Morgunblaðið - 15.08.1987, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 1987
7
S
STÖÐ2
MEÐAL EFNIS
í KVÖLD
■ ■ ■ 1 ■ iO
Br 9 f
^ f-
■ ■ ■
I 21:15 CHURCHILL
(The Wilderness Years). Nýr
breskur framhaldsþáttur um
starfSir Winston Churchills.
Fyrsti þáttur. íþættinum er
sérstaklega fjallað um árin
1929-39 sem voru Churchill
erfið.
ÁNÆSTUNNI
:! a & :.i i jj .;«j 2) & ii •)
j JJ *» JJ . t & Jfí i -*J Át J) »i •! Jj
l jj á) i) 3 3 j j ii 3 3 :•) i
i 1> 31>D 3 ! 3 3 2Í a j
20:25
Sunnudagur
ARMUR LAGANNA
(Grossstadttrevier). Nýrþýskur
framhaldsflokkur i sex þáttum
um unga lögreglukonu og sam-
starfsmann hennar.
i 71' 1 n ■ M&nudngur
111 FERÐAÞÆTTIR
(National Geographic). Hinn
fjögurra ára gamli Sjimpansapi
Kanzi hefur sýnt ótrúlega tungu-
málahæfileika. Fylgstermeð
honum „ tala " með aðstoð rúm-
fræðilegra tákna.
ÚdÝ
vö
A uglýsingasími
Stöðvar2er 67 30 30
Lykillnn færA
þúhjá
Helmllistsakjum
Heimilistæki hf
S:62 12 15
Ritaraskólinn:
28 nem-
endur út-
skrifaðir
ÚTSKRIFAÐIR hafa verið 28
nemendur frá Ritaraskólanum
sem stunduðu nám á íslensku-
braut á timabilinu 5. janúar tii
10. júlí sl.
Við skólaslitin, sem fram fóru
10. júlí sl., voru veittar viðurkenn-
ingar fyrir góðan námsárangur.
Þær sem hlutu hæstu meðaleink-
unn voru: Rannveig Sveinsdóttir
9,7, Sigrún Konráðsdóttir 9,6 og
Hildur Guðmundsdóttir 9,5.
Ritaraskólinn býður upp á
framhaldsmenntun sem skiptist í
tvær brautir, fjármálabraut og
sölubraut. Á fjármálabraut verður
megin áhersla iögð á bókfærslu,
verslunarreikning, tölfræði, reikn-
ingshald og tölvunám. Á sölu-
braut verður megin áhersla lögð
á ensku, verslunarreikning, sölu-
tækni, markaðsfræði og tölvu-
nám.
Hægt er að hefja nám í skólan-
um í september og janúar.
Kanínubændur heiðra
Karl Kortsson
Morgunblaðið/BAR
Hlöðver Diðriksson, formaður Kanínuræktarfélags Suðurlands, af-
hendir Karli Kortssyni angóruullarfatnað að gjöf.
STJÓRN Kanínuræktarf élags
Suðurlands og Finullar hf. færðu
Karli Kortssyni fatnað úr ang-
óruull i gjöf á þriðjudaginn i
viðurkenningarskyni fyrir braut-
ryðjandastörf hans á sviði ullar-
kaninuræktar á íslandi.
Karl átti upphaflega hugmyndina
að því að koma upp ullarkanínu-
rækt hér á landi, og annaðist hann
allan undirbúning og hafði milli-
göngu um kaup á fyrstu angóru-
Tívolí í Hveragerði:
Margslungin skenimti-
dagskrá næstu vikur
Á NÆSTUNNI stendur til að
brydda upp á ýmsum nýjungum
í Tívolíinu i Hveragerði. Verður
m.a. i auknum mæli reynt að
nota staðinn til hljómleika- og
dansleikjahalds og ríður látúns-
barkinn Bjarni Arason á vaðið í
kvöld ásamt hljómsveit sinni
Vaxandi.
Bjarni var sem kunnugt er kjör-
inn Látúnsbarki '87 í síðasta
mánuði, en kjörið fór fram í beinni
útsendingu Ríkissjónvarpsins frá
Tívolíinu.
