Morgunblaðið - 29.11.1987, Page 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDÁGUR 29. NÓVEMBER 1987
ARFUR
BARY
DOCS
Að lokum lýsti hún 12 forsetafram-
bjóðendur vanhæfa 2. nóvember
vegna tengsla þeirra við Baby Doc,
þar á méðai Desinor, tvo aðra fv.
fjármálaráðherra og tvo fv. yfír-
menn hersins. Um leið tilkynntu
kjörstjómarmenn að bæjar- og
sveitarstjómakosningar færu ekki
fram fyri' en 20. desember, sama
dag og síðari lota forsetakosning-
anna.
Desinor lýsti því yfír að yfírkjör-
stjómin væri að „sá fræjum
borgarastyrjaldar" með ákvörðun
sinni. FVam að þessu höfðu hann
og margir aðrir fulltrúar gömlu
stjómarinnar talið sig enn eiga
möguleika á því að varðveita for-
réttindi sín. Þegar sú von brást
hófst mikií hryðjuverkaalda og allt
benti til þess að stuðningsmenn
Duvalier-ættarinnar væru stað-
ráðnir í að koma í veg fýrir að
kosningamar færu fram.
í ijóra daga ætlaði allt af göflum
að ganga. Eldsprengjuárás var gerð
á skrifstofur yfírkjörstjómar og
flest gögn hennar eyðilögð. Skotið
var á skrifstofur nokkurra fram-
bjóðenda og reynt að kveikja í þeim
og eldur var lagður að fyrirtækjum
í eigu Emmanuels Ambroise, full-
trúa í yfírkjörstjóm, sem hefur
manna mest beitt sér fyrir harðari
aðgerðum gegn áhrifum Duvalier-
ættarinnar.
Ein árásin beindist gegn kosn-
ingaskrifstofu eins vinsælasta
m m m> ■»
aiia
tmitifti
frambjóðandans, Sylvio Claude,
sem er kristilegur demókrati og sat
nokkmm sinnum í fangelsi á
valdaárum Duvalier-feðga. Síðan
árásin var gerð hefur hann neyðzt
til að skipta stöðugt um næturstað
og reynt að koma eins lítið fram
opinberlega og hann hefur getað.
Fáorður forseti
Namphy hershöfðingi kom fram
opinberlega í fyrsta skipti í margar
vikur þegar mestu ofbeldisverkun-
um linnti og skipaði sig yfírhers-
höfðingja, en minntist varla á
hryðjuverkin. Furðu hefur vakið á
Haiti og erlendis hve lítið hann
hefur reynt að stuðla að''því að
kosningabaráttan gengi eðlilega
fyrir sig og hvemig hann hefur að-
mestu leitt ofbeldið hjá sér og
hundsað tilmæli frambjóðenda og
kosningastarfsmanna um vemd.
Hershöfðinginn, sem er fáorður og
einrænn, hefur sem minnst viljað
tala um ástandið, en hann lýsti því
yfír í upphafí að sökudólgamir yrðu
handteknir, ef þeir yrðu nafngreind-
ir, og enn hefur engum tekizt það.
Viðbúnaður við forsetahöllina: stormsveitir endurskipu-
lagðar á laun?
Dökk sólgleraugn
Á síðustu vikum kosningabarátt-
unnar dró verulega úr ofbeldinu,
en síðustu daga hafa ofbeldisverkin
magnazt á ný. Mikils taugaóstyrks
hefur gætt í Port-au-Prince til hins
síðasta, fyrst vegna dularfulls
hvarfs nokkurra manna og óupp-
lýstra morða í fátækrahverfum
borgarinnar.
Sjónarvottar segja að morðingj-
amir hafi verið með dökk sólgler-
augu, sem vom tákn Tonton
Macoutes-sveitanna. Skrám með
númemm bifreiða og leigubíla, sem
þeir em taldir nota, hefur verið
dreift meðal fólks í fátækrahverfun-
um.
Enginn hefur verið á ferli á göt-
um Port-au-Prince eftir kl. 9 á
kvöldin og þrálátur orðrómur verið
á kreiki um að herinn muni gera
byltingu. Æ meira hefur
borið á gmnsemdum um að Macout-
es-sveitimar hafí verið endurskipu-
Namphy hershöfð-
ingi: afskiptalítill.
lagðar á laun með þegjandi
stuðningi eða samþykki vina þeirra
í hemum til að koma af stað skálm-
öld og hræða kjósendur.
