Morgunblaðið

Dagsetning
  • fyrri mánuðurdesember 1987næsti mánuður
    SuÞrMiFiLa
    293012345
    6789101112
    13141516171819
    20212223242526
    272829303112
    3456789

Morgunblaðið - 11.12.1987, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 11.12.1987, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 1987 Mokveiði á loðn- unni í fyrrinótt MOKVEIÐI var á loðnumiðun- um austur af Kolbeinsey í fyrrinótt og- búizt var við ann- arri ngusu“ í nótt sem leið. í fyrrinótt fengu 20 skip tæplega 15.000 tonn. Veður er gott á miðunum og um þessar mundir hamlar tunglskin því ekki að loðnan grynni á sér. Löndunar- rými er nú á þrotum á norður- landi. Laust pláss er á Bolungarvík og Seyðisfirði, en ekkert eða mjög takmarkað þar á milli. Annars staðar er nóg pláss. Á þriðjudag varð aflinn 12.050 tonn, en auk þeirra skipa, sem áður er getið, fóru Fífíll GK með 630 tonn og Keflvíkingur KE með 540 til Raufarhafnar. Á miðviku- dag tilkynntu eftirtalin skip um samtals 8.780 tonna afla: Hilmir II SU 590 til Sigluijarðar, Svanur RE 650 til Raufarhafnar, Erling KE 500 til Sigluíjarðar, Grindvík- ingur GK 1.020 til Neskaupstaðar, Sjávarborg GK 650 til Siglufjarð- ar, Súlan EA 750 í Krossanes, Þórður Jónasson EA 600 í Krossa- nes, Bjami Ólafsson AK 1.150 til Seyðisfjarðar, Skarðsvík SH 660 til Siglufjarðar, Hilmir SU 1.050 til Raufarhafnar, Þórshamar GK 600 til Vopnafjarðar og Gullberg VE 560 til Þórshafnar. Síðdegis í gær höfðu eftirtalin skip tilkynnt um 7.680 lesta afla: Harpa RE 600 til Raufarhafnar, Börkur NK 1.330 til Neskaupstað- ar, Öm KE 750 óákveðið, Rauðsey AK 610 til Bolungarvíkur, Hrafii GK 630 til Raufarhafnar, Ftfíll GK 640 til Siglufjarðar, Húnaröst ÁR 620 til Seyðisfjarðar,~Magnús NK óákveðið, Gísli Ámi RE 610 til Siglu§arðar, Gígja VE 750 til Vestmannaeyja og Guðmundur Ólafur ÓF 610 til Bolungarvíkur. Fundir Alþingis töfð- ust vegna mótmæla FIJNDIR Alþingis töfðust nokk- uð í gær vegna mótmælaaðgerða stjómarandstöðuflokkanna. Þingmenn flokkanna gengu úr salnum þegar Jón Baldvin Hannibalsson, fjármálaráðherra, mælti fyrir frumvörpum í efrí deild, en fyrr um daginn hafði Albert Guðmundsson hótað að stöðva afgreiðslu allra frum- varpa með málþófi. Að loknum fundi í sameinuðu þingi átti að vera fundur í efri deild, en honum varð að fresta þar eð þingmenn Borgaraflokksins kusu að vera ekki viðstaddir. Fund- urinn hófst síðan kl. 17 og voru nokkur mál afgreidd. Þegar kom að Jóni Baldvini Hannibalssyni, fjármálaráðherra, að mæla fyrir ftumvörpum ríkisstjómarinnar um breytingar á lögum um söluskatt, vörugjald og tolla, kröfðust fulltrú- ar stjómarandstöðunnar fímm minútna fundarhlés til að ráða ráð- um sínum. Að hléinu loknu krafðist Svavar Gestsson þess fyrir hönd stjómarandstöðunnar að rætt yrði um frumvörpin hvert fyrir sig. Fjár- málaráðherra hélt áfram ræðu sinni og gengu stjómarandstöðuþing- menn út meðan á henni stóð. Að ræðunni lokinni komu þeir aftur inn og krafðist Svavar þess nú að fundi yrði frestað. Var það samþykkt og hófst fundur 2’/2 klukkustund síðar. Stjómarand- stæðingar ræddu þá frumvörpin hvert fyrir sig, þótt fjármálaráð- herra hefði mælt fyrir þeim í einu lagi. Sjá fregnir af Alþingi á bls. 33 Morgunblaðið/Sverrir Námsmenn ganga áleidis til Alþingis eftir Lækjargötunni. Námsmenn krefjast leiðréttingar á lánum Framfærsluvísitalan: Hækkunum 24,4% á síð- asta ári 30,9% verðbólga síðustu 3 mánuði Framfærslu vísitalan hækkaði um 1,98% frá nóvember til des- ember, samkvæmt útreikningum kauplagsnefndar. Hefur fram- færsluvisitalan þá hækkað um 24,4% síðustu 12 mánuði. Hækk- un vísitölunnar um 1,98% frá nóvember til desember svarar til 26,5% árshækkunar. Undanfarna þijá mánuði hefur vísitalan hækkað um 7% og jafngildir sú hækkun 30,9% verðbólgu á heilu árí. Hækkunin