Morgunblaðið - 08.11.1987, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. NÓVEMBER 1987
B 15
„Án sannleikans þrífast
engar bókmenntir,
engar listir,
ekkert réttlæti“
r
SJA: Bragarbót
reharfarBHÍ^
Grunsamlega sam-
vinnuþýðir sak-
borningar
Allir þeir tuttugu og tveir, sem
handteknir voru fyrr á þessu
ári í Singapore fyrir þátttöku í
meintu marxísku samsæri, sem
hafði átt að miða að því að steypa
ríkisstjóm landsins af stóli, hafa
nú verið látnir lausir að sex manns
undanskildum. Menn eru þó ekki
allir sáttir við meðferðina á þeim í
fangelsinu.
Stjómin í Singapore hefur skipað
svo fyrir, að tímaritið Asiaweek,
sem gefið er út í Hongkong, minnki
upplag sitt í Singapore um 94%.
Hér er um að ræða hefndarráðstöf-
un vegna þess að ritið hefur birt
grein, þar sem gefið er í skyn að
fangamir hafí verið pyndaðir.
Aðdróttanimar í Asiaweek vom
af mjög svipuðum toga og eftir-
grennslanir breska blaðsins Obser-
ver leiddu í ljós sem virtust benda
til þess að fangamir hefðu verið
pyndaðir eða hafðir í stanzlausum
yfirheyrslum.
Þessir meintu samsærismenn
vom teknir höndum í maí í vor við
mikinn úlfaþyt. Stjómin í Singapore
lýsti yfir því að hún hefði afhjúpað
alvarlegt pólitískt samsæri.
Stjómin notaði völd, sem hún
hefur samkvæmt umdeildum ör-
yggislögum til að hafa menn í haldi
án réttarhalda. Hún lét jafnframt
taka upp umdeilda sjónvarpsþætti
þar sem hinir handteknu játuðu
sakargiftum.
Prófessor Jayakumar innanríkis-
ráðherra neitar því á hinn bóginn
blákalt að fangamir hafi verið
pyndaðir og að játningar þeirra fyr-
ir framan sjónvarpsupptökuvélar
hafi verið afleiðing þvingana eða
fyrirheita um mildari refsingar.
Fullyrðingar Jayakumars em í
algerri mótsögn við framburð þeirra
sem standa fómarlömbunum nærri.
Ekki er þó hægt að skýra frá nöfn-
um þeirra því að það gæti komið
sér illa fyrir þá sem enn em í vörzlu
og aukið á erfiðleika hinna sem
hafa verið látnir lausir en em enn
undir ströngu eftirliti.
Pullyrt er að mótstaða fanganna
hafi verið brotin á bak aftur með
afar harðneskjulegum hætti. Til
dæmis héldu lögreglumenn vöku
fyrir einum þeirra í 100 klukku-
stundir og aðrir vom líka þvingaðir
til að halda sér vakandi langtímum
saman. Einnig er sagt að yfirheyrsl-
ur hafi farið fram í herbergjum þar
sem ískaldur blástur úr loftræsti-
kerfum lék um fangana. Þeir sem
yfirheyrslunum stjómuðu vom
kappklæddir en fangamir hinsveg-
ar harla léttklæddir.
Þá er sagt að játningamar fyrir
framan sjónvarpsvélamar hafi verið
æfðar hvað eftir annað til þess að
þær yrðu eins „eðlilegar" og hægt
væri. Enn segir sagan að upptök-
umar hafi tekið tvo daga vegna
þess að menn hafi reynt til þrautar
að ná fram þessum „sannfærandi"
áhrifum.
Jayakumar segir að allar þessar
aðdróttanir séu ósannar. Hann vek-
ur athygli á því að hvorki fangamir
né ættingjar þeirra hafi borið fram
kvörtun opinberlega. Ráðherrann
fjallaði sérstaklega um Jenny Chin,
en hún var í hópi þeirra sem hand-
teknir vom og er nú komin til
heimahaga sinna. Ráðherrann benti
á að hún hefði getið þess sérstak-
lega, þegar hún var látin laus, að
hún hefði hlotið góða meðferð.
Hann lét hins vegar hjá líða að
minnast á, að maðurinn hennar er
í hópi sexmenninganna, sem enn
em í haldi.
