Morgunblaðið - 25.08.1987, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1987
59
A *
SIS má ekki fá Utvegsbaiikaim
SÍS og fyrirtæki þess hafa mikið
vald. Svo segir í Staksteinum Morg-
unblaðsins um þau ummæli Tímans
um samvinnuhreyfinguna að hún
sé fjöldahreyfing sem starfað hefur
í landinu í meira en 100 ár.
SÍS er ekki að mínu mati það
sama og samvinnuhreyfingin. SÍS
er orðið auðhringur sem stjómar
fjölda atvinnufyrirtækja og hefur
vald á miklum hluta út— og inn-
flutnings landsmanna. SÍS hefur
ekki haft stjóm á kaupfélögunum
og lítið gert til að styðja þau, til
sveita að minnsta kosti, raunveru-
leikinn sýnir okkur það. í hundrað
ár hefur hvert kaupfélagið af öðru
farið á hausinn og ekki er langt
síðan það síðasta varð gjaldþrota.
SÍS kemur aldrei til hjálpar kaup-
félögunum nema það sjái sér sjálft
hag í því. Kaupfélögin em oftast
sett á hækjur undir nýju nafni eða
sameinuð öðmm stærri. Sem sagt,
sá stóri gleypir þann litla en bænd-
ur bera allan kostnað sem af
viðreisninni leiðir sem veldur hærra
vömverði og óhagstæðari viðskipt-
um fyrir þá og kveður svo rammt
að því að margir fara jafnvel til
Reykjavíkur til að versla.
Hér er því um litla hjálp frá SÍS
að ræða til annars en að koma í
veg fyrir að bændur losni undan
okinu. Stundum er dýrt að vera
fátækur.
Kaup SÍS á Útvegsbankanum em
ein hlið á þessari fíkn SÍS í völd í
fjármálaheiminum. Nái SÍS völdum
í þessum banka og fleirum með
sameiningu verður það mikið áfall
fyrir einkafyrirtæki og lánsmögu-
leikar þeirra skerðast. Þetta er gert
til að geta stillt þeim upp við vegg
eins og svo mörgum sem hafa leitað
til SÍS en verið vísað frá vegna
skoðana. Hvemig er líka hægt að
vita að SÍS setji ekki Útvegsbank-
ann á hausinn eins og flest önnur
fyrirtæki sem það hefur sett á lagg-
imar?
SÍS getur ekki verið það sama
og samvinnuhreyfingin, ef svo væri
hefðu flest kaupfélög og fjöldi fyrir-
tækja sem talist hafa undir stjóm
þess ekki orðið sjálfdauð. Það er
ekki samvinna þarna á milli, heldur
arðrán í viðskiptum. Þó að þeir telji
kaupmenn fá mikið fyrir sinn snúð
við verslun þá er SÍS—samsteypan
ekki betri hvað það snertir þegar
um verslun er að ræða, því að í
kaupfélögunum er yfirleitt hærra
vömverð en hjá kaupmönnunum,
það er sannreynt.;
SÍS má ekki fá Útvegsbankann.
Þorleifur Kr. Guðlaugsson
Ekki hugsað um aldraða
Vonbrigði
í ísbúð
Ég brá mér í ísbúð á Melunum
um daginn og keypti þar tvo mjólk-
urhristinga á 125 krónur hvom.
Það var miðaldra maður sem af-
greiddi mig. Nokkm áður hafði ég
komið og fengið mjög góða mjólkur-
hristinga þama en þá hafði ung
stúlka afgreitt mig.
Ég varð fyrir miklum vonbrigð-
um núna. Þetta vom verstu mjólk-
urhristingar sem ég hef smakkað.
Bragðvondir, þunnir og volgir.
Meira að segja dóttir mín þriggja
ára (en ég gaf henni annan) saug
aðeins einu sinni og vildi svo ekki
meira en hún er yfirleitt mjög sólg-
in í mjólkurhristinga.
Ég á ekki eftir að fara aftur í
þessa ísbúð. Ég hef oftast farið í
ísbúðina í Aðalstræti þegar mig
hefur langað í mjólkurhristing og
ætla að halda mig við hana í fram-
vegis. Þar hef ég alltaf getað verið
viss um að fá góða mjólkurhrist-
inga.
Þökk sé þeim fyrir að leggja sig
fram um að gera viðskiptavinina
ánægða.
Ein vonsvikin
Fróðleikur og
skemmtun
fyrir háa sem lága!
Ég skrifa í þeirri von að þessar
línur nái til þeirra sem þær em
helst ætlaðar. Ég beini orðum
mínum til þeirra sem Ríkissjón-
varpinu stjóma eða niðurröðun þess
efnis sem þar er sýnt. Ég tala fyrir
hönd eldra fólksins sem allir vilja
gera allt fyrir.
