyrir henni.
Formennimir þrír hittast á fundi
kl. 10 í dag.