Morgunblaðið - 30.07.1987, Síða 19
8í
19
T8lt LlUl ,06 JWM'GtíTOUCPt ,€!<ÍM8VRtöfKM
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 1987
10% söluskattur lagður
á matvæli 1. ágúst
10% SÖLU SKATTUR verður
innheimtur af matvælum frá og
með 1. ágúst næstkomandi.
Reglugerð um þetta hefur verið
gefin út af fjármálaráðuneytinu
en þessar aðgerðir eru sam-
kvæmt heimild i bráðabirgðalög-
unum um ráðstafanir í
fjármálum.
Þær vörur sem eru undanskildar
frá þessari skattheimtu eru mjólk-
urvörur, nýmjólk, G-mjólk, létt-
mjólk, tjómi, sýrður ijómi, kaffí-
og þeytiijómi, skyr, sýrð mjólk, jóg-
úrt, mysa undanrenna og smjör.
Allur ostur, þ.m.t. kotasæla. Nýr
fískur, þ.m.t. vatnafískur, humar,
rækja og skelfískur, hvort sem hann
er heill, flakaður, hakkaður eða
bútaður. Sama á við um saltaðan,
siginn, frosinn, reyktan, grafínn,
kryddleginn (einnig í brauðraspi)
og kæstan físk. Fiskur sem hefur
hlotið einhveija vinnslu- eða
geymslumeðferð umfram það sem
að ofan greinir er hins vegar skatt-
skyldur.
Nýtt, frosið, reykt, sýrt eða salt-
að kjöt er undanþegið skattinum.
Það sama á við um niðurskorið,
kryddlegið (einnig í brauðraspi),
úrbeinað og hakkað kjöt, kjötálegg
sem ekki er niðursoðið, kjötfars,
pylsur, bjúgu, svið, sviðasultu,
hrútspunga og ótilreitt sem tilreitt
slátur. Kjöt sem hlotið hefur
vinnslumeðferð umfram það sem
að framan greinir er skattskylt.
Einnig eru undanskildar matjurt-
ÁFENGIS- og tóbaksneysla þjóð-
arinnar var meirí á fyrri helm-
ingi ársins en á sama tíma í
fyrra. í lítrum talið neyttu ís-
lendingar tæprar 1,5 milljónar
lítra áfengis, sem jafngildir
385.050 lítrum hreins vínanda. Á
sama tima reyktu landsmenn
218.700 sígarettur, 2% fleiri en
í fyrra. Aðrar tóbakstegundir
seldust hinsvegar í minna mæli.
Þessar upplýsingar veitir Áfeng-
is- og tóbaksverslun ríkisins í
fréttatilkynningu. í tölum þeim sem
liggja til grundvallar er ekki tíun-
ir, þ.e. nýir ávextir, nýtt grænmeti
og garðávextir, sem ekki hafa feng-
ið neina vinnslumeðferð aðra en
þvott og pökkun í söluumbúðir, svo
og egg, smjörlíki og matvara sem
seld er úr landi.
dað það áfengi og tóbak sem
ferðamenn' eða áhafnir skipa og
flugvéla flytja inn.
Við samanburð á helstu tegund-
um léttra vína og brenndra drykkja
kemur í ljós að hartnær helmingi
minna brennivín seldist á fyrri
helmingi ársins en í fyrra, en helm-
ingi meira af gini. Neysla á rauðvíni
hefur aukist um 8%, en sala á
hvítvíni hefur minnkað um rúm 4%.
Sem áður segir jókst vindlinga-
sala milli ára og vindlareykingar
urðu örlitlu meiri. Sala á reyk- og
neftóbaki dróst hinsvegar saman
um 30% og 22%.
Sölutölur ÁTVR:
Sígarettusala og
áfengisneysla eykst
Yogastöðin Heilsubót,
Hátúni 6a.
Leikfimi
Ný námskeið byrja 4. ágúst.
Kvennatímar
Mánud., þriðjud., miðvikud.,
fimmtud., föstud.
kl. 10-11 fyrir hádegi. Eftir
hádegisömudaga
kl. 13.10-14.10
kl. 14.10-15.10
Karlatímar
Síðdegistímar mánud.,
miðvikud.
kl. 16.30-17.30
kl. 17.30-18.30
kl. 18.30-19.30
kl. 19.30-20.30
Æfingar sem við notum eru byggðar á HATHA YOGA. Þær
eru ekki svo mjög frábrugðnar venjulegri leikfimi. Munurinn
er aðallega sá að við reynum að samhæfa hreyfingu og öndun
og slaka vöðva að lokinni spennu.
Saunaböð og Ijósaböð.
Visa og Eurokortaþjónusta.
Upplýsingar í símum 27710 og 18606.
Iþróttakennari. íþróttaþjálfari,
Mile.
Blandaðir tímar síðdegis
Þriðjud., fimmtud., föstud.
kl. 16.30-17.30
kl. 17.30-18.30
kl. 18.30-19.30
kl. 19.30-20.30
Blandaðirtímar
Laugardaga
kl. 10.30-11.30
kl. 11.30-12.30
kl. 12.30-13.30
Metsölublad á hverjum degi!
FYRIR VERSLUNARMANNAHELGINA
OLÍULAMPAR OG LUKTIR, GAS-
LUKTIR, GAS- OG OLIUPRIMUSAR,
HREINSUÐ STEINOLÍA, OLÍUOFN-
AR, ARINSETT, ÚTIGRILL, GRILL-
VASAUÓS.
FATADEILDIIM
HITAMÆLAR, KLUKKUR,
LOFTVOGIR, SJÓNAUKAR.
FÁNAR, FLAGGSTANGA-
HÚNAR FYRIRLIGGJ-
ANDI, FLAGGSTENGUR
6-8 METRAR.
TIL AFGREIÐSLU í
ÁGÚST.
SILUNGANET, NÆLON-
LÍNUR, SIGURNAGLAR,
ÖNGLAR, SÖKKUR.
SJÓSTENGUR - HAND-
FÆRAVINDUR.
VATNS- OLÍUDÆLUR.
KEÐJUR, MARGAR
GERÐIR OG VÍRAR,
GRANNIR OG SVERIR,
GIRNI ALLSKONAR.