Morgunblaðið - 31.07.1987, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 31.07.1987, Qupperneq 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 1987 + Eiginkona mín, móðir, tengdamóöir og amma, JÓRUNN SIGURÐARDÓTTIR NJARÐVÍK Skarði, Skarðshreppi, Skagafjarðarsýslu, sem lóst á heimili sinu 25. júlí sl. verður jarösungin frá Sauðár- krókskirkju laugardaginn 1. ágúst kl. 16.00. Ólafur Lárusson, Hallveig Njarðvfk, Torfi Ólafsson, Páll Pétursson, Guðbjörg Helgadóttir, Tinna Pálsdóttir, Ólafur Torfason, Heba Pálsdóttir, Helgi Torfason. t Sonur minn og bróðir okkar, MAGNÚSINGISIGURÐSSON viðskiptafræðingur, er lést af slysförum 23. júlí, veröur jarðsunginn frá Fossvogs- kirkju föstudaginn 31. júlí kl. 13.30. Fyrir okkar hönd og annarra vandamanna, Árný Guðjónsdóttir, Guðjón Sigurðsson, Oddur Sigurðsson. + Jarðarför mannsins míns og fööur okkar, ÁSGEIRS BLÖNDALS MAGNÚSSONAR, fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 4. ágúst kl. 10.30. Þeir sem vildu minnast hans láti Krabbameinsfólag íslands njóta þess. Njóla Jónsdóttlr, Jóhann GunnarÁsgeirsson, Magnús Asgeirsson, Sigurður Ásgeirsson. + Jarðarför eiginmanns míns, föður okkar, tengdafööur og afa, KARLS PÁLSSONAR, fyrrv. útgerðarmanns frá Flatey á Skjálfanda, ferfram fró Hafnarfjarðarkirkju i dag, föstudaginn 31. júlí, kl. 10.30. Helga Guðmundsdóttir, Anna Karlsdóttir, Arnþrúður Karlsdóttir, Baldur Karlsson, Erlingur Karlsson, Guðmundur Karlsson, Pálml Karlsson, Ragnar Karlsson, Sverrir Bergman, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. + Útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, ÁRNA GfSLASONAR, Ásbúðartröð 9, Hafnarfirði, verður gerð frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði í dag, föstudaginn 31. júlí kl. 15.00. Þeim sem vildu minnast hins látna er bent á Slysavarnafélag Is- lands. Ester Kláusdóttir, Ásgeir Árnason, Slgrfður Jóhannesdóttir, Páll Árnason, Bryndís Skúladóttir, Kristín Árnadóttir, Elnar Sindrason, Hólmfríður Árnadóttir, Friðrik Rúnar Guðmundsson, Anna Pálfna Arnadóttir, Aðalsteinn Asberg Sigurðsson og barnabörn. Minning: Sveinn H. Þórðar- son fyrrv. skattstjóri Fæddur 21. febrúar 1916 Dáinn 22. júlí 1987 Það kom okkur hjónunum á óvart, þegar við komum heim til okkar, fyrra miðvikudag, eftir fárra daga ferð norður í land, að frétta að Sveinn mágur minn hafði andast þá um morguninn. í vor hafði Sveinn gengist undir mikla læknis- aðgerð, en afturbati gekk seint, svo hann fór aftur í sjúkrahús og von- aði ég að hann fengi heilsuna aftur. Þó við Sveinn værum úr sama byggðarlagi, þá kynntumst við raunverulega ekki fyrr en ég giftist Debóru systur hans, því hann hafði ungur að árum farið að heiman í skóla á vetrum og í atvinnu á sumr- um. Nokkrum árum áður hafði hann gifst konu sinni, Þórunni Helgadótt- ur úr Hafnarfirði. Þau voru þá búin að koma sér upp fallegu húsi á fögr- um stað í Hafriarfírði, þar sem þau hafa búið síðan. Ég hef ekki svo lítið að þakka þeim hjónum, allt frá fyrstu tíð, því við Debóra giftum okkur í Hafnar- firði og þau hjónin héldu okkur brúðkaupsveisluna á heimili sínu. Og í hvert skipti sem við hjónin komum á heimili þeirra var okkur vel fagnað. Það var alltaf gleðiefni hjá okkur á Hvammstanga þegar Sveinn og Þórunn komu með dætur sínar, Þóru og Þórdísi, til okkar. Þá fór hann að rilja upp minningar frá því hann var drengur í foreldrahúsum og var við sjóinn og lækina að veiða, en veiðiskapur var uppá- haldstómstundagaman hans alla tíð. Sveinn var ljúfur og hlýr í við- kynningu, vandaður og traustur í samskiptum. Til hans var gott að sækja ráð ef vanda bar að höndum. Ég þakka