Morgunblaðið - 20.09.1987, Side 2

Morgunblaðið - 20.09.1987, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1987 í Keflavík, sagði í erindi sem hann flutti á ráðstefnunni að þrátt fyrir ágæti þyrlunnar TF-SIF hefði hún sína veikleika. Hún tæki aðeins 8 menn sem þýddi að hún tæki ekki meðalskipshöfn. Flugþol hennar væri 480 sjómflur og hún hefði ekki afísingarbúnað sem setti henni mikil takmörk þegar hugsað væri Ráðstefna um öryggismál sjómanna: Keypt verði 24 manna björgunarþyrla með afísingartækjum Á RÁÐSTEFNU um öryggismál sjómanna sem haldin var á föstudag var samþykkt ályktun í umræðuhópi um öryggi fiskiskipa þar sem skorað er á ríkisstjórnina að nú þegar verði hafist handa um upp- byggingu skipulagðrar öryggis- og björgunarþjónustu sjómönnum til handa og útbúnar nýjar og fullkomnari björgunarþyrlur sem bera a.m.k. 24 menn og séu búnar afisingartækjum. Kristján Ingibergsson, skipstjóri til veðurfars á íslandi. Það væri því nauðsynlegt að Landhelgisgæslan fengi þyrlu sem gæti borið 24 menn, hefði 800 sjómflna flugþol og væri búinn fullkomnum afísingarbúnaði. Slíka þyrlu sagði Kristján kosta 3-400 milljónir króna. Hópurinn um öryggi fiskiskipa gerði það einnig að tillögu sinni að dráttarkarl svonefndur verði lög- leiddur í öll skip sem stunda netaveiðar og að staðsetningu ör- yggisloka verði breytt vegna breyttra forsenda með tilkomu dráttarkarlsins. Vakin er athygli á þeim vanda sem virðist vera að finna björgunargöllum geymslustað um borð í skipum. Er lagt til að fulltrúar hagsmunaaðila leiti sam- eiginlegra leiða til að fínna hentug- ar útfærslur. Einnig var lagt til að allir bátar verði skyldaðir til að vera málaðir í skærum lit t.d. á þaki eða brúarskyggni svo auðveld- ara sé að greina þá úr flarlægð og fylgjast með ferðum þeirra. í umræðum í hópi um öryggi smábáta kom fram það sjónarmið að til að stjóma smábátum niður í 6 m þyrfti sérstök skipstjómarrétt- indi, vélafræðslu og öryggisfræðslu. Til að hafa eftirlit með þessu væri nauðsynlegt að tengja þetta atriði lögskráningu báta allt niður í 6 m á lengd. Það kom fram þegar niðurstöður umræðuhópa vom kynntar á ráð- stefnunni að menn hafa áhyggjur af því að hlustun á veðurfregnir hafi farið minnkandi með fjölgun útvarpsrása. Kom sú hugmynd fram að leitað yrði samvinnu við allar útvarpsstöðvamar um að veð- urfregnum _ verði útvarpað frá Veðurstofu íslands á hefðbundnum tíma á öllum rásum. • • Okuþór: Uppsögn samn- inga ólögmæt FÉLAGSDÓMUR úrskurðaði s.l. föstudag með fjórum atkvæðum gegn einu að uppsögn bifreiða- stjórafélagsins Okuþórs á Sel- fossi á kjarasamningum væri ólögmæt. Ökuþór sagði upp kjarasamning- um 1. september á þeirri forsendu að ekki hefði verið gerður fast- launasamningur við félagið. Vinnu- veitendur töldu uppsögnina ólögmæta og höfðuðu mál fyrir Félagsdómi. Meirihluti dómsins komst að þeirri niðurstöðu að félag- inu skorti heimild til uppsagnarinn- ar og að kjarasamningur félagsins við vinnuveitendur væri í gildi til 31. desember. Meirihluta dómsins skipuðu Garðar Gíslason, borgardómari, Björn Helgason, saksóknari, Jónas Gústavsson, borgarfógeti og Gunn- ar Guðmundsson, en hann er skipaður í dóminn af VSÍ. í