Morgunblaðið - 15.08.1987, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 1987
-n
...........v;.v. .':?v rr-ri-
" 'r r..~:____________ _ j...........* í í i
• •• 7- t—
.......'itót.ll:;
J \
J
* rr r-t r-i 1 j J 1 *!
! .... jiuf
.iiLidw
0
\rN
) »tó J-. An
■S-o,! ■1 ■, jimvQ;«}sÆlí
n 444-^ ; r \ LW v>-if
-i^
r^/—Lv
t—'f- —\ w \ •••,■•. *•.. *•..>..-ÍSKví-
. j
/
- \
I' \ •
íj_.
\
— U£
\ ",
\\j-------- N
W| K.
/
Hlemmtorg , yfirlitsmynd eins og höfundar skipulagsins hugsa
sér það. A bUastæðinu sunnan Laugavegarins, fyrir framan Búnað-
arbankann hefur verið gert upphækkað torg. Götumar næst
torginu hafa verið þakktar tigulsteinum. Umhverfis torgið er
plantað tijám. Leigubilstjórar geta lagt farskjótunum á ræmu
norðan torgsins, þar sem einnig er gert ráð fyrir sölutjöldum.
Hlemmur í núverandi mynd. '■•
Morgunblaðið/BAR
Morgunblaðið/BAR
Höfundar tillögunnar vilja láta rífa múrana í kringum tugthúsið við
Skólavörðustíg. Starfsemi fangelsins yrði flutt brott en húsinu breytt
í menningar eða félagsmiðstöð fyrir hverfið. Fangelsisgarðinum, sem
er kringum húsið vestan, norðan og austanvert yrði breytt í torg
með gróðri og bekkjum.
úrbóta sé þörf í öllu hverfínu. Hlut-
ar þess séu æði tætingslegir og eigi
það einkum við atvinnuhúsnæði og
nágrenni þess. Margir bakgarðar
þarfnist frágangs og snyrtingar.
Þá telja höfundar skorta bílastæði,
útivistarsvæði og leiksvæði í grennd
við heimili barna. Leiðir nemenda
í skóla séu hættulegar og miklar
umferðaræðar skeri íbúðarsvæðin
frá öðrum hlutum hverfísins.
í nágrannalöndunum er miðað
við að hávaði í íbúðabyggð fari
ekki yfir 55 dB, eða 35 dB innan
dyra, segir í greinargerðinni. Háv-
aði á bilinu 35 dB—40 dB getur
valdið svefntruflunum, samkvæmt
norskum mælingum. Við 55 dB er
erfítt að halda uppi sarnræðum með
eðlegum talstyrk, við 70 dB verða
menn að kallast á og við 75 dB
heyrist mælt mál ekki úr 1 metra
fjarlægð. Hávaði við helstu um-
ferðagötur gamal bæjarins mældist
á bilinu 63 dB-73 dB árið 1981,
en ætla má að bílaumferð hafí au-
kist nokkuð frá þeim tíma.
Til þess að bregðast við vandan-
um gerir skipulagið ráð fyrir 30 km
hámarkshraða á húsagötum líkt og
í Vesturbæ. Hraðahindranir yrðu
settar á allar stærri umferðaræðar
þeirra á meðal Laugaveg fyrir ofan
Hlemm, Rauðarárstíg, Flókagötu
og Háteigsveg. Umferðareyjar á
Snorraþraut á að breikka, leggja
niður bflastæði meðfram þeim en
leyfa bifreiðastæði vestan götunn-
ar. Á umferðareyjunum er lagt til
að gróðursett verði skjólbelti, svo
og meðfram gangstéttum sinnhvoru
megin. í hverfaskipulagi Austur-
bæjarins er gert ráð fyrir að starf-
semi ÁTVR flytjist úr hverfínu.
Grettisgötu yrði lokað sam-
kvæmt skipulaginu við vestari enda
sambýlishússins við Bíoborgina
(Austurbæjarbíó). Á svæðinu bak-
við Hótel Lind og heilbrigðisráðu-
neytið á að gera bílageymslu á
tveimur hæðum. Ekið yrði inn á
efri hæð frá Snorrabraut en neðri
hæð frá Rauðarárstíg.
Arkitektarnir segja Hlemm vera
„segul“ svæðisins vegna þess fjölda
manna sem eigi leið þar um á hverj-
um degi. Gerð er tillaga um að ryðja
svæðið sunnan Laugavegar og aust-
an Rauðarárstígs þar sem nú er
sölutum, biðstöð leigubifreiða og
bílastæði. í staðinn á að koma upp-
hækkað og afmarkað torg í
framhaldi af Hlemmi. Yrði hægt
að grafa bílageymslu undir torgið
með innakstri frá Stórholti.
Til þess að veita skjól fyrir norð-
angarra á að setja upp söluskála
og biðskýli meðfram Laugavegin-
um, þar sem leigubílum er ætlaður
staður. Á sjátfu torginu verður
gróður og bekkir. Gangstéttum og
yfirborði gatna í kringum Hlemm
yrði breitt en akstursleiðir afmark-
aðar með stólpum líkt og á neðri
hluta Laugavegs.
Böm eiga fá afdrep með leiki
sína í hverfinu að mati skipuleggj-
enda og leita þeir lausna á þeim
vanda. Skarphéðinsgötu mætti
breyta í akfæran göngustíg. Gert
er ráð fyrir að breyta yfirborði
hennar og koma fyrir bílastæðum
vestan megin. Við suðurenda, sem
lokaður er með steinvegg við Rauð-
arárstíg, er teiknað leiksvæði.
Stólpar yrðu settir við götuna til
að tálma umferð, en bekkjum, leik-
tækjum og gróðri komið fyrir á
reitnum. I sama dúr er hugmynd
um að gjörbreyta húsagarðinum
milli Laugavegs og Skúlagötu í úti-
vistar- og leiksvæði með grasflöt-
um, mnnum og tijám.
Vesturbær - Fjölbreytt
útivistarsvæði skortir
Þetta svæði afmarkast af Suður-
götu í austri, Hringbraut í suðri og
liggur niður að sjó. Byggðin með-
fram Vesturgötu, við Bræðraborg-
arstíg og Framnesveg er að stofni
til frá því fyrir aldamót. Stýrimann-
astígur, Tjarnargata og Suðurgata
byggðust að hluta fyrir árið 1920.
Eins og önnur hverfi í gamla
miðbænum, segja tillöguhöfundar,
þjakar mikil umferð íbúanna og
bílastæði skortir. Ekki er raunhæft
að reisa bílastæðahús eða malbika
stór bílaplön á svæðinu þar sem
./ X...
ii /% °
tr, J lífí ffl 'Xh,
^ SfRtf m m íftv!
C...liillsJ
TKJq
Morgunblaðið/BAR
Skarphó ðinsgata og svæðið í kríng eins og það er í dag.
Skarphóðinsgata. Vestan veggjar sem skilur götuna og Rauð-
arárstíg að hafa arkitektarnir gert tillögu að hellulögðu torgi.
Stólpar girða torgið umferð. Þar yrði komið fyrir bekkjum og
plantað trjám.