Morgunblaðið - 08.10.1987, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1987
23
Rauður þráður í málflutningi
Haralds Blöndal og skoðana-
bræðra hans er, að þeir setja
ávallt fram skoðanir sínar með
þeim formerkjum, að ekkert við-
horf annað sé í samræmi við
íslenska hagsmuni. Það er til dæm-
is allt of mikil einföldun að líta
þannig á, að í hvalamálinu séu
bandarísk stjómVöld óvinurinn
eini. Ráðamenn í Washington eru
í raun í vöm gagnvart harðskeytt-
um hópum umhverfís- og náttúru-
vemdarsinna. Hópum sem hafa
áhrif af því að þeir helga sig einu
máli í senn með markvissum að-
gerðum. Þeir átta sig á andstæð-
ingi sínum og beina öllum spjótum
á hann af sömu hörku og Haraldur
og félagar hans. Hvalavinir festu
sig við byssur hvalbáts í Hvalfirði
til að leggja áherslu á málstað sinn.
Haraldur og félagar vildu festa sig
við vamarliðið og F-15 orrustuþot-
ur þess.
Ef það er til marks um, að Sjálf-
stæðisflokkurinn sé orðinn viðskila
við nafn sitt, að Morgunblaðið end-
urspeglar ekki skoðanir Haralds
Blöndal, varaborgarfulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins og formanns
umferðamefndar, í hvalamálinu,
er það mál, sem Haraldur verður
að reka á vettvangi flokksins. Ég
hef litið þannig á, að þeir, sem
kjömir em í trúnaðarstörf á vegum
Sjálfstæðisflokksins hafí skyldum
að gegna fyrir flokkinn og gagn-
vart umbjóðendum hans; þeir ættu
frekar að hlú að sámm en strá í
þau salti. Þeir sem lagt hafa stund
á hvalskurð em greinilega ekki
sömu skoðunar. Þeir geta auðveld-
lega skorið á tengsl fólks við
flokkinn.
í öllum flokkum em til frammá-
menn, sem telja það nokkurs virði
að skemmta andstæðingum flokka
sinna. Greinar Haralds Blöndal í
DV hafa að jafnaði snúið þannig
að mér, að hann vilji öðrum þræði
vera skemmtikraftur. Á stundum
kámar gamanið. í hvalamálinu
hefur Haraldur Blöndal gerst of-
fari, þegar hann vænir samherja
um að vera ekki „góða“ íslend-
inga. Vonandi leiðir hann ekki
Sjálfstæðisflokkinn frá kjósendum
sínum þannig að flokkurinn verði
viðskila við þá í hinu pólitíska
umferðaröngþveiti.
Tónlistarhátíð
ungs fólks á
Norðurlöndum:
Sex ís-
lensk verk
verða vaUn
SEX íslensk verk verða valin til
flutnings á Tónlistarhátíð ungs
fólks á Norðurlöndum sem hald-
in verður í Osló dagana 14.-21.
ágúst á næsta ári.
Tónlistarhátíð ungs fólks á
Norðurlöndum er haldin árlega í
einhveiju Norðurlandanna. Á
þessu ári var hátíðin haldin í
Reykjavík. Tilgangur hátíðarinnar
er að örva ung norræn tónskáld
til starfa og koma verkum þeirra
á framfæri.
Aðeins verða valin verk eftir
tónskáld sem fæddust á árinu
1958 eða síðar. Ætlast er til að
þau tónskáld, sem fyrir valinu
verða, taki þátt í hátíðinni, geri
m.a. grein fyrir verkunum og fylg-
ist með flutningi þeirra. Ferðir og
gisting verður greidd fyrir þá þátt-
takendur sem eiga verk sem verða
valin.
Tekið er við hvers konar verk-
um: Hljómsveitar-, kammer-,
einleiks- og rafverkum. Dómkór-
inn í Osló verður meðal þátttak-
enda og eru því kórverk vel þegin.
Skilafrestur er til 1. janúar 1988
og skulu verkin send Tónskáldafé-
lagi íslands.
OTDK
HUÓMAR
BETUR
Háir vextír
Grunnvextir á Kjörbók
eru nú 24% á ári og leggjast þeir við
höfuðstól tvisvar á ári.
Ef innstæða, eða hluti hennar,
hefur legið óhreyfð í 16 mánuði
hækka vextir í25,4%
og í 26% eftir 24 mánuði.
Þrepahækkun þessi er afturvirk,
hámarks ársávöxtun er því allt að
27,7% án verðtryggingar
Verðtrygging
Á 3ja mánaða fresti er ávöxtun
Kjörbókarinnar borin saman við
ávöxtun 6 mánaða bundinna
verðtryggðra reikninga.
Reynist ávöxtun verðtryggðu
reikninganna hærri ergreidd uppbót
á Kjörbókina sem því nemur.
Örugg
og óbundin
Prátt fyrirháa vexti og verðtryggingu
er innstæða Kjörbókar alltaf laus.
Vaxtaleiðrétting við úttekt er 0,8%,
en reiknastþó ekkiafvöxtum tveggja
síðustu vaxtatímabila.
Kjörbókin erbæði einfaltog öruggt
sparnaðarform.
L
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna