Morgunblaðið - 05.07.1987, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JÚLÍ 1987
25
6. júlí 1987 er minnst 100 ára
fæðingarafmælis Eiríks Ormssonar,
rafvirkjameistara. Hann lést fyrir 4
árum, langt um aldur fram — að
honum fannst — svo mörg jám
hafði hann í eldinum og hafði ekki
komið öllum sínum áhugamálum í
framkvæmd.
Fæddur var Eiríkur í Efri-Ey í
Meðallandi, 6. júlí 1897, og stóðu
að honum traustar skaftfellskar
ættir.
Eiríkur kvongaðist einni glæsi-
legustu heimasætu austur þar,
Rannveigu Jónsdóttur frá Þykkva-
bæjarklaustri í Álftaveri. Böm
þeirra em: Sigrún, Sigurveig, Ey-
rún og Karl. Auk þess fósturdóttir,
Kristín Þorsteinsdóttir. Kona Eiríks
lést fyrir 8 ámm, eftir nær 63 ára
farsæla sambúð.
Eiríkur lauk námi í trésmíði árið
1912, en 1913 réðst hann til Hall-
dórs Guðmundssonar, rafmagns-
verkfræðings, og starfaði með
honum um árabil að rafiðn. Árið
1922 stofnaði Eiríkur fyrirtækið
„Bræðumir Ormsson" ásamt Jóni,
bróður sínum, og ráku þeir það
saman um skeið. Sívinnandi var
Eiríkur alla sína löngu og viðburð-
aríku ævi. Hann var vart kominn
af bamsaldri, þegar hann fór að
heiman til að vinna fyrir sér, og
era enn sagnir meðal manna um
dugnað hans og hversu frár hann
var á fæti. Margar vetrarvertíðir
fór hann að austan til róðra suður
með sjó, eins og það var kallað.
Lengstum var þá farið fótgangandi
og hin straumhörðu vatnsföll vaðin
eða farin á ís.
Ófáar em þær vatnsaflsstöðvar
við sveitabæi, sem Eiríkur hannaði
og byggði, auk vindrafstöðva, sem
hann smíðaði og setti upp. Eirík
má einnig telja einna fyrstan sér-
fræðing hérlendis í röntgentækjum,
uppsetningu og viðhaldi þeirra.
Með Halldóri vann Eiríkur að
mörgum stómm og smáum vatns-
aflsvirkjunum, ásamt Jóni, bróður
sínum. Má þar til nefna virkjanir í
Vík í Mýrdal, á Bíldudal og Patreks-
fírði, í Fjarðarhorni í Hrútafírði,
Þykkvabæ í Landbroti, svo og mót-
orrafstöð í Vestmannaeyjum. Ekki
hafa hér verið taldar allar þær stór-
framkvæmdir á sviði raforkumála,
sem fyrirtæki Eiríks hefur haft með
höndum.
Eirík má telja meðal brautryðj-
enda í sinni grein, enda hlaut hann
staðgóða menntun hjá Halldóri
Guðmundssyni. Auk þess var hann
við framhaldsnám í Danmörku og
Þýskalandi.
Árið 1940 festi Eiríkur kaup á
jörðinni Skeggjastöðum í Mosfells-
sveit og byggði þar stórhýsi fyrir
fjölskyldu sína. Böm og bamaböm
Eiríks undu þar vel hag sínum á
sumrin um margra ára skeið. Oft-
sinnis vora yfir 20 manns í heimili.
Það, sem Eiríki gekk fyrst og
fremst til, var að fjölskyldan hefði
sameiginlegan samastað. Eiríkur
var í þessa orðs fyllstu merkingu
íjölskyldufaðir, enda dáður og virt-
ur af ungum sem öldnum í fjölskyld-
unni.
Á þessu 100 ára fæðingarafmæli
Eiríks minnast börn, tengdabörn,
bamaböm og barnabamabörn
þessa ljúfa og ljóðelska höfðingja
ættarinnar.
K.G.
KARAKTER
SPORT
f\Ö\W
Nl AG/,
don cano
►
Cftoup
DIE FOR n
<
s
ö
'É
§
<
Fyrir 11.780 krónur
geturðu skellt þér til LUX
Vegna mikillar ásóknar á LUX-leiðinni
höfum við ákveðið að auka sætaframboð á SUPER APEX
fargjöldum og bjóðum þér farið, fram og til baka,
fyrir aðeins 11.780 krónur.
Við höfum náð afar hagstæðum samningum
við bílaleigu þar í borg og getum útvegað þér Ford Fiesta,
Fiat Uno eða Opel Corsa fyrir
6.540 krónur
Petta er ekki prentvilla, verðið er 6.540 krónur
og miðast við heiia viku.
Hringdu sem fyrst - ferðirnar eru fljótar að fyllast.
FLUGLEIÐIR
upplýsingar hjá söluskrifstofum Flugleiða, umboðsmönnum og ferðaskrifstofum.
Upplýsingasími 25100