Ekki verður þar látið staðar num-
ið, þvi á morgun mun Stuðkompa-
níið frá Akureyri leika fyrir dansi
og á þriðjudag í næstu viku kemur
Bubbi Morthens þar fram. Næstu
vikur verður svo fram haldið á þess-
ari braut og meðal þeirra, sem stíga
munu á stokk í Hveragerði, verða
Skriðjöklar að norðan, Sniglaband-
ið, vísnasöngvarinn Bjami Tryggva
og Valgeir Guðjónsson.
Að sögn Jakobs Magnússonar,
sem annast hefur skemmtidag-
skrárgerð fyrir Tívolíið, verður
poppmúsík þó ekki hið eina sem
haft verður til skemmtunar í Tívolí
næstu vikur, því þar verður um alls
konar uppákomur fyrir fólk á öllum
aldri að ræða.
kanínunum frá Þýskalandi árið
1981. Þetta hugarfóstur Karls hef-
ur stækkað og dafnað, þannig að
nú eru um 300 aðilar sem stunda
ullarkanínurækt á íslandi og fram-
leiðsla á fatnaði úr ullinni er
töluverð og fer vaxandi.
Við athöfnina var staddur Josef
Merkle, formaður sambands 9
kanínuræktarfélága í Þýskalandi,
en hann er nú á ferð um landið
ásamt Ingimar Sveinssyni, nýráðn-
um kanínuræktarráðunauti Búnað-
arfélags íslands. Merkle hrósaði
öllum aðstæðum hér á landi og
sagði að bæði hráefnið og fatnaður-
inn frá Fínull væru úrvalsvara.
Nægur markaður er fyrir fatnað
úr angóruull, að sögn Kristjáns
Valdimarssonar, framkvæmda-
stjóra Fínullar hf. Fínull, sem tók
til starfa í Mosfellsbæ í desember
á síðasta ári, hefur einkum sent
framleiðslu sína til Þýskalands, en
hefur nýlega byijað að selja angóru-
ullarfatnað hér innanlands. Fyrir-
tækið framleiðir einkum undirfatn-
að og svokallaðan heilsufatnað úr
ullinni, en angóruull mun vera hlýj-
asti og jafnframt léttasti, náttúru-
legi þráðurinn, sem völ er á. Fínull
mun kynna framleiðslu sína á land-
búnaðarsýningunni Bú ’87, sem
hefst á morgun, föstudaginn 14.
ágúst.
Nemendur sem útskrifuðust frá Ritaraskólanum. Fremsta röð frá vinstri: Sigrún Guðjónsdóttir,
Guðný S. Friðriksdóttir, Hildur Guðmundsdóttir, Rannveig Sveinsdóttir, Sigrún Konráðsdóttir,
Katrín Stefánsdóttir, Rósa Á. Rögnvaldsdóttir. Miðröð frá vinstri: Eva Dís Snorradóttir, Sveinborg
Daníelsdóttir, Sigrún Benediktsdóttir, Ólöf B. Guðmundsdóttir, Herdís Hjörleifsdóttir, Guðrún
Bjarnfinnsdóttir, Heiðrún Ásgeirsdóttir, Sigrún Héðinsdóttir, Ingibjörg Elíasdóttir, Anna Steinars-
dóttir. Aftasta röð frá vinstri: Arna Ragnarsdóttir, Sigfríð Runólfsdóttir, Margrét H. Steingríms-
dóttir, Björk Guðjónsdóttir, Jóhanna M. Jóhannsdóttir, Karen Rögnvaldsdóttir, Kristin Markúsdóttir.
Látúnsbarkinn Bjarni Arason
með verðlaunagripinn á lofti.
Við óskum SÍLD & FISKI og HAGKAUPI
til hamingju með verslanir
sínar í Kringlunni.
Bizerba-umboðið á íslandi
RÖKRÁS SF.
Bíldshöföa 18
112 Reykjavík
sími671020
M