Morgunblaðið - 29.11.1987, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. NÓVEMBER 1987
31
Á leið á markað: óupplýst morð i fátækrahverfunum.
Skálmöld: Lík ungrar stúlku, sem beið bana þegar mannfjölda var
dreift í Port-au-Prince.
verkamenn, sem lögðu áherzlu á
kröfu um jarðaskiptingu, myrtir
með sveðjum. í sama mánuði hófst
alda dularfullra rána að næturþeli,
en að þeim stóðu vopnaðir menn
klæddir hermannabúningum.
Skothríð heyrðist á hverri nóttu í
höfuðborginni, Port-au-Prince, og
daglega voru birtar fréttir um ný
dauðsföll. Síðan hefur borgin
breytzt í „vofubæ" á kvöldin.
Athafnalíf á Haiti lamaðist í
fímm vikur vegna verkfallanna,
30-40 óbreyttir borgarar féllu fyrir
kúlum hermanna og 200 særðust.
Hópar vinstrisinna og miðjumanna,
sem studdu verkföllin, kröfðust þess
að herforingjastjómin færi frá völd-
um fyrir kosningamar, þar sem
valdamestu ráðherramir væm fyrr-
verandi stuðningsmenn Duvalier-
feðga og ekki væri hægt að treysta
þeim.
Morðárásir
Æstur múgur hjó forsetafram-
bjóðanda sósíaldemókrata, Louis
Eugene Athis, til bana með sVeðjum
í afskekktu þorpi 2. ágúst. And-
stæðingar hans höfðu kallað hann
„kommúnista". Skömmu síðar var
reynt að myrða kunnan prest, sem
boðar „fijálslynda guðfræði",
Jean-Bertrand Aristide. í septem-
ber var ungum stuðningsmanni
hans rænt og honum misþyrmt.
Vinstri flokkar hafa hvatt bórg-
ara til að koma á fót löggæzlusveit-
um. I september hjuggu liðsmenn
slíkrar sveitar þrjá menn til bana í
þorpinu Tabarre skammt frá höfuð-
borginni vegna gruns um að þeir
væru úr glæpaflokki, sem hafði sto-
lið geitum og brotizt inn á heimili
fólks.
Annað forsetaefni, Yves Volel,
úr fámennu bandalagi kristilegra
demókrata, var skotinn til bana 13.
október, þegar hann flutti ræðu og
mótmælti mannréttindabrotum fyr-
ir framan lögreglustöðina í Port-
au-Prince. Sjónarvottar sögðu að
morðingjamir hefðu verið úr lög-
regluliði, sem herinn hefur komið á
fót og er að miklu leyti skipað óein-
kennisklæddum mönnum úr
Macoutes-sveitunum. Volel var
harðvítugur andstæðingur gömlu
stjómarinnar og hafði dvalizt í út-
legð í 22 ár. Hann sakaði stjórn
Namphys hershöfðingja um að vera
verkfæri stuðningsmanna Duvali-
er-ættarinnar og krafðist þess
eindregið að lögbrota Duvalier-
stjómarinnar yrði hefnt.
Sama dag og Volel var veginn
gáfu þrír valdamiklir fulltrúar
gömlu stjómarinnar kost á sér í
forsetakosningunum og þar með
urðu frambjóðendumir 34 talsins
(að Volel frátöldum). jNýju forseta-
efnin voru Clovis Desinor, fjármála-
ráðherra „Papa Docs“, Claude
Raymond hershöfðingi, fv. land-
vama- og innanríkisráðherra, og
Franck Romain, fv. borgarstjóri í
Port-au-Prince.
Borgarastríði hótað
Ný stjómarskrá, sem níu manna
néfnd sérfræðinga og baráttu-
manna mannréttinda samdi og var
samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu
í vor, hefur að geyma ýmis ákvæði,
sem eiga að koma í veg fyrir að
ný einræðisstjóm komist til valda,
en er svo flókin að hún er e.t.v.
óframkvæmanleg.
Samkvæmt einu umdeildasta
ákvæði nýju stjómarskrárinnar
mátti lýsa frambjóðendur vanhæfa,
ef þeir hefðu sýnt „taumlausan
áhuga“ á því að halda harðstjóm
Duvaliers við völd, eða ef þeir hefðu
„að öllum líkindum" dregið sér fé
úr ríkissjóði. Þetta ákvæði gat átt
við marga frambjóðendur og yfír-
kjörstjóminni barst fjöldi áskorana
um að ýmis framboð yrðu ógilt.
Sja bls. 34.
I\lý sending
Blússur, peysur, hálfsíð pils, kjólarog
skokkar. Mikið úrval, allar stærðir,
altt að 54. Póstsendum.
Dragtin,
Klapparstíg 37, sími 12990.
Dömur athugið
Jólin nálgast. Erum farnar að taka niður
pantanirfyrirjólin.
Vinsamlega pantiðtímanlega.
Athugið að hægt er að panta samliggjandi tíma.
Hárgreiðslustofan VERONA,
sími31900.
Snyrtistofan SÓLEY,
sími 83360.
STARMÝRI 2.
Wterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamióill!
v.
Fataskápar
20% afsláttur
Seljum til 1. des. sýningarfataskápa
með 20% afslætti vegna flutninga
á versluninni á Laugaveg 91.
10% afsláttur af öðrum vörum.
Nýborgt
SKÚTUVOGI 4, SÍIV/II 82470.
sjohumcssn
Sól á heimsenda
Saga eftir Matthías Johannessen
Enn leggur Matthías á nýjar leiðir og sendir frá sér
allanga sögu.
Hvernig tekst Ijóðskáldinu upp við sagnagerð?
<á
bók
góð bók
im&máM