Morgunblaðið - 31.07.1987, Side 56

Morgunblaðið - 31.07.1987, Side 56
56 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 1987 ÉílMNIiyMVEl Tækifæríð er núna, í þennan eina mánuð með Hönnu Ólafsdóttur Forrest. Leiðbeiningar um mataræði meðan á námskeiðinu stendur, frá 10. ágústtii 10. september. Hanna er áhugafólki um líkamsrækt aö góðu kunn, jafnt hérlendis sem í Bandaríkjunum, þar sem hún hefur séö um sjónvarpsleikfimi í 33 fylkjum um 15 ára skeið, skrifað heilsuræktarrit sem selst hafa í milljónatali og rekur þar að auki eigin líkamsræktarstöð í Ohiofylki. Fyrir tveimur árum kom út með henni myndbandsspóla með leikfimiæfingum hér á landi sem hefur notið mikilla vinsælda. Við bjóðum upp á námskeið fyrir byrjendur jafnt sem lengra komna og dreifum tímunum yfir meirihluta vikunnar, bæði fyrir og eftir hádegi. Þannig geturðu ráðið því sjálf, hve oft í viku og á hvaða tíma dagsins þú kemur. - Þannig nýtist námskeiðið þér best! Innritun hefst 4. ágúst, kl. 10-12og 13-17 Símar: 687701 og 687801 WShHII Pantaðu tíma í síma 689320 SÓLEYJAR Ath. sémámskeið fyrir kennara og leiðbeinendur. ^ Metsölublað á hver/um degi! KNATTSPYRNA / U-21 LANDSLIÐIÐ Leikið gegn Finnum á Akureyri í næstu viku ÍSLAND leikur gegn Finnlandi í Evrópukeppni landsliða skip- uðum leikmönnum 21 árs og yngri á Akureyri næstkomandi miðvikudag, 5. ágúst. Guðni Kjartansson hefur nú valið hópinn sem mætir Finnum og eru þrjár breytingar á honum frá leiknum við Dani nyrðra fyrr í sumar. Guðni Bergsson, Jón Sveinsson og Amljótur Davíðsson verða ekki með en í þeirra stað koma Rúnar Kristinsson, Haraldur Ing- ólfsson og Ágúst Már Jónsson. Hópurinn verður því skipaður eftir- töldum mönnum: Markverðir Haukur Bragason............KA Páll Ólafsson................KR Aðrir leikmenn ÞorvaldurÖrlygsson ..........KA GautiLaxdal..................KA ÁgústMárJónsson...............KR Þorsteinn Guðjónsson.........KR Andri Marteinsson............KR Þorsteinn Halldórsson........KR RúnarKristinsson.............KR Haraldur Ingólfsson .........ÍA ÓlafurÞórðarson..............ÍA Sævar Jónsson...............Val Jón Grétar Jónsson..........Val Hlynur Birgisson............Þór Siguróli Kristjánsson .......Þór Júlíus Tiyggvason............Þór Leikurinn verður sem fyrr segir á Akureyri, á aðalvellinum einsog Danaleikurinn, og hefst kl. 19.00. FRJÁLSAR / SPJÓTKAST Heimsmet Petru Felke: 78,90 m AUSTUR-þýska stúlkan Petra Felke setti ífyrrakvöld heims- met í spjótkasti kvenna á móti í Leipzig, kastaði spjótinu 78,90 metra. Segja má að hún hafi þannig haldið upp á af- mælið sitt, einum degi of snemma að vísu, því í gær varð hún 28. ára. Felka endurheimit þar með heimsmetið sem Fatima Whit- bread, Bretlandi, náði af henni fýrir tæpu ári síðan, 28. ágúst á Evrópu- meistaramóintu í Stuttgart er hún kastaði 77,44 metra. Metkast Felke á mótinu í Leipzig kom í þriðju tilraun; áður kastaði hún 70,20 m og 72,98 m. Heimsmetið í spjótkasti kvenna hefur þróast sem hér segir á und- anfömum árum: 57,92 Elvira Ozolina, Sovétríkj. ..3. maí 1960 59,55 Elvira Ozolina, Sovétríkj. .4.júní 1960 59,78 Elvira Ozolina, Sovetrflg. ..3. júlí 1963 62.40 Yel. Gorchakova, Sovétr. 16. okt. 1964 62,70 EwaGryziecka, Póllandi ll.júníl972 65,06 Ruth Fuchs, A-Þýskal....11. júní 1972 66,10 Ruth Fuchs, A-Þýskal....7. sept. 1973 67,22 Ruth Fuchs, A-Þýskal....3. sept. 1974 69,12 Ruth Fuchs, A-Þýskal....10. júlí 1976 69,32 Kate Schmidt, Bandar. ..11. sept. 1977 69,52 Ruth Fuchs, A-Þýskal....13. júní 1979 69,96 Ruth Fuchs, A-Þýskal. ..29. apríl 1980 70,80 Tat Biiyulina, Sovetr...12. júlí 1980 71,88 Ant. Todorova, Búlgaríu ..15. ág. 1981 72.40 Tiina Lillak, Finnlandi 29. júlí 1982 74,20 Sofia Sakorafa, Grikkl...26. sept. 1982 74,76 Tiina Lillak, Finnlandi ....13. júní 1983 75,26 Petra Felke, A-Þýskal....4. júní 1985 75.40 Petra Felke, A-Þýskal...4. júní 1985 77,44 Fatima Whitbread, Bretl. 28. ág. 1986 78,90 Petra Felke, A-Þýskal...29. júlí 1987 KNATTSPYRNA / ÞÝSKALAND Atli ekki með ífyrsta leiknum: Ermeðblóð- eftmnífæti NÚ ER Ijóst að Atli Eðvaldsson leikur ekki fyrsta leikinn með Bayer Uerdingen í þýsku deild- arkeppninni í knattspyrnu í kvöld, eins og ráð hafði verið fyrir gert. Uerdingen mætir 1. FC Nurnberg á heimavelli en Atli verður aðeins áhorfandi þar sem hann fékk blóðeitrun i annan fótinn. Atli hefur fundið fyrir eymslum í fæti að undanfömu, en engu að síður tekið þátt í leikjum liðs síns. Sjúkraþjálfari liðsins hefur vafíð fót hans með Fré „teipi", límbandi því Jóhannilnga sem allir íþrótta- Gunnarssynn menn kannast við, Wand' en gerði það ekki betur en svo að sár myndaðist á fæti landsliðsfyrirliðans og upp úr því fékk hann blóðeitrun. Var farið með Atla í skyndi á sjúkrahús og náðist að koma f veg fyrir að eitrun- in breiddist út með því að sprauta hann. Atli var það slæmur í gær að hann gat varla stigið í fótinn og verður frá æfingumn í nokkra daga. Reikn- að er með að hann nái sér fljótlega. Atll EAvaldsson varð fyrir því óhappi að fá blóðeitrun í annan fótinn og verður því ekki með í kvöld.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.