Morgunblaðið - 22.08.1987, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 1987
21
600 SKIPA FLOT Aftafflotinn / BANDARÍKJANNA í hverri doild eru: Semtals 680 skip
15 deildir FLUGMÓÐUR- SKIPA ir-.lU 1 flugmóAurekip 2b«tiskip 4 tundurspillar 4fr*igátur 165
4 deildir ORRUSTUSKIPA 1 orructuskip 4 tundurspillsr 4frsigátur 36
SÉRDEILDIR , Érthi-r 'TJ .4, Skiptil liAsflutnings oglandgöngu 75
TUNDURDUFLADEILDIR jAl. Tundursiadarar oglaitarskip 31
AÐSTOÐARSKIP 27 birg&a-og viögoróaskip 36 laitarskip, dráttar- bátar, sjúkraskip p.fl. 63
10 deildir BIRGÐASKIPA 7 birgdaskip 1 tundurspillir 3fraigátur 110
15 deildir FYLGDAR- SKIPA 1 tundurspillir 2 - 3 fraigátur 60
100ÁRÁSARKAFBÁTAR ^.A 100
40 ELDFLAUGAKAF- BÁTAR • 40
manna á Barentshafi og í íshafinu.
Bátar þessir eru af gerðunum Typh-
oon og Delta og eru búnir lang-
drægum kjarnorkuflaugum. Því
hefur verið haidið fram þetta að
kynni að leiða til röskunar jafn-
vægis, stigmögnunar átaka og
hugsanlega notkunar kjarnorku-
vopna. John Mearsheimer og
skoðanabræður hans telja að árásir
á eldflaugabátana í upphafi átaka
þar sem beitt væri hefðbundnum
vopnabúnaði gætti leitt til kjarn-
orkustyrjaldar. Segja þeir hinir
sömu að með þessu væri ráðist
gegn kjarnorkunerafla Sovétmanna
og ógnaijafnvæginu raskað. Því
kynnu sovéskir flotaforingjar að
grípa til kjarnorkuvopna þegar á
fyrstu stigum hugsanlegra átaka
ef þeir teldu sig ekki geta varið
eldflaugabátana.
Talsmenn flotans rökstyðja þessa
hlið áætlunarinnar á þann veg að
Sovétmenn geri ráð fyrir því að
ráðist verði með hefðbundnum
vopnabúnaði að eldflaugabátum
þeirra. Þeir hafi alltaf gert ráð fyr-
ir því. Hefur í þessu samhengi verið
vitnað til greinar er Sergei Gorsh-
kov, fyrrum yfirmaður Sovétflot-
ans, ritaði fyrir nokkrum árum.
Gorshkov segir mikilvægasta verk-
efni flotans vera að ráðast gegn
kjarnorkuherafla óvinarins sem
leynist í hafinu til að hindra að
unnt verði að beita honum. Dr
Áætlaðar kafbátatálmanir NATO í Noregshafi eftir teikningu í sovéskum gögnum. (Heimild:GIUK-hliðið eftir Gunnar Gunnarsson).
stódvar kafbáta-
leitarvéla
f
#
sosus
r*%>
þy rlumódurskip
4
kaf bétaleitarvólar
• •••
captor
yfirlýsta stefnu stjórnvalda, að
spenna á milli austurs og vesturs
myndi frekar vaxa heldur en hitt.
En hann gerði sér jafnframt ljóst
að ófullnægjandi varnir gætu rask-
að stöðugleika og orðið til þess
freista sovéskra herfræðinga sem
aftur kynni að leiða alvarlegs
óvissuástands. Á þeim tíma sem lið-
inn er frá því greinin birtist í
Aftcnposten hafa ráðamenn vai'n-
armála í Noregi að mestu leyti
fallist á röksemdir Jans Ingebrigts-
en. Lögð hefur verið þyngri áhersla
á varnarsamstarf ríkja Atlantshafs-
bandalagsins en áður og minna er
rætt um sjálfstæðar varnir Norð-
manna. Johan Jörgen Holst,
núverandi varnarmálaráðherra
Noregs, sagði á ráðstefnu um
NATO og flotastefnu Bandaríkja-
stjórnar, sem haldin var í Osló í
apríl á þessu ári, að flotavernd
Bandaríkjamanna á Noregshafi
samræmdist fyllilega öryggishags-
munum Norðmanna. Holst lagði
jafnframt áherslu á að fyrirkomulag
þeirrar verndar yrði rætt á vett-
vangi Atlantshafsbandalagsins og
lagði til að herskip annarra ríkja,
til að mynda fastaflotinn á Atlants-
hafi, tækju þátt í þeim aðgerðum.
Holst kvað Norðmenn hlynnta því
að fram færi reglulegt eftirlit og
æfingar án þess þó að skipin væru
staðsett á Noregshafi allt árið um
kring.
