Morgunblaðið - 22.08.1987, Side 29
28
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 1987
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 1987
29
Útgefandi nnftfftfetfr Árvakur, Reykjavík
Framkvæmdastjórl HaraldurSveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson.
Aöstoöarritstjóri Björn Bjarnason.
Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen.
Fróttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson.
Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033.
Áskriftargjald 550 kr. á mánuöi innanlands. I lausasölu 50 kr. eintakið.
Utlánum
bóka fækkar
Neysla almennings á því
efni, sem nýtt er til fræðslu
og skemmtunar í tómstundum,
hefur tekið stakkaskiptum á
undanförnum árum. Skjáir,
gögn á myndböndum og tölvu-
disklingum hafa víða komið í
stað bókarinnar. Myndbanda-
leigur hafa sprottið upp eins og
gorkúlur; þær eru líklega fleiri
hér en á nokkrum öðrum stað
á jarðarkringlunni. Reksturinn
hefur verið sveiflukenndur bæði
vegna afskipta lögreglu og sam-
keppni frá þeim miðlum, sem
senda mönnum efni á skjái á
heimili þeirra, sjónvörpunum.
Útvarpsstöðvum hefur fjölgað
og mjög færist í vöxt að efnt
sé til námskeiða um allt milli
himins og jarðar á þeim tímum
sólarhrings, þegar fólk gengur
ekki almennt til vinnu sinnar. Á
öllum þessum sviðum hafa ein-
staklingar látið að sér kveða og
standa að rekstri þjónustu-
stöðva fyrir eigin reikning.
Sú skoðun nýtur almenns
stuðnings í hátæknivæddum
ríkjum Vesturlanda, að bókin
standi hinum nýju miðlum og
hinni nýju tækni snúning. Bóka-
útgáfa hefur síður en svo
dregist saman hér eða í ná-
grannaríkjum. Tölvutæknin
hefur auðveldað alla bókagerð
og nú er svo komið, að tækni-
vædair höfundar geta á heimil-
um sínum gengið frá handriti
inn í prentvélina.
Bókaleigur í einkarekstri
þekkjast hvorki hér né annars
staðar. Hins vegar hafa góð
bókasöfn um aldir verið talin til
marks um gæði menntastofn-
ana og hátt menningarstig
þjóða. Varðveisla og söfnun
bóka hefur um langan aldur
verið ástríða margra Islendinga
og í engu landi er bókaeign jafn
almenn og meðal okkar. Bóka-
söfn á vegum sveitarfélaga eru
einnig hluti af menningarlegum
arfí þjóðarinnar, sem hún þarf
að hlú að og gæta. Lestrarfélög
einstakra sveita og hreppa
minna á, hve miklu menn voru
fúsir til að fóma í því skyni að
hafa aðgang að bókum, þegar
erfíðaTa var að nálgast þær en
nú.
Nýlega birtist frétt hér í
Morgunblaðinu um ársskýrslu
bókafulltrúa ríkisins fyrir árið
1985. Þar segir meðal annars
að mörg bókasafnanna séu úr
tengslum við umhverfí sitt, lok-
aðar og lítt virkar stofnanir sem
aðeins séu sóttar af hluta íbúa
og eigi ekki virkan þátt í upp-
byggingu menningar- og at-
vinnulífs. Við viðvömn af þessu
tagi er nauðsynlegt að staldra
og einnig þau orð bókafulltrúa,
að almennt séu bókasöfn í fjár-
svelti og margar bæjar- og
sveitarstjómir hafí lítinn skiln-
ing á gildi bókasafna í menning-
arstarfi sveitarfélaganna.
Hvergi hafa sést tillögur um
að hið opinbera taki að sér að
leigja út myndbönd, á hinn bóg-
inn hefur komið fram hér í
blaðinu í umræðum um fyrr-
greinda skýrslu bókafulltrúa
ríkisins, að líklega hafí dregið
úr útlánum á svokölluðum af-
þreyingarbókmenntum, þýdd-
um skáldsögum, eftir að
myndbandaeign varð jafn al-
menn og raun ber vitni. Sum
myndbönd em þannig gerð, að
einkaaðilar sjá sér engan hag í
að hafa þau til útleigu. Væri
ekki ástæða fyrir bókasöfn að
huga að deild fyrir slík mynd-
bönd? Þá er ljóst, að almenn
útbreiðsla á hljómflutnings-
tækjum vekur aukinn áhuga á
plötum og hljóðsnældum. Hafa
bókasöfnin fylgst nægilega vel
með þróuninni á þessu sviði?
