Morgunblaðið - 20.10.1987, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1987
53
Eftir stríð gerðist Marteinn skip-
stjóri á bv. Garðari, og var hann
aðili að útgerð skipsins ásamt As-
geiri Guðnasyni á Flateyri. Er hér
var komið, fóru fyrstu nýsköpunar-
togaramir, sem byggðir voru fyrir
íslendinga í Bretlandi, að koma til
landsins, hinn fyrsti bv. Ingólfur
Amarson kom 17. febrúar 1947,
og síðan kom hver af öðrum, unz
þeir voru orðnir 32, sem var sá
fjöldi, er byggður var í fyrri lotu.
Eldri skipin voru mörg seld til
Færeyja. Meðal þeirra var bv.
Vörður frá Patreksfirði og sigldi
Marteinn skipinu til Færeyja og
var fiskiskipstjóri á skipinu í eitt
ár. í Færeyjum eignaðist Marteinn
marga vini og kunningja, sem hann
hélt sambandi við um árabil.
Minntist hann Færeyjardvalarinn-
ar oft með mikilli ánægju. En
hugurinn stefndi heim til Islands
og er honum bauðst skipstjóra-
staða á bv. Bjama riddara, sem
gerður var út af útgerðarfyrirtæk-
inu Akurgerði hf., Hafnarfirði,
kom hann heim og tók við skipinu.
Þar var Marteinn lengi, eða lengur
en á nokkm öðru skipi, allt til árs-
ins 1956. Marteinn fískaði vel á
Bjama riddara, hélzt vel á mann-
skap var farsæll. Að lokinni
skipstjóm á bv. Bjarna riddara
starfaði hann um hálfs árs skeið
sem verkstjóri hjá Fiski hf. í Hafn-
arfirði.
Árið 1957 ræðst Marteinn svo
til Bæjarútgerðar Reykjavíkur og
verður skipstjóri á bv. Þorkeli
mána. Þar famaðist Marteini vel
sem annarsstaðar og skilaði ætíð
miklum afla í land. Á þessum ámm
stunduðu íslenzku togaramir mikið
karfaveiðar á miðum, sem fundist
höfðu við Nýfundnaland, og var
bv. Þorkell máni við veiðar á Ný-
fundnalandsmiðum í febrúar 1959,
er svokallað Nýfundnalandsveður
skall á. Bæði var sjór mjög kaldur
og veður afspymuvont. Þannig að
hver dropi, sem kom innfyrir borð
var að ísingu. Lenti áhöfn bv. Þor-
kels mána þar í miklum raunum
ásamt áhöfnum fleiri skipa. Togar-
inn Júlí frá Hafnarfirði var á sömu
slóð og fórst með þeim hörmulegu
afleiðingum að tugir íslenzkra sjó-
manna létu lífið. I þessu veðri var
baráttan um líf eða dauða. Við
þessar erfiðu aðstæður hvatti Mar-
teinn menn sína ákaft og var
ísingin barin linnulaust af skipinu
með öllum tiltækum ráðum, daví-
ður og fleiri þungir hluti á báta-
dekki voru logskomar burt og
varpað fyrir borð til þess að létta
skipið, en það var orðið svo þungt
að að maraði í hálfu kafí. Með
samtaka aðgerðum áhafnar og
skipstjómarmanna tókst að halda
skipinu á floti, þar til veður lægði
og hægt var að létta skipið meira.
Fyrir þessa frækilegu framgöngu
hlaut Marteinn mikið lof skipveija
sinna.
Síðar á árinu 1959 lætur Mar-
teinn af skipstjóm, kemur í land
og verður frystihússtjóri í Fiskiðju-
veri Bæjarútgerðar Reykjavíkur,
en á því árið hafði BUR keypt
Fiskiðjuver ríkisins. Þar sá Mar-
teinn um daglegan rekstur físk-
Blömastofa
Friðfinns
Suöurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öllkvöld
til kl. 22,- eínnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
' Gjafavörur.
*3*
iðjuversins og varð ákaflega
vinsæll af samstarfsmönnum
sínum. En sjómennskunni var ekki
alveg lokið, því Marteinn fór af og
til veiðiferðir með þáverandi flagg-
skipi Bæjarútgerðarinnar, bv.
Þormóð goða, sem byggður var
árið 1959 hjá AG. Wesser Werft
Seebeck í Bremerhaven. Marteinn
smekkfyllti skipið hveiju sinni og
var sem fyrr ákaflega farsæll í
skipstjóm sinni.
