Morgunblaðið - 31.07.1987, Qupperneq 34
V8(JJt ÍJt'a . tc flUDAOUTgfr-l .OIUA»iaWIOHOM
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 81. JÚLÍ 1987
34
Foringjarnir á Lækjartorgi
Rokkhlj ómsveitin Foringjarnir hyómsveitarinnar, Komdu í
hélt í gær tónleika á Lækjart- partí, sem kom út þennan sama
orgi, öðrum þræði til að vekja dag, og fyrirhuguðu tónleika-
athygli á fyrstu hyómplötu haldi í Þjórsárdal.
Selfoss lagstur að bryggju í Sundahöfn í gær. MorgunbiaÆð/Svemr
Eimskíp fær foss til
saltfiskflutninga
SELFOSS, nýjasta skipið i flota gáma. Aðalvélin er 3000 hestafla
Eimskipafélagsins, kom til lands- en þijár hjálparvélar 235 hestöfl
ins I fyrsta sinn í gær. Það var hver.
afhent félaginu 12. mai síðastlið-
Rally cross á Húsavík:
I skottúr frá Spáni
til að hirða títilinn
MENN leggja mismunandi mikið
á sig til að ná íslandsmeistaratitl-
um í hinum ýmsu íþróttum. En
sókn Birgis Viðars Halldórssonar
í titilinn í rally crossi hlýtur að
teljast einstök á óbreyttum
Mazda 323 Turbo 4X4. Hann var
í sumarfríi á Spáni en skaust
heim í rúman sóiarhring um
siðustu helgi og til Húsavíkur og
vann þar rally cross keppni. Með
sigrinum tryggði hann sér ís-
landsmeistaratitilinn.
„Ég var á Costa del Sol og flaug
heim á laugardag og kom um kvöld-
ið. Keppnin fór fram á sunnudag,
en um morguninn var ekki flugfært
frá Reykjavík til Húsavíkur. Seink-
aði fluginu um nokkra tíma, en ég
komst þó í tæka tíð á áfangastað,"
sagði Birgir. Þar tók ekki betra
við, horfur voru á að keppnin færi
ekki fram, en á endanum tókst að
smala nægilegum fjölda bíla til að
gera keppnina löglega, sem varla
er gott fordæmi. Aðeins þrír bflar
kepptu til úrslita og reyndar í und-
anriðlum, en nokkrir bflar höfðu
farið í tímatöku, sem gerðu keppn-
ina löglega.
Hvað sem keppendafæð líður þá
voru úrslitin hörkuspennandi. Birgir
Viðar og Ámi Sæmundsson óku
báðir fjórhjóladrifnum Mazda 323
Turbo. Birgir náði forystu, en Ámi
keyrði grimmt á eftir honum og
reyndi í hverri beygju að komast
fram úr, en hafði ekki erindi sem
erfíði. Kappsfullur velti Ami slðan
bflnum í krappri beygju og stór-
skemmdi tiltölulega nýjan bflinn,
sem hann hafði ekið vel í rallkeppni
daginn áður. Snorri Harðarson, á
Datsun, náði eftir þetta atvik öðm
sæti eftir skemtileg tilþrif. „Þetta
var andstæðingum mínum dýrt
spaug," sagði Birgir. „Ari Amórs-
son skemmdi fyrst sinn bíl í tíma-
töku og sfðan Ami. En menn verða
að passa sig, ætla sér ekki um of.
Það var hörkukeppni milli Mazda-mannanna Birgis Viðars Halldórs-
sonar og Árna Sæmundssonar á rally crossinu á Húsavík. Birgir
tryggði sér íslandsmeistaratitílinn með sigri, en Árni veltí í úrslit-
um, þegar hann reyndi framúrakstur.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
„Ég fór of hratt í eina beygjuna þegar ég reyndi að fara framúr.