honum samfylgdina. Blessuð sé minning hans. Við hjónin vottum hans ágætu konu, Þórunni, og dætrum ásamt fjölskyldum þeirra innilegar samúð- arkveðjur. Asvaldur Bjarnason Það er sárt að verða sífellt vitni að því, að menn, sem gegnt hafa um áratugaskeið erilsömu og slítandi starfí, fái ekki, þegar því loks lýkur, notið hvíldarinnar og frelsisins nema örskamma hríð. Svo hefur farið um svila minn, Svein H. Þórðarson, síðast skatt- stjóra í Reykjanesumdæmi, er lézt í Landakotsspítala 22. júlí sl. á 72. aldursári. Sveinn fæddist á Hvammstanga 21. febrúar 1916, sonur Þórðar Sæmundssonar, skósmiðs og símstöðvarstjóra þar, og Guðrúnar Karólínu Sveinsdóttur. Hún var ættuð úr Borgarfirði, og mun það hafa ráðið nokkru um að Sveinn var sendur til náms í Reykholts- skóla. Þaðan lá leiðin síðar til Reykjavíkur til frekara náms, og lauk Sveinn stúdentsprófí vorið 1939, en prófi í viðskiptafræðum úr Háskóla íslands 1943. Að því loknu hófst starfsferill Sveins, fyrst sem verðlagsstjóra á Vestfjörðum 1943-44, þá sem fulltrúa hjá toll- stjóranum í Reykjavík 1944-60. Næstu sjö ár var hann svo aðalend- urskoðandi Pósts og síma og fór þá eftirlitsferðir víða um land. Sveinn tók við embætti skattstjóra í Reykjanesumdæmi sumarið 1967 og gegndi því, unz hann lét í fyrra af störfum fyrir aldurssakir. Sveinn átti um langt árabil, eða 1951-69, sæti í niðuijöfnunamefnd Hafnarfjarðar og var endurskoð- andi bæjarsjóðs Hafnarflarðar og bæjarfyrirtækja 1960-67. Þá kenndi Sveinn við Iðnskóla Hafnar- ijarðar nokkur ár. Sveinn kynntist á námsárum sínum í háskólanum Þórunni Kristínu, elztu dóttur hjónanna Helga Ólafssonar trésmíðameistara í Hafnarfirði og Þóru Guðrúnar Kristjánsdóttur. Þau Sveinn og Þór- unn giftu sig vorið 1946 og reistu sér brátt myndarlegt einbýlishús á Ölduslóð 9 í Hafnarfirði. Þar var þá melur, sem þau voru fljót að rækta upp, og var garður þeirra, þegar fram liðu stundir, eitt sumar- ið valinn fegursti garður bæjarins. Voru þau hjónin alla tíð mjög sam- hent í að fegra heimili sitt og umhverfi þess. En það var helzta áhugamál Sveins auk veiðiferða á sumrin, og tók hann þá einkum ástfóstri við Hlíðarvatn í Selvogi, þótt veiðistaðimir yrðu að lokum margir. Eitt sinn dró hann t.a.m. milli 50 og 60 fiska upp úr Kleifar- vatni og suma þeirra stóra, og var sú veiðiferð lengi í minnum höfð. Þau Sveinn og Þórunn eignuðust tvær dætur, Þóm Guðrúnu, sem gift er Amóri Egilssyni lækni, og Þórdísi Helgu, gifta dr. Vigfúsi Jó- hannssyni líffræðingi. Bamabömin vom orðin fimm þegar Sveinn lézt og vom þau mjög hænd að afa sínum, sem var bamgóður með af- brigðum. Þótt Sveinn virtist þeim, er lítt vora kunnugir honum, stundum nokkuð þungur á brún, var hann undir niðri gleðimaður og naut sín þá oft vel á góðra vina fundi. Við, sem þekktum hann gerst, söknum hans mjög og vottum nú Þómnni, dætmnum og fjölskyldum þeirra, svo og þremur eftirlifandi systmm hans, innilega samúð. Finnbogi Guðmundsson Við andlát Sveins Þórðarsonar, fyrrverandi skattsljóra, verður mér hugsað með þakklæti í huga til áranna sem við unnum saman á skattstofu Reykjanesumdæmis. Við Sveinn hófum störf á sama tíma innan skattkerfisins vorið 1967, + Alúöarþakkir fyrir vinsemd og hlýhug viö andiát og útför MARINÓS SIGURÐSSONAR, Bakka, Bakkafiröl, Lára Höjgaard og aðrir vandamenn. + Þökkum innilega auösýnda samúð og vinarhug við andlót og út för dóttur okkar, systur, barnabarns og fraenku, VÖLU VIGDÍSAR SIGURÐARDÓTTUR. Óla Helga Sigfinnsdóttir, Slguröur Fannar Guönason, Guöný Björg Siguröardóttir, Sigfinnur Fannar Sigurðsson, Valgerður Ólafsdóttir, Sigflnnur Karlsson, Þorbjörg