Morgunblaðið - 31.07.1987, Page 39
39
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 1987
Minning:
*
Arni Gíslason
framkvæmdasíjóri
Fæddur 15. nóvember 1920
Dáinn 24. júlí 1987
Alltaf er Ijósið að kvikna
Alltaf er ljósið að slokkna
Samnefndarar lífs og dauða erum vér
Án afláts fæðumst vér og förumst í senn
Sí og æ skapar spenna tímans nýtt mál
Sí og æ skapar þensla rúmsins nýja menningu
Og það sem vér höldum að sé lífið er dauðinn
Og það sem vér höldum að sé dauðinn er lifið
(Jóhannes úr Kötlum)
Ámi Gíslason framkvæmdastjóri,
Ásbúðartröð 9, Hafnarfirði, lést á
heimili sfnu 23. júlí sl.
Ámi var fæddur á Bfldudal 15.
nóvember 1920, sonur hjónanna
Kristínar Kristjánsdóttur og Gísla
Ásgeirssonar. Hann fluttist með for-
eldrum sínum til Hafnarfijarðar um
1930 og bjó þar æ síðan.
Ámi kvæntist Ester Kláusdóttur
árið 1944. Þau eignuðust 6 böm:
Ásgeir kennara, Keflavík; Pál verk-
smiðjustjóra, Hafnarfirði; Kristínu
hjúkrunarfraeðing, Reykjavík; Björg-
úlf Kláus, sem lest árið 1976;
Hólmfríði kennara, Hafnarfirði og
Önnu Pálínu kennaraháskólanema,
Reykjavík.
Unglingsár Áma vom tímar
kreppu og afkomuörðugleika hjá al-
þýðufólki. Þegar þar á ofan bættist
heilsuleysi heimilisföðurins leiddi af
sjálfu sér að Ámi, sem var næst-
elstur fjögurra systkina, varð
snemma að leggja hart að sér við
vinnu.
Kröfuharðir tímar kreppuáranna
kölluðu fram og efldu það eðlisupp-
lag, sem einkenndi Áma alla tíð,
þótt tímar og aðstæður breyttust:
eljusemi, verkhyggni, samviskusemi
og ósérhlífni.
Þessir eiginleikar dugðu honum
til þess, að þrátt fyrir erfíða tíma
lauk hann vélvirkjanámi. Ámi gegndi
um ævina ýmsum þeim störfum sem
tengdust menntun hans, m.a. var
hann verksmiðjustjóri Lýsis og Mjöls
hf. um árabil og sfðan forstjóri þess
í um áratug. Einnig starfaði hann
hjá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna.
I þessum störfum naut sín verk-
hyggni hans og lifandi hugmynda-
auðgi við eflingu tækninýjunga.
Hann lagði sig allan fram í störfum
sínum. Glfma við lausnir vandamála
fylgdu honum jafnt inn á heimiiið,
sem inn á sjúkrastofur, þegar hann
þurfti að dveljast þar um tíma vegna
þverrandi heilsu sfðustu árin.
Heilsufar Áma undir það sfðasta
hefði orðið flestum öðmm orsök til
þes að hverfa af vettvanngi vinnu
og starfs og huga að hvfld eftir svo
drjúgan starfsdag. Meðfædd þrotlaus
elja og athafnasemi og lifandi áhugi
á athafnalffinu hlaut þó að valda því
að hann fyndi sér verkefni til að
kljást við meðan einhver grið vom
gefin.
Hann féll um aldur fram, en þó
er það svo að aldur slíkra manna sem
hans er í raun allur þegar starfs-
getan er brostin hvenær sem að því
kemur á lífsleiðinni. Hvfld var Áma
Gfslasyni ógeðfelldara meðal enn svo
að hann vildi neyta þess í þeim
mæli sem þurft hefði til þess að
teygja lífdagana enn um sinn. Starf-
sævi og lífdagar Áma Gfslasonar
hlutu að falla saman. Hann var þann-
ig gerður og þvf verðum við að sætta
okkur við að ævidagamir yrðu færri
en skyldi.
