Morgunblaðið - 25.08.1987, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 25.08.1987, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1987 53 Hilmar S. Karls- son - Minning Fyrir rúmri viku var mér sagt að góður vinur væri látinn. Mér var hastarlega brugðið. Hilmar var fyrst unglingameist- ari íslands 1976 og síðan skák- meistari íslands 1983. Það var öllum ljóst sem til þekktu að Hilmar var bæði ljúf- menni mikið og bráðvel gefinn. Með tímanum var heimili Hilmars einskonar allsherjar rannsóknar- stofa bæði á sviði skáklistarinnar svo og öðrum sviðum, s.s. hag- fræði, sálarfræði, pólitík, trúmál- um og nánast öllu því sem snertir líf okkar. Einstök alúð og umhyggja móð- ur Hilmars, Þórdísar, og ömmu hans, Margrétar, var sérstök, og ekki má gleyma Huldu, þær gerðu umhverfi hans allt svo viðkunnan- legt. Hilmar var hrókur alls fagnaðar í kunningjahópi og stutt í kímnina hjá honum. Það var fólki einnig ljóst sem umgekkst hann að maðurinn var óvenju frumlegur skákmaður og sérlega ánægjulegar minningar á ég eftir þau samskipti. Það sem var lausn á vandamálunum í dag, gat á morgun verið hrakið og sýnt fram á að var ekki rétt. Þetta efa- hyggjusjónarmið er að vísu allt of fáum gefíð sem gefa sér forsendur fyrir fram sem síðan þurfa alls ekki að vera réttar. Um Hilmar voru mjög skiptar skoðanir innan skákhreyfingarinn- ar því að sögfn vildi hann frekar „öryggistaflmennsku“ en áhættu- leiðina. Einnig var hann gagn- rýndur fyrir of mikla friðsemi á skákborðinu. Þeir hinir sömu sem gagnrýndu sem mest gerðu sjálflr jafntefli í c.a. 15-17 leikjum oftast fyrirfram. Spurningin er því hver er hinn eiginlegi munur á því eða gera jafntefli í færri leikjum. Einn- ig var Hilmar gagnrýndur fyrir að tefla svonefnda PetroffsOvöm móti kóngspeðsbytjun, því að þeirri byijun lýkur gjarnan með jafntefli. Nokkuð var síðan athyglisvert að fylgjast með því að fyrrverandi heimsmeistari, Anatoly Karpov, hafði þetta sem eitt aðalvopnið í einvígi sínu við Kasparov núver- andi heimsmeistara. Allar þessar umræður virkuðu sem hjóm svona eftir á að hyggja og lýsa e.t.v. þeim sem umræðumar hófu best. Já, það var ljóst að skákgyðjan átti hug Hilmars, enda skiljanlegt því að það er gaman að tefla. Við vomm að gleðjast yfir árangri Jóhanns fyrir nokkmm dögum, því að skákmenn em eins og lítil fjöl- skylda hérlendis, þó svo að um hlutina væm skiptar skoðanir eins og gengur. Eg vona að Guð veiti aðstand- endum öllum styrk til þess að komast yfir þetta mikla áfall. Erlingur Þorsteinsson og fjölskylda Eiríkur Þórðar- son - Minning Fæddur 13. október 1914 Dáinn 15. ágúst 1987 Við kveðjustund langar okkur að minnast tengdaföður okkar, sem andaðist í Borgarspítalanum eftir stutta en erfiða sjúkdóms- legu. Eiríkur var fæddur á Vattamesi við Fáskrúðsfjörð, næstelstur sex systkina. Foreldrar hans vom Guðrún Jónasdóttir frá Svínaskála og Þórður Eiríksson frá Vattar- nesi. Bernskuár sín átti Eiríkur á Eskifirði. Þrettán ára missti Eirík- ur móður sína og var heimilið þá leyst upp. Seinna giftist faðir hans aftur og átti þijú börn með þeirri konu. Fimmtán ára fór Eiríkur til sjós. Á stríðsámnum sigldi hann sem kyndari á togara við þær aðstæð- ur, sem erfitt er að setja sig inn í, fyrir okkur sem yngri emm. Við breytta tækni varð hann vélamað- ur uns hann kom í land 1961. Þá vann hann fyrst í Vélsmiðjunni Héðni og svo sem sendibílstjóri meðan starfskraftar leyfðu. Eiríkur átti því láni að fagna að eiga góðan lífsfömnaut. Hann giftist 17. júlí 1940 Heiðu Jens- dóttur úr Hafnarfirði. Foreldrar hennar vom Þorgerður Guð- mundsdóttir og Jens Kristjánsson, ættuð af Snæfellsnesi. Heiða og Eiríkur eignuðust tvö böm. Guð- rúnu, gifta Viðari Janussyni, og Þórð, kvæntan Guðrúnu G. Bjöms- dóttur. Barnabömin urðu 6 og langafabömin 3. Við minnumst Eiríks sem heimakærs manns, sem vildi helst dvelja með fjölskyldu sinni. Hann var rólegur í fasi en skapmikill. Skoðanir hans á þjóðmálum vom mjög fastmótaðar. Hann var mjög greiðvikinn og fljótur til hjálpar ef einhver þurfti á aðstoð hans að halda. Alltaf hafði hann tíma til að hlusta á aðra og