Þeir sem gagnrýna flotastefnu
Bandaríkjastjórnar benda einkum á
þijú atriði máli sínu til stuðnings;
áhættu, gildi og kostnað. Áhættan
er einkum talin tvíþætt. í fyrsta
lagi sé engan veginn unnt að
ábyrgjast varnir flugmóðurskipa
svo norðarlega þar þeim sem stafi
mikil ógn af flugsveitum Sovét-
manna auk þess sem unnt sé að
veija siglingaleiðirnar á Atlantshafi
sunnar en geit er ráð fyrir. Stans-
field Turner, fyrrum flotaforingi,
sem var yfirmaður leyniþjónustu
Bandaríkjanna í valdatíð Carters
forseta, hefur bent á að sovéskir
kafbátar njóti aðeins flugvélavernd-
ar lengst í norðri á leiðinni frá
Murmansk inn á Atlantshaf. Því
kunni flugvélarnar að ógna flug-
móðurskipunum verði þau send svo
norðarlega. Turner telur að flugvél-
ar herafla Atlantshafsbandalagsins
á flugvöllum á Bretlandi og í Suð-
ur-Noregi geti geit sama gagn og
flugvélar frá flugmóðurskipum.
Turner hefur ennfremur látið það
álit í ljós að hann fái tæpast trúað
því að herforingjar muni framfylgja
stefnunnni á tímum vaxandi
spennu.
Linton F. Brooks segir í grein
sinni „Flotastyrkur og þjóðarör-
yggi“ (Naval Power and National
Seeurity) að hinir færustu sérfræð-
ingar flotans hafi komist að þeirri
niðurstöðu að framvarnarstefnan
sé framkvæmanleg og dómur þeirra
vegi þyngst allra því þeim sé ætlað
að hrinda áætlunum þessum í fram-
kvæmd reynist það nauðsynlegt.
Brooks vitnar í grein eftir Henry
Mustin, flotaforingja yfirmann
sóknarflota NATO á Atlantshafi,
sem segir: „Því hefur aldrei verið
haldið fram að unnt sé að vinna
auðveldan sigur á Sovétríkjunum Á
átakatímum er skipum sökkt, flug-
vélar eru skotnar niður og menn
týna lífi. Herafli Sovétríkjanna og
Varsjárbandalagsins væri vissulega
ógnvænlegur en ekki ósigrandi.
Sóknarflotinn gæti. . . varist loft-
árásum Sovétmanna með aðstoð
AWACS ratsjárvéla Atlantshafs-
bandalagsins og flugvéla banda-
ríska flughersins og þetta höfum
við sýnt fram á á æfingum. Sovét-
menn. . . gera sér ljóst að hreyf-
anlegt skotmark á hafi úti (þ.e.a.s.
flugmóðurskip, innsk. höf.) er mun
líklegra til að standast árásir en
flugvöllur á landi“.
Sókn til norðurs
Umdeildasti liður flotastefnunar
er tvímælalaust sá sem lýtur að
sókn bandarískra kafbáta til norð-
urs á átakatímum. Verkefni þeirra
væri að granda kafbátum Sovét-
Philip A Petersen, sem starfar á
vegum bandaríska varnarmálaráðu-
neytisins, segir í grein sem birtist
nýlega í tímaritinu International
Defense Review. „Sovétmenn hafa
ævinlega gengið að því sem vísu
að Bandaríkjamenn myndu freista
þess að toitíma kjarnorkuherafla
þeirra í hafinu á upphafsstigum
vopnaðra átaka. Með því halda kaf-
bátum búnum langdrægum kjarn-
orkueldflaugum nærri fóstuijörð-
inni er bæði auðveldara að veija
bátana og erfiðara að finna þá og
granda þeim“. Orð Gorshkovs gefa
því til kynna að Sovétmenn myndu
sjálfir leggja áherslu á að granda
eldflaugakafbátum óvinarins og að
þeir gangi að því sem vísu að
Bandaríkjamenn gerðu slíkt hið
sama. I raun eru Sovétmenn aðeins
að yfirfæra kenningar sínar um
varnir á landi til sjávar. Vestrænir
sérfræðingar hafa löngum verið
sammála um að herafli Sovétmanna
myndi freista þess að eyða banda-
riskum kjarnorkuvopnum á landi
með hefðbundnum vígbúnaði. Því
er svo við að bæta að erfitt getur
reynst að skilja á milli ákveðinna
gerða kafbáta og hafa yfirmenn
Bandaríkjaflota margoft lýst yfir
því að allir kafbátar séu „viður-
kennd“ skotmörk á átakatímum.
Færa má að því gild rök að Sovét-
menn gripu ekki til kjarnorkuvopna
þótt eldflaugabátum þeirra yrði
ógnað. Svipaðar reglur gilda um
beitingu kjarnorkuvopna bæði í
Sovétríkjunum og Bandaríkjunum.
