Morgunblaðið - 08.10.1987, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1987
Hvalurinn, Haraldur og
Sj álfstæðisflokkurinn
eftirBjörn
Bjarnason
Haraldur Blöndal, lögfræðingur,
er einn af forystumönnum Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavík. Hann
er varaborgarfulltrúi og formaður
umferðamefndar Reykjavíkur.
Eins og umferðarmálum eða öllu
heldur umferðarhnútum í höfuð-
borginni er komið, ætti það að
vera fullt starf kjörins fulltrúa
Sjálfstæðisflokksins jafnhliða lög-
fræðistörfum að leita að farsælum
leiðum út úr öngþveitinu. Er ekki
vafi á því, að umferðarmálin á eft-
ir að bera hvað hæst í næstu
borgarstjómarkosningum. Þau
eiga líklega eftir að ráða úrslitum
um huga stórs hluta borgarbúa til
þeirra, sem valdir hafa verið til
forystu. Hvílir því mikil pólitísk
ábyrgð á umferðamefnd og form-
anni fyrir utan þau störf, sem
nefndin á að sinna samkvæmt
umboði sínu og reglum borgarinn-
ar. Haraldur Blöndal hefur þó fleiri
jám í eldinum, hann ritar meðal
annars dálka í DV. Kemur hann
víða við í skrifum sínum en gerir
þó lítið af því að skrifa um um-
ferðarmál og áhrif þeirra á stöðu
Sjálfstæðisflokksins meðal kjós-
enda í Reykjavík. Er Haraldi
vafalaust þannig farið eins og fleiri
borgarfulltrúum og sjálfstæðis-
mönnum, að þeir setja traust sitt
á Davíð Oddsson borgarstjóra og
frammistöðu hans.
Hvalveiðar em meðal þeirra
mála, sem Haraldi Blöndal eru
sérlega hugleikin og hefur hann
ritað marga pistla um nauðsyn
þeirra í DV. Er svo sem ekkert við
það að athuga en hinn 2. október
síðastliðinn fer hann út fyrir þau
mörk, sem ætla verður, að sá, sem
skipar trúnaðarstöður á vegum
Sjálfstæðisflokksins virði. Þann
dag birtist grein eftir Harald, sem
ber yfírskriftina: Sjálfstæðisflokk-
urinn viðskila við nafn sitt. Þar
ræðir hann um útkomu Sjálfstæð-
isflokksins í tveimur nýlegum
skoðanakönnunum, sem sýna að
vísu fylgisaukningu miðað við
kosningamar í apríl, en fylgi
flokksins hefur minnkað milli þess-
ara kannana og telur Haraldur að
þann samdrátt megi rekja til þess,
að „almenningur hafði það á til-
fínningunni að forustumenn
flokksins fylgdu ekki nógu fast
eftir íslenskum málstað í hvalamál-
inu“. Er grein Haralds um það, að
í þessu tilliti hafí tilfínning almenn-
ings verið rétt.
Röksemdafærsla Haralds bygg-
ist á gamalkunnum fullyrðingum
um að íslendingum sé unnt að
skipta í „góða“ og „vonda" vegna
hvalamálsins. Sjálfur telur hann
sig til hinna „bestu", þar sem hann
vill veiða hval, hvað sem það kost-
ar. Haraldur hefur uppi ómerkileg-
ar dylgjur um Eyjólf Konráð
Jónsson, formann utanríkismála-
nefndar Alþingis. Þá ræðst Harald-
ur á Morgunblaðið og segir, að
„stefna blaðsins [í hvalamálinu]
virðist mótast af því að ekki megi
styggja Bandaríkjamenn á nokk-
um hátt“. Haraldur Blöndal hælir
hins vegar formanni Framsóknar-
flokksins sem mest hann má og
heldur fast í þá órökstuddu skoð-
un, að lausn hvaladeilunnar sé að
rekja til þeirrar ákvörðunar
Steingríms Hermannssonar að
hitta ekki dr. Calio og sendinefnd
Bandaríkjanna í Ottawa hinn 9.
september síðastliðinn. Loks ræðst
Haraldur að sjálfsögðu að Banda-
„TvÍBklnnungsháttur Bandarlk|am«nna er avo öllum Ijoa. Peir naia Dariai lyrir pvi ao
aö draga gráhval en aú hvalategund er I hvaö mestrl útrýmlngarhaattu.‘‘
Sjálfstæðisflokkurinn
viðskila við nafn sitt
Tvær skoöanakannanir hafa veriö
geröar á fylgi flokkanna undanfam-
ar vikur og hafa menn rætt nokkuö
um þær, ma. i samhengi viö þá
þriöju, sem var um fylgi aLmennings
viö vamarliöiö. Menn hafa tengt
minnkandi fylgi viö veru bandaríska
vamarliösins viö hvalamáliö og
framkomu Bandaríkjamanna þar.