ræða málin yfir kaffibolla. Barnabömum sínum var hann góður afí, gjaf- mildur og hlýr og naut samvem- stunda með þeim. Seinni árin þegar frístundimar urðu fleiri stundaði Eiríkur hesta- mennsku, þar sem hann naut útivistar og góðra félaga. Um leið og við kveðjum tengda- föður okkar þökkum við honum samfylgdina og biðjum Guð að halda verndarhendi yfir Heiðu og gefa henni styrk. Þegar þú ert sorgmæddur skoðaðu þá aftur huga þinn, og þú munt sjá að þú grætur vegna þess, sem var gleði þin. (K. Gibran) Tengdabörn t Eiginmaður minn, sonur, faðir, tengdafaðir og afi, HÖRÐUR GUÐMUNDSSON, Hólmagrund 9, Sauðárkróki, andaðist laugardaginn 22. ágúst. Útförin fer fram frá Sauðárkróks- kirkju laugardaginn 29. ágúst kl. 14.00. Sólborg Valdimarsdóttir, Hólmfríður Jónasdóttir, Ingibjörg Harðardóttir, Brynja Harðardóttir, Kristinn Guðjónsson og barnabörn. Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting- ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn- arstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tek- in til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfílegt er að birta ljóð eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfundar getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minningargreinar birtist undir fullu nafni höfundar. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar eru birtar af- mælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Legsteinar MARGAR GERÐIR Mamorex/GraÉ Steinefnaverksmiðjan Helluhrauni 14, sími 54034, 222 Hafnarfjörður t Ástkær kona, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, LOVÍSA GUÐMUNDSDÓTTIR, Háagerði 11, Reykjavík, er lést í Landspítalanum 18. ágúst. sl. verður jarðsungin i Þjóð- kirkjunni, Hafnarfirði, miðvikudaginn 26. ágúst kl. 15.00. Hjálmar Guðjónsson Elisabet Jónsson, Guðmundur Pálsson, Guðmundur Jónsson, Elín Ingólfsdóttir, Sigurður Jónsson, Kristjana Friðgeirsdóttir, Stefán L. Stefánsson, Sigrún Ragnarsdóttir, Eyþór G.J. Stefánsson, Guðrún Pétursdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, GRÓA STEFANÍA GUÐJÓNSDÓTTIR frá Stafnesi, Miðneshreppi, andaðist að kvöldi 12. ágúst í Keflavíkurspítala. Jarðarförin hefur fariö fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Björgunarsveitina Sigurvon í Sandgerði eða Hvalsneskirkju. Jón Ben Guðjónsson, Leifur Ölver Guðjónsson, Aldfs Guðjónsdóttir, Gunnar Gunnarsson, Margrét Guðjónsdóttir, Gisli Hermannsson og barnabörn. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, ILSE BLÖNDAL, verður jarösungin frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 26. ágúst kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hennar er vinsamlegast bent á Barnaspítala Hringsins. Valdís Blöndal, Birgir G. Frfmannsson, Hanna Soffia Blöndal, Hörður Frimannsson, Kjartan Blöndal, Þóra S. Blöndal og barnabörn. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og út- för eiginmanns míns, föður, tengdafööur, afa og langafa, HJARTAR L. JÓNSSONAR fyrrverandi skólastjóra, Goðabyggð 6, Akureyri. Anna Oddsdóttir, Gunnar L. Hjartarson, Sigyn Georgsdóttir og fjölskyldur. t Hjartans þakkir fyrir auösýnda samúð og vinarhug við andlát og útfarir bræðra minna, BJÖRNS OG PÉTURS, sem önduðust 5. og 8. ágúst 1987. Sérstakar þakkir til lækna, starfsfólks og systranna á St. Fransisk- ussjúkrahúsinu í Stykkishólmi og forstöðukonu Dvalarheimilis aldraðra í Stykkishólmi og starfsstúlkna fyrir frábæra umhyggju og aðhlynningu bræðra minna. Jón Jónsson frá Innri Kóngsbakka. t Þökkum innilega auösýnda samúð og vinarhug við andlát og útför SKARPHÉÐINS WAAGE, Mánabraut19, _ Kópavogi. Hólmfríður Eyjólfsdóttir, Steinar Waage, Clara Waage, Kristín Marfa Waage, TómasWaage, GuðrúnWaage, Magnús Waage, KittýWaage, barnabörn, barnabarnabörn og aðrir aðstandendur. t Alúðarþakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengda- föður og afa, ÞÓRÐAR STEINDÓRSSONAR, Ásbraut 17, Kópavogi. Ester Sæmundsdóttir, Eðvarð Ólsen, Magnús Þórðarson, Valgerður Þórðardóttir, Ríkey Þórðardóttir, Sæmundur Þórðarson, tengdabörn og barnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.