Morgunblaðið - 05.07.1987, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JULI 1987
Flokkstofnanir taka
afstöðu til stj órn-
armyndunar í dag
FUNDIR verða haldnir í helstu
valdastofnunum Sjálfstæðis-, Al-
þýðu-, og Framsóknarflokks,
milli landsfunda, í dag kl. 16.
Hér er um að ræða flokksráð
Sjálfstæðisflokksins, miðstjórn
Framsóknarflokksins og flokks-
stjórn Alþýðuflokksins. Væntan-
legt stjórnarsamstarf flokkanna
þriggja verður lagt fram til sam-
þykkis á þessum fundum.
Flokksráð Sjálfstæðisflokksins,
sem í eiga sæti um 260 manns,
kemur saman í sjálfstæðishúsinu
Valhöll á sunnudag kl. 16. Flokks-
ráð verður samkvæmt skipulags-
reglum Sjálfstæðisflokksins að
veita samþykki sitt stjómarsam-
starfi við aðra flokka. Ráðherrar
Sjálfstæðisflokksins eru hinsvegar
valdir af þingflokknum.
A sama tíma kemur miðstjórn
Framsóknarflokksins saman á Hót-
el Sögu, en samtals eiga 115 manns
sæti í henni. Stjómarsamstarf við
Sjálfstæðis- og Alþýðuflokk verður
lagt fyrir miðstjómina á fundinum,
en þingflokkur framsóknarmanna
V íkingaleikarnir:
Ovístmeð
JónPál
velur síðan ráðherra eftir að for-
maður hefur gert um þá tillögu.
Á Hótel Esju kemur flokksstjórn
Alþýðuflokksins saman, en í henni
eiga um 75 manns sæti. Flokks-
stjórn þarf að samþykkja stjórnar-
samstarf. Líkt og hjá hinum
flokkunum er það þingflokkurinn
sem velur ráðherralistann, en venja
er að formaður beri fram tillögu
um ráðherralista á fundinum.
V erkamannabústaðir
í Reykjavík:
Þúsundasta
íbúðin afhent
á næstunni
STJÓRN Verkamannabústaða í
Reykjavík mun í þessum mánuði
afhenda þúsundustu nýju íbúð-
ina. Fyrsta nýja íbúðin var afhent
árið 1976 og nú ellefu árum síðar
verður sú þúsundasta afhent.
Verkamannabústaðir í Reykjavík
eru að byggja lítil fjölbýlishús á
tveimur stöðum í Grafarvogi og
verður þúsundasta íbúðin úr öðru
þessara hverfa. Á öðrum staðnum
er áætlað að byggja 94 íbúðir en
108 á hinum. Af þessum 108 íbúð-
um hafa 48 nú þegar verið afhentar.
Morgunblaðið/Sverrir
Við uppliaf þingsins í gærmorgun. Peter Hallberg bókmenntafræðingur og Ólafur Ragnarsson,
forsljóri bókaforlagsins Vöku-Helgafells, taka á móti skáldinu Halldóri Laxnes.
Laxnessþing í gær
LAXNESSÞING var haldið á
Hótel Esju í gær á vegum Fé-
lags áhugamanna um bók-
menntir, sem er félag leikra
og lærðra og var stofnað i apríl
1986. Þingið hófst klukkan 10
í gærmorgun með því að Jón
Karl Helgason setti það, bauð
gesti velkomna og þá sérstak-
lega Nóbelsskáldið sjálft,
Halldór Laxnes.
Flutt voru fjöldamörg erindi um
Halldór Laxnes og skáldskap
hans, auk þess sem flutt voru tvö
erindi leikmanna um eftirlætis-
bækur þeirra, leikhópur nýútskrif-
aðra leikara brá upp nokkrum
atriðum úr verkum skáldsins og
Halla Margrét Árnadóttir söng
lög við ljóð hans við undirleik
Kolbrúnar Sæmundsdóttur.
I lok þingsins voru pallborðs-
umræður þar sem fyrirlesarar
sátu fyrir svörum og ræddu við
málþingsgesti. Umræðum stýrði
Halldór Guðmundsson. Þingslit
voru um 17.30. Stjómandi þings-
ins var Ástráður Eysteinsson.