Orðið „bókasafn“ er kannski
orðið of þröngt fyrir þá menn-
ingarstarfsemi, sem þarf að
reka í einstökum byggðarlög-
um. Með þessari tilgátu er alls
ekki verið að leggja til, að bók-
in hætti að verða burðarás
menningarstofnana af þessu
tagi, heidur hitt, að stofnanimar
verði jafn mikilvægur þáttur í
uppbyggingu menningar- og
atvinnulífs og þær vom áður.
Að sjálfsögðu er eitthvert
samhengi milli ákvarðana ein-
stakra sveitarstjóma um fjár-
veitingar til bókasafna og þess
áhuga, sem stjómendur sveitar-
félagsins telja vera hjá almenn-
ingi á að nýta sér þjónustuna.
Fram hjá þeirri staðreynd verð-
ur ekki komist. Bókafulltrúi
ríkisins segir, að á árinu 1985
hafí útlánum úr bókasöfnum
fækkað um 200 þúsund bækur.
Gegn þessari þróun verður að
spoma. Það er jafn mikilvægt
og að reka góða skóla að halda
uppi menningarstarfsemi með
bókasöfnum. Áhugaleysi á
bókasöfnum er mikið áhyggju-
efni, þótt skiljanlegt sé að fólk
vilji frekar fá afþreyingu frá
útlöndum á myndbandi með
íslenskum texta en með því að
lesa þýdda skáldsögu af svipuð-
um gæðaflokki.
Ráðstefna um þróun rækjuvinnslu:
Fjörutíu rækjuverk-
smiðjur vinna ársafl-
an á þremur mánuðum
ísafirði.
NÚ ERU um fjörutíu rækjuverksmiðjur starfandi í landinu og geta
þær afkastað ársafla rækjuveiðanna á þremur mánuðum ef unnið
væri á tólf tíma vöktum. Þó hafa stjórnvöld gefið út vinnsluleyfi til
tíu aðila í viðbót. Þetta kom meðal annars fram í framsöguerindi
Benedikts Valssonar hjá Þjóðhagsstofnun á ráðstefnu um þróun
rækjuvinnslu á íslandi sem hófst á ísafirði í gær.
Umfang rækjuvinnslu í útflutn-
ingsafurðum þjóðarinnar hefur
vaxið úr 2% árið 1980 í 11% á
síðasta ári og er rækjuvinnslan nú
þriðja stærsta útflutningsgreinin í
sjávarútvegi í verðmætum talið.
Mannafli í rækjuvinnslu jafngilti
210 ársverkum árið 1980 en reikn-
að er með að þau verði milli 700
og 800 á þessu ári.
Benedikt sagði jafnframt að
happa og glappa aðferðin hefði víða
orðið forsjálninni yfirsterkari í fíár-
festingum í þessari atvinnugrein og
sagði að heildamýting fjármagns
væri slök. Hann tók þó fram að við
ísafjarðardjúp, þar sem rækjuveiðar
og vinnsla hefur lengst verið stund-
uð, væri ástandið betra en víðast
annarsstaðar.
Ráðstefnan sem standa mun til
laugardags er haldin af Rannsókn-
arstofnun flskiðnaðarins og Félagi
rækju- og hörpudisksframleiðenda.
Um 100 manns sitja ráðstefnuna.
Jón Jóhannesson útibússtjóri Rann-
sóknarstofnunar fiskiðnaðarins á
ísafirði setti ráðstefnuna og stjóm-
ar henni.
Auk hans og Benedikts Valsson-
ar flutti Halldór Hermannsson
fyrrverandi rækjuskipstjóri á
ísafirði ágrip af sögu rækjuveiða
og vinnslu.