Ekki er nokkur vafl á því aö þessi
tilgáta er rétt.
Ymsir hafa sagt aö þaö væri háska
legt aö íslendingar tengdu saman
svo óskyld mál sem hvalveiöar og
vamarliö. Hvaöa máli skipta 20
sandreyöar gagnvart vömum lands-
ins? spyr ritari ReyKjavíkurbréfs. í
sjálfu sér engu. enda snýst máliö
alls ekki um þaö Þaö sem málið
snerist um var hvort Bandaríkja-
—■—ÉMftu ifi rnfii íriöskiniahann
viöskila viö nafn sitt. Sjálfstæöis-
menn hafa vanist því aö forustu
menn flokksins gangi uppréttir og
sjálfstæöismenn skflja ekki hvaö
mönnum gengur til sem eru tilbúnir
aö fóma öllu ef vamarliöið er ann-
ars vegar. Þaö má nefna þrjú dæmi:
1. Bandaríkjamenn draga til sin
flutninga til vamarliösins og beita
fyrir sig lögum frá því um alda
mót Þessi háttsemi á stóran þátt
í því aö Hafskip fer á hausinn.
Þegar íslendingar beija í boröiö
draga Bandaríkjamenn í land og
lögin eru ekki lengur til fyrirstööu
því aö flutnL igamir séu í höndum
íslenskra skipafélaga.
2. Bandarikjamenn hafa flutt inn
mat til vamarUösins. Þeir neita
Kjallarirm
Haraldur Blöndal
lögfraölngur
ríkjamönnum og segir, að við-
skiptabann sé „mjög harkaleg
aðgerð, óvinaaðgerð að alþjóða-
rétti".
Lítum nánar á þessar fullyrðing-
ar eins af trúnaðarmönnum Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavík.
1. Morgunblaðið hefur bent á
tvískinnung Bandaríkjamanna,
þegar hvalveiðar eru annars vegar.
Blaðið hefur mótmælt því, að
Bandaríkjamenn taki að sér eins-
konar lögregluhlutverk fyrir
meirihluta í Alþjóðahvalveiðiráð-
inu. Á hinn bóginn hefur blaðið
jafnframt varað íslenska ráðamenn
við því að fóma meiri hagsmunum
fyrir minni í hvalamálinu. Haraldur
Blöndal les Morgunblaðið á þann
veg, að sé það ekki sammála mál-
flutningi hans og styggi hann sé
blaðið sammála Bandaríkjamönn-
um og vilji ekki styggja þá.
Haraldur viðurkennir ekki, að til
sé önnur skoðun á hvalamálinu en
sín og hinna harðsvíruðustu í
Bandaríkjunum.
2. Aldrei hefur legið fyrir, að
Bandaríkjaforseti ætlaði að setja
viðskiptabann á íslendinga vegna
hvalveiða. Á hinn bóginn hefur
verið á döfínni hjá viðskiptaráðu-
neyti Bandaríkjanna að senda
svonefnda staðfestingarkæru til
Bandaríkjaforseta. Ráðuneytinu
ber samkvæmt bandarískum lög-
um að senda slíka kæm, ef brotið
er gegn þessum lögum til dæmis
með óhóflegum hvalveiðum. Bæði
1986 og 1987 tókst með samkomu-
lagi milli ríkisstjóma íslands og
Bandaríkjanna að hindra að þessi
staðfestingarkæra yrði send. Har-
aldur Blöndal og skoðanabræður
hans segja óhikað, að Bandaríkja-
menn hafí „ætlað" að setja við-
skiptabann á ísland. Þetta er með
öllu órökstutt. Þeir sem gerst
þekkja telja þvert á móti mjög
vafasamt, að Ronald Reagan,
Bandaríkjaforseti, hefði staðfest
kæm viðskiptaráðuneytisins, en
staðfesting forsetans hefði leitt til
viðskipta- og efnahagsþvingana.