ÓVÍST er hvort Jón Páll Sig-
marsson geti tekið þátt í Víkinga-
leikunum á Húsavík 9.-10. júli sem
haldnir verða í sambandi við
landsmót ungmennafélaganna.
Jón Páll tognaði illa á kálfa fyrr
í vikunni þegar hann setti heims-
met með því að draga fjórtán
tonna rútu 25 metra.
Jón Páll sagði í samtali við Morg-
unblaðið að hann hefði byijað aðeins
of snemma á rútutoginu og því mikið
af fólki misst af fjörinu. Hann hefði
ákveðið að taka eitt sýningartog, en
þá ekki haft neina viðspymu, henni
hafði hann spyrnt burt í fyrra tog-
inu. „Það var eins og einhver hefði
sparkað í kálfann á mér,“ sagði Jón
Páll sem hefur verið haltur eftir
þetta, en segist nú vera orðin vel
gangfær.
Á Víkingaleikana á Húsavík koma
tveir sterkustu menn Bretlands, þeir
Geoffrey Capes og Mark Higgins, og
munu þeir keppa við Hjalta „Úrsus“
Ámason og Jón Pál. Ef svo fer að
Jón Páll forfallist mun Magnús Ver
Magnússon hlaupa í skarðið.
Mikið af ódýrum þorski fyllir markaði í Bretlandi;
Fersku flökin seld á allt að
30% lægra verði en þau frystu
MIKIÐ framboð á ferskum fiski
á mörkuðum í Grimsby og Hull
undanfarið hefur orðið til þess
að fryst þorskflök hjá Iceland
Freezing Plants, dótturfyrirtæk-
is Sölumiðstöðvar hraðfrystihús-
anna, hafa ekki selst. Fersk
þorskflök hafa verið seld á allt
að 30% lægra verði en það verð
sem þarf fyrir fryst flök. Auk
þess hafa verið hitar í Bretlandi
undanfarna daga og þá dregur
úr neyslu á Fish and Chips, aðal-
framleiðsluvörunni úr frystum
flökum.
„Það er mjög mikilvægt varðandi
markað á íslenskum fiski að jafn-
vægi sé milli frystingar, saltfisk-
verkunar og ferskfisksölu. Nú hefur
það gerst að mjög mikið magn af
fiski er sett á markaði á Ilumber-
svæðinu og markaðurinn er alger-
lega mettaður með mjög ódýmm,
íslenskum þorski," sagði Peter Lov-
ell, framkvæmdastjóri Brekkers í
Englandi, sem er dótturfyrirtæki
SH og sér um dreifingu á frystum
flökum þar.
Lovell sagði að mikið af þessum
þorski væri selt á allt niður í 40
Slysavarnafélag íslands:
Annríki við aðstoð smábáta
SLYSAVARNAFÉLAGIÐ hefur
undanfarið haft nóg að gera við
að aðstoða smábáta sem orðið
hafa fyrir vélarbilun í veiðiferð-
um út á Faxaflóa. Björgunarbát-
ur björgunarsveitarinnar Ingólfs
í Reykjavík hefur undanfarnar
þrjár vikur dregið 9 báta til hafn-
ar og einnig hafa björgunarsveit-
ir á Akranesi, Seltjarnarnesi,
Grindavík og Sandgerði átt
annríkt við að aðstoða þessa
báta.
Björgunarbáturinn Jón E. Berg-
sveinsson sótti á föstudaginn nýjan
bát sem drifið brotnaði í á Vestur-
hrauni á Faxaflóa, um 19 mílur frá
Reykjavík. Svo virðist sem drifið
hafi verið gallað í bátnum en þetta
er þriðji báturinn sem samskonar
drif bilar í á stuttum tíma.