Að loknum framsöguerindum á
fimmtudag var ráðstefnugestum
boðið að skoða rækjutogarann Tasi-
ilaq frá Angmagssalik, stærsta
togara Grænlendinga, en hann er
rúm 2.000 tonn. Togarinn er búinn
tölvubúnaði á vinnslulínum frá Póls-
tækni á ísafirði. Þá heimsóttu menn
rækjuverksmiðju O.M. Olsen, Póls-
tækni og Skipasmíðastöð Marse-
líusar þar sem verið er að smíða
lítinn rækjutogara. Þá skoðuðu
menn og starfsemi Rannsóknar-
stofnunar fiskiðnaðarins á ísafírði.
— Úlfar
- ... ÍJI-*
Morgunblaðið/Úlfar Ágústason
Ráðstefnugestir skoða rækjutogarann Tasiilaq frá Angmagssalik á Austur-Grænlandi, en hann er talinn
stærsti og best búni rækjutogari á norðurhveli jarðar. Allar vogir og annar rafeindabúnaður tengdur
vinnslulínum í skipinu eru frá fyrirtækinu Pólstækni á ísafirði.
Frá vinstri Erla Einarsdóttir er verið hefur ritstjóri „íslenskra fyrir-
tækja“ undanfarin fjögur ár og Halldóra Rafnar nýráðinn ritstjóri.
íslensk fyrirtæki 1988:
Skrá yfír starf-
andi fyrirtæki
HAFINN er undirbúningur bókarinnar „íslensk fyrirtæki 1988“, sem
kemur út í janúar næstkomandi. Þetta er í 18. sinn sem Fijálst fram-
tak gefur bókina út. í henni er skrá yfir og upplýsingar um öllstarf-
andi fyrirtæki á íslandi, en þau munu vera rúmlega tiu þúsund. Þá
eru í bókinni ýmsar aðrar hagnýtar upplýsingar, svo sem skrá yfir
útflytjendur, ítarleg skipaskrá, umboðaskrá og vöru- og þjónustu-
skrá. Meðal nýmæla er kennitala fyrirtækja sem taka við af
nafnnúmmerum eftir áramót.
„Undirbúningur bókarinnar hefst
í raun í janúar því að mörgu þarf
að hyggja,“ sagði Halldóra Rafnar
ritstjóri „íslenskra fyrirtækja
1988“. „Upplýsingarnar þurfa að
vera réttar og áreiðanlegar, en
breytingar milli ára eru ótrúlega
miklar. Við liggur að á hverri ein-
ustu blaðsíðu þurfi að breyta
einhveiju atriði, heimilisfangi,
símanúmeri eða öðrum upplýsing-
um en til að bókin þjóni tilgangi
sínum þurfa upplýsingamar að vera
nýjar og réttar. Þess vegna er haft
samband við hvert einasta fyrirtæki
árlega og eru sölumenn einmitt á
ferðinni þessa dagana í þeim til-
gangi að staðreyna hvaða fyrirtæki
eru starfandi og hvort þær upplýs-
ingar sem í bókinni eru séu réttar.
Einnig er nokkuð um að forsvars-
menn fyrirtækja hafí samband við
okkur af fyrra bragði og láti vita
um breytingar eða nýskráningar."
Bókin „íslensk fyrirtæki" skiptist
í fímm megin kafla; 1. Útflytjenda-
skrá, 2. Vöru- og þjónustusskrá,
3. Umboðaskrá, 4. Fyrirtækjaskrá
og 5. Skipaskrá. Að sögn Halldóru
tekur fyrirtækjaskráin yfír mesta
hluta bókarinnar og getur sá er
kaupir skráningur, komið þar að
öllum þeim upplýsingum sem hann
vill. Einnig getur hann látið birta
merki og myndir án þess að greiða
aukalega fyrir. Þá getur fyrirtækið
skráð sína þjónustu og þær vöru
sem á boðstólum eru, í eins marga
af flokkunum 1500, sem í Vöru-
og þjónustuskránni eru og viðkom-
andi kýs og jafnvel látið búa til
nýja flokka. Sama gildir um um-
boðsskrána. í hana geta fyrirtæki
skráð umboð sín, án þess að greiða
sérstaklega fyrir það.