- STEVE VINES
<&==£>
„Skriffinnunum virtist standa á
sama þótt fólk væri búið að missa
áhugann á því „andlega fóðri“, sem
frá þeim kom. Það virtist engu
máli skipta þótt almenningur væri
hættur að sækja leikhús og listsýn-
ingar.
Þessir menn niðurlægðu fólk og
vanmátu hugsjónir þess, siðferðis-
vitund, menningarstig og pólitíska
vitund sovésks almennings, sem er
fullfær um að ákveða sjálfur hvað
hann vill í menningarlegum efnum
og hvað hann vill ekki."
Þessum orðum virðist beint til
Piotr Demichev, sem hefur átt sæti
í stjómmálaráðinu í 23 ár og var
menningarmálaráðherra frá 1974
og fram á síðasta ár.
„Nýjar myndbirtingar í listum
þurfa á að halda stuðningi og skiln-
ingi,“ segir áfram í leiðaranum, sem
er ekki hægt að skilja öðruvísi en
einhuga stuðning við tilraunastarf-
semi nýlistamanna, en þeir hafa
sjaldan átt upp á pallborðið hjá
stjómvöldum.
„Opinberar menningarstofnanir
og þær stofnanir flokksins, sem
hafa með hugmyndafræðina að
gera, ættu að taka upp sveigjan-
legri stefnu og einlægara samstarf
við samtök listamanna. Án sann-
leikans þrífast engar bókmenntir,
engar listir, ekkert réttlæti. Án
„glasnost", hinnar opnu umræðu,
og lýðræðis, engin raunveruleg sið-
ferðisvitund," vom lokaorð leiðar-
ans.
Tékkneski andófshópurinn
Charta ’77 hefur komið á
framfæri upplýsingum sem
„hnuplað" var úr herbúðum kom-
múnistaflokksins í landinu og
herma að loftmengunin í Prag sé
geigvænleg. Samkvæmt þessum
heimildum er hleypt 20 sinnum
meira magni af brennisteinsdíoxíði
þama út í andrúmsloftið en heim-
ilt er samkvæmt reglugerðum.
Frá þessu segir í frétt í blaði
andófshópsins undir fyrirsögninni:
„Við viljum aftur fá að draga and-
ann.“ Em tékknesk yfirvöld þar
hvött til þess að endurskoða stefnu
sína í orkumálum með það fyrir
augum að koma í veg fyrir frek-
ari mengun.
Súrt regn, sem stafar af brenni-
steinsdíoxíði í andrúmsloftinu,
hefur þegar eyðilagt fjórðung
skóglendis í Bæheimi, að sögn
embættismanns í Tékkóslóvakíu,
en skógamir era mikilvægustu
náttúmauðlindir landsins. Þar við
bætist að jarðvegur er mjög meng-
aður víða í Iandinu. Skordýraeitur,
tilbúinn áburður og útblástur frá
bifreiðum hefur valdið því að
málmar á borð við kvikasilfur og
blý hafa stórlega mengað jarðveg-
inn og veldur þetta þegar hinum
mestu vandræðum, eins og stjóm-
völd hafa nú mátt viðurkenna.
- MISHA GLENNY
málsin's sé sá að ástandið sé stór-
háskalegt og ekkert bendi til þess
að úr því verði bætt að sinni.
ÞÚSUND ÁR — Kirkja frá árinu 900 og jafngömul konungshöll
gnæfa yfir þetta forna hverfi í Prag. Hvort tveggja liggur und-
ir skemmdum vegna mengunar.
Mengun í Prag
tuttugu sinnum
ofan hættumarka
Víetnömum
kannennað
stórfjölga
vestra
HÖRMUNGAR - Jafnvel yat-
nið var þrotið þegar þetta
bátafólk fast í hafi.
OPNAR DYR
í fréttinni segir að mengunin í
höfuðborginni hafi þegar haft í för
með sér uggvænlegar afleiðingar
fyrir heilsufar borgarbúa. „Þessi
óheillaþróun kemur meðal annars
fram í vaxandi tíðni hjarta- og
æðasjúkdóma sem og berkla. Of-
næmi og sjúkdómar í öndunarfær-
um hijá auk þess skólaböm," segir
þar líka, en að auki er talað um
þvagfærasjúkdóma og vaxtar-
tmflanir sem enn eina afleiðingu
af loftmenguninni.