Þótt starfið ætti hug hans í svo
rfkum mæli þá fór þvf flarri að hann
hrærðist þar á þröngu sviði. Öðm
nær. Af mikilli eðlisgreind, þekkingu
og lífsreynslu hafði hann víða sýn
um þjóðmálin og þjóðlffið allt. Á
uppvaxtarámm kynntist hann af eig-
in raun lífskjöram alþýðuheimila
þegar barátta þeirra var hvað erfið-
ust og var áfallt félagshyggjumaður
og traustur málsvari launafólks og
sérstaklega þeirra, sem miður mega
sín í þjóðfélaginu. Hann lá ekki á
þeim skoðunum sfnum. Eigi heldur
þótt hann gegndi stjómunarstörfum
I einkafyrirtækjum um langt skeið.
Þessum lífsskoðunum Áma kynnt-
ist ég þegar á unglingsámm og
hugsa oft til þess hversu þau hjón
hljóta að hafa þurft að taka á þolin-
mæðinni, þegar við Hjörtur bróðir
tókum hús á þeim á Vitastígnum
hvenær sem okkur lék hugur á, og
það var æði oft, til þess að skegg-
ræða þjóðmálin og koma á framfæri
ákveðnum skoðunum okkar, sem þá
hafa án efa verið æði mikið málaðar
hvítum og svörtum litum. En ljúf-
mennskan og veraldarviskan ein-
kenndu þau hjón þá sem ætíð og þau
eru það fólk, sem ég hefi á lífsleið-
inni haft hvað mesta ánægju og
lífsfyllingu af að ræða við um lífið
og Jtilverana.
Ámi var fríður maður og karl-
mannlegur og glæsileiki þeirra hjóna,
Esterar og hans, vakti athygli hvar
sem þau komu, jafnt þótt árin liðu.
Það var engu líkara en tíminn með
þau mörk, sem hann setur á mann-
fólkið, veigraði sér við því að beita
þeim á þessi fallegu hjón og héldi sig
í hæfilegri fjarlægð frá þeim, en
kæmi f áratugs humátt á eftir.
Eftir því sem árin liðu stækkaði
ættbogi þeirra hjóna í Ásbúðartröð-
inni og samheldni og samhugur
foreldra, bama, tengdabama og
bamabama var með eindæmum.
Fátt var ánægjulegra en að fá að
vera í þeim hópi þegar safnast var
saman. Þar var ekki kynslóðabilið.
Þar naut ljúfmennska Áma sín hvað
best og sú sérstæða, persónulega og
hugljúfa kímni, sem honum var gef-
in. Hann sá það spaugilega í öllu sem
að honum og hans nánustu sneri.
Kímni hans var notaleg, og jafnvel
stríðnisorðin vom sem atlot, aðferð
hans til þess að tjá elsku sína á öllu
þessu fólki, sem stóð honum næst.
Kynnin og samskiptin við Áma
og Ester og allt þeirra fólk hafa
verið mér og mínu fólki ómetanlegur
þáttur lífshlaupsins. Fyrir það þökk-
um við þegar Ámi Gfslason er
kvaddur hinstu kveðju.
Geir Gunnarsson
Þegar hún Hólmfríður hringdi á
fimmtudagskvöldið var datt mér
síst af öllu í hug að hún væri að
tilkynna okkur lát föður síns, hans
Árna Gísla.
Ég læt aðra um að rifja upp
ættir og feril athafnamannsins
Áma Gfsla, eins og hann var ávallt
nefndur af vinum og fjölskyldu, en
lagnar til þess að senda henni Bíbí,
eins og ættingjamir kölluðu Ester,
og fjölskyldunni allri örstutta
kveðju á þungbærri stund.
Leiðir okkar Áma lágu saman í
Vélsmiðju Hafnarfjarðar er ég hóf
þar iðnám og síðar er ég kvæntist
náfrænku Bíbíar varð kunnings-
skapur að vináttu. Endurminning-
amar úr smiðjunni em margar.