Nokkur fyrirtæki hafí lýst yfír
áhuga á því að fá eingöngu skrán-
ingu í Vöru- og þjónustuskrána og
verður nú f fyrsta sinn gefínn kost-
ur á því. „Verið er að ræða ýmsar
breytingar á vinnslu, uppsetningu
og fleiru er varðar bókina," sagði
Halldóra. ,En aðalatriðið verður
áfram að „Islensk fyrirtæki" hvers
árs sé áreiðanlegt uppsláttarrit."
Byggingarkostnaður Leifsstöðvar:
Upplýsingar um aukna
fjárþörf komuáóvart
í FRÉTT frá fjármálaráðuneytinu segir að í lok síðasta árs hafi
ekki legið fyrir upplýsingar frá byggingarnefnd flugstöðvarinnár
á Keflavíkurflugvelli um að kostnaður íslendinga næmi 1,2 miiyörð-
um króna á þessu ári. Þess í stað hafi komið fram við afgreiðslu
lánsfjárlaga rökstudd beiðni um 520 milljónir og þá fullyrt að það
fjármagn dygði tii að taka flugstöðina í notkun í apríl. Upplýsingar
í maí um aukna fjárþörf hefðu þvi komið fjármálaráðuneytinu
mjög á óvart og vegna þess hafi það nú gert athugsemd.
Þá segir enn fremur að bygg-
inganefndin hefði upplýst í byrjun
I maí að kostnaður íslendinga á árinu
I geti numið allt að 700 milljónum
■ króna umfram þær 520 sem veittar
voru á lánsfíárlögum. Á þessum
tíma hefði nefndin verið komin í
algert greiðsluþrot og fengið heim-
ild til innlendrar lántöku að fjárhæð
480 milljónum króna. Þessar upp-
lýsingar hefðu komið mjög á óvart
enda hefðu engar upplýsingar kom-
- ið frá byggingamefnd um breyttar
forsendur byggingarkostnaðar.
. í fréttinni segir að við fjárlaga-
gerð nú liggi fyrir beiðnir um 250
milljónir króna vegna viðbótarfram-
kvæmda og þannig hafi frá því í
apríl birst á borðum ráðuneytisins
beiðnir um aukafjármagn sem nema
rúmlega 900 milljónum króna.
Ráðuneytið spyr síðan þriggja
spuminga: í fyrsta lagi hvers vegna
ekki hafi verið gerð grein fyrir við-
bótarfjárþörf vegna verðlagsbreyt-
inga og gengisþróunar fyrr en við
lokauppgjör efflrað flugstöðin var
tekin í notkun? í öðm lagi hvaða
ráðstafanir vom gerðar til að
tryggja fíármagn til þeirra við-
bótarframkvæmda sem nefndin tók
ákvörðun um, samtals fyrir 250
milljónir, þar sem ekki hefði borist
beiðnir til fjármálaráðuneytisins um
slíkt? Og í þriðja lagi hvemig bygg-
ingamefnd tókst að fjármagna
umframfíárþörfína á byggingartím-
anum?
í fréttinni segir að ekki verði
lagt mat á þær skýringar sem
nefndin hefur gefíð á umframkostn-
aði að svo stöddu. Fjármálaráðherra
hafí óskað eftir að Ríkisendurskoð-
un kanni málið í heild, bæði
byggingarkostnað og tæknilega
þætti tengda byggingunni. Búist
er við greinargerð Ríkisendurskoð-
unar í okóber eða nóvember.
AF ERLENDUM VETTVANGI
. eftir JÓHÖNNU KRISTJÓNSDÓTTUR
Iran:
A
Stríðið við Iraka kemur í
veg fyrir að valdabaráttan
brjótist út fyrir alvöru.
STJÓRNIN í Teheran reynir eftir megni að hafa uppi hótanir
og stóru orðin eru ekki spöruð, hvað varðar Flóamálið. En inn-
an hennar magnast ágreiningur og spenna. Meðan franir geta
haldið kverkataki um stórveldin jafnt sem Flóaríkin eru kannski
líkur á því, að forystumennirnir geti haft tök á sínu eigin stríði.