Sigurðardóttir, Pétur Guðbjartsson, Vlggó Slgfinnsson og fjölskylda, Geir V. Guðnason og fjölskylda. Friðrik Dungal rafvirki- kveðjuorð Það vom váleg tíðindi sem bár- ust til eyma okkar félaganna að morgni þess 23. júlí. Stórt og óbæt- anlegt skarð var hoggið í gamla vinahópinn, Friðrik Dungal var lát- inn. Þessu var erfítt að trúa, spumingar þutu um hugann, af hveiju hann svona ungur með allt lífið framundan. En eins og svo oft vill verða þegar spurt er stórra spuminga verður fátt um svör. Frið- rik, eða Frikki eins og við félagamir kölluðum hann, var góður vinur, hjálpsamur og góður drengur. Hann hafði þann kost umfram okkur hina félagana að gefast aldrei upp þótt á móti blési, þótt við hinir segðum „nei, þetta gengur aldrei", hélt Frikki einn áfram og sigraðist að iokum á vandamálinu. Þessi kostur lýsir best þeirri manngerð sem Frikki bjó yfir. Það er erfitt að ímynda sér þögn í kringum Frikka þar sem áður var glens, glaðværð og eitthvað spennandi að gerast. Hann var svo fullur af orku sem smitaði aðra í kringum hann, ein- hveijum drífandi krafti sem hann bjó yfir í ómældu magni. Við teljum okkur lánsama að hafa átt þess kost að kynnast Frikka og notið vinskapar og hjálpar hans, við munu ætíð geyma Frikka í hugum okkar sem góðan vin og félaga. hann með margra ára starfsreynslu í opinberri þjónustu en ég nýkominn frá prófborði. Atvikin höguðu því svo til að ég tók við starfí skrifstofu-' stjóra hjá honum í ársbyijun 1969 og vann undir hans stjóm í 7 ár. Samstarf okkar var mjög gott og bar þar aldrei skugga á. Hann hafði einstakt lag á að láta mann finna til ábyrgðar á starfinu og fylla mann áhuga á að leysa það sem best af hendi. Sveinn var framúr- skarandi samviskusamur og vandaður maður sem gerði miklar kröfur til sjálfs sín svo og til starfs- manna sinna. Honum var mjög annt um að starfíð á skattstofunni gengi vel fyrir sig og starfsmenn sýndu bæði réttsýni og jafnræði milli gjaldenda við úrlausn mála þeirra. Eftir að ég flutti mig um set innan skattkerfisins héldum við áfram ánægjulegum samskiptum. Starf skattstjóra er bæði kröfu- hart og erilsamt og er það unnið á vissan hátt fyrir opnum tjöldum fyrir almenningi. Oft verða þeir fyrir óvæginni gagnrýni einstakl- inga sem vilja persónugera þá fyrir það sem þeir telja á sig hallað. Reynir þá mjög á skaplyndi skatt- stjóra til að leysa úr þeim oft á tíðum persónubundnu vandamálum gjaldanda. Tel ég að Sveinn hafi ieyst starf sitt vel af hendi. Þrátt fyrir sífellda erfiðleika skattkerfísins til að ráða til sín hæft og vel menntað starfsfólk átti Sveinn starfsmannaláni að fagna, en hann hafði alltaf á að skipa góðu og samhentu starfsfólki. Það segir vel hvem mann hann hafði að geyma. Til hans réðust margir ungir menn og konur beint frá próf- borðinu og gengu hjá honum fyrstu spor sín í skattkerfínu. Margir þeirra hafa með ámnum tekið við ábyrgðarstörfum innan og utan skattkerfisins. Sveinn lét af starfi skattstjóra fyrir aldurs sakir fyrir liðlega einu ári. Var það ósk okkar og von þá er við kvöddum hann að hann mætti eiga mörg góð ár framundan en það fór á annan veg. Árið varð aðeins eitt. Er sárt til þess að hugsa að hann skuli ekki hafa getað notið lengur þess innleggs er hann hafði stofnað til með vinnu sinni í opin- berri þjónustu í 43 ár og notið afraksturs þess með ijölskyldu sinni og vinum og til að sinna áhugamál- um sínum, sérstaklega silungsveiði sem honum var svo hugleikin. Eiginkonu hans, fjölskyldu og vandamönnum sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur. Hjölli, Tobbi, Kolli og Gvendur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.