Morgunblaðið - 11.12.1987, Blaðsíða 32
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 1987
„GAUKURAKUREYRAT
1. flokks matur
á teríuverði
EKTA PIZZUR
OpiÖ um helgar
frákl. 11.30-03.00
Virka daga
Jrákl. 11.30-01.00
v/Ráöhústorg
r
Stjórnendur fyrirtækja
og verslana ath!
Því ekki að létta Iund
starfsfólksins í jólaösinni
og bjóða þeim upp á snitt-
ur, smurt brauð eða jafnvel
heitan mat frá
HÓTELKEA.
Nánari upplýsingar og
pantanir í síma 22200.
AlliríZebra
Diskótek
é 2 hæðum
Ath! 18 ára aldurstakmark.
Vrltlngastaöur. Hafnarstrœtl ÍOO. sirnl 25500
Tilboð Bautans
ídesember
f hódeginu
Innkaupadiskurinn
i(kaldir kjötréttir og ffekróttur)
ásamt súpu og salatbar.
Kr.450,-
í kaffinu
Búöarápsdiskurinn
(snitta, kökusneiö og kaffi)
Kr. 180,-
JÓLAGLÖGG
Hafnarstræti 92 - Sími 21818.
Pilturogstúlka
Leikstjóri: Borgar Garðarson
Leikmynd: Örn Ingi Gíslason
Lýsing: Ingvar Björnsson
Tónlist: Jón Hlöðver Áskelsson
Frumsýning flnnan dag
jóla kL 17.00
2. sýning sunudaginn
27. des. kJ. 20.30
3. sýning þríðjudaginn
29. des.kl. 20.30
4. sýning miðvikudaginn
30. des. kl. 20.30
5. sýning fimmtudaginn
7. janúarkl. 20.30
6. sýning föstudaginn
8. janúarkl. 20.30
7. sýning laugardaginn
9. janúarkl. 18.00
8. sýning sunnudaginn
10. janúarkl. 15.00
. Ath. brcyttan sýningartíma.
Forsala aðgöngumiðú hafin.
Gfrtfaknctið slcöor - tUvmlin
Mmiðasala
96-24073
ÍSKFéLAG AKURGYRAR
Hlutafélag Siglfirðinga og K.
um gaffalbitaframleiðslu
Jónsson
SIGLFIIUDINGAR safna nú
hluthöfum í nýtt fyrirtæki þar
í bæ er hlotið hefur nafnið SOd
hf. Markmiðið með stofnun fyr-
irtækisins er það að halda
gaffalbitaframleiðslu Sigló hf.
áfram í bænum, en eins og fram
hefur komið í fréttum hefur
Sigló hf. selt gaffalbitafram-
leiðsluvélar sínar ásamt fram-
leiðslurétti tíl Fiskimjölsverk-
smiðju Hornafjarðar fyrir 21
mllljón króna.
„Okkur var aldrei boðið að
kaupa vélar og framleiðslurétt
gaffalbitanna, heldur var gerður
samningur við Homfírðingana án
vitneskju nokkurs hér í bæ,“ sagði
Hafþór Rósmundsson formaður
verkalýðsfélagsins Vöku á Siglu-
fírði, en Vaka verður einn hluthafa
ásamt Siglufjarðarbæ og einstakl-
ingum. Ríkið stofnaði gaffalbita-
verksmiðrjuna á Siglufirði fyrir um
það bil 25 árum, en seldi hana
einkaaðilum á Siglufírði árið 1984.
í þeim sölusamningi vom kvaðir
af hálfu ríkisins um að starfsemin
flyttist ekki úr bænum, að sögn
Hafþórs. Gaffalbitaframleiðslan
mun vera 13% af veltu Sigló hf.,
en fyrirtækið stundar mest rækju-
framleiðslu. Tap á gaffalbitafram-
leiðslu Sigló hf. fyrstu níu mánuði
þessa árs mun hafa verið um 11
milljónir króna. Um tuttugu
manns hafa unnið að staðaldri við
gaffalbitaframleiðsluna og þykir
Siglfírðingum sárt að sjá á eftir
þeim atvinnutækifæmm úr bæn-
um.
„Við emm að stofna hlutafélag-
ið í samvinnu við K. Jónsson á
Akureyri sem er stærsta niður-
lagningaverksmiðja á landinu og
með sín viðskiptasambönd og ann-
að sem því fylgir telur Kristján
Jónsson að hægt sé að reka slíka
verksmiðju áfram á Siglufírði. K.
Jónsson kemur til með að eiga
meirihluta í nýja fyrirtækinu, 51%,
og Siglfirðingar 49%. Hann er
ekkert að gera þetta af góðsemi
einni saman við Siglfírðinga enda
væri hann ekki að þessu ef hann
tryði ekki á velgengni fyrirtækis-
ins,“ sagði Hafþór.