Lærlingurinn sá fljótt hve frábær
handverksmaður Ami var. Yfírveg-
aður og athugull rasaði hann aldrei
að verki en velti því fyrir sér þar
til hann sá bestu lausnina. Trúlega
skilja mig ekki margir þegar ég
tala um fegurð í sambandi við raf-
suðu en þó held ég að þeir finnist.
Einnig mætti tala um listaverk í
þessu sambandi. Ámi var einhver
slyngasti rafsuðumaður sem ég
hefi þekkt og á þessum smiðjuárum
okkar, þegar Vélsmiðja Hafnar-
^arðar þjónaði hafnfírskri útgerð
og erfitt var um varahluti, komu
oftlega stór og vandasöm verkefni
inn á gólf smiðjunnar. Ég sé enn
fyrir mér stórsuðumar hans Áma.
Þær vom oft á tíðum hin fegurstu
listaverk. En svona var Ámi, á
hveiju sem hann tók. Og hann bar
víða niður, alltaf hugsandi um úr-
bætur, hagræðingu, vélvæðingu,
nýjar og áður ókannaðar vinnslu-
brautir. Óþreytandi framfaramaður
sem þjóðin öll á margt að þakka.
Stutt er síðan við Ámi áttum
spjall í síma. Hann var meðal ann-
ars að leita að nýrri lóð undir
fyrirtæki sitt. Nú er hann allt í einu
farinn.
Við hjónin og bömin okkar, sem
áttu annað heimili hjá Bíbí og Áma,
þegar á þurfti að halda, sendum
innilegustu samúðarkveðjur til
Bíbíar og fjölskyldunnar allrar, með
þakklæti fýrir liðnar samvemstund-
ir, heima jafnt sem á ferðalögum.
Guðbjörg og Ásgeir Long
Elskulegur tengdafaðir minn, Ámi
Gíslason, er látinn, 66 ára að aldri.
Ámi fæddist í Bíldudal 15. nóvember
1920, sonur hjónanna Kristínar
Kristjánsdóttur og Gísla Ásgeirsson-
ar.
Æskuárin reyndust Áma erfíð.
Faðir hans veiktist alvarlega af
berklum og var langtímum saman
upp frá því á Vífilsstaðahæli vegna
sjúkdóms síns. Mörkuðu þessir erfið-
leikar djúp sár í viðkvæma bamssá-
lina og áttu ásamt harðri lífsbaráttu
fólks á kreppuámnum eftir að móta
lífsviðhorf Áma alla tið uppfrá því.
Frá Bfldudal fluttist fjölskyldan til
Hafnaríjarðar og var Ami þá næ-
stelstur flögurra systkina. Ellefu ára
gamall fór hann að sendast hjá Al-
þýðubrauðgerðinni í Hafnarfirði og
hélt því starfi jafnt sumar sem vetur
með skólagöngu sinni. Hann hóf nám
í vélsmíði hjá Vélsmiðju Hafnarfjarð-
ar 1938 og lauk því 1942.
Það lýsir því vel hver hamhleypa
Ámi var til verka, að 25 ára gamall
fluttist hann í nýtt, fullbúið eigið hús
á Vitastíg í Hafiiarfírði. Ami kvænt-
ist eftirlifandi konu sinni, Ester
Kláusdóttur, 24. mars 1944. Eignuð-
ust þau sex böm og em fimm á lífi.
Síðustu stríðsárin var Ámi á tog-
ara og sigldi margar og hættulegar
ferðir með aflann til Bretlands. Hann
vann um skeið hjá Vélsmiðju Hafnar-
fjarðar eftir stríð og eftir það byijaði
hann hjá Lýsi og mjöl, þar sem hann
vann í allt um 27 ár, fyrst sem vél-
smiður, síðan sem verksmiðjustjóri
og síðustu 12 árin sem framkvæmda-
stjóri.
Áður en Ámi tók við fram-
kvæmdastjórastarfi hjá Lýsi og mjöl,
árið 1974, vann hann f nokkur ár
hjá tæknideild Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna og var það óefað
áhyggjulausasta og skemmtilegasta
tímabil í ævi hans, eftir að ég kynnt-
ist honum, því þar var hann nær
eingöngu að vinna við áhugamál sín.