3. Samningsstaða Haralds
Blöndal og skoðanabræðra hans
gagnvart Bandaríkjamönnum er
slæm, þegar þeir hafa sett allt á
oddinn vegna hvalamálsins. Þegar
menn hafa kallað Úlfur! Úlfur! oft
og oftast af litlu tilefni, fer svo
að lokum, að ekki verður mark á
þeim tekið. Að skjóta öllum málum,
sem upp koma í samskiptum okkar
við bandalagsríkin innan Atlants-
hafsbandalagsins undir ákvæði
vamarsamningsins, er annars veg-
ar óskynsamlegt en sýnir á hinn
bóginn að gildi samningsins er mun
meira en orð hans sjálfs segja.
Með því að reka hvalamálið af
þeirri hörku, sem Haraldur Blöndal
krefst, er verið að gera lítið úr
öryggishagsmunum íslendinga um
leið og sagt er, að þeir séu skipti-
mynt. Jafnframt vakna spumingar
eins og þessar: Hvemig líta þessir
menn á samninga almennt? Em
þeir jafnan til þess búnir að leggja
allt undir? Er unnt að treysta for-
ræði þeirra manna í samskiptum
við aðrar þjóðir, sem ekki em fær-
ir um að setja mál í forgangsröð
og gera upp á milli þeirra eftir
hlutlægu mati og mikilvægi?
Dagvistun bama
2. grein
eftírSelmu
Júlíusdóttur
í síðustu grein minni fjallaði ég
aðallega um fyrirgreiðslu til fólks
í þjóðfélaginu. Götin á almennings-
sjóðspokanum okkar em miklu
fleiri en mig gmnaði. Það er eins
og með götin í skattakerfínu. Þeir
sem em næmir á að fínna þau fá
í sinn hlut dijúgan pening.
Kvenréttindafélag íslands hélt
fund 2. október um nýjar leiðir í
dagvistun. Þetta var eins og áður
á þeim opnu borgarafundum sem
ég hef sótt um þessi mál. Þetta
var aðallega pólitískur stjómmála-
fundur, þar sem bamið, flölskyldan
og hagur þeirra skipti afskaplega
litlu máli. Þeir, sem reyndu að
koma þvf að, dmkknuðu í málflutn-
ingi Alþýðubandalagsins og
Kvennalistans, sem hugsa aðallega
um arðsemina og það, sem hægt
er að kreista út úr foreldrunum,
það væri tómt mál í nútímaþjóð-
félagi að tala um arðsemi heima-
vinnandi húsmóður. Kannast
einhver við þetta?
Þó að ég hafí oft hlýtt á mál
þeirra áður fékk ég samt meiri
háttar áfall í þetta sinn og langar
að skýra ykkur frá hvers vegna.
Ung kona stóð upp og spurði
Kristínu Ólafsdóttur hvað fóstmr
fengju í laun á Ósi, dagheimili for-
eldra? Hver kostnaður á hvert bam
væri og hvað hún borgaði sjálf
mikið af þeim kostnaði fyrir bam
sitt? Kristín svaraði: „Ég veit ekki
með vissu hvað þær em mikið yfír-
borgaðar. Ég held þremur launa-
flokkum hærri, en þær fá ekki
heldur þau hlunnindi sem fóstmr
Reykjavíkurborgar fá. Kostnaður
á hvert bam á mánuði nú er 22.000
krónur og ég borga af því 13.000
krónur, en það er samt minna en
ég mundi borga dagmóður.
Ég missti andann, hvað var þessi
opinberi embættismaður að bera á
borð fyrir okkur? Hann hældi sér
af því að hann gæti náð í 9.000
krónur á mánuði í okkar vasa til
að borga með dagvistargjald bams
síns, og þar með fengið 22.000
króna dagvistun fyrir það. 9 tíma
vist hjá dýmstu dagmóður með
fullu fæði er 13.383 krónur. Hug-
leiðum þetta vel.
Það kom einnig fram að hag-
fræðingur þjóðhagsstofnunar hafði
reiknað út að pláss á dagheimilum
borgarinnar nú væri 24.000 krónur
á bam en forgangshópar greiða
af því 4.160 krónur. Það kom fram
í máli Sigurðar Snævarr á þessum
fundi að gmnur væri á töluverðum
„dagheimilisskilnuðum". Því get
ég vel trúað. Með skilnaði er hægt
að ná í gegnum sjóðsgatið og
næla sér í allt að 20.000 krónur
úr pokanum á mánuði. Góður lottó-
vinningur það.
