Morgunblaðið - 05.07.1987, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JÚLÍ 1987
31
Námskeið 1
skyndihjálp
Reykjavíkurdeild RKÍ heldur
námskeið í skyndihálp. Það hefst
þriðjud. 7.júli í Armúla 34
(Múlabæ) kl. 20 og stendur yfir
5 kvöld. Námskeiðsgjald er kr.
1.000. Leiðbeinandi verður Guð-
laugur Leósson. Öllum er heimil
þátttaka.
Á námskeiðinu verður leitast við
að veita sem almennasta þekkingu
um skyndihjálp. Meðal annars verða
kennd viðbrögð við öndunarstoppi,
beinbrotum, bruna og sýnd mynd-
bönd um ýmsa þætti skyndihjálpar.
Nú er tækifæri fyrir fólk að læra
fyrstu viðbrögð við slysum eða end-
urbæta fyrri þekkingu. Talið er
nauðsynlegt að fólk fari í gegnum
allt námskeiðið á 3 ára fresti til að
halda þekkingunni við. En fari á
2ja kvölda upprifjunamámskeið
einu sinni á ári. Boðið verður upp
á slík námskeið á næstunni ef þátt-
taka fæst.
Námskeiðinu lýkur með verkefni
sem hægt er að fá metið í ýmsum
skólum.
(Fréttatilkynning)
Félag
blikksmiðju-
eigenda
50ára
FÉLAG blikksmiðjueigenda
verður 50 ára mánudaginn 6.
júlí nk. í félaginu eru nær allar
blikksmiðjur á landinu eða 37
talsins. Félagið gætir hagsmuna
blikksmiðja og hefur á síðari
árum unnið mikið starf sem mið-
ar að bættri samkeppnishæfni í
greininni.
Félag blikksmiðjjueigenda er aðili
að heildarsamtökum málmiðnaðar-
fyrirtækja (SMS) og Sambandi
norrænna blikksmiðjumeistara.
í tilefni afmælisins hefur félagið
ákveðið að taka á móti gestum á
Hverfisgötu 105 í Reykjavík, Ris-
inu, mánudaginn 6. júlí frá kl. 18
til 20.
........
V^terkurog
k-J hagkvæmur
auglýsingamiðill!
Tork. Þegar hreinlæti
er nauðsyu.
Tork kerfið er ómissandi öllum sem bjóða aðeins
vandaða framleiðslu og góða þjónustu. Tork kerfið saman-
stendur af hylkjum og grindum ásamt einnota vörum til
notkunar hvar sem hreinlætis er þörf.
í nútíma framleiðslufyrirtækjum skiptir þrifnaður
miklu máli. Pá koma yfirburðir Tork best í ljós. Starfsfólk
þitt kann vel að meta hversu Tork kerfið er einstaklega
þægilegt í notkun. Sannir atvinnumenn biðja
um Tork vegna þess að Tork er hagkvæmara
og gæðin einstök.
TORKl
Tork kerfið. Fyrir þá sem vOja aðeins það besta. Mölnlycke <9
I upphafi skal endingu skoða...
Miele heimilistækin frá Vestur-Þýskalandi.
Heimsþekkt fyrir tæknilega fullkomnun,
hönnun og afburða endingu.
Veldu Miele — annað er málamiðlun.
JÓHANN ÓLAFSS0N &C0.HF
Sundaborg 13 — sími (91)688588
Miele þvottavélar.
Þvo og vinda vel.
Þvottavélar með níu líf.
Miele þurrkarar.
Nákvæm rakastilling.
Miele uppþvottavélar.
Hljóðlátar.
Skila skínandi hreinu.
Miele ryksugur.
Vandaðar og vinna vel.
Settu gæðin á oddinn.