Morgunblaðið - 31.07.1987, Page 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 1987
félk í
fréttum
AP
Þrír leikarar í Hvíta húsinu
essi mynd var tekin af leikurunum Lou Gos-
sett Jr., fyrir miðju, og Clint Eastwood, til
hægri, þar sem þeir voru staddir í Hvíta húsinu
við hátíðahöld í tilefni herferðar sem nefnist „Ver-
ið stolt af Ameríku". Með þeim á myndinni er
sjálfur Bandaríkjaforseti, Ronald Reagan, en hann
var sem kunnugt er leikari í Hollywood hér á
árum áður.
Brooke Shields ásamt föður sfnum, Frank, og hálfsysturinni
Marinu.
Brooke Shields f lutt
að heiman
Bandaríska kvikmyndastjaman
Brooke Shields sem svo sam-
viskusamlega hefur varðveitt
sakleysi sitt er nú orðin 22 ára
gömul og lauk nú nýlega BA prófí
í frönskum og rómantískum bók-
menntum frá Princeton háskólan-
um. Hun fagnaði þó ekki einsömul
góðum árangri á prófunum í vor
því hún hefur loksins eignast raun-
verulegan kærasta og herma sögur
að hún sé ástfangin upp fyrir haus.
Sá heppni er skólafélagi hennar úr
Princeton, Dean Cain að nafni.
Brooke hefur nú tilkynnt að hún
hyggist flytja að heiman og fá sér
íbúð með hinum heittelskaða. Móðir
hennar, Tery, er reyndar mjög hrif-
in af tengdasyninum tilvonandi en
líst þó ekki alls kostar á að Brooke
fari strax að búa. Hún hefur gætt
hennar eins og sjáaidurs auga sfns
frá því hún skyndilega varð heims-
Brooke Shields sér ekki sólina
fyrir nýja kærastanum, Dean.
fræg þegar hún lék bamunga
vændiskonu í myndinni „Pretty
Baby“, þá aðeins tólf ára gömul.
Dean, sem er ári yngri en Bro-
oke, leikur með fótboltaliði Prince-
ton og féll hún fyrir honum við
fyrstu sýn. Hann á enn eftir eitt ár
í skólanum en Brooke hyggst nú
snúa sér aftur að kvikmyndaleik
eftir nokkuð hlé. Þau vilja helst
vera saman öllum stundum en bæði
eru þau mjög upptekin, Dean býr
hjá foreldrum sínum á Malibu en
Brooke hefur þurft að sinna hinum
ýmsu kvikmynda- og fyrirsætu-
störfum í sumar. „Við hreinlega
verðum að fá okkur íbúð saman svo
við getum hist oftar" segir Brooke,
sem hingað til hefur ekki látið karl-
menn glepja sig frá námi eða starfí.
Hermann Gunnarsson farastjóri þjá Útsýn og tónlistarmaðurinn
Manu sem skemmt hefur íslendingum á Spáni í sumar.
Mikið fjör á
Spáni í sumar
— segir Hermann Gunnarsson
fararstjóri Utsýnar á Torremolinos
Islendingar hafa löngum sótt ákaft
í að komast í sólina á Spáni í sum-
arfríinu sínu, orðnir langþreyttir á
rigningu og roki. Nú eru liðin um
30 ár síðan íslendingar fóru að fara
í skipulagðar hópferðir til sólar-
stranda Spánar og hefur eftirspum
eftir Spánarferðum farið vaxandi ár
frá ári. Blaðamaður hitti að máli
Hermann Gunnarsson, sem verið
hefur fararstjóri á Torremolinos á
Spáni, á vegum ferðaskrifstofunnar
Útsýnar, nú í sumar, og spurði hann
frétta af íslendingum á Spáni.
Hermann sagði að að jafnaði væru
um 500 íslendingar á vegum Útsýn-
ar á Spáni og væri flogið til Malaga
í hverri viku með fulla vél af fólki.
„Við höfum reynt að bjóða upp á sem
fjölbreyttasta dagskrá í sumar til að
mæta þörfum sem flestra. Fólk er
farið að gera meiri kröfur og þeir
sem koma oftar en einu sinni á sama
staðinn, sem er mjög algengt, vilja
geta valið úr nýjum skoðunarferðum.
Við höfum líka lagt mikla áherslu á
íþróttir og leiki enda frábær íþrótta-
aðstaða þama. Þáttaka í ferðum og
allskyns uppákomum hefur aukist
mikið og fólk er mun virkara en áður.
A 17.júní var haldin skemmtun
og tóku 280 islendingar þátt í henni.
I síðustu viku var síðan haldin önnur
skemmtun með íslenskum tónlistar-
mönnum. Þessar skemmtanir eru
sniðnar fyrir fólk á öllum aldri og
sama er að segja um aðrar uppákom-
ur og ferðir. Það er farið í mini-golf
og fótbolta og það hafa verið leiknir
nokkrir „landsleikir" við Spánveija
og hafa þeir iðulega verið lagðir að
velli við lítinn fögnuð heimamanna.
Ein af þeim nýjungum sem
bryddað hefur verið upp á í sumar
er ,jeppasafarí“ þar sem keyrt er
upp í fyöllin og reynt að komast í
nánari sneringu við náttúruna. Þetta
eru einskonar „Þórsmerkurferðir" á
Spáni. Auk þeirra nýjunga sem Út-
sýn hefur komið fram með í sumar
eru gömlu góðu asnaferðimar og
strandveislumar enn á sínum stað
og er yfirleitt hægt að velja úr a.m.
k. tveimur til þremur atriðum á
hveijum degi svo engum ætti að
þurfa að leiðast á Spáni“ sagði Her-
mann Gunnarsson fararstjóri.
„Margir íslendingar sem komið