minni- hluta var Jón Þorsteinsson, skipað- ur af ASÍ. Hnífstungumálið á Dalvík: Árásarmaðurinn í farbanni MÁL Portúgalans, sem stakk ís- lending með hníf eftir dansleik á Dalvík, hefur verið sent ríkissak- sóknara. Portúgalanum hefur verið sleppt úr haldi, en hann var úrskurðaður í farbann þar til mál hans hefur verið afgreitt. Það var aðfaranótt laugardagsins 29. ágúst sem átök hófust milli mannanna eftir dansleik á Daivík. Portúgalinn stakk íslendinginn vinstra megin í bijóstið með hníf, en ekki hlaut hann mikil meiðsli af. Árásarmaðurinn var úrskurðaður í 14 daga gæsluvarðhald, en sleppt úr haldi viku síðar, þar sem málið var þá fullrannsakað. Rannsóknar- lögreglan á Akureyri sendi málið þá til bæjarfógetans á Akureyri, sem nú hefur sent það til ríkissaksókn- ara. Líklegt þykir að afgreiðslu málsins hjá ríkissaksóknara verði hraðað þar sem útlendingur á í hlut. Morgunblaöið/Bjami Að mörgu er að hyggja. Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra, starfsbróðir hans frá Dan- mörku, Lars Gammelgaard og forsætisráðherra, Þorsteinn Pálsson, skoða humar í lofttæmdum umbúðum frá Plastprenti. Sjávarútvegssýningin hafin Verður væntanlega staðfesting á þekkingu og frumkvæði Islendinga á sviði sjávarútvegs, sagði Halldór As- grímsson er hann setti sýninguna ÍSLENZKA sjávarútvegssýn- ingin hófst í gær að viðstöddu miklu fjölmenni. Halldór Ás- grimsson setti sýninguna formlega og sagði við það tæki- færi, að þátttaka íslenzkra fyrirtækja yrði væntanlega til að staðfesta frumkvæði þeirra og þekkingu á sviði sjávarút- vegs. Þetta er önnur alþjóðlega sjáv- arútvegssýningin, sem hér er haldin og er hún ein af þeim stærstu í heiminum. Sú fyrri var haustið 1984 og sýningin nú er þriðjungi stærri en þá. Þátttaka íslenzkra fyrirtækja hefur aukizt, en jafnframt sækja hingað bæjar- félög frá Bretlandi, Hollandi og Þýzkalandi til að leggja áherzlu á þörf sína á ferskum íslenzkum físki. Það ásamt örri framþróun og fáum, en markverðum nýung- um setja svip sinn á sýninguna. Við opnun sýningarinnar voru viðstaddir flestir íslenzku ráðherr- anna, borgarstjórinn í Reykjavík, Davíð Oddsson, og borgarstjórar, sendiherrar og fulltrúar fjölda ríkja. 22 þjóðlönd eiga fulltrúa á sýningunni og er íslenzki hópurinn langstærstur, um 130 fynrtæki af 460. Önnur áberandi þjóðlönd eru Danir, Norðmenn, Hollending- ar, Frakkar og Þjóðverjar. Boragarstjóri Grimsby, David Casswell, og kona hans á sjávarút- vegssýningunni í gær. Á milli þeirra stendur frú Smelt, varaborg- arstjóri Hull. Um 400 lausar stöður hjá Reykjavíkurborg: Hækka þyrfti laun um 10 til 20.000 á mánuði - segir Haraldur Hannesson formaður Star f smannafélags Reykjavíkurborgar UM fjögur hundruð starfsmenn vantar til starfa hjá Reykjavíkur- borg um þessar mundir að sögn Jóns G. Kristjánssonar starfs- mannastjóra. Þetta eru mun fleiri lausar stöður en á sama tima í fyrra og nánast i öllum starfs- greinum. Haraldur Hannesson formaður Starf smannaf élags Reykjavikurborgar telur að yfir- borgamir og spenna á almennum vinnumarkaði hafi áhrif á hversu illa gengur að manna stöðumar. „Það þyrfti 10 til 20.000 króna launahækkun á mánuði," sagði Haraldur. Á dagvistarstofnunum