Morgunblaðið - 08.10.1987, Page 15
v$?p.t HftHOT^TO .8 stttoacitttmmt'ít nipiA.TflíMTTnírov
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1987
15
undarleg reynsla sem presturinn
Duming hefur orðið fyrir í umdæmi
sínu upp með ánni Myrká á Amaz-
on-fljótasvæðinu. A nokkurra
mánaða fresti heimsótti hann Hor-
ton, einn trúboða sinna meðal
indíánanna, og vin. Hann hverfur
skyndilega af sjónarsviðinu og hinir
innfæddu hafa undarlegar sögur
að segja; að Horton hafi hitt „hnísu-
konuna ægifögru", getið með henni
bam og síðan orðið allur. Duming
leggur engan trúnað á þessi munn-
mæli fyrr en sögumar fara að
ágerast.
Að lokum lendir drengurinn í
höndum Dumings, eftir að móðir
hans hefur verið myrt af hvítum
mönnum. Nú taka við erfiðir tímar
fyrir náttúmbamið, sem þar að
auki á harma að hefna . . .
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Hestagöngin í Keflavík voru steypt í sumar og þess verður ekki
langt að bíða úr þessu að hestamenn fari að notfæra sér þau.
Keflavík:
Göng fyrir hestamenn
og reiðskjóta þeirra
Keflavík.
AÐALGATA var tengd við
Reykjanesbrautina fyrir ofan
bæinn i sumar. Við vegalagning-
una voru gerð göng fyrir hesta-
menn og reiðskjóta þeirra.
Göngin kostuðu um 900 þúsund
og voru hönnuð af Jóhanni Berg-
mann bæjarverkfræðingi.
Hestamennska á vaxandi vin-
sældum að fagna á Suðumesium
og hafa Keflvíkingar byggt upþ sitt
eigið hesthúsahverfi sem þeir kalla
Mánagmnd. Þaðan liggja reiðvegir
og var einn slíkur fyrir ofan bæinn
þar sem Aðalgatan var lögð.
Göngunum er ætlað að draga úr
slysahættu vegna ríðandi manna
og reiðskjóta þeirra. Göngin em það
breið, að ríðandi maður með tvo til
reiðar kemst þar hæglega um.
- BB
Þetta er geysilega falleg saga
og ekki síður vel sögð, þó svo að
„slow-motion“ tökur séu ofnotaðar.
Við okkur blasir böðulshendi hvíta
mannsins á þessu, eitt síðasta vígi
lífsandans á jörðinni. Hér er engu
eirt þegar gróðavonin er annarsveg-
ar og innfæddir drepnir eins og
hundar. Og drengurinn sem getinn
er af hinu geistlega yfirvaldi og
hinni forkunnarfögm dóttur náttúr-
unnar finnur hvergi frið annars
staðar en hjá vinum sínum í skógin-
um.
Mikill kraftaverkaleikari er Char-
les Duming. Hann dúkkar upp í
hinum ólíklegustu myndum og hlut-'
verkum og stendur sig undantekn-
ingarlítið með eindæmum vel. Hér
heldur hann myndinni mikið til á
floti með hlýjum og kraftmiklum
leik, það geislar af honum mann-
kærleikur svo að efniviðurinn fær
nauðsynlegan raunvemleikablæ
fyrir vikið. Ungu drengimir tveir
sýna einnig ágætan leik og fmm-
skógarmóðirin er fögur. En myndin
er Durnings.
Félag fata-
og textíl-
hönnuða
heldur
sýningn
FAT, félag fata- og textílhönn-
uða, heldur sína fyrstu samsýn-
ingu í íslensku óperunni dagana
9., 10. og 11. október. Þar gefst
almenningi kostur á að sjá fatnað
liannaðan af átján íslenskum
fata- og textílhönnuðum. Sýning-
arfólk frá Model ’79, Modelsam-
tökunum og Kramhúsinu sýna
fatnaðinn ásamt nokkrum börn-
um og fleirum.
FAT, félag fata- og textílhönn-
uða, var stofnað 19. júni 1986 og
em félagar þess nú 27 talsins.
Stjórn félagsins skipa Eva Vil-
helmsdóttir formaður, Birna
Þómnn Pálsdóttir ritari og Sigrún
Guðmundsdóttir (Sifa) gjaldkeri.
Meðstjómendur em Þórdís Krist-
leifsdóttir og Hulda Kristín
Magnúsdóttir.
I fréttatilkynningu frá FAT segir
að sýningar þessar séu fyrsta sam-
eiginlega átak félagsins, en ætlunin
sé að gera þær að árlegum við-
burði. Tilgangurinn með sýningun-
um sé að vekja athygli almennings
og forráðamanna íslensks iðanaðar
á þeirri orku og hæfileikum sem
íslenskir fatahönnuðir búa yfir.
Fýrsta sýningin sem er kl. 21 á
föstudagskvöldið er aðeins fyrir
boðsgesti, en laugardaginn 10.
október og sunnudaginn 11. októ-
ber kl. 16 báða dagana em sýning-
arnar öllum opnar. Miðasala verður
opin frá kl. 14 og er verðinu stillt
í hóf, eins og segir í fréttatilkynn-
ingunni.
LANDSINS MÝKSTA KAFFIDÓS
Það er góð hugmynd, að geyma kaffið
í Merrild-pokanum, því að hluti af
angan og bragði kaffisins tapast, ef
þú hellir því úr pokanum í kaffidós.
Ef þér finnst best að geyma kaffið
í sérstakri kaffidós, þá settu
Merrild-pokann í dósina og á þann
hátt, tryggir þú að kaffið haldi
ilm sínum og bragði betur.
Merrild-gæðakaffi, sem bragð er af,
enda framleitt úr bestu fáanlegum
kaffibaunum frá Brasilíu, Kólumbíu
og Mið-Ameríku.
MmiM
setur brag á sérhvern dag.
-