Hann tók við störfum fram-
kvæmdastjóra Lýsis og mjöls 1974
og vann þar samfellt til 1982, er
eigendur Lýsis og mjöls seldu fyrir-
tækið og nýir eigendur tóku við.
Síðustu árin rak Ámi eigið fyrir-
tæki, Vörabretti sf., sem framleiddi
vömbretti til vömflutninga. Átti
hann mjög ánægjuleg samskipti við
aðal viðskiptamenn sína hjá SÍS og
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna í
sambandi við það fyrirtæki.
Leiðir okkar Arna lágu saman
fyrir rúmum 20 ámm, er ég ungur
og taugaóstyrkur, tilvonandi tengda-
sonur, steig mín fyrstu spor upp
tröppumar á Ásbúðartröðinni. Þar
kynntist ég fyrst Áma og Ester og
því yndislega heimili, sem þau höfðu
búið sér og bömum sínum. Það var
óvanalegur friður og ró yfir heimilinu
þar sem gott var að hvflast íjarri
skarkala dagsins og ræða þau mál-
efni, sem efst vom á baugi. Áma
og Ester tókst að skapa óvenjulega
náið, samheldið §ölskyldulíf, sem
haldist hefur til þessa, þrátt fyrir að
ungamir séu flognir úr hreiðrinu.
Fjótlega snemst umræður okkar
Áma um aðaláhugamál hans, sem
þá var eins og alla tíð, sjávarútvegur
og fískvinnsla og hvemig best mætti
standa að þeim málum. Eg man ekki
hvort ég hafði mikinn áhuga til að
byija með, en þegar fram liðu stund-
ir fór ekki hjá því, að ég hrifist af
Áma og þeim vandamálum, sem
hann var svo upptekinn af að leysa,
að á endanum var ég orðinn jafn
áhugasamur og hann, enda Ami
sannfærandi og góður kennari.
Oftast, þegar maður kom í heim-
sókn utan vinnutlma var Ámi við
skrifborðið sitt með uppdrætti og
papplra allt í kringum sig til að end-
urbæta gamla framleiðslu eða finna
upp nýtt. Svona var Ámi alla tíð,
sívinnandi og ósérhllfinn, leysandi
sín og annarra vandamál, ef slíkt
væri hægt. Hugsjónamaður, sem
aldrei nokkm sinni efaðist um sann-
færingu sína og var sínum hugsjón-
um trúr, þó að stundum væri beint
á moti einkahagsmunum hans.
Ég minnist nú sérstaklga tveggja
atriða. í fyrsta lagi, þegar loðnuveið-
ar vom að bytja að einhveiju ráði,
og Ámi hafði miklar áhyggjur af því
að ekki væri hægt að nýta loðnu-
hrognin landi og þjóð til gagns. Eftir
miklar bollaleggingar hannaði Ami
fyrstu verkfærin, sem reyndust not-
fær til að nýta loðnuhrogn og eftir-
leikinn þekkjum við öll. í öðm lagi
var atriði, sem Ámi sagði mér fyrir
15 ámm, þegar við vomm að skoða
fiskimjölsverksmiðjur á Norður-Jótl-
andi. Sýndi hann mér þá og útskýrði
kosti gufuþurrkunar á mjöli, sem þá
var eina sómasamlega vinnsluað-
ferðin sem tíðkaðist I Danmörku.
Útskýrði hann fyrir mér hvers vegna
þetta væri framtíðin, en vegna fjár-
magnsskorts væri því miður engin
slík verksmiðja til á íslandi og því
miður stöndum við svipað að málum
I dag, þó nú séu ein eða tvær verk-
smiðjur af öllum okkar verksmiðjum,
komnar með þessa vinnsluaðferð.
Síðustu árin var Ámi farinn að
heilsu og þó sérstaklega síðasta árið,
en Árni tók veikindum sínum með
sérstakri karlmennsku og æðmleysi.