Arið 1964 gerist Marteinn fram-
kvæmdastjóri BÚR, er Hafsteinn
Bergþórsson lét af störfum, fyrir
aldurs sakir, og starfaði sem fram-
kvæmdastjóri allt til ársloka 1981,
eða lengur en nokkur annar, er
gengt hefur þessu vandasama
starfí til þessa. Á þessum árum
voru framkvæmdastjórar ætíð
tveir, enda rak fyrirtækið þá mikla
saltfískverkun, myndarlega skreið-
arverkun og síldarverkun, auk
reksturs togaranna og fískiðju-
versins. Lengst starfaði Marteinn
með Þorsteini Amalds, sem hafði
tekið við af Jóni Axel Péturssyni,
er hann gerðist bankastjóri Lands-
banka íslands árið 1961, eða til
ársins 1975. Sá er þessar línur rit-
ar starfaði með öllum þessum
mönnum, sem allir vom sannir
heiðursmenn. Var það góður skóli
og mjög lærdómsríkur tími._ Síðar
starfaði Marteinn með Ásgeiri
Magnússyni og Einari Sveinssyni
núverandi framkvæmdastjóra
Fiskmarkaðarins í Hafnarfírði.
Á árunum 1982 til 1985 starf-
aði Marteinn sem sérstakur
ráðunautur hjá BÚR, en hafði þá
náð fullum starfsaldri. En hann
vildi ekki sitja auðum höndum og
hóf á sama ári störf í söludeild
Hampiðjunnar hf. í Reykjavík. Þar
starfaði Marteinn hálfan daginn
allt fram á þetta ár.
Marteinn var tvíkvæntur og var
fyrri kona hans Agla Þórunn Egils-
dóttir, Þorlákssonar skipstjóra frá
Ráðagerði á Seltjamamesi. Mar-
teinn og Agla kvæntust árið 1940,
en Agla lézt langt um aldur fram
21. júní 1959, eftir langvarandi
veikindi. Þá vom erfiðir tímar hjá
Marteini, en hann syrgði konu sína
mjög. Þau eignuðust eina dóttur
bama, Öglu Mörtu, fædda 1941,
en hún er kvænt Stefáni Gunnars-
syni flugstjóra, en Stefán er
sonarsonur Ásgeirs Guðnasonar,
sem gerði út bv. Garðar ásamt
Marteini frá Flateyri uppúr
stríðslokum. Börn þeirra Öglu og
Stefáns em Marteinn, fæddur
1962 og Gunnar Valur fæddur
1972.
Síðar kona Marteins var Helga
Guðnadóttir, smiðs í Stykkishólmi.
Helga og Marteinn gengu í hjóna-
band í febrúar 1962. Þeirra bam
er Jóhanná Halldóra, fædd 1965,
sambýlismaður Jóhönnu er Smári
Hilmarsson, laganemi, og eiga þau
einn son, Martein Inga, fæddan
1986. Auk þess gekk Marteinn
dóttur Helgu, Hafdísi Magnús-
dóttur, í föðurstað, og ólst hún upp
á heimili Marteins og Helgu.
Hafdís á eina dóttur, Helgu
Bryndísi, fædda 1986. Helga lézt
í árslok 1979 og aftur vom erfiðir
tímar hjá Marteini Jónassyni, sem
hafði nú séð á eftir tveimur eigin-
konum. Marteinn og Helga höfðu
eignast yndislegt heimili að Kjal-
arlandi 17 í Fossvogsdal, þar sem
þau undu sér áfkaflega vel. Mar-
teinn hélt heimilið áfram ásamt
dóttur sinni og stjúpdóttur og var
sambýlið með mikl'um ágætum.
Marteinn var í eðli sínu félags-
lyndur maður, átti ákaflega
auðvelt með að umgangast aðra
og varð vinsæll og vellátinn meðal
samferðarmanna sinna. Því valdist
hann til ýmissa félagsstarfa. Hann
sat um árabil í stjóm Síldar- og
fiskimjölsverksmiðjunnar _ Kletts
hf., var í stjóm Félags íslenskra
Botnvörpuskipaeigenda og síðar
Landssambands íslenzkra útvegs-
manna. í stjóm Hafrannsókna-
stofnunar var Marteinn frá árinu
1965 og var fulltrúi á Fiskiþingi
um árabil. Marteinn var félagi í
félaginu Akóges í Reykjavík, starf-
aði þar vel og miðlaði okkur hinum
af margháttaðri reynzlu sinni. Em
honum færðar beztu þakkir frá
okkur hinum, sem minnast hans
af virðingu.
Ég var þeirrar gæfu aðnjótandi
að kynnast Marteinn vel sl. tæp
30 ár, bæði í starfí og leik, á ferða-
lögum, í veiðiferðum og á heimili.
Sem húsbóndi var hann ætíð sann-
gjam og hreinskiptinn. Marteinn
meinti það, sem hann sagði, var
ákaflega kappsamur og áfram um
að hlutimir gengju greiðlega fyrir
sig, en hafði hag fyrirtækisins
ætíð í fyrirrúmi. Hann var hjálp-
samur maður með afbrigðum og
leysti tímabundinn vanda undir-
manna sinna, væri þess nokkur
kostur og uppskar virðingu og vin-
sældir. En undir niðri sló viðkvæmt
hjarta, því hann mátti ekkert aumt
sjá og var fljótur til aðstoðar þeim
er minna máttu sín. Ekki tók Mar-
teinn hart á yfírsjónum annarra,
en var gjam á góð ráð ef þurfa
þótti.