Sölustofnun lagmetis gerir sölu-
samning við Rússa um gaffalbita
enda em Rússar einu kaupendum-
ir að framleiðslunni. Gaffalbita-
framleiðsla hvers árs hefur hingað
til skipst jafnt á milli K. Jónssonar
og Sigló hf. Á þessu ári mátti
framleiða 60.000 kassa af gaffal-
bitum sem skiptist til helminga á
milli fyrirtækjanna. Sölusamning-
ur fyrir næsta ár verður væntan-
lega gerður við Rússa í
janúarmánuði, en reiknað er með
svipuðu magni. Að sögn Hafþórs
hefur verð á gaffalbitunum haldist
nokkuð í hendur við síldarverðið,
sem nú hækkaði í dollurum um
11% frá því í fyrra. Samkvæmt
viðræðum okkar við Sölustofnun
lagmetis, iðnaðarráðuneyti og
íjármálaráðuneyti virðist forsenda
fyrir því að halda fyrirtækinu á
staðnum vera sú að sækja um
aðild að Sölustofnun lagmetis og
ganga frá stofnun nýja hlutafé-
lagsins.
„Siglfírðingar hafa haft þennan
framleiðslurétt í 25 ár og Sigló
hf. hefur engan rétt til að selja
þennan framleiðslurétt úr bænum
þótt þeir selji einhverjar fram-
leiðsluvélar austur á land. Við
höfum lýst því yfír að þetta nýja
fyrirtæki sé tilbúið til að ganga
inn í samning Sigló hf. og Hom-
fírðinganna, en við höfum# fengið
þvert nei við því og það stendur
ekki til boða eins og er. Sigló hf.
þarf leyfí iðnaðar- og flármála-
ráðuneytis til þess að selja fram-
leiðsluréttinn úr bænum.
Munnlegt samþykki fékkst frá iðn-
aðarráðuneyti, en skriflegt
samþykki beggja ráðuneytanna
hefur ekki fengist ennþá,“ sagði
Hafþór.
Homfírðingar hafa nú þegar
fengið aðild að Sölustofnun lag-
metis og er það ætlun þeirra að
framleiða gafífalbita til helmings á
við K. Jónsson. „Við ætlum líka
að sækja um aðild að Sölustofnun
lagmetis eftir að við höfum komið
fyrirtækinu saman eftir helgina
og síðan verðum við bara að slást
um fyrirtækið. Það er engin for-
senda fyrir því að ætla að fara
að skipta framleiðsluréttinum upp
á milli þriggja fyrirtækja og hefur
Sölustofnun Iagmetis viðurkennt
það. Við viljum ekki trúa því að
hægt sé að selja framleiðslurétt
eins byggðalags með vélasam-
stæðu," sagði Hafþór.
Fæ ekki að synsja í óperunm
án þess að greiða með mér
— segir Páll Jóhannesson óperusöngvari
PÁLL Jóhannesson óperu-
söngvarí efnir til tónleika í
Borgarbíói nk. laugardag kl.
16.00 til að fylgja nýrrí hljóm-
plötu sinni úr hlaði. Hljómplat-
an ber heitið „Ég syng um þig“
og inniheldur hún lítt þekkt
íslensk lög auk ítalskra ástar-
söngva. Þetta er önnur hljóm-
plata Páls, en hann hefur Iagt
stund á óperunám á ítaliu í
fimm vetur. Páll kom heim tii
íslands fyrir rúmu ári, en er á
förum til Þýskalands í febrúar-
mánuði til að freista gæfunnar,
eins og hann sjálfur komst að
orði í samtali við Morgunblaðið.
Hann sagði að draumurinn værí
að syngja óperuaríur inn á
hljómplötu við undirleik sin-
fóníuhljómsveitar.
„Ég hafði hugsað mér að halda
aðra tónleika í höfuðborginni fyrir
jólin meðal annars til að kynna
nýju plötuna mína og hafði ég hug
á því að fá Gamla bíó, hús ís-
lensku óperunnar, til afnota enda
var það upprunalega látið af hendi
til að styðja við bakið á íslenskum
söngvurum. „Það er skemmst frá
því að segja að mér var synjað
um aðgang að húsinu þá daga,
sem ég helst hafði hug á, 5. eða
12. desember, á þeim forsendum
að þessir dagar væru uppteknir.
Ekki veit ég þó til þess að svo
hafí verið. Hinsvegar gat ég feng-
ið húsið önnur kvöld gegn að
minnsta kosti 35.000 króna leigu,"
sagði Páll.
Styrktarfélag íslensku ópe-
runnar auglýsti fyrir skömmu eftir
söngvurum þar sem meiningin var
að halda tónleika í húsinu að
minnsta kosti einu sinni í mánuði.
