Morgunblaðið - 25.08.1987, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 25.08.1987, Blaðsíða 1
80 SIÐUR B 189. tbl. 75. árg. ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1987 Prentsmiðja Morgainblaðsins Fundur Arababandalagsins í Túnis: Verður sambandi við írana slitið? Túnis, Washington, Reuter. HAFT var eftir fulltrúum á fundi ráðherra Arababandalagsins, sem haldinn er í Túnis, að í gær hefði verið lögð fram tillaga um að slíta stjórnarsambandi við ír- ana þar til stjórnin í Teheran hefði fallist á áskorun öryggis- ráðs Sameinuðu þjóðanna um vopnahlé. Sljórn S-Afríku: Kynblend- ingur seg- ir af sér Höfðaborg, Reuter. ALLAN Hendrickse, eini kyn- blendingurinn í stjórn Suður- Afríku, sagði af sér í gær og lýsti yfir því að P.W. Botha for- seti væri tilfinningalaus og gersneyddur umburðarlyndi. „Augljóst er að þú vilt ekki taka tillit til tilfinninga og sjónarmiða annarra, ef þú ert á öndverðum meiði," sagði ráðherrann fyrrver- andi í bréfi til Bothas. Forsetaemb- ættið tilkynnti að afsögn Hendrickses hefði verið tekin til greina og tæki gildi tafarlaust. Var ekki harmað að hann skyldi segja af _sér. í stjórn Suður-Afríku er nú að- eins einn ráðherra, sem ekki er hvítur, Indveijinn Amichand Raj- bansi. Hendrickse reyndi að beijast fyr- ir endurbótum á kynþáttalögum Suður-Afríku, en Botha snupraði hann í hvert skipti fyrir að fylgja ekki stefnu stjómarinnar. Á síðasta ári var Hendrickse látinn biðjast afsökunar opinberlega þegar hann virti aðskilnaðarlögin að vettugi og sjmti við strönd, sem aðeins er ætl- uð hvítum mönnum. Bandarísk herskip skutu viðvör- unarskotum að tveimur smábátum og sigldu í veg fyrir íranskt herskip á siglingu niður Persaflóa, að því er bandarísk yfirvöld greindu frá í gær. Herskipin eru í skipalest með olíuflutningaskipum frá Kuwait, sem sigla undir bandarískum fána, og fór hún um Hormuz-sund í gær. Sögðu Bandaríkjamenn að engan hefði sakað er skotið var á veiðibát- ana tvo, en þeim hefði samstundis verið siglt á braut. Bretar ákváðu í gær að ganga í lið með Bandaríkjamönnum og veita olíuskipum frá Kuwait vemd. Bandaríkjamenn fögnuðu ákvörðun Breta en ekki var vitað hversu mörg skip frá Kuwait myndu sigla undir merkjum bresku krúnunnar. Ali Khameini, forseti írans, sagði á bænafundi í Teheran í gær að íranar gætu þurrkað „pappírstígra" Bandaríkjamanna á Persaflóa út á sekúndubroti og átti hann þar við herskip þeirra. Slökkvið ísígarettum og spennið sætisólar Reuter Bjöminn Misha frá Síberíu hirti lítt um að spenna sætisólar þegar hann flaug með sovéska flugfélaginu Aeroflot til Prag fyrir helgi, enda var hann upptekinn af útsýninu. Að sögn Lyudmilu Borisovu flugfreyju kunnu farþegar vel að meta þessa nýbreytni í sovésku farþegaflugi. Kvörtuðu þó sumir undan hrotum bjamdýrsins þegar á leið flugið. Veiðimaður nokkur fann Misha í skógum Síberíu fyrir fjórum mánuðum, tamdi hann og kenndi honum meðal annars að drekka úr undir- skál. fbúar í heimabæ veiðimannsins óttuðust aftur á móti að bjöminn myndi reynast jafnt bömum sem fullorðnum skeinuhættur þegar hann stækk- aði. Keyptu þeir handa honum flugmiða aðra leið frá Krasnoyarsk til Prag, þar sem hann mun dvelj- ast framvegis í dýragarði. Hess grafinn á laun af ótta við ólæti nýnasista Wnnnipflpl. Vpfltnr-b^nknlnnHi. Rputpr. Wunsiedel, Vestur-Þýskalandi, Reuter. RUDOLF Hess, fyrrum stað- gengill Adolfs Hitlers, var jarðsettur í ómerkta gröf í gær. Sagði fjölskylda Hess að jarðar- förin hefði farið fram í kyrrþey til þess að koma í veg fyrir að nýnasistar létu að sér kveða. Fulltrúar Breta, Frakka og