Morgunblaðið - 31.07.1987, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 31.07.1987, Blaðsíða 54
54 f MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGÚR 31. JÚLÍ 1987 01907 Unlwwl gWM Syndtcata „ Bq keypt'i braubrlsL handa pér sem, beXur 4 snelzxxr." Með morgunkaffinu Gætl ég fengið svartan sorgardúk. Þjónninn við þetta borð hlýtur að hafa látist__ HÖGNI HREKKVtSI Bréfritari hefur áhyggjur af náttúru íslands. Gróðurvernd eða landeyðing? Það er án efa gott eitt um það að segja að útvarpa frá Amarhóli ræðum um landvemd og þá að sjálf- sögðu músíkglamri með samkvæmt venju. En það þarf meira til og það vekur furðu allra hugsandi manna, sem ferðast hafa um landið á þessu sumri, hve umgangurinn um þær gróðurvinjar sem eftir em er hroða- legur og þar eru íslendingar að verki, því miður. Varla getur að líta nokkum af- rétt þéttsetnari sauðfé en friðlýsta landið í Þórsmörk. Sömu sögu er að segja af Mývatnsöræfunum og öllum ætti að vera kunn sagan af Auðkúluheiðinni þar sem girðing var lögð niður á löngum kafla til þess, að því er virðist, að skepnur eigi þar greiðan aðgang að því litla sem tekist hefur með æmum til- kostnaði úr sjóðum almennings að rækta upp. Ekki hefur heldur verið sneitt hjá gróðurvinjum, viðkvæmum, sem skálar Ferðafélagsins standa á. I Nýjadal er sagt að fyrir rúmri viku hafi verið þar á ferð hópur manna með allt að tvo tugi hesta. Hafi þeir beitt þeim ótæpilega á þessar gróðumálar og að nóttu til hafí gestum skálanna ekki orðið svefn- samt vegna hestasparks fast upp við húsin. Enda þótt hestar skemmi gróður með því að bíta hann fara þeir þó enn verr með hann með hófunum þar sem þunn grasrót er ofan á sandi eins og þama er. Hestamenn þessir munu hafa verið á leið til Mývatns. Ekki hefur Laugafell heldur sloppið alveg við þennan ófögnuð þó í minni mæli sé. Þama hafa verið að verki fullorðnir menn, full- orðnir íslenskir menn, sem að sjálfsögðu vilja telja sig með fullu viti og geta þess vegna ekki skotið sér á bak við það að þeir hafí ekki vitað hvað þeir voru að gera. Til eru alls konar eftirlitsmenn, land- verðir, landvemdarmenn, náttúru- vemdarráð o.fl., en ekkert virðist duga og aldrei heyrist um að söku- dólgamir séu látnir sæta ábyrgð fyrir verknaðinn og ætti þó að vera vandalaust að hafa upp á þeim ef vilji væri fyrir hendi. Úr vasa al- mennings em teknar á hveiju ári stórar fjárupphæðir til gróður- vemdar og verður það að teljast í lagi ef einhverjir óprúttnir náungar fá ekki að eyða afrakstrinum jafn- harðan. Gróðurunnandi Víkverji skrifar Víkveija hefur borist eftirfar- andi bréf frá Baldri Jónssyni prófessor, forstöðumanni Islenskrar málstöðvar, og birtir það í heild hér á eftir: „Kæri Víkverji! Ég get ekki stillt mig um að senda þér þakkarorð fyrir pistil þinn 23. júlí sl. um rit Ingólfs Pálmasonar þar sem fjallað er um beygingu og beygingarleysi ættarnafna og erlendra manna- nafna í íslensku. Mér fannst þú taka skynsamlega á því máli, og vel mætti endurtaka holla ábend- ingu þína handa þeim „sem atvinnu hafa af ritstörfum". Sjálfur var ég í svipuðum hug- leiðingum ekki alls fyrir löngu af tilefni sem er þessu skylt í eðli sínu. Ég hefi orðið þess var á síðustu missemm að töluorðið fjórir er stundum ranglega beygt í þolfalli í karlkyni, rétt eins og það væri til í eintölu. Þá er til dæmis talað um „íjóran og hálfan vinning" í stað „fjóra" og svo framvegis. Þessi villa