Morgunblaðið - 29.11.1987, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 29.11.1987, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. NÓVEMBER 1987 ■'it Hermenn á verði í Port-au-Prince: tekur herinn völdin? Ofbeldi ógnar lýðræðisþróun á Haiti ÍBÚAR svertingjalýðveldisins Haiti á eynni Hispaníólu á Karíbahafi ganga að kjörborðinu í dag og kjósa nýtt þing og nýjan forseta í fyrstu fijálsu kosningun- um, sem þar hafa farið fram í þrjá áratugi. Lands- menn hafa beðið kosninganna milli vonar og ótta. Skálmöld hefur ríkt í landinu, en stjómvöld hafa lítið gert til að stöðva hana og í marga mánuði hefur margt þótt benda til þess áð ekkert geti orðið af kosningunum. Tortryggnustu íbúar landsins hafa ta- lið víst að herinn muni gera byitingu og verið í vafa um það eitt hvort yfirmenn hans létu til skarar skríða fyrir eða eftir kosningaraar. Baby Doc: eínræðisherra í útlegð. Erfitt hefur reynzt að efna til lýðræðislegra kosninga á Haiti þar sem þjóðin hefur enn ekki náð áttum eftir miskunn- arlausa stjóm „vúdú“-einræðis- herrans Francois („Papa Docs“) Duvaliers og sonar hans og arf- taka, Jean-Claude („Baby Docs“) Duvaliers. Hættulegt tómarúm myndaðist þegar stjóm þeirra feðga og yfirstéttar múlatta var steypt af stóii 7. febrúar 1986 eftir víðtæk- ar mótmælaaðgerðir og Baby Doc og Michelle, illa þokkuð brúður hans, flýðu í flugvél til Frakklands með hluta fjölskylduauðsins. Síðan hafa þau dvalizt nálægt Cannes í skrauthýsi, sem er í eigu kaupsýslu- mannsins Adnans Khashoggi frá Saudi-Arabíu. í Rússlandi? Auðæfi Baby Docs hafa verið metin á um hálfan milljarð punda og hann mun hafa lagt fé á banka í Sviss áður en yfírvöld á Haiti hóf baráttu fyrir því að innstæður hans víða um heim yrðu frystar. Sumir telja að hann hafi komið hluta auðæfa sinna til Rússlands með hjálp tengdaföður síns, sem flutti inn Lada-bíla. í sumar komst franskur dómstóll að þeirri niður- stöðu að hann væri ekki bær um að fjalla um ákærur gegn honum um fjársvik. Ástæðan væri sú að hann væri „forseti til lífstíðar" (eins og faðir hans hafði einnig verið) og því opinber embættismaður. Sér- stakur dómstóll yrði að ijalla um mál hans. Þótt þorri landsmanna yrði að þola eymd og hörmungar á dögum einræðisstjómar Duvalier-ættar- innar höfðu þúsundir Haiti-búa, ríkir jafnt sem fátækir, beinan hag af henni, því að hún útvegaði þeim atvinnu og gerði þeim kleift að stunda fjárdrátt og einokunarstarf- semi að vild. Áhrif þessara „duvali- erista" eru enn mikil. Einnig eimir enn eftir af áhrifum illræmdra öryggissveita, „Tonton Macoutes", sem allir urðu að hlýða skilyrðislaust á Duvalier-árunum. í þessum stormsveitum voru um 300.000 menn, gráir fyrir jámum. Jafnvel herinn, sem hafði aðeins 7.000 mönnum á að skipa, varð að beygja sig fyrir þeim. Bráðabirgðastjóm, sem liðsfor- ingjar mynduðu undir forsæti Henri Namphys hershöfðingja eftir flótta Baby Docs, leysti upp Macoutes- sveitimar og hét fijálsum kosning- um. En herinn virðist hafa komizt að samkomulagi við yfírstjóm sveit- anna til að afstýra blóðsúthelling- um. Samkvæmt því fengu leiðtogar Fóraarlamb: Ekkja Yves Yolels forsetaframbjóðanda með mynd af eiginmanni sinum. þeirra, þar á meðal frú Max Adolp- he, sem einna verst orð fór af, að fara í útlegð. Blóðbað Blóðsúthellingar og verkföll hafa einkennt kosningabaráttuna, en stjóm Namphys hershöfðingja hef- ur ekki verið í hættu og haldið að sér höndum. Verkföllin og mikil mótmæli hófust í júní þegar stjóm- in hafnaði beiðni yfirkjörstjómar um aðstoð á þeirri forsendu að það mundi stríða gegn hlutleysi, sem hún yrði að sýna. Um leið gerðu herforingjamir völd kjörstjómar- innar því sem næst að engu. Frá því um svipað leyti hafa jafnframt hópar óþekktra manna „í grænum einkennisbúningum" verið viðriðnir ýmsa glæpi, sem hafa ekki alltaf verið pólitískir. Lítil sem engin samvinna hefur verið með herforingjunum og starfsmönnum kjörstjóma, en stjómin hefur orðið að draga í land. Afstaða hennar síðustu vikumar fyrir kosningamar virðist sýna að hún vilji að þær fari friðsamlega og heiðarlega fram. Allir andstæð- ingar stjómarinnar, nema vinstri- öfgamenn, hafa verið sammála um að kosningar séu eina leiðin til að koma stuðningsmönnum Duvalier- ættarinnar frá. í júlí vom um 250 landbúnaðar-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.