Bandaríkjamanna tilkynntu í gær að Hess hefði hengt sig í raf- magnssnúru í Spandau-fangelsinu í Vestur-Berlín. Greint var frá því á blaðamanna- fundi í Wunsiedel í Vestur-Þýska- landi í gær að Hess hefði verið grafínn á laun. Boðað var til þessa fundar til að skýra frá því hvenær útför hans færi fram. Karl Walter, bæjarstjóri í Wunsiedel, las upp yfírlýsingu fjölskyldu Hess. Þar sagði að vegna atburða undanfar- inna daga í Wunsiedel, þar sem lögregla lokaði af kirkjugarðinn og vegum að bænum til að koma í veg Lettland og Litháen: Fjörutíu og átta ára undirokun mótmælt Viinius, Sovétríkjunum, Reuter. RÚMLEGA fimm hundruð Lithá- ar söfnuðust saman, sungu ættjarðarsöngva og hrópuðu „frelsi, frelsi“ á sunnudag af því tilefni að þá voru 48 ár liðin frá þvi að nasistar og Sovétmenn gerðu með sér sáttmála þann, sem leiddi til þess að Litháen var innlimað í Sovétrikin ásamt Eist- landi og Lettlandi. Um tvö þúsund manns mótmæltu i Riga, höfuðborg Lettlands, að þvi er haft var eftir sovéskum heimild- armönnum. í dagblaðinu Izvest- ia, málgagni sovésku stjórnar- innar, sagði að fáir hefðu tekið þátt i mótmælunum í Litháen og væri það vísbending um að áróð- ursherferð vestrænna fjölmiðla hafi mistekist. í dagblöðum var varað við því að hart yrði tekið á mótmælum, en fólkið hafði þær viðvaranir að engu og kom saman við kirkju heilagrar Ónnu í Vilnius, höfuðborg Litháens. Margir mótmælendanna báru sorg- arbönd á upphandleggjum í minn- ingu fómarlamba Jósefs Stalíns, sem var leiðtogi Sovétríkjanna þeg- ar Vyacheslav Molotov, utanríkis- ráðherra hans, og Joachim von Ribbentrop, utanríkisráðherra Þýskalands, undirrituðu sáttmálann 23. ágúst 1939. Sjónarvottur, sem kvaðst vera félagi í kommúnistaflokknum, sagði að mótmæli sem þessi hefðu verið óhugsandi áður en Mikhail Gorbac- hev Sovétleiðtogi hóf að framfylgja stefnu sinni um opnari fjölmiðlun. Haft var eftir sovéskum heimild- armönnum í Moskvu að tvö þúsund manns hefðu safnast saman í Riga, höfuðborg Lettlands. Hundrað lög- regluþjónar hefðu verið viðstaddir en ekki hefði skorist í odda. Sjá „Letta dreymir um . . .“ á miðopnu. fyrir að nýnasistar flykktust að, hefði verið útilokað að jarða Hess þar. Nokkrum klukkustundum áður hafði Alfred Seidl, lögfræðingur fjölskyldunnar, greint frá því í Munchen að Wolf-Riidiger, sonur Hess, hefði fengið hjartaáfall og lægi í gjörgæslu. Seidl kvaðst enn efast um að Hess hefði framið sjálfsmorð. Sagðist hann ætla að bíða úrskurðar lækna, sem krufðu Hess öðru sinni að ósk fjölskyldu hans. Nýnasistar hafa gert þessar efa- semdir að sínum og saka banda- menn um að hafa myrt Hess. Seidl neitaði aftur á móti alfarið að reynt hefði verið að gera Hess að píslar- vætti hægri öfgamanna: „Ef goðsögn verður til um Rudolf Hess eða hann verður gerður að píslar- vætti, þá er hvorki við ijölskyldu hans, né Vestur-Þjóðveija að sak- ast. Þá eru hemámsveldin fjögur sek vegna þess að þau vildu ekki láta Rudolf Hess lausan og leyfa honum að deyja hjá fjölskyldu sinni," sagði Seidl, sem varði Hess í Numberg-réttarhöldunum árið 1946. Mörg hundrað lögregluþjónar og verðir höfðu verið sendir til Wunsie- del til að gæta laga og reglu þegar Hess yrði jarðaður. Hafa axir, hnífar, kylfur og byssur verið gerð- ar upptækar og fyöldi manna var handtekinn. Presturlnn Peter Zeisler, sem átti að jarðsetja Rudolf Hess, þurrkar svita af brúnum sér á blaðamannafundi, þar sem Karl Walter, bæjar- stjóri Wunsiedel í Vestur-Þýskalandi, tilkynnir að Hess hafi verið grafinn á laun í kirkjugarði í öðrum bæ. Reuter
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.