er ekki bundin við Morgunblaðið, en ég sá hana þar í sumar oftar en einu sinni og gat þá ekki á mér setið. Ég sendi rit- stjómm blaðsins fáeinar línur, vakti athygli á því að hér er á ferðinni villa, sem verður að reyna að kæfa í fæðingu áður en hún verður að málvenju, og skoraði á Morgun- blaðið að leggja góðu máli lið. Mér datt í hug að ritstjóramir gætu náð til þeirra „sem atvinnu hafa af rit- störfum" fyrir blaðið og vakið athygli á þessu eina „litla“ atriði, sem þó er býsna mikilvægt eins og það sem þú varst að skrifa um í fyrradag. En eigi fellur tré við hið fyrsta högg. Nú segir svo í skákfrétt í Morgunblaðinu í gær (bls. 3). „Hann er nú einn í efsta sæti með fjóran (svo!) og hálfan vinning." Sá sem þetta skrifar virðist ekki enn hafa haft spurnir af réttri beygingu töluorðsins fjórir, en varla er ástæða til að halda henni leyndri fyrir þeim rithöfundi öllu lengur. Því datt mér í hug að biðja þig að ganga í lið með mér og ritstjómnum — ef þú ert þá ekki einn af þeim. Ég er ekki í minnsta vafa um góð- an vilja þeirra í þessu efni, enda allir ritfærir í besta lagi og miklir áhugamenn um íslenskt mál. Það er reyndar íhugunarefni þeim sem skrifa um skák að í máli þeirra sumra hefir skotið rótum ýmislegt ambögulegt, sem þeir hafa svo hver eftir öðmrn í hugsunar- leysi ár eftir ár. Ég get nefnt sem dæmi að oft er talað um „skipta- munsfóm" þar sem skiptamunar- fórn væri eðlilegri orðmynd. Og alltaf á ég bágt með að sætta mig við orðalagið að leika góðum eða vondum leik þó að það sé ekki bráð- ungt. Yfirleitt leikum við ekki leiknum (t.d. ekki landsleiknum eða sjónleiknum); við leikum mannin- um, drottningunni, peðinu, en við leikum leikinn, góðan eða vondan, og við leikum marga leiki en ekki mörgum leikjum. í Olafs sögu helga í Heimskringlu segir Snorri frá því er þeir léku að skáktafli Knútur konungur og Úlfur jarl. Þá lék kon- ungur fingurbijót mikinn, segir í sögunni, en hann lék ekki fingur- bijót miklum! Enn eitt til umhugsunar. Þegar einhver hefir komist í efst sæti í keppni er mjög í tísku að segja að hann tróni. í Morgunblaðinu í dag (25. júlí) er fyrirsögn á þessa leið (bls 25): „Jóhann trónir á toppn- um.“ Sögnin tróna er tökuorð (dönsku trone), svo ungt að Orða- bók Blöndals kannast ekki við hana nema viðbætirinn frá 1963. En lát- um það nú vera. Þessi sögn á sér sess 'bókmenntum samtímans og má vel teljast íslensk úr því sem komið er. En þá fer best á að hún lúti reglulegri beygingu íslenskra sagnorða en hagi sér ekki afbrigði- lega. Hvemig ætti hún þá að beygjast? Það mættu þeir hugleiða sem nota hana mest og hafa at- vinnu af ritstörfum. Samkvæmt Blöndalsviðbæti og Orðabók Menn- ingarsjóðs er þátíðin trónaði. Það hygg ég að allir geti samþykkt. En af því leiðir þá að nútíðin ætti að vera trónar en ekki trónir. Sögnin tróna á þá að beygjast eins og lóna (lónaði) eða prjóna (prjónaði) en ekki eins og góna (góndi) sem á heima í öðrum beygingarflokki. Nú er að vonum mikið skrifað um skák á íslensku. Islendingar, sem hafa haft orð á sér fyrir bók- menntaafrek og málrækt, eru nú ekki síður annálaðir skákmenn. Væri ekki við hæfi að við sameinuð- um metnað okkar í þessum greinum og legðum okkur fram um að skrifa svo vel um skák á íslensku og sam- boðið sé þeim miklu afrekum sem íslenskir skákmenn vinna? Með vinsemdarkveðju, Baldur Jónsson.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.