Morgunblaðið - 05.07.1987, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JÚLÍ 1987
37
Ætluðum okkur ekki
að verða neitt sérstakt
Bresku hljómsveitina The Woodentops kannast margir við, enda
er hún ein efnilegasta hljómsveit Bretlandseyja um þessar mund-
ir. Fyrir skömmu kom frá The Woodentops tónleikaplatan Live
Hypnobeat Live þar sem hljómsveitarmeðlimir fara á kostum i
óhemjuhröðum flutningi á nokkrum af helstu lögum sveitarinnar.
í tilefni af útkomu plötunnar ákvað náði útsendari rokksíðunnar
tali af forsprakka sveitarinnar, Rolo McGinty, og bað hann segja
eilítið frá hljómsveitinni og nýju plötunni.
Segðu mér af tilurð The
Woodentops.
Hljómsveitin er um þriggja og
hálfs árs núna, en í núverandi
mynd um tveggja ára. Við vorum
ekki mjög opinber fyrsta árið. Það
var mest skemmtun í þá tíð. Við
höfum yfír að ráða stóru viðar-
klæddu herbergi og þar lékum við
tónlist og gerðum myndbönd okkur
til skemmtunar. Það setti síðan
svip sinn á tónlistina að vera að
spila þar sem viður var á veggjum
en þeir ekki úr múrsteini og steypu.
Þar fengum við hlýlegri hljóm.
Er þetta sama herbergi og
sást svo vel í myndbandinu sem
þið gerðuð með laginu It Will
Come?
Já, myndbandið var kvikmyndað
í því herbergi.
Hvað er það sem mótar ykkar
tónlist, hvað er á bak við hana?
Það er margt sem leggst á eitt
við að móta tónlistina; þó er hún
alltaf fyrst og fremst það sem við
viljum heyra okkur sjálfum til
skemmtunar. Til að byija með
hafði peningaskortur mikil áhrif á
tónlistina. Nú erum við aftur á
móti betur fjáð og höfum því efni
á að gera þær tilraunir með hljóð-
færi sem okkur langar, hljóðfæri
sem eru þróaðri en þau sem við
höfðum undir höndum til að bytja
með. Annað sem kom okkur af
stað var einnig að miklu leyti var
leiðindi. Okkur leiddist og ákváð-
um að skemmta okkur með því að
leika tónlist. I upphafí ætluðum
við hljómsveitinni ekki að verða
neitt sérstakt sem hún þó varð.
Ég held að þessi sérstaki óraf-
magnaði hljómur sem við höfum
sé til kominn vegna peningaskorts
okkar í upphafi. Síðan fannst okk-
ur við verða að halda í þennan
hljóm sem byggist á órafmögnuð-
um gítar og þéttri röddun.
Finnst þér þá sem hljómsveit-
in sé fullmótuð?
Nei, mér fínnst líklegt að hljóm-
sveitin eigi eftir að þróast mikið
meira, þó ekki sjái ég fyrir á hvern
veg sú þróun verður. Okkur langar
að reyna að ná á hljóðversplötum
þeirri stemmningu sem er á tón-
leikum, ná meiri spennu í tónlist-
ina.
Nú er nýjasta plata ykkar
tónleikaplata.
Já, að vísu höfum við ekki spilað
á íslandi eða í Skandinaviu, en við
höfum spilað mjög víða og segja
má að þessi tónleikaplata tákni
enda þriggja ára vinnu, okkur
langar til að breyta til, að minnsta
kosti í Evrópu.
Ertu ánægður með tónleika-
plötuna, finnst þér sem nún nái
að sýna innviði The Wood-
entops?
Já, ég er ánægður með plötuna,
það sem miður fer á henni er eitt-
hvað sem ekkert er hægt að gera
við. Þó þykir mér verra að þegar
Rolo McGinty, forsprakki Woodentops:
gengið var frá plötunni að mér
§arstöddum, þá var lækkað um of
í áheyrendum eftir hvert lag sem
mér þykir miður.
Hvenær má búast við næstu
hljóðversplötu? Má búast við
miklum breytingum á tónlistar-
stefnu?
Við byijum upptökur í hljóðveri
í júní. Það besta sem við erum að
gera í dag verður á sínum
stað, en við bætist ýmislegt
nýtt sem
ég vona að fólki muni líka. 0
líkar það í það minnsta ákaflega
vel, annars væri það ekki tekið
upp. Líklega mun tónlistin verða
þróaðri.
Nú fékk þarsíðasta plata ykk-
ar, Giant, mikla spilun í mennta-
skólaútvarpi vestan hafs, og þið
eruð komnir á samning hjá Col-
umbia, sérðu hljómsveitina í
anda á toppi vinsældalista vest-
anhafs?