nú stafar aðallega af hækkun á verði matvöru, eða 0,9% af 1,98. Þar af hækkuðu mjólk, ijómi, ostar og egg um 14,88% sem er 0,62% af hækkun vísitölunnar. Þá hækkuðu kartöflur og vörur úr þeim um 11,79% en það veldur að- eins 0,05% hækkun á vísitölu. Aðrar helstu hækkanir eru á húsnæðislið, 0,4%, 0,3% stafa af hækkun rafmagns og húshitunar- kostnaði og um 0,4% stafa af hækkun á verði ýmsrar vöru og þjónustu. TÆPLEGA 200 námsmenn gengu fylktu liði með kyndla frá Háskólanum til Alþingis í gær, og afhentu menntamála- ráðherra, Birgi ísleifi Gunnars- syni, áskorun með undirskríft- um um 2.900 nema. í áskoruninni er skorað á ráð- herra að afnema áhríf frysting- ar á upphæð námslána sem varð á árunum 1985-86 í tíð fyrrver- andi menntamálaráðherra, Sverris Hermannssonar. Það voru stjómir Stúdentaráðs Háskóla fslands og Bandalags íslenskra sérskólanema sem stóðu fyrir undirskriftasöfriuninni og göngunni, og afhenti Ómar Geirs- son, formaður Stúdentaráðs, menntamálaráðherra undirskrifta- listana. Auk þess afhenti Kristján Ari Arason, formaður Sambands íslenskra námsmanna erlendis, Birgi áskorun frá SÍNE, þar sem sagt er að ákvörðun Sverris Her- mannssonar hafí skert námslán námsmanna eriendis um 20% að meðaitali, og skorað er á ráðherra að leiðrétta það. Fréttamenn Útvarps um mál Stefáns Jóhanns Stefánssonar: Astæður fyrir rannsókn- um eru óljósar eða ókunnar Birgir ísleifur Gunnarsson, menntamálaráðherra, með undirskrífta- lista námainanna Mikligarður framlengir krítarkortatímabilið FRÉTTAMENN á fréttastofu Útvarpsins hafa sent til blað- anna greinargerð vegna um- fjöUunar um fréttaflutning fréttastofunnar um Stefán Jó- BLAÐ B hann Stefánsson. í yfirlýsingu fréttamannanna sem fylgir greinargerðinni kemur meðal annars fram að hvorki útvarps- stjóri né útvarpsráð hafi beðið BLAD D fréttastofuna um skýríngar eða greinargerð á málinu og að út- varpsráð hafi ályktað um málið án þess að hafa leitað tíl frétta- stofunnar eftir upplýsingum. „Ástæður fyrir þeim rannsókn- um sem óskað hefur veríð eftir eða þegar eru hafnar eru óljós- ar eða ókunnar með öllu,“ segir þar einnig. „Hvað vakir fyrir útvarpsráði? Hvað vill það fá fram í könnun sem það leggur til að verði gerð?“ spyija fréttamennimir. í yfírlýs- ingunni segja fréttamennimir að kæra sé gmndvöllur umfjöllunar hjá siðanefnd Blaðamannafélags íslands og spyija hver sé kærður og fyrir hvað. Þá segja þeir að erfítt sé að sjá hvaða tilgangi könnun Félagsvísindastofnunar Háskóla íslands, sem útvarpsstjóri hefur óskað eftir, á vinnubrögðum starfsmanna, þjónar eða hvemig henni yrði við komið. Þeir segja að þeirri spumingu sé ósvarað hvers vegna útvarpsstjóri kýs að vfsa málinu til Félagsvísindastofn- unar þegar siðanefiid hafí tekið málið fyrir. Sjá greinargerð og yfirlýs- ingu fréttamanna Utvarps á bls.18 MIKLIGARÐUR hefur ákveðið að framlengja greiðslutímabU krítarkorta, þannig að vöruút- tektír frá og með deginum I dag, föstudag, koma tíl greiðslu hinn 2. febrúar næstkomandi. Jón Sigurðsson, framkvæmda- stjóri Miklagarðs, sagði augljóst að margir biðu með jólainnkaup þar til næsta greiðslutímabil hefst þann 18. desember næstkomandi. Þá væm hins vegar aðeins 5 versl- unardagar til jóla. Jón sagði, að þá yrði örtröð mikil f versluninni og hefði verið ákveðið að færa greiðslutímabilið fram til að létta á starfsmönnum verslunarinnar og koma til móts við þá, sem ætl- uðu sér að nota krítarkort. Þá benti hann á, að bókaverslanir hefðu tekið þetta fyrirkomulag upp og það mælst vel fyrir, en Mikligarður seldi einnig bækur í bóka- og ritfangadeild sinni. i dag
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað: 282. tölublað (11.12.1987)
https://timarit.is/issue/121537

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.

282. tölublað (11.12.1987)

Aðgerðir: