Morgunblaðið - 31.07.1987, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 1987
29
ERLENT
Washington, Reuter.
KENNETH Adelman, einn helzti
ráðgjafi Reagans Bandaríkjafor-
seta í afvopnunarmálum, hefur
ákveðið að segja af sér. Skýrði
talsmaður þeirrar stofnunar
Bandaríkjanna, sem fer með eft-
irlit með vígbúnaði og afvopnun
(ACDA), frá þessu f gær. Sagði
talsmaðurinn, að Adelman, sem
er yfirmaður ACDA, myndi láta
af embætti „um miðjan október
eða eftir að leiðtogafundur risa-
veldanna hefur átt sér stað.“
Tilkynningin um þetta var birt
aðeins nokkrum klukustundum eftir
að Bandaríkjamenn og Sovétmenn
höfðu náð samkomulagi um viðræð-
ur milli utanríkisráðherranna
George Shultz og Eduard She-
vardnadze 15. september nk..
Markmiðið með þessum fundi verð-
ur að rejma að leysa þau ágreinings-
efni, sem eftir eru og standa í vegi
fyrir samkomulagi um afvopnun og
fyrir fundi æðstu manna risvaveld-
anna.
Adelman hefur hvað eftir annað
mælt opinberlega með því sam-
komulagi, sem nú virðist innan
seilingar milli risaveldanna. Sam-
kvæmt því á að leggja niður allar
meðaldrægar og skammdrægar
kjamorkuflaugar alls staðar í heim-
inum.
í afsagnarbréfi sínu til Reagans
forseta, sem ACDA lét birta í gær,
sagði Adelman: „Ég tel, að ég hafi
náð því markmiði, sem ég einsetti
mén Að aðstoða við að undirbúa
nýja stefnu varðandi eftirlit með
vígbúnaði milli Bandaríkjanna og
Sovétríkjanna, sem verði til að
snarfækka kjamorkuvopnum og
Panama:
Stjórnin ræðst harka-
lega á Bandaríkj anienn
Háskólanumíhöfuðborginnilokaðvegnastúdentaóeirða kínaTgTæpiídÆuJSð!taS
Panamahorg, Reuter.
HÁSKÓLANUM f Panamaborg var lokað í gær um óákveðinn tfma,
eftir að til átaka kom milli óeirðalögreglu og stúdenta fyrir framan
háskólalóðina. Tíu stúdentar særðust f þessum átökum, er hermenn-
imir skutu á þá gúmmíkúlum.
Utanríkisráðuneyti Panama
gagnrýndi í gær Bandaríkin harð-
lega fyrir afskipi af innanríkismál-
um landsins. í tilkynningu
ráðuneytisins sagði, að frekari af-
skiptasemi Bandaríkjanna yrði
skoðuð sem fjandskapur í garð Pan-
amastjómar. Þá kvartaði innanrík-
isráðuneytið yfír erlendum fréttarit-
urum í landinu og varaði við þvf,
að stjómvöld í Panama, myndu
ekki þola það, að haldið yrði áfram
að dreifa „röngum fréttum," sem
hefðu það markmiði að spilla áliti
Panama erlendis.
Bandaríska sendiráðið, sem hefur
haldið uppi gagnrýni á Panama-
stjóm fyrir að loka blöðum and-
stæðinga sinna og fleiri mannrétt-
indabrot, vildi ekkert tjá sig um
tilkynningu Panamastjórnar.
Upphafsmaður andófshryefíng-
arinnar gegn Panamastjóm, Robert
Diaz Herrera ofursti, kom stuttlega
fram í sjónvarpi í gær. Þar fór
hann fram á að fá að ganga á fund
Oscars Brown, aðstoðarbiskups ka-
þólsku kirkjunnar í Panama.
Diaz, sem er 49 ára að aldri,
virtist þreytulegur. Þetta var í
fyrsta sinn, sem hann kom opin-
berlega fram, eftir að hann var
handtekinn á mánudaginn var.
Hann bar þess þó ekki merki, að
honum hefði verið misþyrmt og
sagði, að ekkert væri að sér líkam-
lega.
Diaz ofursti var áður næst æðsti
maður hersins í Panama. Hánn
hefur sakað Manuel Antonio Nori-
ega, yfírmann hersins og mesta
spillingu til kosningavika og morða.
Radolfo Chiari de Leon innanrík-
isráðherra staðfesti það í viðtali við
fréttamenn í gær, að Diaz hefði
verið ákærður um landráð.
Tugir falla í
fangauppreisn
Sao Paulo, Reuter.
LÖGREGLA réðst í gær inn i
fangelsi þar sem fangar höfðu
tekið gisla og hótað að brenna
þá tíl bana ef kröfur þeirra yrðu
ekki uppfylltar. Slitnað hafði
upp úr viðræðum við fangana
um lausn gislanna.
draga úr hættunni á kjamorkustyij-
öld.“
Adelman sagði ennfremur, að til-
kynning Mikhails Gorbachevs,
leiðtoga Sovetríkjanna í síðustu
viku, þar sem hann féll frá fyrri
kröfum Sovétstjómarinnar um að
hafa 100 meðaldrægar kjamorku-
flaugar í Asíu, „væri gleggsta
vísbendingin um það, að Sovétmenn
hafa loksins fallizt á þessa stefnu.“
Adelmann tók við embætti 14.
aprfl 1983. Hann hyggst nú snúa
sér að ritstörfum og skrifa greinar
fyrir ýms blöð og tímarit.
Reuter
Hermenn ráðast gegn stúdentum, sem komið höfðu sér upp götuvigjum fyrir framan Panamaháskóla.
