Morgunblaðið - 11.12.1987, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 1987
eeM* I LEIÐTOGAFUNDURINN I WASHINGTON
opinbera veislu þá er Sovétleið-
toginn bauð til í fyrrakvöld.
Börnin, eitt handleggjalaust,
annað skaðbrennt og tvö fóta-
laus, höltruðu því að steinsteypu-
garði nokkra metra frá
sendiráðsbyggingunni, lögðu
blómin á jörðina og fóru við svo
búið.
Nokkrum mínútum síðar komu
forsetahjón Bandaríkjanna, þau
Ronald og Nancy Reagan, til máls-
verðarins, þar sem þau sátu til borðs
með Míkhaíl Gorbatsjov og konu
hans Raísu.
Bömin, sem eru á aldrinum sex
til fjórtán ára, ” komu til Banda-
ríkjanna fyrir nokkrum dögum til
þess að leita sér læknishjálpar, að
sögn Charles Brockunier, talsmanni
Friðarhóps afganskra bama, sem
er góðgerðarstofnun í Boston.
Yusaf Kahn, 14 ára gamall
drengur sem missti báða handlegg-
ina í sprengjuárás Sovétmanna á
heimaþorp • sitt, hafði blómvöndinn
skorðaðan í vesti sínu.
í fyrstu kom sovéskur sendiráðs-
starfsmaður út og sagði Brockunier
að hann myndi skýra viðkomandi
stjómarerindreka frá málaleitan
hópsins. Um hálftíma síðar kom
bandarískur lögregluþjónn að máli
við Brockunier og sagði honum að
sendiráðið hefði haft samband við
lögregluna og sagt að allir starfs-
menn þess væru of önnum kafnir
til þess að geta hitt bömin eða tek-
ið við blómvöndunum. „Þeir sögðu
að þeir gætu ekki tekið á móti okk-
ur vegna þess að allir væm of
uppteknir við að undirbúa hinn op-
inbera málsverð. Við höfðum vonað
að þeir myndu hitta okkur í anda
détente-stefnunnar. “
Reuter
Raísa Gorbatsjova veifar til blaðamanna við Hvita húsið, er hún kom þangað í heimsókn til Nancy Reagan.
Karlarnír urðu dús en
konumar þérast enn
Washington, frá önnu Bjarnadóttur fréttaritara Morgunblaðsins.
RAÍSA Gorbatsjova komst ekki í búðir og sá lítið af Bandaríkjun-
um dagana sem hún var í Washington, en hún hitti þó nokkurn
fjölda af áhugaverðu fólki. Pamela Harriman, ekkjan Averells
Harriman, sem var sendiherra í Sovétríkjunum á stríðsárunum,
bauð henni til sín í gærmorgun og þar voru nokkrar af áhrifa-
mestu konum Bandaríkjanna.
Frú Harriman er eftirsóttur
gestgjafi í höfuðborginni og Anat-
olíj Dóbrínin, fyrrverandi sendi-
herra Sovétríkjanna í Washington,
fór fram á að hún byði Raísu í
heimsókn. Hún féllst á það og
bauð Söndru Day O’Connor,
hæstaréttardómara, Nancy Kasse-
Reuter
Þar til við hittumst
í Moskvu
í veislu, sem Gorbatsjov Sovétleiðtogi hélt Reagan Bandaríkja-
forseta til heiðurs á miðvikudagskvöld bar margt á góma, en
áður en veislunni lauk skálaði Gorbatsjov fyrir forsetanum og
óskaði honum góðrar heilsu og lífshamingju. Minnti hann Reag-
an síðan á að þeir myndu hittast að nýju, lyfti glasi sínu og
mælti: „Þar til við hittumst í Moskvu.
baum, öldungadeildarþingmanni,
Katharine Graham, útgefanda
Washington Post og Honnuh Hol-
bom Gray, rektor Chicago-
háskóla, meðal annarra í heimsókn
með leiðtogafrúnni.
Raísa tók á móti armenskum
Ameríkönum í sovéska sendiráðinu
áður en hún fór til Harriman. Þeir
færðu henni gjafir og þökkuðu
Sovétmönnum aðstoðina í barátt-
unni við Tyrki 1915-1919.
Frú Gorbatsjova leggur áherslu
á það, að hún sé menntuð kona
og sagði blaðamönnum að hún
hefði doktorsgráðu í heimspeki og
sýndi áhuga á myndlist og banda-
rískri sögu, þegar hún skoðaði
Listasafn ríkisins og Hvíta húsið.
Hún óskaði sérstaklega eftir að fá
að skoða embættisbústað forsetans
áður en hún kom til landsins og
Nancy Reagan Ieiddi hana um
húsið áður en þær drukku kaffi
saman I ró og næði á miðvikudags-
morgun.
Raísa spurði Nancy í þaula um
sögu hússins og muni í því. For-
setafrúin kunni ekki svör við þeim
öllum og aðstoðarkona hennar varð
að hlaupa í skarðið. Blaðamenn
fylgdu þeim í skoðunarferðinni.
Raísa var vingjamleg og vildi
gjaman spjalla við þá, en Nancy
var ekki á því og togaði stöllu sína
eitt sinn í burtu frá fréttamönnun-
um. Henni gafst þó tækifæri til
að segja að henni þætti Hvíta hús-
ið helst til formlegt. „Fólk vill búa
í venjulegu húsnæði," sagði eigin-
kona leiðtoga Sovétríkjanna.