Hálfdán Henrýsson erindreki
Slysavarnafélagsins sagði við
Morgunblaðið að með aukinni smá-
bátaútgerð væri orðið mjög algengt
Morgunblaðið/BAR
Björgunarbáturinn Jón E. Bergsveinsson kemur með bát í eftirdragi
inn á Sundin á föstudag.
að aðstoða þyrfti báta sem bilað
hefðu úti á sjó. Það sem af er sumri
hefur Jón E. Bergsteinsson dregið
9 báta til hafnar en engir þeirra
hafa verið hætt komnir, nema einn
sem nærri hafði rekið upp í Kerl-
sterlingspund hvert „Kit“ (62,5
kíló) sem þýðir að markaðurinn er
fullur af ódýrum flökum á verði
allt niður í 11 sterlingspund á
„Stone“ (6,25 kíló eða 14 pund).
Þetta hefði þau áhrif að sala á
íslenskum .frystum þorskflökum
væri gersamlega að stöðvast en
verð á þeim þarf að vera um það
bil 13—15 sterlingspund á „Stone“
til að salan beri sig.
„Það er að verða alvarlegt ástand
hér því frysti fískurinn, sem er svo
mikilvægur fyrir ísland, liggur nú
í frystigeymslum," sagði Lovell.
„Þessi fijálsa markaðssetning, sem
hefur þróast á íslandi, getur aðeins
orðið til þess að grafa undan þeirri
mikilvægu atvinnugrein sem hrað-
frystingin er og þeim fyrirtækjum
sem sjá um dreifingu á frystum
flökum.
Ástandið hefur sífellt verið að
versna undanfarið. Síðustu tvo
mánuðina höfum við séð markaðinn
breytast verulega. Lítið framboð
hefur verið á stærri fiski sem hefur
orsakast af því að saltfiskverkendur
hafa getað greitt hærra verð.
Smærri fiskurinn, sem gefur 8—16
únsu flök (230-450 grömm), hefur
hlaðist upp í frystigeymslum. Og
það bætir ekki ástandið að smærri
fískur hefur orðið æ stærri hluti í
afla Norðmanna og íslendinga und-
anfarið og fiskurinn er nú miklu
smærri en undanfarin ár.
Það er nauðsynlegt að stjórna
markaðssetningu á fiskafurðum.
Ég býst við að markaður fyrir fryst-
ar aftirðir af flatfiski, ýsu og þorski
í einhverjum mæli, verði áfram góð-
ur á Humber-svæðinu, en þessi
staða þar sem miklu magni er
dembt á markaðinn án nokkurrar
stjómunar hlýtur að vera gegn aðal-
hagsmunum íslendinga,“ sagði
Peter Lovell.
Verðum að draga
úr smáfiskveiðum
- segir Kristján
Ragnarsson fram-
kvæmdastjóri LÍÚ
ingasker. Flestir bátanna væru
enda mjög vel út búnir, sérstaklega
þeir nýrri, en í góðviðrinu undanfar-
ið hefðu þó margir freistast til að
fara út á gömlum bátum sem væru
vægast sagt í misjöfnu ástandi.
„NÚ þegar stofn ýsu og annarra
fisktegunda fer vaxandi gefst okk-
ur tækifæri til að hlífa þorskinum
næstu árin, enda veiðum við hann
of smáan núna,“ sagði Kristján
Ragnarsson, framkvæmdastjóri
Landssambands íslenskra útvegs-
manna. Á föstudag var kynnt
skýrsla Hafrannsóknastofnunar,
þar sem lagt er til að þorskveiði
vcrði ekki meiri en 300 þúsund
tonn ef stefna eigi að því að sto
inn stækki.
„Það kemur mér alls ekki á óv
að Hafrannsóknastofnun skuli ko
ast að þeirri niðurstöðu að dra
verði úr ásókn í þorskinn og ég
þessu sammála," sagði Kristj;
„Við veiðum núna um 350-360 þi
und tonn og því var ljóst að nokl
minnkun yrði, en það ætti að vi
hægt að vega upp á móti því rr
sókn í aðra fiskistofna. Aðalatri
er að við veiðum ekki smáfiskii
því þá er hætt við að aflinn yrði i
eftir nokkur ár. Við verðum því
líta til lengri tíma,“ sagði Kristj
Ragnarsson.