Byggingar í Prag hafa líka orð-
ið fyrir barðinu á hinu spillta lofti,
enda má víða sjá þær umluktar
vinnupöllum vegna viðgerða. Til
skamms tíma hafa áhyggjur
Tékka af umhverfismálum einkum
beinzt að iðnaðarhémðunum í
norðanverðum Bæheimi, en þar
em lífslíkur að jafnaði þremur
áram skemmri en annars staðar í
Tékkóslóvakíu.
Sautjánda flokksþing tékk-
neska kommúnistaflokksins var
haldið í marz síðastliðnum, en við
það tækifæri lýsti Gustav Husak
forseti yfir því, að fjárfesting til
umhverfisvemdar yrði ríflega tvö-
földuð samkvæmt þeirri fimm ára
áætlun sem nú er í gildi og lýkur
árið 1990.
Ýmsir telja þó að nývaknaður
áhugi stjómarinnar á umhverfis-
málum og vistfræði risti ekki
djúpt. í fréttinni frá Charta ’77
segir, að hugsanlega telji sumir
borgarbúar að ástandið muni
skjótlega batna, en mergurinn
Fyrir skömmu rofaði lítillega
til í samskiptum Banda-
ríkjanna og Víetnams og gæti
það leitt til þess að hundrað
þúsunda flóttamanna kæmu til
Bandaríkjanna 12 áram eftir að
Víetnamstríðinu lauk, að sögn
Brace Beardsley, en hann er
fyrsti bandaríski embættismað-
urinn nánast frá stríðslokum sem
fengið hefur að heimsækja Ho
Chi Minh-borg til viðræðna um
flóttamannavandamálið.
Hann segir að reynt verði eft-
ir föngum að hraða þessum
málum.
Sextíu þúsund Vietnamar
hafa þegar haldið til Banda-
ríkjanna samkvæmt áætlun sem
gerð var til að stöðva hina háska-
lega fólksflutninga á opnum
bátum. Því til viðbótar era
670.000 Víetnamar „komnir á
skrá“ og hafa sótt um að fá að
flytjast búferlum til Banda-
ríkjanna.
Þegar Beardsley hélt til Víet-
nam hafði hann meðferðis skrá
yfir 95.000 manns sem Banda-
ríkjamenn vildu taka á móti eins
fljott og unnt væri að koma þeim
á milli landanna. Á henni vora
meðal annars böm sem banda-
rískir hermenn höfðu eignast
með víetnömskum stúlkum,
menn sem áður höfðu starfað
fyrir Bandaríkjamenn svo og
ættingjar Víetnama, sem þegar
höfðu setzt að í Bandaríkjunum.
Beardsley tókst að eiga viðtöl
við 1067 manns, og aðeins níu
þeirra hlutu synjun. Hafizt verð-
ur handa um að koma þessu fólki
til Bandaríkjanna nú í nóvember
að undangenginni læknisskoðun.
Undanfarin tvö ár hafa engar
viðræður farið fram um flutning
á Víetnömum til Bandaríkjanna,
Bretlands, Kanada og annarra
vestrænna ríkja. Vestrænir
stjómarerindrekar í Bankok
kenna Víetnömum um þessar
tafír en þær hafa leitt til þess
að fólk hefur enn á ný haldið út
á hafið á bátskeljum til að freista
þess að öðlast ný heimkynni. Um
það bil 15 þúsund manns hafa
þegar lagt út í slíka hættufor
það sém af er þessu ári.
Um tvö hundrað Bandaríkja-
menn hafa sótt um að böm, sem
þeir eignuðust á sínum tíma með
víetnömskum konum, fái að flytj-
ast til Bandaríkjanna og
bandarísk sljómvöld hafa þegar
lofað að veita þeim og þeirra
nánustu dvalarleyfi, að sögn
Beardsley.
„En þessi böm era ekki lengur
böm,“ minnti hann jafnframt á.
„Þau era baldnir táningar. Sum
era orðin tvítug. Þau eiga sjálf
maka og era sjálf búin að eign-
ast böm. í flestu tilvikum búa
þau við lélegt atlæti, lakan húsa-
kost og slæma heilbrigðisþjón-
ustu og em að auki skelfilega
menntunarsnauð. “
- BEN BARBER