Þetta er rosalegt,“ sagði Árni, sem útskýrir óhappið fyrir Sæmundi
Erlendssyni, en þeir hafa notað bílinn saman í rallmót. Hann er
mikið skemmdur og stutt er í Ljómarallið_______________
Ég átti ekki von á Áma svona sterk- titilinn. Nú get ég farið aftur til
um en endirinn varð heldur leiðin- Spánar með bros á vör,“ sagði hann
legur. Ég er þó ánægður með á leið í sólina.
inn. Selfoss er 4.300 tonn að
stærð og sérstaklegfa útbúinn til
saltfiskflutninga.
Skipstjóri Selfoss er Matthías
Matthíasson og yfírvélstjóri Jóhann
Gíslason. Skipinu er ætlað að flytja
salftisk, saltsfld, mjöl og aðrar sjáv-
arafurðir.
Breytingar voru gerðar á skipinu
fyrir félagið. Lestir vom gerðar
„boxlaga", þijú milliþilför innrétt-
uð, allt skipið einangrað og búið
kælikerfí. Vistarvemm áhafnar var
jafnframt breytt og sérstök skrif-
stofa útbúin fyrir lestunarstjóra
útflytjenda.
Burðargeta Selfoss er 4.281
tonn. Skipið er búið tveimur 20
tonna krönum og getur flutt 154
Leiðréttíng
I úttekt á þvi sem verður að ger-
ast um verslunarmannalegina, S
Morgunblaðinu i gær, var þvi
ranglega haldið fram að á Þjóð-
hátiðinni í Vestmannaeyjum yrði
poppmessa i umsjón Samhjálpar
og Hvitasunnusafnaðarins.
Þarna er um kristilega popptón-
leika að ræða og munu meðal
annars koma fram dúettínn Takk
og Hljómsveit Hjalta Gunnlaugs-
sonar.
Mikil og góð veiði hefur verið i
Vatnsdalsá að undanfömu og
hefur litlu skipt þótt enn látí
smálaxinn að mestu bfða eftir
sér. Svo mikið virðist sem sagt
hafa gengið af stóra laxinum
að þessu sinni. Nýjar fregnir
herma, að nærri 700 laxar séu
komnir á land og hópur er-
lendra veiðimanna sem hættí
eftir vikuna fyrir skömmu
veiddi 150 laxa. Sami hópur
veiddi í fyrra 100 laxa á sama
tima og var það besta veiði
flokksins í Vatnsdalsá i mörg
ár. Að þessu sinni var meðal-
þungi aflans rúmlega 13 pund
og þó nokkrir laxar voru um og
yfir 20 pund. Segir það nær alla
söguna um meðalþunga sumar-
veiðinnar til þessa. Þetta hafa
verið upp til hópa stórir laxar
og fáir undir 10 pundum, helst
þá 7 til 9 punda fiskar innan
um, en smálaxar hafa fáir sést.
Þó er talið að sltkir fiskar muni
fara að ganga hvað og hveiju.
Væri slíkt i samræmi við spár
fiskifræðinga sem reiknuðu
með því að bæði stórlaxa- og
smálaxagöngurnar i sumar
myndu verða sterkar.
Góð veiði í Svartá.
Góð veiði hefur verið í Svartá í
Húnavatnssýslu það sem af er
vertíðinni. Fyrir nokkru voru
komnir þar á land vel á annað
hundrað laxar og að þessu sinni
var óvenjulega mikil veiði í júlí,
laxinn fyrr á ferðinni en vant er.
Stærstu fiskamir hafa verið 18 til
19 punda og meðalþunginn er goð-
ur.
Skot í Stóru Laxá.
Enn er léleg veiði í eftirlæti
margra, Stóru Laxá í Hreppum.
Veiðin þar er talsvert enn þá fyrir
innan þriggja stafa töluna. Þó
verður að segja það ánni til hróss,
að skot kom í hana á svæði þijú
27. júlí síðast liðinn, er 8 laxar
veiddust víðs vegar á svæðinu.
Þetta voru vænir laxar og þótt
menn fengju ekkert að ráði annars
staðar í ánni sáu menn á svæði tvö
stóra og nýkomna boltalaxa í Kálf-
hagahyl sama daginn. En þeir tóku
ekki. Kannski að eitthvað sé að
rofa tii.
Jökulvatnið.......