Á mannamótum utan daglegra
anna naut Marteinn sín vel, var
hrókur alls fagnaðar, ef það átti
við. Hann hafði ágætt skopskyn,
sem gjaman kom fram á frásögn-
um hans af ýmislegum tilefnum
frá langri og viðburðaríkri starf-
sævi. Frásagnargáfa hans var
alveg sérstök, efnistök öðruvísi en
flestra annarra, þar sem alvöru og
kímni var blandað saman í hæfíleg-
um hlutföllum. Ljóðelskur var
Marteinn og kunni mikið af kvæð-
um.
Marteinn Jonason hefur nú lokið
æviskeiði sínu meðal okkar, eftir
að hafa skilað miklu starfí og
dijúgu innleggi í þjóðarbúið. Að
leiðarlokum stendur eftir minning-
in um góðan dreng og félaga, sem
reyndist öllum vel. Megi Guð al-
valdur gefa sálu hans hinn eilífa
frið.
Ættingjum öllum og venzlafólki
eru sendar samúðarkveðjur.
Svavar Davíðsson
t
Kveðjuathöfn um móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
ÓLlNU BERGSVEINSDÓTTUR,
Hverfisgötu 17,
Hafnarfirði,
verður í Hafnarfjarðarkirkju á morgun, miðvikudaginn 21. október
kl. 15.00. Jarðsungið verður laugardaginn 24. október frá Siglu-
fjarðarkirkju kl. 15.00. Þeim sem vildu minnast hinnar látnu er
bent á Systrasjóð St. Jósefsspítala, Hafnarfirði.
Lillý Horner, Helmuth Horner,
Bergsveinn Sigurðsson, Ruth Jónsdóttir,
Gunnhildur Sigurðardóttir, Kristinn Jónsson,
Nanna Björg Sigurðardóttir, Garðar Jóhannsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
JARÞRÚÐUR KARLSDÓTTIR,
Tunguseli 7,
Reykjavfk,
verður jarösungin i Dómkirkjunni miðvikudaginn 21.
15.00.
október kl.
Karl Már Einarsson,
Magnús R. Einarsson,
Rannveig Einarsdóttir,
Kristín Einarsdóttir,
Hallfríður Einarsdóttir,
Svanhvít Þorsteinsdóttir,
Hanna G. Sigurðardóttir,
Kristján Hjaltason,
Erlendur Jónsson,
Ásgeir Ö. Gestsson
og barnabörn.
t
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ÞORVALDUR BRYNJÓLFSSON
Austurbrún 4,
Reykjavfk,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 21. október
kl. 15.00.
Ingiberg Þorvaldsson, Inga Valdís Pálsdóttir,
Guðlfn Þorvaldsdóttir, Hans R. Linnet,
Kolbrún Þorvalsdóttir, Guðmundur Gfslason,
Ásta Þorvalsdóttir, Halldór Waagfjörð,
og barnabörn.
Birting afmælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting-
ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjóm blaðsins á
2. hæð i Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn-
arstræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að
greinar verða að berast með góð-
um fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á
mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Ekki eru
tekin til birtingar frumort ljóð um
hinn látna. Leyfilegt er að birta
ljóð eftir þekkt skáld, 1—3 erindi
og skal þá höfundar getið. Sama
gildir ef sálmur er birtur. Megin-
regla er sú, að minningargreinar
birtist undir fullu nafni höfundar.
Við birtingu afmælisgreina
gildir sú regla, að aðeins eru birt-
ar greinar um fólk sem er 70 ára
eða eldra. Hins vegar eru birtar
afmælisfréttir með mynd í dagbók
um fólk sem er 50 ára eða eldra.
Mikil áhersla er á það lögð að
handrit séu vel frá gengin, vélrit-
uð og með góðu línubili.
t
Ástkær mágkona mín og föðursystir okkar,
.JÓNA SIGURBJÖRG ÞORLÁKSDÓTTIR,
verður jarösungin í Dómkirkjunni í dag, þriðjudaginn 20. október,
kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á Kristni-
boðssambandið.
Camilla Sandholt,
Jenný Guðlaugsdóttir Gröttem,
Katrfn Þ. Guðlaugsdóttir,
Hildur Björg Guðlaugsdóttir,
Pótur Guðlaugsson.
t
Útför systur okkar og fóstursystur,
GUÐRÚNARJÓNSDÓTTUR
frá Suðureyri,
Tálknaflrðl,
fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 20. október kl. 13.30.
Margrót J. Möller,
Þórður Jónsson,
Einar Jónsson,
Marta Jónsdóttir,
Steinunn Jónsdóttir,
Steinunn Finnbogadóttir.
t
Innilegar þakkir til allra sem aðstoðuðu við andlát og jarðarför
INGIBJARGAR BENEDIKTSDÓTTUR
pfanókennara.
Sérstakar þakkir til forráöamanna og starfsfólks Hrafnistu í Hafnarfirði.
Vandamenn.
Lregsteinar
MARGAR GERÐIR
Mamorex/Gmít-
Steinefnaverksmiðjan
Helluhrauni 14, sími 54034,
222 Hafnarfjörður