í upphafi bjóst ég ekki við að
hljómsveitin ætti eftir að komast
á neinn vinsældalista, en þar sem
okkur hefur gengið vel á minni
vinsældalistum, því ekki lista vest-
anhafs? Ef við höldum áfram að
semja skemmtileg lög og ef við
höldum áfram að hafa jafn gaman
af því sem við erum að gera, þá
eigum við eftir að komast hátt.
Við hefðum ekkert á móti því að
komast á toppinn, en það þyrfti
þó að vera eftir okkar eigin leiðum.
Hvað með Bandaríkjaferðir,
komið þið til með að spila þar
í sumar?
Við höfum þegar farið í tvær
hljómleikaferðir til Bandaríkjanna
og allt hefur gengið að óskum.
Þið hafið ekki hugsað ykkur
að koma til íslands?
Ég hef reyndar komið til Islands
og sungið þar. Ég kom þangað
þegar ég var níu ára með drengja-
kór sem söng við kirkjuvígslu.
Síðan þá hefur mig langað að fara
þangað aftur. Og hvað varðar að
koma með hljómsveitina, þá ert
þú fyrsti íslendingurinn sem ég
tala við síðan ég var níu ára. Þar
sem áhugi er fyrir því á íslandi
að taka við mig viðtal, þá sýnist
mér sem líkindi séu til þess að við
eigum eftir að komast þangað. Ef
einhver vill fá okkur þá komum við.
Hvað með framtíð The
Woodentops?
Framtíðin mun fela í sér meiri
ferðalög um heiminn og plötu sem
við verðum ánægð með. Plötu sem
ég mun stjóma vinnslu á að öllu
leyti. Okkur fínnst sem Giant hafí
ekki alveg náð því sem við vildum
ná og úr því verður bætt á næstu
plötu, plötu sem gefín verður út á
vegum Columbia.
Umsjón: Andrés Magnússon
rokksíðan
Mötley Crue
Girls, Girls, Girls
Plötudómur
Andrés Magnússon
Fyrir skömmu kom út platan •
„Girls, Girls, Girls" með hinni
almögnuðu Kaliforníuhljómsveit
Mötley Criie. Dómari hefur
reyndar alltaf verið svolitið veik-
geðja þegar Crue er annars
vegar, en aldrei sem nú.
Platan er öðruvísi en fyrri
plötur sveitarinnar. Málningin
er farin og mikið af stæiunum
með, en í staðinn er komið svart
leður og töffarabragur á tónlist-
inni. Ef til vill er ofáætlað að
☆ ☆ ☆ ☆ ☆
gefa plötunni fimm stjörnur, því
ég held að Mötley Crue eigi enn
ertir að batna.
Fyrsta lag plötunnar er „Wild
Side" og lýsir hinni villtu hiið
mannlífsins. Eftirtektarvert er
aö textagerð bassaleikarans
Nikki Sixx hefur stórbatnað eins
og fram kemur í þessu lagi, en
það á reyndar líka við um laga-
smíðarnar, sem flestar eru í
hans hönduA. Þarna er um
fyrsta flokks amerískt þunga-
rokk að ræða. Næsta lag —
titillag plötunnar — gefur nokk-
uð stefnuna á plötunni, en lögin
snúast flest um kvenfólk, mót-
orhjól, áfengi og sameiginlega
notkun þessa. Piltarnir eru
sumsé karlrembusvín.
Platan er mjög vel unnin og
útsett og hefur mjög skemmti-
legan heildarsvip. Hart og ferskt
Los Angeles-rokk. Það sem mór
þótti þó e.t.v. merkilegast er
hversu góður gítarleikari Mick
Mars er orðinn. Það má sér í
lagi merkja í síðasta lagi plöt-
unnar, sem er ekkert annað en
gamli slagarinn „Jailhouse
Rock" tekinn á hljómleikum og
stuðið eftir því.
Europe á íslandi
Næsta mánudagskvöld verður
sænska hljómsveitin Europe með
hljómleika í Laugardalshöll. Miða-
verð verður 1.250 krónur og eiga
hljómleikamir að hefjast kl. 20.30.
Vinsældir sveitarinnar í Evrópu
hafa verið óumdeilanlegar og að
undanfömu hefur vegur hennar í
Bandaríkjum aukist mjög. Lagið,
sem Europe sló í gegn með var lag-
ið „The Final Countdown" og til
þess að auðvelda hljómleikagestum
að kyija textann með hljómsveit-
inni, skal hann prentaður hér.
We’re leaving together
But still it’s farewell
And maybe we’U eome back
To earth who can tell
I guess there is no one to blame
Were leaving ground
Will things ever be the same again.
It’s the final countdown
The final countdown.
Oh we’re heading for Venus
And still we stand tall
’Cause maybe they’ve seen us
And welcome us all yeah
With so many lightyears to go
And things to be found
I’m sure that we all miss her so.
It’s the final countdown
The final countdown
The final countdown.
{Joey Tempest)