Morgunblaðið - 31.07.1987, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 81. JÚLÍ 1987
3
Fyrsti presturinn valinn án kosninga:
„Tíl mikillar
fyrirmyndar“
- segir sr. Kristján Einar Þorvarðarson
„ÉG TEL þessa aðferð til mikill-
ar fyrirmyndar. Prestar eru
almennt nyög ánægðir að vera
lausir undan því amstri sem kosn-
ingar voru. Þótt ég geti fallist á
það sjónarmið að birta eigi nöfn
umsækjenda, held ég að kjör-
mönnum sóknarnefndar sé fylli-
lega treystandi. Þeir eru
fulltrúar sóknarbarnanna,"
sagði sr. Kristján Einar Þorvarð-
arson f samtali við blaðið. Hann
var ráðinn til Hj allaprestakalls í
Kópavogi í gær, fyrsti presturinn
sem valinn er úr hópi umsæbj-
enda samkvæmt nýjum lögum er
afnámu prestkosningar. Þrír
aðrir umsækjendur voru um pre-
stakallið og gefur sóknarnefnd
ekki upp nöfn þeirra.
Kjörið fór fram á fundi aðal og
varamanna í sóknamefnd. Þeir eru
átján talsins en sextán mættu tii
fundarins. „Þama er viðhöfð aðferð
sem er mannsæmandi fyrir alla
Sr. Kristján Einar Þorvarðarson
aðila og mönnum ekki att saman.
Prestkosningar voru ekki í sam-
ræmi við málefni kirkjunnar. Að
mínu mati er þetta tvímælalaust til
bóta,“ sagði Kristján Einar.
Kristján Einar er 29 ára gamall
og ættaður frá Söndum í Miðfírði.
Hann var vígður 5. október 1986
og hefur þjónað á Eskifirði i fjar-
vem sóknarprestsins. Hann er
kvæntur Guðrúnu Lám Magnús-
dóttur og eiga þau sex ára son.
ítalarnir
á ísafirði
ÍTALIRNIR170 sem
ferðast um landið á
Fiat Panda-bílum
komu til ísafjarðar
um kvöldmatarleytið
á miðvikudagskvöld.
Að sögn Þórhalls
Jósepssonar frétta-
ritara Mbl. í ferðinni
varð ferðin vestur
ítölunum tafsamari
en ráð hafði fyrir
gert þar sem margt
nýstárlegt bar fyrir
augu þeirra á leið-
inni. M.a. vakti það
mikla athygli þeirra
að sjá seli í flæðar-
málinu í Kollaf irði
vestra. Vörðu þeir
flestir miklum tíma i
að skoða þá og taka
af þeim myndir.
Lengsta viðdvöl
höfðu þeir þó við
Dynjandaf ossana og
gengu allmargir
þeirra allt upp undir
Fjallfossinn. Frá
ísafirði fóru ítalarnir
í gær áleiðis til akur-
eyrar.
Meðfylgjandi
mynd tókUlfar
Ágústsson fréttarita
Mbl. á ísafirði af
nokkrum bílum ítal-
anna á næturstað í
íþróttavellinum.
AEG RYKSUGAN Á FULW...
VAMPYR 406 ryksugan frá AEG er 1000 W og því
sérlega kraftmikil, hún er með stillanlegum sogkrafti,
inndreginni snúru og snúningsbarka, svo fátteitt
sé nefnt.
Þetta er slíkt gœðatœki að við leyfum okkur að full-
yrða að þú fáir hvergi jafn fjölhœfa ryksugu á svo frá-
Kr.8.392,-
(STAÐGREITT)
Vestur-þýsk gœði á þessu verði. - Engin spurning!
AFRABÆRU
VERÐI!
ALVEG
EINSTÖK
GÆDI
AE G heimilistœki
- því þú hleypir ekki hverju sem er í húsverkin!
BRÆÐURNIR
OKMSSON HF
Lágmúla 9, sími: 38820