Morgunblaðið - 31.07.1987, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 1987
Evrópskir bankar:
Vilja frysta inni-
stæður N-Kóreu
London, Reuter.
VESTRÆNIR bankar, flestir f
Evrópu, ætla að reyna að láta
frysta innistæður Norður-Kóreu-
manna f bönkum erlendis þar
sem stjórn landsins neitar að
undirrita mnnknmnlag nm flf-
borganir á gömlum lánum. Hefur
Norður-Kóreu-mönnum verið tíl-
kynnt um aðgerðiraar.
Norður-Kóreumenn tóku flest
lánin snemma á áttunda áratugnum
og nema eftirstöðvar þeirra nú um
755 milljónum Bandaríkjadala.
Stjómendur bankanna hafa misst
þolinmæðina þar sem ekki hafa
verið greiddar neinar afborganir og
vextir aðeins stöku sinnum. Heim-
ildamenn segja að fyrir níu
mánuðum hafí náðst óformlegt
samkomulag um að framlengja
lánstímann til 15 ára en það hafí.
runnið út í sandinn.
John Denyaiyuk. Yfirheyrshmar yfir honum hafa nú staðið í fjóra daga.
Demjanjuk ber fyr-
ir sig minnisleysi
Tel Aviv, Reuter.
JOHN Demjaqjuk, sem ákærður
hefur verið fyrir striðsglæpi f
þágu nazista f síðari heimsstyrj-
öldinni, bar fyrir sig minnisleysi
f gær, er hann var krafinn út-
skýringa á ósamræmi f vitnis-
burði hans varðandi dvalarstað
hans 1942 - 1943. ísraelar haida
þvf fram, að hann hafi verið
vörður f dauðabúðum nazista á
þessum tíma.
Demjanjuk var framseldur til
ísraels frá Bandaríkjunum í fyrra.
Hann hefur neitað allri sök og hald-
ið fast við staðhæfingar sfnar um,
að hann sé ekki „ívan grimmi," en
það nafíi hlaut fangavörður, sem
stóð fyrir morðum á hundruðum
þúsunda gyðinga í Treblinka í Póll-
andi.
Reuter
Gandhi beygir sig í ofboði er sjóliðinn lætur höggið ríða af. Réttstaða hinna sjólidanna er greinilega
óaðfinnanleg.
Sri Lanka:
Sjóliði í heiðurs-
verði réðst á Gandhi
Colombo, Reuter.
ER Rajiv Gandhi, forsætisráð-
herra Indlands, kannaði heiðurs-
vörð á flugvellinum rétt fyrir
brottför sína frá Sri Lanka réðst
ungur sjóliði í verðinum á ráð-
herrann og barði hann með
byssuskefti. Gandhi sakaði ekki
og var sjóliðinn þegar hand-
samaður og fluttur á brott. Við
heimkomuna til InHlnnHa var
Gandhi fagnað sem hetju en á
Sri lanka undirritaði hann, ásamt
Jayewardene, forseta iandsins,
samkomulag um frið milli tamíla
og sinhalesa.
„Eg var að kanna heiðursvörðinn
og rétt eftir að ég fór fram hjá
manninum hafði hann endaskipti á
rifflinum og barði mig í höfuðið og
öxlina", sagði Gandhi við frétta-
menn í Nýju-Delhi. Aðspurður
sagðist hann vera alveg ómeiddur.
Á sjónvarpsmynd af atburðinum
sást að yfírforingi í flota Sri Lanka
stökk fram og tók að nokkru leyti
höggið af Gandhi. Sjóliðinn, sem
er liðlega tvítugur, var yfírheyrður
og einnig stóð til að senda hann í
læknisrannsókn að sögn talsmanna
flotans. Skömmu eftir brottför
Gandhis átti Jayewardene forseti
fund með yfírmönnum vamar- og
lögreglumála þar sem árásin á ráð-
herrann var til umræðu.
Um svipað leyti og Gandhi yfír-
gaf Sri Lanka voru 3000 indverskir
hermenn á leiðinni til eyríkisins með
skipum og flugvélum til að aðstoða
stjóm landsins við að framfylgja
samkomulaginu.
Sjóliðinn í vörslu yfirmanna eftir
atburðinn.
Barst alnæmisveir-
an með apablóði?
UPPRUNI alnæmissjúkdómsins
illræmda hefur verið nokkuð
þoku hulinn. Það hefur meðal
annars orðið til þess að sumir
hafa orðið til þess að skeila
skuldinni á þann, sem þeim þyk-
ir vænlegur sökudólgur; Guð,
CIA, KGB eða einhvern annan.
í rauninni er furðu mikið vitað
um uppruna veirunnar.
Það er talið nánast fullvíst að
alnæmisveiran hafí flust úr öpum
í Mið-Afríku í menn, einhvem
tímann í byijun áttunda áratugar-
ins. Veiran er mjög lík veim, sem’
sýkir afrfska apa og þar að áuki
virðist sjúkdómurinn hafa breiðst
fyrr og hraðar út í Afríku en í
öðram heimshlutum. Þetta era þó
aðeins tvær af mörgum vfsbend-
ingum sem styrkja kenninguna.
En hvemig fluttist veiran á
milli einstaklinga? Það er ekki
sérlega auðvelt að fá alnæmi; það
gerist eingöngu við blóðblöndun
eða kynmök. Að snæða sýktan
apa ætti ekki að vera hættulegt.
Að vera bitinn af apa getur orsak-
að hundaæði — en ekki alnæmi.