Það hefur verið svo nú um lengri
tíma að þær myndir sem fólk vill
yfirleitt helst horfa á em hafðar
það seint á kvöldin að eldra fólk
er orðið syfjað og þreytt og missir
því af því sem það hefði helst viljað
fylgjast með. Það væri tilvalið að
hafa dans— og söngvamyndir síðast
á kvöldin.
Ég vona að þessu verði þannig
háttað að það sem gleður og hefur
gildi fyrir alla verði sýnt fyrir klukk-
an 10 á kvöldin.
Nóg um þetta. Ekki vil ég enda
svo þessar línur að minnast ekki á
morgunsögur bamanna sem fluttar
hafa verið undanfarnar vikur og
mánuði, flestar þýddar. Hvers á
þjóðin að gjalda sem til þessa hefur
verið með fremstu söguþjóðum?
Mér finnst efnisvalið óviðeigandi
og lítt skiljanlegt, færir manninn á
óæðra svið.
Sagan sem nú er verið að lesa
er öfgakennd og efnisrýr. Hveijir
hlusta mest á morgunsögurnar? Það
er eldra fólk og farlama, enginn
hugsar um það enda em þetta
morgunsögur bamanna og á svo
að vera.
Ein sem hlustar
Þessir hringdu ...
Úrtapaðist
Sigurbjörg Jónsdóttir hringdi:
Hún tapaði úri að morgni föstu-
dagsins 21. ágúst á leiðinni frá
homi Frakkastígs og Njálsgötu og
upp Bjarnarstíg að Lokastíg 15.
Þetta er gyllt kvenúr með gylltu
armbandi. Ef einhver hefur rekist
á úrið er hann beðinn að hringja
í síma 17224.
Reykvíkingar versla
þar sem þeir vilja
H.J. hringdi:
„1 Tímanum þann 19. ágúst er
talað um að Morgunblaðið sé að
óþörfu að setja Pálma í Hagkaup-
um á stall oggera hann að dýrlingi.
Um leið er ýjað að því ,að hann
hafi staðið í vegi fyrir bættum kjör-
um almennings.
Fáar sögur fara af því að Pálmi
hafi reynt að slá sjálfan sig til ridd-
ara eða sóst eftir að hafa komist
í dýrlingatölu erí það þótti frétt-
næmt ekki fyrir löngu að aðrir
ágætir menn sem skyldari em
Tímanum og Samvinnuhreyfíng-
unni hefðu látið smíða af sér
styttur og það meira að segja í
landi sjálfs sólkonungsins og yrði
þeim reistur veglegur stallur í
framtíðinni. Væri nær að Tíminn
segði frá afdrifum þeirra.
Hvað viðvíkur því að Hagkaup
hafí dregið úr velmegun almenn-
ings er aðeins eitt að segja. Við
íslendingar eða að minnsta kosti
Reykvíkingar búum enn við fijálsa
verslun og þar að leiðandi fer hún
fram þar sem fólkið kýs helst.
Þess vegna er Kringlan orðin að
vemleika hvað sem líður hinum
40 — 50 þúsund áhrifalausu fé-
lagsmönnum sem SÍS gumar af
hvemig svo sem sú tala er fengin."
Veiðistöng tapaðist
Steinar Petersen hringdi:
„Fimmtudaginn 13. ágúst sl.
týndi ég tveggja handa grafít—
flugustöng. Hún týndist af bíl í
nágrenni Skaftafells f Öræfum.
Hún var í dökkbláum poka. Ef
einhver hefur rekist á hana er
hann beðinn að hringja í mig í
síma 11570 á vinnutíma."
Nægt vinnuafl á ís-
landi
Ein afskrifuð hringdi:
„Mig langar til að skamma þá
menn sem ætla að fara að flytja
inn erlent vinnufólk á meðan
vinnufúsir íslendingar sem hafa
unnið alla sína ævi en hafa nú
verið „afskrifaðir" ganga iðjulaus-
ir. Mér fínnst þjóðasrskömm að
þessu. Það er fjöldi fólks sem hef-
ur verið neytt til að hætta en hefur
bæði starfsþrek og starfsþjálfun."
Stóru
kaupin þarf
að vanda vel
BRADFORD homsófí.
230 cm x 295 cm. ,,
111.140
DALLAS homsófí.
225 cn x 280 cm.
xr.76.280
RAPID homsófí.
225 cm x 285 cm.
Kr.
113.390
PLUS homsófí.
225 cm x 280 cm.
Kr.
117.880
3QP/o u
„eI8rs«»«* ? ff“
húsgagna-höllin
GSEmm]
reykjavIk