„Þetta er safn. Það er mjög al-
mennilegt af frú Reagan að segja
mér sögu hússins." Nancy sýndi
henni ekki einkahíbyli forsetahjón-
anna á efri hæð hússins.
Það hefur mikið verið skrifað
um samkeppni á milli kvennanna
undanfama daga en báðar segja
að það sé kjánalegt að tala um
slíkt. Það dróst á langinn að Nancy
fengi svar um hvort Raísa kærði
sig um að drekka með henni kaffi
á meðna eiginmenn þeirra ræddu
heimsmálin í Washington og hún
þurfti að reka á eftir svari, en frú
Gorbatsjova þáði boðið að lokum
og þær ræddu m. a. eiturlyf þegar
þær hittust. Raísa sagði að alkóhól
væri helsti fíknilyfjavandi Sov-
étríkjanna, en benti Nancy þó á
rússneska bók um eiturlyfjavand-
ann. Forsetafrúin sagðist hafa
áhuga á að kynna sér hana.
Gorbatsjov-hjónin virtust
skemmta sér konunglega í kvöld-
verðarboði Reagan-hjónanna á
þriðjudagskvöld. Þau tóku undir
með Van Clibum, píanóleikara,
þegar hann lék sovéska söngva og
voru lengur í veislunni en vænst
var. Karlamir urðu dús og kalla
nú hvor annan Ron og Míkhaíl en
konumar þérast enn.
Gorbatsjov í
Washington:
Frægt fólk
á námskeiði
í „glasnost“
Washington, Reuter.
MÍKHAÍL Gorbatsjov tókst hið
ómögulega á þriðjudagskvöld.
Hann hélt námskeið í glasnost
fyrir hundrað fræga Bandarikja-
menn.
Færri komust að en vildu í sov-
éska sendiráðinu í Washington
þegar sovétleiðtoginn útlistaði
stefnu sína. Meðal viðstaddra voru
Henry Kissinger, Yoko Ono, Paul
Newman, Billy Graham, Cyrus
Vance, Robert DeNiro, Norman
Mailer, Robert McNamara, Carl
Sagan og John Kenneth Galbraith.
Eftir fyrirlesturinn fengu viðstaddir
að spyrja Gorbatsjov spuminga.
Sagði Kissinger fyrrverandi ut-
anríkisráðherra að fyrirlesturinn
hefði verið „mun gáfulegri en
spumingarnar".
Náttúruverndarsamtök
í Bandaríkjunum:
Hvetja Sov-
étmenn til
að fordæma
hvalveiðar
BAK við tjöldin í Washington
þrýsta dýravemdunarsamtök á
Sovétmenn um að fordæma hval-
veiðar en þeir hættu slíkum
veiðum nú í vor.
„Sovétmenn myndu snúa al-
menningsáliti heimsins sér í vil ef
þeir fordæmdu hvalveiðar opinber-
lega,“ sagði David McTaggart
formaður Greenpeace Intemational.
Samkvæmt uppplýsingum við-
skiptaráðuneytis Bandaríkjanna er
líklegt að William Verity viðskipta-
ráðherra Bandaríkjanna taki málið
upp á fundi nú f vikunni með full-
trúa úr sovéska viðskiptaráðuneyt- •
inu að beiðni 30 náttúruvemdar-
samtaka.
Stríðsfötluð afgönsk börn:
Fengu ekki að
skilja eftir blóm
handa Gorbatsjov
Wáshington, Reuter.
SOVÉSKIR stjórnarerindrekar
neituðu í fyrradag fjóram böm-
um, sem fötluð eru eftir heraað
Rauða hersins í Afganistan, að
skilja eftir blóm til Míkhaíls Gor-
batsjovs í sendiráði Sovétríkj-
anna í Washington. Ástæðuna
sögðu þeir vera þá, að þeir væru
of önnum kafnir við að undirbúa
Fulltrúi
Islands var
við undir-
ritunina
LEIÐTOGAR risaveldanna,
þeir Ronald Reagan Banda-
ríkjaforseti og Míkhaíl Gor-
batsjov Sovétleiðtogi, undirrit-
uðu sem kunnugt er sáttmála
um upprætingu skamm- og
meðaldrægar kjarnorkuflaug-
ar á þriðjudag. Fór undirritun-
in fram í Hvita húsinu og var
fulltrúi íslands, Hörður Bjarna-
son, sendiráðunautur, þar í
fjarveru Ingva S. Ingvarssonar,
sendiherra, sem nú er að af-
henda trúnaðarbréf í Suður-
Ameríku.
Morgunblaðið hafði samband við
Hörð og spurði hvemig athöfnin
hefði fram farið. Sagði Hörður að
í sjálfu sér væri litlu að bæta við
það, sem sést hefði sjónvarpsút-
sendingu um heim allan. Leið-
togamir hefðu gengið í salinn, flutt
stutt ávörp, skrifað undir og síðan
haldið á braut til þess að flytja sjón-
varpsræður sínar.
Við undirritunina voru staddir
allir helstu embættismenn ríkis-
stjómar Reagan, fyrirliðar samn-
inganefnda ríkjanna, leiðtogar
Bandaríkjaþings, stjómarerindrek-
ar Atlantshafsbandalagsríkja, auk
ýmissa gesta annarra.