Og flestum þykir sennilega í meira
lagi ólfklegt að fólk ástundi blóð-
blöndun eða kynmök við apa.
x Það er þó kannskl ekki svo §ar-
lægt, er öllu er á botninn hvolft.
F. Noirau, starfsmaður fíönsku
vísindastoftiunarinnar ORSTOM I
Kongó, var að lesa frásögn mann-
fræðings af kynlífsvenjum fólks,
sem býr við vötnin miklu í Mið-
Afríku, er hann rakst á eftirfar-
andi grein:
„Til þess að koma karli eða
konu til og auka kynorku þeirra
veralega, er apablóði (úr karldýri
fyrir manninn, úr kvendýri fyrir
konuna) smurt á læri þeirra og
bak.“
Þetta era einmitt aðfarir sem
gætu flutt alnæmisveirana milli
apa og manns. Athöfnin, sem lýst
er, er ein af nokkram, sem Idjwi-
ættbálkurinn ,sem býr á eyju f
Kivu-vatni á Iandamæram
Rwanda og Zaire, stundar til þess
að ráða bót á ófíjósemi, getu-
leysi, ótryggð og fleiri göllum í
hjónalffínu. Átthagar ættbálksins
eru, að þvf er best er vitað, f
grennd við upptök alnæmisfarald-
ursins, sem heijar nú á heims-
byggðina.
Enginn veit hvereu útbreiddur
þessi siður var eða er, né hversu
lengi hann hefur verið stundaður.
Það er vel mögulegt, að margir
hafí smitast af alnæmi á þennan
hátt, en sjúkdónmrinn hafí ekki
breiðst út f fyrri tilvikum. Aðeins
á síðari áram, þegar fólk hefur
gerst víðförlara og byijað að búa
í stóram bæjum, sem lauslæti
hefur ef til vill verið samfará,
hafa staðbundin sjúkdómstilfelfi
orðið að faraldri.
Dr. Abraham Karpas, vísinda-
maður við Cambridge-háskóla,
hefur bent á að athuganir mann-
fræðingsins geti útskýrt aðra
staðreynd varðandi alnæmisveir-
una, sem menn hafa furðað sig
á. Tvær tegundir veirannar era
til í mönnum: Önnur er algeng í
Mið-Afríku og f öðram heimsálf-
um, hin fínnst aðeins í Vestur-
Afriku. Erfðafræðilega er
vestur-afríska afbrigðið miklu
Ifkara afbrigðum veirannar f öp-
um en hinni veirunni sem fundist
hefur í mönnum. Ef til vill var
önnur tegund apablóðs notuð f
Mið-Afríku og þess vegna smituð-
ust menn þar af annare konar
veira. Það er afar sennilegt að
apar úr nágrenninu hafí verið
notaðir í siðum innfæddra, og
mismunandi tegundir apa eru
dreifðar um Afríku.
Að sjálfsögðu gæti frásögn
mannfræðingsins af sérkennileg-
um kynlífsvenjum verið gölluð.
Fólk getur spunnið upp ótrúleg-
ustu sögur af undarlegu athæfí
Einn af sökudólgunum?
sínu til þess að gera sérvitran
vísindamann ánægðan — eða
blekkja hann. Það er heldur ekki
víst að notkun apablóðsins sé
dæmigerð, hún gæti verið sér-
viska nokkurra einstaklinga. í
þessu tilfelli er þó varla svo, því
að mannfræðingurinn, sem at-
huganimar gerði, Anicet Kas-
hamura, er sjálfur innfæddur
Mið-Afríkubúi frá Kiva-héraði og
ritar um siði sinnar eigin þjóðar.
í bók hans segir að mannsblóð
hafí einnig verið notað f helgiat-
höfiium Idjwi-fólksins, en ævin-
lega með mikilli gát, þar sem
menn hafí vitað að hægt væri að
fá af því berklasmit. Einhver kann
að óska þess að jafngætilega hefði
verið farið með apablóðið.
Þýtt og endursagt úr Tha-EeoaombL
Callaghan
aðlaður
London, Reuter.
JAMES Callaghan, fyrrum for-
sætisráðherra Bretlands, var i
gær aðlaður að tillögu Margaret
Thatcher forsætsráðherra
asamt 18 öðrum stjóramála-
mönnum úr öllum flokkum. Á
meðal þeirra voru 7 aðrir fyrr-
verandi ráðherrar, þeir Keith
Joseph, Roy Jenkins, James Pri-
or, Patrick Jenkin, Nicholas
Edwards, Francis Pym, Norman
St John-Stevas og Geoffrey
Rippon.
Callaghan, sém nú er 75 ára að
aldri, beið ósigur fyrir Thatcher
1979 í fyretu kosningunum af
þrernur, sem hún hefur sigrað í.
Hann var forsætisráðherra
1976-1979. Hann tilkynnti það
fyrir síðustu kosningar 11. júní sl.
að hann myndi að nokkra draga
sig f hlé úr orrahríð stjómmálanna.
Roy Jenkins, fyrram ráðherra í
stjóm Verkmannaflokksins og einn
af stofnendum Sósíaldemókrata-
flokksins (SDP), var einnig aðlaður
nú. Hann tapaði þingsæti sínu í
kosningunum 11. júní sl.
Sir Keith Joseph hafði tilkynnt
það fyrir skömmu, að hann hygð-
ist hætta þingmennsku í Neðri
málstofu brezka þingsins. Hann
var einn helzti hugmyndafræðing-
ur íhaldsflokksins á fyretu valdaá-
ram Thatcher.