Ekki færri en tíu stúdentar særðust, er hermennimir skutu á þá gummikúlum.
Adelman segir
af sér hjá ACDA
Var um árabil helzti ráðgjafi
Reagans forseta í afvopnunarmálum
Breskur dómstóll kveður upp tímamótaúrskurð:
Leyfilegt að áætla ölvun
ökiifnainia. aftur í tímanu
Lundúnum, frá Valdimar Unnari Valdimarssyni, fréttaritara Morgunblaðsiiis.
BRESKIR ökumenn geta nú átt von á þvi að verða dæmdir fyrir
ölvun við akstur þótt áfengismagn í blóði þeirra sé undir leyfReg-
iim mörkum þegar mæling fer fram.
Hingað til hefur þeirri reglu
verið fylgt hér í Bretlandi, að
enginn skuli hljóta dóm fyrir ölv-
unarakstur nema mælingar gefí
ótvírætt til kynna, að áfengis-
magn í blóði viðkomandi öku-
manns sé óumdeilanlega yfir
leyfilegum mörkum. Á þriðjudag-
inn felldi hins vegar æðri dómstóll
hér í landi úrskurð, sem kann að
marka tímamót í þessum efnum.
Dómstóllinn komst nefnilega
að þeirri niðurstöðu, að þótt
áfengismagn væri undir leyfileg-
um mörkum við mælingu gætu
ökumenn átt von á dómi fyrir ölv-
unarakstur væri það mat sérfræð-
inga, að viðkomandi hefðu verið
ölvaðir þegar þeir sátu undir stýri.
Samkvæmt dómsúrskurðinum er
yfírvöldum sem sagt heimilt að
áætla aftur í tímann áfengismagn
í blóði þeirra ökumanna, sem
grunaðir eru um að hafa Bakkus
með í för.
Bresk lögregluyfirvöld hafa
lengi átt erfitt með að sætta sig
við hversu vel þeir ökumenn hafa
sloppið, sem grunaðir hafa verið
um ölvun við akstur en ekki hefur
verið unnt að mæla af einhveijum
ástæðum fyrr en töluvert hefur
verið um liðið frá því viðkomandi
sátu undir stýri. Hafa yfírvöld því
snúið sér til dómstóla til að láta
á það reyna hvort ekki væri unnt
að koma lögum yfír þessa öku-
menn, sem gefíst hefíir tími til
að láta renna af sér frá því þeir
voru grunaðir um ölvunarakstur
og þar til lögreglu gafst kostur á
að mæla áfengismagn í blóði
þeirra. Hafa að undanfömu verið
rekin fyrir breskum dómstólum
nokkur prófmál, sem að þessu
lúta, og er niðurstaða dómstóla
sú, að sérfræðingum leyfíst að
áætla aftur í tímann áfengismagn
í viðkomandi einstaklingum. Við
slíkar áætlanir er meðal annars
stuðst við upplýsingar um aldur,
hæð og þyngd viðkomandi ein-
staklings og áætlað þannig hversu
lengi áfengið ætti að öllu jöfnu
að vera að hverfa úr blóðinu.
Gefí slíkt mat til kynna, að áfeng-
ismagn í viðkomandi einstaklingi
hafí verið yfír leyfilegum mörkum
þegar hann stýrði ökutæki má
hann eiga von á dómi fyrir ölvuna-
rakstur.
Þessi dómsúrskurður hefur
sætt töluverðri gagnrýni hér í
Bretlandi. Hafa til dæmis bresku
læknasamtökin (Britishh Medical
Association) lýst þeirri skoðun
sinni, að úrskurðurinn sé vægast
sagt byggður á afar hæpnum for-
sendum og óvísindalegum grunni.
Benda samtökin meðal annars á,
að ákaflega misjafnt sé hversu
fljótt renni af þeim sem innbyrt
hafa áfengi og fráleitt sé að
byggja mælingar og áætlanir á
einhveijum stöðlum að þessu leyti.
Meira að segja sé sami einstakl-
ingurinn rnislengi að losna við
áfengi úr blóði sínu, slíkt byggist
á svo fjölmörgum þáttum, sem
ógemingur sé að steypa saman í
einhvem algildan mælikvarða.
Samtök breskra bifreiðaeig-
enda hafa einnig látið til sín heyra
og gagnrýnt harðlega þann dóms-
úrskurð sem nú liggur fyrir. Hafa
talsmenn samtakanna skorað á
ríkisstjómina og lögregluyfírvöld
að koma í veg fyrir að menn verði
dæmdir á grundvelli annars en
þess, sem fínnist í lfkama þeirra
við mælingu. Annað bijóti alvar-
lega í bága við allar réttarvenjur
og sé vafasamt fordæmi um það
hvemig með sakamál skuli farið.
Uppreisnin hófst í fyrradag er
250 fangar kveiktu f einni áimu
byggingarinnar og tóku þar næst
gíslana sem vora þijátíu talsins.
Yfirmaður herlögreglunnar í Sao
Paulo skýrði frá því að 29 menn
hefðu látið lífið í átökunum í gær,
27 fangar og tveir lögreglumenn.
Hann sagði einnig að margir þeirra
fanga, sem létust, hefðu orðið fóm-
arlömb blóðhefnda annarra fanga.
Ails tóku 500 lögreglumenn þátt
í innrásinni f fangelsið sem hýsir
um 1100 fanga.
Reuter
Á myndinni sjást foreidrar eins
fangans. Móðirin brestur í grát
er hún fréttir að sonur hennar
haf i verið í hópi þeirra sem týndu
lífi í fangauppreisninni.