„Ég sótti um og þurfti að bíða
þess að sérstök nefnd kæmi saman
til að taka ákvörðun í málinu —
nefnd frá óperunni og frá styrktar-
félaginu skilst rnér. Nefndin hafði
Sjá frétt um friðarsýningu í
Möðruvallakjallara á bls. 31.
ekki einu sinni fyrir því að kynna
sér viðkomandi söngvara áður en
lokasvarið var fengið. Fyrir kvöld-
ið greiðir styrktarfélagið lista-
mönnunum 30.000 krónur fyrir
að troða upp á meðan ég og aðrir
utan klíkunnar svokölluðu geta
fengið að syngja í herlegheitunum
gegn því að greiða með okkur
hærri upphæð. Það er löngu vitað
að fyrirtækið ber sig engan veg-
inn, en með slíku fyrirkomulagi
er verið að mismuna íslenskum
söngvurum stórlega. Sömu söngv-
aramir fá að æfa sig nótt og dag
á sviði Gamla bíós og taka þátt í
sýningum íslensku óperunnar ár
eftir ár á meðan aðrir fá engin
tækifæri. Augljóslega á að nýta
þá söngvara sem fá að sitja úti í
kuldanum til að grynnka á skuld-
unum svo þessir sömu aðilar „vinir
íslensku óperunnar" geti haldið
áfram hringavitleysunni.
Islenska óperan er lokaður
heimur og greinilega er ekki stað-
ið að málum sem skyldi. Valdabar-
átta og klíkuskapur ræður ríkjum
innan veggja hennar og það er
vinareglan sem gildir þama, mað-
ur þekkir mann og kemst áfram,
án þess að hugsað sé um gæðin.
Einn nefndarmaðurinn spurði mig
meira að segja hvort Garðar Cort-
es stjórnarformaður væri persónu-
lega á móti mér þegar mér
hugkvæmdist að sækja um að fá
að halda mína hljómleika þarna. Á
þessu sést greinilega hvað er að
gerast,“ sagði Páll.
Hann sagði að Gamla bíó hefði
verið arfur frá velviljuðum hjónum
svo það mætti verða íslenskum
söngvurum til framdráttar. Einum
manni hefði hinsvegar verið rétt
húsið upp í hendumar til að ráðsk-
ast með eftir eigin höfði. „Hann
og aðrir þama innan dyra hafa
eflaust látið margt gott af sér
leiða. Óperan má þó ekki staðna
án þess að uppbyggingin fái að
þróast á eðlilegan hátt. Sú hugsun
hefur oft komið upp að maður
hafí ef til vill ekki nógu frambæri-
lega rödd. en ég veit að sú hugsun
er röng. Ég hef margsinnis verið
að því spurður hvers vegna ekkert
heyrðist í mér á listasviðinu enda
ekki að furða þó menn séu famir
að velta því fyrir sér. Ég vil hins-
vegar meina að ákveðnir aðilar
hafí staðið í veginum fyrir því að
ég hafi fengið að njóta mín sem
skyldi. I þau skipti sem ég hef
haldið sjálfstæða tónleika hef ég
fengið mjög góða dóma og frábær-
ar viðtökur áheyrenda."
Páll sagði að um nokkurt skeið
hefði staðið fyrir dyrum samvinna
Islensku óperunnar og Þjóðleik-
hússins þannig að fyrirtækin nytu
aðstöðu hvors annars. „Slík sam-
vinna er auðvitað góðs viti, en
ekki hefur þó enn orðið að sam-
starfínu þó hugmyndin sé orðin
nokkuð gömul. Stjómarformaður
óperunnar vill augljóslega halda
valdabrölti sínu áfram án þess að
PÁLL Jóhannesson má syngja i
slensku óperunni hvenær sem
er, að því tilskildu að húsið sé
ekki þegar pantað. Sú var hins
vegar raunin það kvöld sem Páll
vildi syngja,“ sagði Katrín H.
Árnadóttir, framkvæmdastjóri
íslensku óperunnar, vegna orða
Páls um að honum hafi veríð
meinað að syngja í óperunni.
Katrín var innt eftir því hvemig
málum væri háttað þegar menn
óskuðu eftir að syngja í húsinu,
hvort ’þeir fengju greitt fyrir eða
hvort þeir þyrftu að greiða kostnað
Páll Jóhannesson
missa spón úr aski sínum.“
Páll sagðist hafa í ýmsu að snú-
ast á Akureyri þessa dagana.
Hann tekur þátt í Lúsíuhátíð, sem
haldin verður í Akureyrarkirkju
þann 12. desember og þann 16.
desember tekur hann þátt í tón-
ieikum í kirkjunni með Passíu-
kómum.
sjálfir. „Ef fólk kemur hingað og
óskar eftir að syngja í húsinu þá
leigir það húsið og sér um miðasölu
sjálft," sagði Katrín. „Ég get í þessu
sambandi bent á skemmtanir Ladda
fyrir skömmu og tónleika Megasar.
Það er enginn sem metur hvort
menn fái tækifæri til að syngja í
húsinu, því íslenska óperan leggur
aðeins listrænt mat á hluti þegar
verið er að uppfæra verk í hennar
nafni. Þá verða menn að sjálfsögðu
að gangast undir prufusöng, en það
á ekki við þegar söngvari vill leigja
húsið fyrir tónleika," sagði fram-
kvæmdastjóri íslensku óperunnar.
Framkvæmdastjóri íslensku óperunnar:
Páli frjálst að
syngja í húsinu