Sem er sprottið af mörgu, meðal annars hugmyndafræðilegum
afstöðumun sem hefðbundinni valdabaráttu.
egar írakar réðust á írani íranir voru einatt að hóta, að
1980 og hrundu þar með á
stað styrjöld, sem ekki sér fyrir
endann á, fagnaði Khomeini er-
kiklerkur og kallaði stríðið
„guðsgjöf." Leiðtogarnir voru þá
þegar famir að glíma við innan-
landsvanda, sem virtist óviðráðan-
legur og litu svo á, að stríðið
dreifði huganum frá ólgunni og
eygðu von um útbreiðslu bylting-
arinnar. í nýjasta töíublaði
tímaritsins The Middle East skrif-
ar Ali Behrooz grein um innan-
landságreininginn í Iran og er
stuðzt við grein hans
Behrooz bendir á, að fyrir
nokkru ítrekaði Rafsanjani, for-
seti íranska þingsins, útbreiðslu-
hugmyndina er hann sagði við
bænastund í Teheran.„Þegar bylt-
ingin hófst vissum við, að hún
myndi ná út fyrir landamæri ír-
ans. Svo verður.Það er skylda
okkar að útbreiða hana. Og það
er rökrétt, að hún eigi hljómgrunn
í írak.“
Stríðið réttlætir allt í augum
írana. Eða fer að minnsta kosti
langt með það. Ekki nokkrum,
vafa bundið, að andófsöfl hefðu
átt auðveldara uppdráttar, ef
Khomeini hefði ekki tekizt að láta
þjóðina standa ótrúlega þétt sam-
an gegn Irökum. Síðan fleimm
og fleimm.íranir hafa látið hvers
kyns framfaramál þjóðarinnar
sitja á hakanum vegna
stríðsrekstursins, sem þeir nota
hvert tækifæri að kalla heilagt .
Nefna má, að sænskt verktaka-
fyrirtæki, sem tók að sér vega-
lagnir var látið breyta áætlun
sinni og í stað vegalagna milli
borga, var því skipað að leggja
veg rakleitt að víglínunni. Saipa-
verksmiðjan í Teheran sem setti
saman Renaultbfla hefur verið
tekin undir vopnaframleiðslu.
Fleiri dæmi mætti nefna.
Stríðið hefur einnig verið mikil-
vægur liður í að ákvarða, hveijir
em sannir fylgismenn imams. Það
vom byltingarverðimir, sem tóku
á sínum tíma b andaríska sendi-
ráðið, er reyndu fyrstir að skil-
greina þá. Áðalmaðurinn í þeim
hópi bókstafstrúarmanna hefur
verið Rafsanjani, sem að vísu,
hefur átt nokkuð undir högg að
sækja, eftir að það komst í há-
mæli, að hann hafði haft afskipti
af vopnasölumálinu. Andstaðan
innan forystunnar gegn Rafsanj-
ani er hvað hatrömmust af hendi
Ali Khameini, forseta. Á þing-
fundi fyrir skömmu gagnrýndu
nokkrir þingmenn harkalega einn
helzta samstarfsmann Rafsanjan-
is, Hossein Moussavi af miklum
gauragangi á Rafsanjanis. Kha-
meini tók undir þessi orð.Málið
þótti svo alvarlegt, að Khomeini
klerkur þurfti að sögn að hafa
bein afskipti af því. En óumdeilt
er að staða Rafsanjanis hefur
veikzt upp á síðkastið, einkum og
sér í lagi, þegar séð var í lok
síðasta vetrar, að stóra árásin sem
myndi hefjast senn og bijóta Iraka
á bak aftur í eitt skipti fyrir öll,
koðnaði einhvern veginn niður.
Rafsanjani hafði verið aðalskipu-
leggjandi stórárásarinnar - sem
var svo aldrei gerð. Enn versnaði
staða hans, þegar spurðist um
hroðalegt mannfall í liði írana á
útmánuðum. Þrátt fyrir langlund-
argeð, virðist sem íranir fari ekki
jafn himinlifandi og fullir tilhlökk-
hugmyndafræðilegu eða pólitísku
tilliti. Khameini komst að lokum
að þeirri niðurstöðu, að hug-
myndafræðilegur ágreiningur
hefði leitt til þess að flokkurinn
var óstarfhæfur. Khameini viður-
kennir, að Khomeini klerkur hafí
verið andsnúinn stofnun flokksins
frá byijun, því að klerkurinn hafí
ekki litið svo á, að starf hans yrði
islömsku byltingunni til fram-
dráttar. Beinn þiýstingur frá
Khomeini hefur án efa orðið til
þess, að þrátt fyrir nokkra and-
stöðu var ákveðið að hætta
starfssemi hans. Khameini mun
áður en til þess kom, hafa lagt
til að þeir Rafsanjani færu báðir
úr flokknum, en síðan yrði frei-
Khameini
Khomeini erkiklerkur
unar, vegna hugsanlegs píslar-
vættisdauða á vígvellinum.