Lítil veiði hefur verið sums stað-
ar á svokölluðum ódýrum veiði-
svæðum enda væru þau varla ódýr
ef veiðistaðimir væru virkilega
góðir. Til dæmis höfðu nýlega að-
eins veiðst 12 laxar við Laugar-
bakka, þar sem Sogið og Hvítá
hafa runnið saman. Margt af því
vom að vísu stórir fiskar.allt upp
í 15 og 16 pund, en afiinn telst
þó ekki góður, því hann er fenginn
á tvær dagsstengur. Sú var tíðin
að mönnum brást aldrei a.m.k. ein-
hver veiði á Laugarbökkum, en það
er af sem áður var.
Þá hafa aðeins veiðst 15 til 20
laxar í Hvitá eystri í landi Kiðja-
bergs, en Stangavieðifélag
Reykjavíkur hefur selt ódýr veiði-
leyfí þar í sumar , en svæðið er í
fyrsta skipti til reynslu sem
stangaveiðisvæði. Var áður not-
hæft netaveiðisvæði. Svo sem frá
hefur verið greint veiddist þama
nýlega 30 punda hængur og
nokkru áður 24 punda hængur.
Flestir laxanna sem hafa veiðst
hafa verið boltar. Það hefur þó
ekki farið hjá því, að veiðimenn á
þessu svæði hafa séð lax viða á
svæðinu sem er býsna langt, þótt
einn veiðistaður, Húsbreiðan, virð-
ist vænlegasti staðurinn til veiða.
“Þetta er svona eins og þegar
menn vora að byrja að uppgötva
Snæfoksstaðina, allir legu- og
tökustaðir laxins eru alls ekki
þekktir og menn era að þreifa sig
áfram. Þess vegna eram við alls
ekki óhressir með þessa veiði þótt
hún mætti auðvitað vera meiri,"
sagði Friðrik framkvæmdastjóri
hjá SVFR í samtali við Morgun-
blaðið í gær. Þess má geta, að
annað eins hefur veiðst við Kiðja-
berg af vænum sjóbirtingi og laxi
og hefur það bætt upp fyrir suma.
Gljúfurá líflitíl.
Lítil veiði hefur verið í Gljúfurá
í Borgarfírði og veiðin nú um
mánaðarmótin nemur aðeins um
30 löxum, sem er afar dauft. Era
flestir hissa á því vegna þess að
áin virtist hafa verið að koma upp
eftir nokkurra ára lægð, þannig
var góður stígandi í veiðinni tvö
síðustu sumur. Vatnið hefur verið
gott í ánni, vatnsmiðlunin í Langa-
vatni hélt ánni við í gegn um
þurrkana fyrr í sumar og svo hef-
ur rigningin tekið við hlutverkinu.
Vatnsskortur er því ekki skýringin.
Það er mjög lítill lax genginn í ána
og holl gerkunnugra manna náði
fyrir skömmu bestu veiði sumar-
ins, 7 löxum, og fylgdi sögunni að
þeir hefðu að vísu séð lax nokkuð
víða í ánni, bara mjög fáa laxa á
hveijm stað. Gamall karl sem er
með netstubb í ósnum og hefur
veitt í hann í áraraðir með þokka-
Iegum árangri, sérstaklega í júní
og júlí, fékk fyrir þremur dögum
sína fyrstu veiði, 3 laxa. Segir það
ianga sögu í stuttu máli um laxa-
skortinn.. Þá hafa laxamir sem
veiðst hafa verið mjög smáir.
Elliðaárnar í lagi.
Um 670 laxar era komnir úr
Elliðaánum og fyrir fáum dögum
veiddi Dav’ið Oddsson borgarstjóri
stærsta laxinn þar i sumar, tæp-
lega 17 punda hæng sem tók maðk
í Sjávarfossi. Annars hefur laxinn
í Elliðaánum verið venju fremur
smár í sumar og mikið af 2 til 4
punda tittum í afianum. Meira að
segja laxar allt niður í tæpt pund.
En það er mikil hjörð af laxi í
ánni og menn segja enn vera að
koma inn nýjan lax. Stöku fískar
hafa meira að segja fengist í El-
liðavatni.