„Hræðsluandrúmsloft hefur
skapazt," segir Gregoire Eugene,
einn forsetaframbjóðendanna. Jafn-
vel bjartsýnustu menn viðurkenna
að lýðræði eigi erfítt uppdráttar í
slíku andrúmslofti.
Fæstir ganga svo langt að kenna
herforingjastjóminni um hryðju-
verkin á síðustu mánuðum, en telja
nær víst að nokkrir háttsettir menn
í hemum séu í hópi þeirra Duvalier-
sinna, sem beri ábyrgðina. Þeir
halda því fram að margir Macoute-
liðar hafí verið teknir í herinn og
að fjölgað hafí í honum úr 7.600
mönnum í 12.000 á þessu ári.
Bandaríkjamenn, sem hafa stutt
yfirkjörstjómina með nokkurra
milljóna dollara íjárhagsaðstoð, létu
í ljós vonbrigði með morðölduna og
afstaða þeirra varð til þess að her-
inn lét handtaka þijá menn, sem
vom grunaðir um að hafa tekið
þátt í árásinni á skrifstofu yfírkjör-
stjómar. Nöfn þeirra voru hins
vegar ekki birt og þeir voru látnir
lausir eftir nokkurra daga yfír-
heyrslur.
Sumir hafa talið að Namphy
hafí ekki viljað að kosningamar
færa fram. Upp á síðkastið hafa
aðrir sagt að hann vilji ná sér niðri
á kjörstjómarmönnum og frambjóð-
endum, sem hann fyrirlíti og neiti
að ræða við. Helzta skýringin á
aðgerðarleysi hans virðist vera deila
hans og kjörstjómarmanna. „Ég
held að herinn hafí viljað sanna
fyrir yfírkjörstjóminni að kosningar
gætu ekki farið fram án hjálpar
hans,“ segir Eugene forsetafram-
bjóðandi, sem hefur talið sig njóta
stuðnings hersins. „Þess vegna hafa
þeir ekkert aðhafzt, þótt ástandið
hafi hríðversnað."
Frambjóðendur miðjumanna
hafa skipulagt baráttu sína bezt.
Ef allt verður með felldu má vera
að einhver þeirra taki við völdunum.
Þeir era:
• Marc Bazin, fv. starfsmaður
Alþjóðabankans, sem hefur árang-
urslaust reynt að.efna til samstarfs
við aðra hópa miðjumanna.
• Leslie Manigat, sem hefur
dvalizt í útlegð og kennt stjómvís-
indi í háskóla í Venezúela. Hann
er skæðasti keppinautur Bazins og
hefur hafnað öllum tilboðum hans
um samstarf.
• Claude, hinn vinsæli frambjóð-
andi kristilegra demókrata.
• Gerard Gourde, lögfræðingur
og leiðtogi fjölmennustu mannrétt-
indasamtaka Haiti. Hann nýtur
stuðnings bandalags vinstrisinna,
sem skipulagði verkföllin í sumar
og kallar sig nú FNC („Þjóðfylking-
una til samstilltra aðgerða").
Enginn forsetaframbjóðendanna
virðist hafa tryggt sér ótvíræða
forystu í kosningabaráttunni, m.a.
vegna þess að Haiti-búar eru óvan-
ir stjórnmálum. Sá möguleiki er
alltaf fyrir hendi að herinn taki öll
völd, en Baby Doc á varla aftur-
kvæmt til Haiti. Hann er óvelkom-
inn gestur í Frakklandi og verður
e.t.v. að hrökklast þaðan, en fá
önnur lönd vilja taka við honum. Á
Haiti eru stuðningsmenn hans á
undanhaldi.
GH
Bókauppboð
verður haldið sunnudaginn 29. nóvember kl. 17.00 íTemplara-
höllinni, Eiríksgötu 5.
Bækurnar verða til sýnis íTemplarahöllinni, Eiríksgötu 5, sunnu- Klausturhólar,
daginn 29. nóvember kl. 14.00-16.00. sími 19250.
ss&»
í Reykjavík og á Akureyri í dag kl. 13.00-17.00.
Bílvangur sf., Höfðabakka 9, og Véladeild KEA, Akureyri.
íááftiil
4
mmB