Ali Khameini forseti er fulltrúi
prestanna og kaupahéðnanna,
sem eru mjög valdamiklir. Enn
eru svo, eins og fyrr segir greinir
með Khameini og Moussavi, for-
sætisráðherra. Khameini hefur
ekki farið dult með andúð sína á
Moussavi og kallað hann vesaling.
Og það sem meira er - strengja-
brúðu Khomeinis. Þetta var birt
í samþykkt 99 þingfulltrúaþ Kha-
meini beitti sér fyrir samþykkt-
inni. Þar var farið fram á, að
Khomeini skipaði andlegan eftir-
mann sinn hið fyrsta.
Khameini var það því áreiðan-
lega töluvert áfall þegar Islamski
lýðveldisflokkurinn IRP var, að
skipan Khomeinis, leystur upp.
Því að Khameini hafði vænt þess,
að geta sótt stuðning í orði og
borði frá flokknum. Rafsanjani
ól með sér svipaðar vonir og það
var eins og fyrri daginn erkiklerk-
urinn í Qom sem hjó á hnútinn:
hann ákvað bara að leggja flokk-
inn niður.
Fréttir um að IRP hafi verið
leystur upp, gat að líta í nýlegum
skýrslum sem bæði Rafsanjani og
Khameini sendu frá sér. Khameini
fjallaði á skorinorðan hátt um
deilur innan flokksins og sagði
umbúðalaust, að skipulag hefði
verið í molum. Starf hans hefði
verið á núlli, hvort sem væri í
Rafsanjani
stað að fínna nýjan grundvöll fyrir
flokkinn.
I greinargerð Rafsanjanis var
gert lítið úr stöðu Khameinis for-
seta. Þingforseti sagði síðan, að
innan flokksins væru ýmsir hóp-
ar, sem hefðu ólíkar skoðanir og
þessir hópar virtust ekki getað
sætt þær, hvað þá heldur unnið
saman. Hann sagði, að í sjálfu sér
hefði mátt vænta klofnings, þar
sem sjálfur Imaminn, Khomeini,
hefði kallað flokkinn runninn und-
an rifjum Satans sjálfs. I skýrsl-
unni kom ótvírætt fram, að eini
maðurinn, sem hefur afgerandi
og óumdeilanlega vald í landinu
sé erkiklerkurinn:„Dirfíst einhver
að segja erkiklerki, að hann hafí
rangt fyrir sér, kann hann að
vera til viðræðu um deiluefnið, svo
að umfram allt skyldi íhugað,
hvort flokkurinn er málstaðnum
til framdráttar eða ekki.“
Það er svo einmitt staðfesting
á valdi Khomeinis, að hvað sem
öllum skoðanamun og fortölum
leið var ákveðið, að flokkurinn
skyldi leystur upp. Áreiðanlega
verður það ekki Rafsanjani til
framdráttar, en að svo stöddu
ekki gott að ráða í, hvort það
verður vatn á myllu Khameinis
forseta.
w Altjend: meðan stríðið við ír-
aka heldur áfram og íranir draga
ekki af sér í yfírlýsing-um, sem
þeir að vfsu fylgja el^ki eftir nema
að hluta til; meðan Khomeini lifir
og virðist stjóma, mun valdabar-
áttan í íran varla fara úr böndun-
um.„ Það liggur við,“ segir í grein
Behrooz,,, að maður geti í aðra
röndina hræðzt þá stund þegar
Khomeini erkiklerkur hverfur á
vit feðra sinna. Þrátt fyrir allt,
Því að kraftaverk þarf að gerast
til að þá fari ekki allt endanlega
á hvolf í þessu landi."
-X