borgarinn- ar vantar um 80 starfsmenn, bæði fóstrur og ófaglært fólk. Á Borg- arspítalann vantar um 135 starfs- menn til að manna allar stöður og þar af vantar um 50 hjúkrunar- fræðinga, 30 sóknarstarfsmenn og 55 í önnur störf. „Þá vantar um 85 verkamenn en það er einungis tíma- bundið og úr sögunni í nóvember," sagði Jón. „Þetta er sama sagan og annars staðar þegar svona mikil spenna er á vinnumarkaðinum." Haraldur Hannesson sagði ástand- ið mun verra en áður hefði þekkst. „Starfsmenn koma og fara eftir stuttan tíma og ástæðan fyrir upp- sögnunum eru lág laun. Það fær hærri laun annarsstaðar. Það er ekk- ert leyndarmál að hingað hringir fólk sem segist ekki geta unnið sín störf ef launin verði ekki hækkuð," sagði Haraldur. „Ég tel að það mundi ekki breyta neinu þó að hér yrðu laun hækkuð um það sem við köllum launahækkun um einn til tvo launa- flokka, eða 3 til 6%. Það sem þyrfti er 10 til 20.000 króna launahækkun á mánuði eða 10 til 15 launaflokka hækkun.“ Haraldur sagði að þrátt fyrir allt tal um mikið launaskrið þá sitji tugir ef ekki hundruð opinberra starfsmanna fastir í neðstu launa- flokkunum. Samningstími gildandi kjarasamn- inga milli Reykjavíkurborgar og starfsmannafélagsins rennur út í árslok 1988 en endurskoðunarréttur er á kjarasamningunum um næstu áramót í samræmi við þá hækkun sem verður á almennum vinnumark- aði. Unnið á fjórum mink- um í bænum Húsavik. MEINDÝRAEYÐIR á Húsavik, Árni Logi Sigurbjörnsson, hefur unnið fjóra minka i bænum síðastliðna viku. Þann fyrsta í skýli björgunarsveitarinnar Garðars á Höfðanum og var það læða, næstu tvo við höfnina og þann fjórða um borð í bátnum Björgu Jónsdóttur og voru það allt yrðlingar. Árni Logi álítur að hér hafi „Qöl- skylda" verið á ferð og að læðan hafí átt greni í gijóturð í bakkanum sunnan við Þorvaldsstaðarána. Þeg- ar hann hafi unnið læðuna þá hafi yrðlingamir orðið villtir og tekið á rás og farið víða því það sé þeirra vani þegar þeir tapi af móðurinni. Nú sé bara að hafa gætur á því hvort yrðlingamir séu fleiri. — Fréttaritari Borgarstjórar frá Grimsby og Hull í heimsókn hérlendis HÉR á landi eru nú stödd i tengslum við íslensku sjávarútvegs- sýninguna, borgastjóri Grimsby og varaborgarstjóri Hull. Þau eru hér í boði borgastjóra Reykjavíkur ásamt forsetum borgar- stjóma og annars fylgdarliðs. Borgarstjóramir komu hingað til lands síðastliðinn föstudag og dvelja hér á landi til þriðjudags. Þau voru í gær viðstödd opnun sjávarútvegssýningarinnar í Laugardalshöll og snæddu kvöld- verð að Höfða í boði borgarstjóra. í dag munu þau meðal annars heimsækja Hitaveitu Reykjavíkur, Nesjavelli og vatnsaflsvirlq'unina að Irafossi. Á morgun munu svo borgarstjóramir meðal annars heimsækja fískmarkaðinn í Reykjavík. Að sögn forseta borgastjóma . Hull og Grimsby, þeirra Doyle og Bovill, er tilgangur heimsóknar- innar einkum sá að styrkja tengsl Reykjavíkur og fískiborganna tveggja. Viðskipti íslendinga skiptu þessar tvær borgir miklu og sköpuðu þar mikla atvinnu. Einnig væri heimsóknin liður í því að efla tengsl Grimsby og Hull innbyrðis. Báðar borgimar eiga bása á sjávarútvegssýningunni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.