Inga Jóna Þórðardóttir setti upp
dæmi til umhugsunar fyrir fundar-
menn, hve misræmið er milli
einstaeðs foreldris annars vegar og
lálauna hjóna hins vegar.
Einstætt foreldri með tvö börn:
Laun 38.000 krónur á mánuði,
456.000 á ári. Bamabætur á ári
211.000 krónur með meðlagi.
Greitt í dagheimilisgjöid 91.250
kr. (8.320 á mán.). Ráðstöfunarfé
fyrir utan skatta 575.750 kr. Ráð-
stöfunarfé á hvem fjölskylduaðila
191.917 krónur.
Hjón með tvö böm: Laun 38.000
krónur hvort á mánuði, 912.000
krónur á ári. Bamabætur á ári ca.
65.500 krónur. Borgað til dagmóð-
ur 294.426 kr. (25.766 á mán.).
Ráðstöfunarfé fyrir utan skatta
683.073 kr. Ráðstöfunarfé á hvem
fjölskylduaðila 170.768 krónur.
Ég bið fólk utan Reykjavíkur
innilega afsökunar á því að ég tala
um þess mál eins og þau eru í
Reykjavík. Það er ekki vegna þess
að böm og umhverfí þeirra þar séu
þau einu á landinu. Bömin eru öll
jafn mikilvæg hvar sem þau búa.
Ég hef bara ekki aðstæður til að
ná í gögn frá öllu landinu, svo að
í bili vinn ég úr þeim gögnum sem
em mér handbær. Seinna vona ég
að ég geti unnið frá breiðari grund-
velli.
Nú ætla ég að venda mínu kvæði
í kross og taia um málið út frá
baminu og umhverfí þess. Sem
sagt aðalmálið.
Selma Júlíusdóttir
„Leyfum ekki stjóra-
málamönnum að velta
sér upp úr vandamálinu
sjálfum sér til fram-
dráttar, setjumst niður
og finnum lausn sem
gæti komið fljótt.“
Böm 0 til 6 ára á öllu landinu
eru 24.738, 6 til 10 ára böm eru
16.812. í Reykjavík eru 0 til 6 ára
böm 8.520 og 6 til 10 ára 5.584.
Skráðar dagvistir hjá Dagvistun
Reykjavíkurborgar áramótin
1986/87: Dagheimili: 1.156 pláss;
leikskóli: 2.473 pláss; skóladag-
heimili: 242 pláss; dagvistun á
einkaheimilum 0 til 6 ára 997
pláss; skólaböm: 176 pláss í dag-
vistun á einkaheimilum.
Hvar em öll 6 til 10 ára bömin
á daginn utan skólatíma? Það er
að segja þau böm sem ekki eru
svo lánsöm að eiga heimavinnandi
foreldri. Er þetta orsökin fyrir ör-
yggisleysi margra bama sem nú
veltast helgi eftir helgi í eigin spýju
í miðbæ Reykjavíkur fyrir hunda-
og mannafótum ósjálfbjarga vegna
vímuefna? Þama er fyrst og fremst
verkefni sem við verðum að taka
höndum saman um að leysa strax.
Það getur ekki beðið. Leyfum ekki
stjómmálamönnum að velta sér
upp úr vandamálinu sjálfum sér
til framdráttar, setjumst niður og
fínnum lausn sem gæti komið
fljótt. Ef að skólar, þjóðkirkjan
og borgarstjóm tækju höndum
saman þá álít ég að það sé nóg
húsrými í bænum sem hægt er að
nýta til þessa verkefnis án þess
að velta margmilljónum. Víkjumst
ekki undan þessari ábyrgð leng-
ur.
Dagvistarform á íslandi em eft-
irfarandi í dag: Dagheimili og
leikskólar á vegum sveitarfélaga,
dagvistun á einkaheimilum, dag-
heimili á vegum einstaklinga,
dagvistunn foreldrafélags. Dag-
heimili á vegum fyrirtækja hafa
verið reynd en ég veit ekki um
starfrækslu slíks heimilis í dag,
dagheimili fyrir starfsmenn á
sjúkrahúsum eru starfrækt.
Mun ég síðar ræða um kosti og
galla dagvistarforma.
Höfundur hefur rekið föndur-
skóla og einkadagvistun f 20 ár.