Þau lúta pólitískri stjórn. Það er
því ekki í valdahring einstakra her-
foringja að beita skammdrægum
(taktískum) kjarnavopnum hvað þá
öflugari vígtólum. Einnig hafa sov-
éskir herforingjar fullyrt í viðtölum
að ekki sé unnt að takmarka kjarn-
orkustríð skelli það á. Stigmögnun
kjarnorkuátaka endar í gagn-
kvæmri gereyðingu og vitaskuld
þykir hvorugum aðilanum það fýsi-
legur kostur. Loks er þess að geta
að yfirmenn herafla Sovétmanna
koma yfirleitt úr landhernum enda
tekur herfræði þeirra fyrst _ og
fremst mið af sigrum á iandi.
Augljós ávinningur
Gagnrýnendur framvarnastefn-
unnar viðurkenna nauðsyn þess að
siglingaleiðum yfir Atlantshaf verði
haldið opnum. En þá greinir á um
hvernig standa beri að þeim vörn-
um. Talsmenn áætlunarinnar benda
hins vegar á að ýmislegt vinnist
með því að ógna eldflaugakafbátum
Sovétmanna. Hluti árásarkafbáta
þeirra verði þá að halda sig í grennd
við eldflaugabátana og halda uppi
vörnum fyrir þá. Þar með geti Sov-
étmenn ekki sent nægilegan fjölda
árásarkafbáta inn á Noregshaf.
Gæti Sovétstjórnin á hinn bóginn
gengið að því sem vísu að árásark-
afbátar Bandaríkjamanna héldu sig
fjarri eldflaugabátunum væri flota-
foringjum óhætt að senda fleiri
árásarbáta og herskip suður á bóg-
inn. Þá telja bandarískir flotafor-
ingjar að yfirráð yfír Noregshafi
séu skilyrði fyrir því að Bandaríkja-
menn geti ábyrgst öryggi Noregs
og annarra bandamanna sinna á
óvissu- og átakatímum.
Kafbátasmíði Sovétmanna héfur
tekið stórstígum framförum á und-
anförnum árum. Þeim hefur tekist
að gera kafbáta sína hljóðlátari og
hafa fengið aðstoð frá fyrirtækjum
í Noregi og Japan í því skyni. Lin-
ton F. Brooks sagði á fundi með
íslenskum blaðamönnum að sala
fyrirtækjanna Kongsberg og Tosh-
iba á hátæknibúnaði til Sovétríkj-
anna væri vissulega áhyggjuefni en
sérfræðingar hefðu löngum gert sér
ljóst að bregðast þyrfti við hljóðlát-
ari kafbátum Sovétmanna í nánustu
framtíð. Hættuna kvað hann vera
þá að Sovétmönnum tækist að
smíða hljóðlátari eldflaugakafbáta.
Þá kynnu sérfræðingar þeirra að
álykta sem svo að ástæðulaust
væri að halda Qölda árásarkafbáta
í nágrenni Kóla-skaga til verndar
þeim. Þar með yrði unnt að beita
mun fleiri árásarbátum á Atlants-
hafi sem gjörbreytti allri vígstöð-
unni á norðurslóðum. Brooks bætti
því hins vegar við að samkvæmt
lögmálum eðlisfræðinnar væri með
öllu ókleift að smíða kafbát sem
ekkert heyrðist til þar sem öll hljóð
væru samkvæmt skilgreiningu
mælanleg. Framfarir í smíði hljóð-
látra véla dygðu því ekki til.
Hafa ber í huga að grundvallar-
atriði framvarnastefnunnar eru
áætlanir um viðbrögð á spennutím-
um. Það er því beinlínis rangt að
leiða af þessari áætlun þá niður-
stöðu að umsvif flota Bandaríkja-
manna muni stóraukast hér við land
á friðartímum. Sú staðreynd að
bandarísk flugmóðurskip hafa sam-
tals dvalist 41 dag við æfingar á
Noregshafi undanfarin tíu ár rennir
stoðum undir þetta. Ótti við auknar
kafbátaferðir við landið er einnig
ástæðulaus. Framvarnastefnan
miðar að því að draga hugsanlega
víglínu fyrir norðan Island og binda
stóran hluta árasarkafbáta Sovét-
manna við varnir eldflaugabáta
þeirra. í þessu felst engin „nýjung“
þar sem bæði stórveldin gera ráð
fyrir því að lagt verði til atlögu við
kafbáta með langdrægar eidflaugar
innanborðs á fyrstu stigum vopn-
aðra átaka. Hvorugur aðilinn telur
slíkar árásir marka upphaf kjarn-
orkuátaka. Framvarnastefnuna er
því unnt að skilgreina á þann hátt
að hún sé ekki árásarstefna heldur
áætlun hinna færustu sérfræðinga
um hvernig tryggja megi öryggis-
hagsmuni ríkja Vestur-Evrópu og
treysta fælingarstefnu Atlantshafs-
bandalagsins.