Það þarf mikið sálarþrek fyrir mann,
sem aldrei hefur fallið verk úr hendi,
að takast skyndilega á við erfiðan-
heilsubrest. Þegar kallið kom var það
óvænt, þar sem honum virtist hafa
verið að batna, er hann skyndilega
varð bráðkvaddur við vinnu sína laust
eftir hádegi fimmtudaginn 24. júlí.
Sjá dagar koma, ár og aldir líða \
9g enginn stöðvar tímans þunga nið.
í djúpi andans duldir kraftar bíða,
hin dýpsta speki boðar líf og frið.
I þúsund ár bjó þjóð við nyrstu voga,
mót þrautum sínum gekk hún djörf og sterk.
Við hennar kirkju helgar stjömur loga
og hennar líf er eilíft kraftaverk.
Ámi unni þessu ljóði Davíðs Stef-
ánssonar, sem sungið verður við
jarðarför hans I dag. Hann var sjálf-
ur með lífí sínu, dugnaði og
manngæsku einn af bestu sonurr
sinnar þjóðar og við aðstandendui
hans, sem kveðjum hann I dag,
minnumst með þakklæti og söknuði
mikils manns og kærs ástvinar og
biðjum guð að blessa eiginkonu
hans við þennan mikla missi.
Einar Sindrason
í dag þegar ég fylgi afa minumf
Ama Gíslasyni, til grafar, minnist
ég þess er ég kom heim frá Dan-
mörku þar sem ég hafði dvalist með
foreldrum mínum mín fyrstu
bemskuár. Ég fann þá strax hvað
ég átti traustan vin þar sem afi I
Ásbúðartröð var. Hann opnaði fyrir
mér sinn stóra, kærleiksríka faðm
og ég fann að ég var kominn heim.
Það fylgdi því alltaf mikið öryggi
að vita af afa mínum I Ásbúðartröð-
inni. Hann var alltaf svo traustur
og sterkur og kunni skil á öllum
hlutum, sem forvitinn bamshugann
langaði 'að fá svör við. Margar ferð-
ir fómm við síðan saman og oft
veiddum við silung I Hæðargarðs-
vatni, við sumarbústaðinn þeirra
afa og ömmu. Þar var skemmtilegt
að vera með honum og þegar ég
varð eldri og þroskaðri fann ég
hvað hann bjó yfir mikilli lífsvisku,
sem hann miðlaði mér á sinn ein-
falda hátt.
Ég veit að ég mun búa að sam-
fylgdinni við afa minn alla mína
ævi og vona að ég hafi erft eitt-
hvað af hans góðu eiginleikum.
Sindri
t
Faöir minn, bróðir okkar og fósturbróðir,
GUNNAR FRIÐLEIFSSON,
andaðist 28. júlí.
Steinfríður Gunnarsdóttir,
Anna Friðlelfsdóttir,
Sólveig Friðleifsdóttir,
Rakel Loftsdóttir,
Aðalheiður Stefánsdóttir.
t Sonur minn,
SVERRIR ARASON,
andaðist í Landakotsspítala 20. júlí. Útför hans hefur farið fram.
Þakka auðsýnda samúö. Fyrir hönd sona hans, bræðra og annarra aöstandenda.
Ari Agnarsson.
t
Konan mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
BJÖRG EINARSDÓTTIR,
Jöldugróf 24,
lést í Landakotsspítala miðvikudaginn 29. júlí.
Axel Konráðsson,
Jón Þ. Benediktsson, Halldóra Gfsladóttir,
Kristfn I. Benediktsdóttir, Kristþór B. Helgason
og barnabörn.
t
Ástkær dóttir mín, móðir, systir og mágkona,
UNNUR JÓHANNA BROWN,
er lést af slysförum 24. þ.m. verður jarðsungin frá Bústaöakirkju
í dag föstudaginn 31. júlí kl. 10.30.
Þórdfs Sigurðardóttir,
Margrét Matthfasdóttlr,
Rögnvaldur Stefán Cook,
Sigurður Gfsli Slgurðsson,
Kristfn Þóra Beck.